Tíminn - 13.06.1959, Síða 6

Tíminn - 13.06.1959, Síða 6
6 T í M I N N, laugardaginn 13. júní 1959, Útgefandl: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Ritstjóri: Þórarinn Þórarínsson. Skrifstofur í Edduhúsinu við Lindargðtn Símar: 18 300, 18 301, 18 302, 18 303, 18 304. (skrifstofur, ritstjórnin og blaBamenn) Auglýsingasimi 19 523. - Afgreiðslan 1232S Prentsm. Edda hf. Síml eftir kl. 18: 13948 Vatneyrarmálið í BLÖÐUM hefur nýlega verið skýrt frá því, aö tveir útgerðarmenn á Patreksfirði, Garðar Jóhannesson og Frið þjófur Jóhannesson, hafi ný- lega verið dæmdir í Saka- dómi Reykjavíkur í þungar sektir fyrir brot á gjaldeyris- löggjöfinni og bókhaldslög- gjöfinni. Hvorugur hefur kosið að áfrýja dómnum og hafa þeir þannig játað sekt sína. . Þótt blöðin hafi sagt frá þessum dómum, hafa þau ekki gert það á neitt áber- andi hátt. Mbl. virðist t.d. segja frá þeim rétt fyrir siða sakir á einni öftustu síðu sinni. Meðal almennings hafa þeir heldur ekki vakið verulega athygli. Það er eins og mönnum þyki það ekki nein nýlunda, þótt uppvíst verði um slík brot í einka- rekstrinum. ÞAÐ má hins vegar vel gera sér í hugarlund, að öðru vísi hefðu Mbl. og Vísir sagt frá þessum málum, ef hinir brotlegu hefðu verið starf- andi á vegum samvinnufélag anna. Þá hefðið verið notað stærsta fyrirsagnaletur í þess um blöðum og brotin skrifuð hiklaust á reikning samvinnu hreyfingairnnar allrar. Og þá -hefði ekki heldur verið hlífzt við að bendla Fram- sóknarflokkinn við þau. Ef andstæðingar Sjálfstæö isflokksins teldu sér leyfileg siík vinnubrögð og Sjálfstæð isflokkurinn beitir, þá myndu þeir grípa þetta tækifæri til rógsherferðar gegn útgeröar mönnum og verzlunarmönn- um yfirleitt, og ekki heldur hlífast neitt við það að draga Sjálfstæðisflokkinn inn í málið. í því sambandi væri t.d. auðvelt að benda á það, að þeir Friðþjófur og Garðar áttu ekki hvað minnstan þátt í því, að Sjálfstæðis- flokknum tókst að vinna Barðastrandarsýslu á sínum tíma. Sem betur fer, er stjórn- málabaráttan hér enn ekki komin á það stig, að yfirleitt sé fylgt því fordæmi blaða- manna.Mbl. og Vísis, að nota brot einstakra manna til að sverta heilar stéttir, stór fé- lagssamtök eða flokka. Hinir þýzk-menntuðu forsprakkar Sj álfstæðisflokksins eru und antekningarlítið einir um þau vinnubrögð. ÞAÐ er annars ástæöa til þess að veita því athygli, að þegar uppvíst verður um einhver brot hjá starfs- manni, sem vinnur hjá sam- vinnufélagi eða fyrirtæki, sem er tengt samvinnuhreyf ingunni, þá vekur það miklu meiri athygli en þó svipuð brot séu framin í einkarekstr dnum. Vitanlega hvílir sama skylda á þeim, sem vinna að einkarekstrinum, og þeim, sem vinna við samvinnufyrir tæki, um að hlíta landslög- um. En brotin, sem hafa átt sér stað í samvinnurekstrin- um, hafa verið svo miklu fátíðari. Þess vegna vekja þau athygli. Af þeim ástæð- um virðist það orðin hefð að gera miklu meiri kröfur til samvinnufélaganna en einka rekstrarins. í þessu er fólgin mikil viðurkenning fyrir sam- vinnuhreyfinguna. Þetta má vera henni hvatning til að kappkosta það, að slíkt álit haldist áfram. Að vísu verð ur aldiæi fullkomlega girt fyrir það, að ekki geti ein- hver slík óhöpp komið fyrir í hreyfingu, sem hefur orðið jafnumfangsmikla starf- semi. En að því ber að stefna að þau haldi áfram að vera miklu hlutfallslega færri þar en annars staðar, eins og verið hefur hingað til. UM þessar mundir eru miklar dylgjur um það, að einhver mistök hafi átt sér stað í rekstri olíufélaga þeirra, sem samvinnuhreyf- ingin stendur að, á Kefla- víkm-flugvelli. Af hálfu sam- vinnumanna er einskis frek ar æskt en að mál þessi verði rannsökuð til fulls og þeir, sem brotlegir kunna að reyn ast, sóttir til sektar. En vitan lega er það fjarri öllu lagi, að ætla að skrifa mistök, sem einstakir menn kunna að reynast þér sekir um, á reikn ing