Tíminn - 28.06.1959, Qupperneq 1
Kjörorð Reykvíkinga, sem annarra landsmanna við kjörborðið í dag:
Revkjavíkj sunnuuaginn 28. júní 1959.
132. blaS,
/
43. árgangur.
töndum vörð um átthagana
JmT
Örlagadagur íslenzku héraðakjördœmanna er runn
inn upp. / dag ganga íslendingar á kjörstaft og fella dóm
sinn um bað, hvort öll héraðakjördcemin, nema Reykja-
vík, skuli lögð niður.
Þegar kjósandinn leggur kjörseðilinn í kassann er
þar svar hans við þessari örlagaríku spurningu, og kosn
ingarnar hljóta að snúast um þetta mál eitt. / kjörklef-
anum er kjósandinn frjáls, og heill hverjum kjósanda,
sem lcetur sannfceringu sína og samvizku eina ráða at-
kvceðinu. — Það er staðreynd, viðurkennd af öllum rétt
sýnum mönnum, að verði héraðakjördcemin afnumin,
er fólkið þar svipt réttindum, og aðstaða þess til lífsbar-
áttu og menningar skert. Nái breytingin fram að ganga
verða héraðamörkin i þjóðfélginu afnumin meira en til
hálfs, og þar með hlýtur héraðaskipulagið allt að riða
til falls. Það yrði ógcefa, sem aldrei yrði bcett.
Við unnum öll átthögunum, hvort sem er í bce eða
sveit, og við óskum átthagahéraði okkar gengis og giftu.
Við viljnm ekki leggja steiv í götu þeirrar byggðar, sem
fóstraði okkur, heldur rétta henni örvandi hönd til styrkt
ar og blessunar.
Þess vegna ganga Reykvíkingar sem aðrir lands-
menn til kosninga í dag undir merkjum átthagahéraða
sinna og gera það upp við sig, hvernig handtakið verði
traustast og bezt.
I dag reynir á það, hvort áithagatryggð, ein hin göf
ngasta kennd, sem með mönnunum býr, verður sterk-
ari flokksböndum og foringjavaldi.
Reykvíski kjósandi: Verður atkvæði þitt í dag átt-
hagabyggð þinni hnefahögg eða hjálparhönd?
Skoðir þú hug þinn vel, velurðu þann kostinn að
láta atkvæði þitt verða góða átthagakveðju, því að
sannfæring þín er sú, að átthagabyggð þín eigi aðeins
gott af þér skilið, og hún eigi að fá að varðveita sér-
stöðu sína og sjálfstæði, aukast að reisn en ekki lúta
lágt. - Þess vegna ferð þú á kjörstað í dag og greiðir at-
kvæði gegn kjördæmabyltingunni. Þú lætur átthaga-
tryggðina ráða, og kýst i þetta sinn, hvar sem þú stend-
ur annars í flokki, þá fulítrúa eina, sem vilja feha þetta
frumvarp. - Þú gengur ekki undan merki átthaganna.
ÞÚ KÝST B-listann.
JC.