Tíminn - 20.07.1959, Síða 3
T í MI N N, sunnudaginu 20. júlí 1959.
3
-fontainebleau er stærsta hótellS á Miami Beach, hefur 565 herbergi. Um garSinn er dreift 263 garShúsum til
gamans gsstunum.
Miami Beach - paradís á jörð
„Miami, |)ar verður aldrei meira
en venjulegEi liskimaiMahær16 -
Miami, þar sem dollararair.þyrk
ast ur einum vasa í annan - Miami,
rómantík og fagrar konur
Miami Beach er óendanlega
löng, mjó landræma, sem ligg
ur jafnhliða meginlandi Am-
eríku og hefur tengsl við það
með stíflugörðum, svonefnd-
um „causeways". Á þessari
mjóu ræmu eru staðsettir
þeir dvalarsfaðir, sem alfan
heiminn dreymir um. Þar er
hin fullkomna paradís sum-
srsins, með 'fagurbláum
himni, hvítum ströndum, tæru
vatni, rómantískum páimum
og fögrum konum.
Hverjum þei. i Ameríkumanni,
■er vill halda sínu góða mannorð.i,er
hollafa að dveljast nokkrar vik-
ur ársins annað hvort á Miami
Eeach eða Miami, sem er á meg-
inlandinu, handan við stíííugarð-
ana.
Báðir þessir staðir eru orðnir
eftirsóttustu baðstaðir heims, og
hótelin hafa þotið upp svo sem
arfi í rígningu undanfarin 10—
15 ár. Á Miami Leach eru 381
hótel og þar býr aS staðaldri, fyrir
utan alla heimsækjendur, um
54.000 manns. Samkeppnin milli
þessara tveggja staða er gífurleg.
Ólt meðul eru notuð til þess að
’ ‘ ..... í - t-
f. -f;- v.Vá : ■■■"
BlaöamaSurlnn Walter Wlnchelt hefur verið kallaður draugur Roney Plaza
iictelsins, því hann hefur búið þar á öllum annatímum staðarins Trá 1929.
laoa sem flesta ferðamenn til sín.
Nú sem stendur hefur Miami
Beach yfirhöndina, þótt Miami
geti státað af betra sambandi við
umheiminn. Járnbrautin, höfnin
og flugvöilurinn þar eru samkv.
kröfum hinna vandfýsnustu. Þar
að auki getur Miami skartað með
nokkrum erfðavenjum, þótt stað-
urinn sé ungur, frá sjónarmiði
Evrópubúa.
„Líkaminn er fagur...."
Miami Beach hefur hins vegar
skotizt fram úr vegna þess, að
þar eru nýjustu hótelin, vistlegri
kkibþar, vandaðri verzlanir og
fegurri konur.
Þangað fara menn til hvíldar í
ró og næði. En þeim verður iítt
úr næði, sem „girnist söng og
dans“, því gfeðskapurinn stendur
alla nóttina. Og holdið er veikt,
(margir beijast mjað straumnum,
og eru sumir ekki óþesslegir að
morgni, að þeir hafi lent í hring-
iöu.
Þegar læknirinn skipar örþreytt
um aðalforstjóra að fara sér til
hvíldar og hressingar til Miami
Eeach, verður dagskrá forstjór-
ans sem hér greinir:
Fyrri hluta dags, áður en hit-
inn verður of mikill, leikur hann
hinn vinsæla boltaleik, sem Miami
Beaeh hefur fengið í arf frá
Spáni. Hann er á þá leið, að bolt-
anum er kastað af afli í vegg, frá
hverjum hann síðan sprettur aft-
ur. Markmiðið er, að kastá svo
fást, að mólleikárinn nái honum
ekki í endurkastinu. Þessi leikur
heitir PeDota, var upprunalega
leikinn með berum höndum, en
mú er notuð eins konar greip,
ekki ósvipuð sigð í laginu.
Gaman a5 verzla
Eftir því sem heitara verður
fær hann tækifæri til að slappa
af við hundaveöhlaup og bylgju-
skvamp. Og ef það tekur ekki of
langan tíma, gefst honum kannski
tækifæri til þe'ss að fá sér svo-
lítið nudd rneðan hann liggur
makimdalega og nýtur eins eða
tveggja drykkja, áður en hann fer
í innkaupaferð með konu sinni í
veirzlanijr, 'þiar isem siamkvæmis-
kjólarnir kosta aðeins sem svarar
15.000 kr. ísl.
Þarna er hægt að fá baðföt úr
gullbrókaði, brydduð með knippl-
ingum, eða fyrir þá, sem ekki ber
ast eins mikið á, úr minkaskinni.
Verðið er tæpast undir 3.000 kr.