samvinnuhreyfingarinn- ar eða Framsóknarflokksins. Það væri álíka og ætla að áfellast alla útgerðarmenn landsins og Sjálfstæðisflokk inn vegna Vatneyrarmáls- ins. Shkan málflutning leyfa sér ekki aðrir en lærisveinar Hitlers og andlegir bræður þeirra. Heilbrigð viðbrögð almeimings VÍÐA að af landinu berast vaxandi fréttir af því, að það muni síður en svo bæta hlut Sjálfstæðisflokksins, hve mikið kapp hann leggur á að elta uppi og undir- oka þá fylgismenn sína, sem eru andvígir kjördæmabylt- ingunni. Menn finna sem er, að þeir starfshættir, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur hér gripið til eru í fyllstu and stöðu við það frjálsræði, sem kjósendur eiga að njóta & lýöræöislantíí. Það er sannarlega ánægju legt, að almenningur skuli snúast þannig við þessum ó- svífnu og ólýðræðislegu starfsháttum Sjálfstæðis- flokksins. Því aðeins verður lýðveldið treyst og eflt í sessi að þau vinnubrögð, sem for ingjar Sjálfstæðisflokksins beita hér, verði fordæmd. Kosningaúrslitin nú þurfa í senn aö vera áfellisdómur um kjördæmaþyltinguna og ólýðræðislega starfshætti Sj álfstæðisflokksins. Krustjoff hefir losað svolítið um klafa rússneskra rithöfunda Krustjoff hefur nú losað lítiL' lega um múlinn á rússneskum rit- höfundum. Þeir eru þó enn fastir í hafti ritskoðunarinnar. Þeir eru enn spenntir fyrir æki hugsjóna- fræði flokksins, en það hefur verið1 slakað svolítið á ækisólunum, til þess að þeir gætu hlaupið fjör_ legar. Þetta er opinber tilraun til að hleypa meira lífi í bókmennta. sköpunina efir þvinganir síðustu ára, en rúsneskir rithöfundar hafa flestir verið sem hófkyrktir folar síðustu áratugi. Á ráðstefnu sovjetskra rithöf. unda, sem nýlega er lokið í iMoskvu lýsti Krustjoff yfir fullum sigri yfir hinurn bókmenntalegu „end- urskoðunarmönnum.“ Hann mælti til rithöfundanna sem hinn stór huga sigurvegari, og bauð þeim framrétta hönd til hjálpar inn á hinar réttu og gömlu og góðu slóðir bókmenntasögunnar. Öllum erjum skyldi gleymt, og aðeins ef menn væru einhuga, þá mundi allt ganga eins og í sögu. Formannsskipti Og sem tákni fyrir vaxandi sam. úð og skilning á komandi tímum, urðu formannsskipti í rithöfunda- sambandinu og slakað á eftirliti flokksins að minnsta kosti að nafn inu til. Lýst var yfir að rithöfund. ar fengju meira sjálfræði — að_ eins ef þeir virtu hugsjónir og sjón armið flokksins og þjónuðu þeim Hið langdræga stórskotalið ryður fótgönguliðinu braut, sagði Krustjoff við rithöfundana. Þegar stórskotaliðið hefur leiðsögu fyrir framgangi fótgönguliðsins, skýtur það yfir og fram fyrir eigin lið- sveitir. — Þess vegna verðið þið að skjóta lengra og nákvæmar, svo þið hittið mótstöðumenn ykkar en ekki ykkar eigin menn. Ræða Krustjoffs til rithöfund- anna einkenndist af því, bæði hvað snerti inntak og form, að hann var hinn mikli og dáðríki sigurvegari. Hann kastaði handriti sínu til hlið_ ar og greip í staðinn til athuga- semdabókar sinnar og lét móðann mása og gamminn geisa, og talaði eins og sá, sem ekki þarf að fara í launkofa með neitt eða kippa sér upp við smámuni. Um þessar mundir eru liðin 2 ár síðan Krustjoff gerði upp við rit_ höfundana, er þeir sýndu lit á að vilja fara eigin götur. Það leiddi síðan af sér uppgjörið við Molotoff og Malenkoff í hlutdeildarstjórn inni frægu, er talað var sem fjálg- legast um hina „samvirku for- ustu“. í þremur ræðum, sem Krustjoff hélt vorið 1957, en voru ekki birtar fyrr en 3 mánuðum síð- ar, krafðist hann .skilyrðislausrar hlýðni af rithöfundunum við flokk_ inn og stefnu hans — frá 1954 hafði ritskoðunin verið laus í reip- um, og þá komu fram bækur eins og „Bráðaþeyr" Ilja Eherburgs og „Ekki af einu saman bruði“ eftir Valdimir Dutintsev. Hinu hvat- orða tímariti „Litteraturnaja Moskva“ var lokað og þaggað nið_ ur í „óþægum“ rithöfundum. Sigurvegari Á rithöfundaþinginu í vor sagði Krustjoff, að Dutintsev hefði