Tíminn - 28.06.1959, Síða 10
ÍO
TÍMJNN, sunnudaginn 28. júní 1959«
Hafnarfjörður - Reynir 3-3
Þessl hnefi gerSi út um leikinn — haegrihnefi og andlit hins nýja heimsmeistara.
Fyrsta skipti í 23 ár, sem Evrópubúi
verður heimsmeistari í þungavigt
- Ingemar Johannsson sigraði Floyd Patt-
erson í þriðju lotu í keppninni í fyrrinótt
New York, 26. júní (NTB);
Ingemar Johannsson varS
heimsmeistari í þungavigt í
hnefaleikum, er hann sigraði
svertingjann Floyd Patter-
son í þriðju lotu. Þrátt fyrir
rigningu og þoku fyrir leik-
inn, sem fram fór á Yankey
Stadion í New York, mættu
20 þús. áhorfendur og eng-
inn varð fyrir vonbrigðum,
því að keppendurnir háðu
eina áhrifamestu keppni
hnefaleikanna. Heimsmeist-
arinn Patterson, sem fyrir
leikinn var taiinn hafa sigur-
möguleika 7 gegn 3, var sleg
inn niður sjö sinnum í 3. lotu
áður en hringdómarinn
fann út, að það var ekki
nokkur meining að halda
áfram hinni ójöfnu keppni
og tilkynnti að Svíinn væri
hinn nýi heimsmeistari. Var
Ingemar þá mjög hyiltur af
áhorfendum.
Svíinn mætti fyrstur í hringinn
ásamt framkvæmdastjóra sínum,
Edvin Ahlquist. Svíinn var klædd
ur í svartan slopp. Aðstoðarmenn
hans í „horninu“ voru sænski þjálf
arinn Nils Blomberg og bandaríski
þjálfarinn Whitey Bimstein, og
einnig var hjá honum sérstakur
læknir, Carlson. Floyd mætti
nokkrum sekúndum síðar. Hann
var í hvítum slopp og var fagnað
mun meir en Svíanum. Hringdóm
ari í leiknum var Audy Goídstein.
Ir.i
'Víaon óó Fioyd Pafferson ræðast við fyrir leikinn.
Keppendur hófu leikinn gæt'i-
iega og þreifuðu fyrir sér. Ingemar
notaði mest beina vinstri, en
iPatterson varðist örugglega. Það
kom fljótt í ljós að armlengd
Svíans var meiri. Greinilegt' var þó
að hvorugur vildi taka afgerandi
forustu í þessari lotu, og eftir
því var tekið, að Ingemar notaði
yfir höfuð ekki hægri hending til
að slá með.
Patterson hóf sókn í byrjun 2.
lotu, en var fljótlega stöðvaður
á vinstri hnefa Ingemars. Floyd
kom þó höggi á kjálka Ingemars,
en Svíanum varð ekki meira um
það, að hann hóf sókn og skoraöi
mikið af stigum.
Ingemar Johannsson réðist strax
á mótherja sinn í toyrjun þriðju
lotu, en lenti þá beint inn í högg
Floyds ,en svaraði með sinni frægu
hægri, sem í fyrsta skipti var þá
sýnd hinum amerísku áhorfend-
um, og árangurinn var, að Floyd
lá í gólfinu. Dómarinn taldi upp
að átta og Floyd reis upp og fékk
strax að kenna á hægri hnefa Ingt
mars og hneig aftur niður
Nú var talið upp að sex og efth
þetta var eins og köttur væri a?
leika sér að mús. Ingemar sló —
Floyd reis upp til þess að verðs
fyrir nýjum höggum og þegar
heimsmeistarinn hafði sjö sinnurn
legið stöðvaði dómarinn leikinn.
iSigri Ingemars hefur verið fagn
að mjög í Svíþjóð og liann var
í gær aðalumræðuefni blaða og
útvarps í Evrópu, en þetta er í
fyrsta skipti í 23 ár, sem Evrópu-
búi verður heimsmeistari í þunga
vigt. Nokkur er nú önnur frægð
Svíans eða 1952, þegar hann var
rekinn úr Olympíuhringnum í
Helsinki vegna hugleysis. — Þeir
Ingemar og Floyd munu mætast
aftur í nóvemtoer, en keppnisstað
ur hefur enn ekki verið ákveðinn.
Austan stinningskaldi var með
an leikurinn fór fram. — Dómari
var Hörður Óskarsson. Hann er
sýnilega ekki í mikilli æfingu, en
gerði heiðarlegar tilraunir til að
dæma sómasamlega.
Bæði liðin höfðu hreyt't mjög
um leikmenn frá því á laugardag-
inn. Var breytingin hjá Sandgerð
| ingum mjög til hins toetra. Voru
úth.stöðurnar skipaðar toetri mönn
um og v.frv. Gunnar átti ágætan
leik. Leikur Hafnfirðinganna var
nijög þyngri í vöfum en er þeir
léku við Skarphéðinn, enda við
meiri mótstöðu að etja og lítt
æfðir menn komnir inn í stað
leikandi ungmenna.
Hafnfirðingarnir léku undan
vindi. Miðfrv. Ragnar Jónsson
mæt'ti of seint til leiks og á 4.
jmín. notar Gunnlaugur sér þessa
eyðu vel og skorar. Hafnfirðingarn
i ir jöfnuðu sig fljótt g tóku torátt
ivald yfir leiknum. Voru þeir því
! sem uæst í látlausri .sókn allan
hálfleikinn. Reynir át'ti þó nokk-
ur upphlaup, en þar eð Ragnar
og Einar reyndust ofjarlar þeirra
Gunnlaugs og Eiríks og varð lítil
hætta af. Fyrsta mark K.R.H.