Þær, sem langar í kvöldkjól, fá
aúðvéldlega Dior eða Balaneiaga
módel. Og kvöldkjólar eru nauð-'
synlegir, því samkvæmisklæðniö-
ur er tilskilinn á hverju kvöldi í
öli’um hótelum. Það er orðin tízk.'i
að gera fatainnkaupin á Miami
Beach eða Miami, og. algengt er
;að sjá auglý'si'ngax frá þessum
stöðum gem slíka: „Komið með
tómu töskui'nar og fyllið þær
hér.“
Eftir innkaupin er næst á dag-
skránni að fá sór svolilið hana-
stél, dansa, fara í næturklúbb og
síðasf i rúmið til þess að öðlast
hvíld undir næsta dag, sem fer
fram í ró og friði á líkan hátt.
Namm, namm
IV^atseðlar hóteianna cru fjól-
breyttari en svo, að megrunarkór
megi halda gildi sínu. Og öll
veitingahús hafa sína sérrétti, sem
hver gestur sbrandarinnar verð-
ur að bragða. Það er áríðandi að
geta komið heim til New Yo-'k
eða Chicago og gortað af því, að
ostrusalatið hiá Joe hafi ver ð
óvenjú gott í ár, að enginn kunr.i
svo vel að steikja á teini sem
kokkurinn í „The Emhers“. Og
ef svo er hægt að segja í kveðju-
skyni eitthvað á þessa leið:
„Reyndir þú ostakexiö hjá
Wolfie?* Þá er sigurinn örugglega
unninn.
Stjörnur eins og Hanry Bela-
fonte, Edith Piaf, Nat King Cole
og fleiri þeim líkir eru í Miami og
Miami Beach eins og gráir kettir.
Þpir syngja og leika aðrar
listir sínar á hótelum og skemmti
húsum með svo fögru baksviði og
lýsingu, að hið bezta sem nátt-
úran sjáif hefur upp á að bjóða,
fölnar og verður að engu í sam-
anburði við það.
Vér brosum
Þeir einu sem taka lífinu með
ró á Miami Beach og Miami, eru
hinir raunverulegu íbúar. Ein-
hvem tíma á 17. öld námu Spán-
verjar land í Miami, og er það
glöggt hægt að greina enn þann
dag í dag. Þeir horfa með sam-
úðarbrosi á gestí staðanna
sem þeytast frá emum skemmti-
stað til annars í því skyni að sýna
sig og sjá aðra.
Hótelin standa hldð við hlið
Mamie van Doren er harla vel klædd.
Kjóllinn er perlusettur, gjör af hvítu
silki og hefur sérstaka kvöldkápu.
meðfram Collins Avenue, það er
að segja, þau stærstu og beztu.
Verðið í þessum hótelum er frá
187 dollurum niður í 30 dollara
fyrir sólarbringinn. Þó geta fleiri
en ríkisbubbar l'eyft sér dvöl á
þessum stöðum, því auk þessara
hótela eru svo mörg minni, sem
veita þjónustu sína á viðunanlegu
verði'. Auk þessa lækkar svo
verð stóru hótelanna til niuna á
milli mestu annatímanna. T. d.
getur einkaritarinn fengið sama
herbergið og forstjórinn leigði í
febrúar fyrir 50 dollara fyrir 12
dollara í júií, og drukkið kókið
sitt við sama borð og forstjórinn
svolgraði kampavínið fyrr á ár•■
inu.
. . *
Dýrt er drottins orðið!
Hótelin keppa innbyrðfis um
. hvert sé bezt, og það sem annað
er algert tízkufyrirbrigði. Eigaadi
hótelsins Fontainebleau, se.r.
fékk titilinn bezta hótel ársins
1957, lýsti því yfir, að hann viid:
ekki selja hótelið fyrir 25 millj-
ónir doilara, en það er 5 sinnum
meira en árið 1821 var borgað
fyrir Florida eins og það lagðl.
sig;
íbúar Miami og Miami Beach
vitna oft í ummæli mr. Flagler,
sem var mikill framfaramaður og'
stórhugi á sínum tíma, en þessí
ummæli hans voru á þessa leið:
„Miami, þar verður aldrei
meira en venjulegur fiskimanna-
bær.“
•'# ■%
t ■
'■ 'W,'
[ I 5 ' |
■Ivv- '■
W;
Kópavogsbró hefur nú sýnt kvikmyndina Goubbiah um þriggja
vikna skeið við mjög góða aðsókn. Myndin er gerð eftir skáldsögu
samnefndri eftir Jean Martet, leikstjóri er Robert Darene. Mynd-
in fjallar um ástír, raunir og ævintýri, óhætt er að segja að
nryndln er mjög spennandi og skemmtileg. Aðalhlutverk eru leik-
in af Jean Marlas og Delia Scala.