ekki verið sá versti, hann hefði í öllu falli ekki verið flokksfjandi, þótt bók hans hefði verið einhliða og yfirdrifin í þjóðfélagsádeilu sinni. Hún hefði þó skaðað landið vegna þess að hún hefði komið andstæð- ingum kommúnismans að góðum notum. Bókmenntirnar eiga ekki að vera snauðar gagnrýni, sagði Krustjoff, en þær eiga að vera já- kvæðar. Flokksforustan varð fyrst til þess að halda uppi sjálfsgagn- rýni og rithöfundarnir yrðu að muna að setja gagnrýni sína fram í 'jákvæðu markmiði. Dutintsev ekki sá versti Ég verð að biðja menn að mis_ skilja mig ekki, sagði Krustjoff. Ég er á engan hátt að verja menn, sem í verkum sínum lýsa hlutun- • um eins og þeir stæðu í engu sam. Gefur þeim meira olnbogarými með því skil yrði að þeir þjóni hugsjónum fíokksins Krustjoff heldur ræ3u á þingi rithöfundasambands Sovétríkjanna. bandi við lífið. I nokkrum bókum er tilveran skrautlýst. Slíkar bæk. ur eru tæplega nokkurs virði. En ég tek mér sæti við hlið þeirra höfunda, sem grundvalla verk sín á jákvæðum persónum. Við verð_ um að ala fólkið upp með góðum og jákvæðum dæmum, og benda því á það, sem vert er að lifa fyrir. Fordæmið getur lyft grettistök- um ... Fögur fordæmi Það kvað við í svolítið breyttum tón, en boðorðið hið sama og í boðskap miðstjórnarinnar til þin.gs ins, en þar sagði: „rithöfundarnir eiga að leika hlutverk hinna ástríðufullu áróðursmanna 7 ára áætlunarinnar“. Meiri lempni Það hefur sem sér engin breyt. ing orðið á þeim kröfum, sem flokksforustan gerir til rithöfund-; anna. En nú er reynt að fara að þessu með meiri lempni í þeirri von, að betri árangur náist. Rit.j höfundurinn fær nú svolítið meira I olnbogarými, örlítið tækifæri til að vera hann sjálfur, án þess þó að hann fái leyfi til að segja það, sem honum býr í brjósti. Opinber samúð? Helztu merki um hina opin- beru samúð, sáust meðal annars af því, að Konstantin Paustovsky, sem var einn af ritstjórum „Litt_ eraturnaja Moskva“ og ekki vildi viðurkenna víxlspor sín fyrir 2 árum síðan, fékk nú leyfi til að gagnrýna hina opinberu stjórn á ráðstefnunni. Bæði í grein, sem hann skrifaði í „Litteratur.naja Gazeta“ og í ræðu, sem hann hélt á þriðja degi ráðstefnunnar krafð- ist hann meira frelsis til handa rithöfundum og meiri sannleika af þeim. „Það er komið mál til, að menn hætti að kalla vini sína fjendur, aðeins vegna þess að þeir segja hinn óþægilega sannleika og skrifa ekki eins og hræsnarar“, sagði hann, „kannski hrópum við svo hátt um sannleikann, vegna Framhald á 11. síðu. Framsóknarflokkurinn og launamálin Launamál kvenna Á s.I. ári, þegar Framsókn_ ar flokkurinn fór með stjórn á fjármálum ríkisins voru „ launakjör kvenna, sem starfa 0 hjá ríkinu, leiðrétt verulega. Allir vita, að þó jafnrétti eigi að ríkja hér á landi með- al karla og kvenna, m. a. í launamálum, skortir enn alL mjög á, að fullt jafnrétti hafi náðst í þessum efnum. Bandalag starfsmann ríkis og bæja sneri sér til fjár_ málaráðlierra Eysteins Jóns_ sonar og fór þess á leit, að p fram yrði látin fara rannsókn á því hvort misrétti ætti sér stað um launaflokkun kvenna hjá ríkinu. Var skipuð nefnd, sem full- trúi frá fjármálaráðuneytinu og fulltrúar frá BSRB átti sæti í. A vegum þessara að- ila fór síðan fram gagnger at_ hugun á þessnm málum, og p eftir þá athugun fengu fjöl- 0 margar konur Ieiðrétting Ú sinna mála. Voru launakjör 0 allra þeirra kvenna sein kvart 0 anir báru fram, rannsönkuð, ^ og varð fullt samkomulag uin p niðurstöður milli fjármála. 0 ráðuneytisins og BSRB. 0 Framsóknarflokkurinn hefir 0 þannig sýnt í verki, að hann 0 vill vinna að því, að fuIL 0 komnu réttlæti verði komið á Ú í Iaunamáluin kvenna, og 0 flokkurinn mun áfram vinna 0 í þá stefnu. ú Þessi mál hafði Sjálfstæðis- p flokkurinn algerlega vanrækt, 0 þegar hann fór með fjármála- 0 stjórnina. 0. I

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.