; skoraði Ragnar Sigtryggsson á 10.
mín. Ásgeir og Garðar léku
skemmtilega upp v. megin og út
við hliðarlínu sendir Garðar fyrir.
Ragnar fær iknöt'tinn rétt innan
vítateigs og skorar viðstöðulaust.
Á 20. mín. sendir Ragnar Sigtr.
háan knött utan af kauti að marki
Reynis. Markm. hleypur vit, en
í uppstökkinu missir hann af
knettinum. Berþór hafði fylgt vel
eftir og skallar í autt markið.
Á 40. mín. skora Hafnf. þriðja
, markið. Eins og við fyrsta markið
er sótt upp v. megin, og eftir
laglegar skiptingar (Ásgeir, Garð
ar og Bergþór) er knötturinn
sendur til Ragnars Sigtr. sem .skor
ar með snöggu föstu skoti.
Reynir átti undan vindi að
sækja og skoraði þrjú mörk eftir
harðar sóknarlotur að marki Hafn'
firðinga. Hafnfirðingar léku betur
í þessum hálfleik, sem þeim fyrri,
en þó tækifæri gæfust, tókst þeim
ekki að skora. — Á 15. mín. skor
ar v.frv. Reynis mark hjá K.R.H.
Sendi hann langa og háa spyrnu
að markinu. Markmaður K.R.H.
stökk of fljótt upp og er á leið
niður aftur er knötturinn svífur
inn í markið, yfir höfði hans. —
Á 20. mín. er vítaspyrna tekinn
á K.R.H. — Hafði Gunnlaugi verið
brugðið gróflega. Eyjólfur fram-
kvæmdi spyrnuna og markmaður
ver, en dómarinn t'elur að mark-
maður hafi hreyft sig áður en
Eyjólfur spyrnti og lætur taka
vítaspyrnuna aftur. Eyjólfur fram
kvæmir spyrnuna aftur og spyrnir
beint á markmanninn, sem var
auðveldlega. Ragnar gætir Gunn
laugs ekki eins vel og skyldi.
Hefnir þetta sín á 37. mín. er
Ragnar missir af honum inn fyr-
ir. Markmaður reynir að bjarga
með því að hlaupa út og loka
markinu, en Gunnlaugur leikur
á hann og skorar. Vel og rösklega
gert. — Síðustu mín. sækja Hafnf.
mjög fast og ákveðið að marki
Reynis. Sigurjón fær tvö tækifæri
t'il að vinna leikinn er hann fram
kvæmir aukaspyrnur á vítateig
Reynismarksins, en spyrnir yfir
og kæruleysislega fram hjá. —
Leiknum lauk því með jafntefli
3 : 3. GAJME.
Magnns Jónsson kominn heim, syng-
ur í Gamla bíói á þriðjudagskvöÍd
Magnús Jónsson óperu-
söngvari er staddur hér á
landi í sumarfríi nú um sinn.
Hann hefir nú um hríð dval-
izt í Kaupmannahöfn og
sungið þar við Konunglega
leikhúsið og verið jafnframt
í leiklistardeild óperuskóla
leikhússins, þar sem frú
Anna Borg er aðcdkennari. í
Konunglega leikhúsinu hef-
ur hann m. a, sungið í II
Trovatore, La Boheme, hlut-
verk Rúdolfs, Grímudans-
leiknum, hlutverk Gústafs
III. og í ,,modern“ óperu,
Ifegenia.
Leikhúsið bindur mjög miklar
vonir við þennan unga íslenzka
t'enór, sem hvarvetna hefur hlotið
hina beztu dóma og mikið lof.
Hann hefur samning fyrir næsta
ár, og eftir það mun leikhúsið
ihafa í hyggju að fastráða hann.
SöngsTcemmfun.
Konunglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn er nú að endurnýja
starfslið isitt. og má þar nefna
auk Magnúsar, Bonnu Söndberg,
sem er mjög glæsileg söngkona
og Ito Hansen, isem einnig hefur
fengið prýðisdóma. Þar starfa nú
alls þrír íslenzkir tenórar, Magnús
Jónsson, Einar Kristjánsson og
iStefán íslandi.
Magnús hyggst halda söng-
iSkemmtun í Gamla bíó næstkom-
andi þriðjudagskvöld kl. 7,15 með
undirleik Frits Weisshappel. Á
efnisskránni er fjöldi góðra laga,
íslenzkra og erlendra. Þetta er
fyrsta söngskemmtun Magnúsar
hér síðan 1954.
13600 handíeknir
NTB—London 26. júní. 13600
manns hafa alls verið handeknir
af lögreglunni í Kerala síðan ó-
eirðirnar byrjuðu þar fyrir hálfum
mánuði. Af þeim hafá 4000 verið
dæmdir til fangelsisvistar, en hin
um hefur verið sleppt, því að öll
fangahús eru yfirfull. Nehru hefur
lýst yfir, að hann kæri sig ekki
um að vera sáttasemjari í deilu
kommúnistastjórnarinnar og
stjórnarandstöðunnar, en stjórnin
vill ú sættast og binda enda á ó-
°;rðírnar.
Úr „Grímudansleiknum." Niels Muller, Magnús Jónsson og Bonna Söndberg