Tíminn - 28.08.1959, Blaðsíða 9

Tíminn - 28.08.1959, Blaðsíða 9
S'ÍMINN, föstudaginn 28. ágúst 1959. 9 ALYSE LITTKENS Syndafall i. Ekkert var sagt fyrr en um íkvöldmatinn. Allan daginn haföi hún hugsaS um þaS og ekkert ann aö. En enn þá var henni ekki ljóst, hvernig hún átti að koma orðum að því. Þegar henni var tilkynnt það um morguninn, varð hún stolt og hamingjusöm. Hún setlaði að hlaupa beint inn í vínnuherbergi Curts og láta hann taka þátt í gleði sinni. En á leiðinni tók hún að hugsa sig betur um, skref hennar urðu styttri og hæg- ari. Úti fyrir dyrum Curts nam hún staðar. En hún fór ekki inn. Svo hélt hún áfram í þungum þönkum og opn- aði dyrnar að sínu eigin her- bergi. Þar féll hún í skrifborðs stólinn, hamingjan var horf- in úr svip hennar. Hún strauk svitann af enni sér með ó- styrkum höndum, svo sökkti hún sér í skjalabunkann á borðinu. Hún ákvað að segja Curt tíðindin, þegar þau borðuðu hádegisverð. En það fórst fyrir. Þrátt fyrir að það væri nærtækt efni, þar sem hann hóf sjálfur máls á væntanleg um stöðuhækkunum: — Eg er handviss um, að á morgun veröur tekin ákvörð un í stjórnarráöinu, sagði hann. — Heldur þú, að Hag- berg eða Wenzell veröi fast- ráðnir? Eða einhver annar? Curt varð tíðrætt um stöðu liækkanir innan deildarinnar. Með mikilli eftirvæntingu beið hann þess dags, er hann sjálfur yrði fastráðinn deildar ritari. Honum fannst hann liafa setið alltof lengi sein undirmaður. En enginn gat haldið því fram, að gengiö hefði verið fram hjá honum. Nei, það hefði hann heldur ekki látið viðgangast. En þó fannst honurn, að a.m.k. tvisv ár hefði hann verið sjálfsagö ur í lausar stöður. Þeir, sem ráönir voru, höfðu aðeins ver ið heppnari en hann. Þeir liöfðu fengið’ lifandi mál til meðferðar. Á hans skrifborð kom hins vegar aðeins eitt og annað sem engu máli skifti, kom veltandi í síendur nýjuðum bylgjum .... Karin og Curt sátu hvort andspænis öðru á litlum greiðasölustað. Þegar hann haföi varpað fram spurningu sinni, horfði hann rannsak- andi á hana, eins og svar henn ar gæfi honum úrslitavissu. En henni fannst ógerlegt að segja honum sannleikann ein mitt núna! Henni varð að gef- ast tækifæri til þess að átta sig. Ákveða, hvernig hún átti að koma orðum að því. Þess vegna var ekki hægt annaö en fresta því enn. Karin vissi hvernig Curt vildi hafa svar hennar: Að ekki væri minnsti efi á því, aö hann yröi fastráðinn. Og svo átti hún að bæta því við, að allt annað væri óréttlæti. Hún vissi lika, að ef hún segði þetta, yrði það sagt af alhug, vegna þess að hún gerði meira en að elska Curt: Hún leit einnig upp til hans. Þegar hún svaraði ekki og virtist vera með allan hug- ann við matinn á diskinum, spurði hann forvitinn: — Hefur þú.heyrt nokkuð? Hver verður það? Hún hristi höfuðið án þess að líta upp af diskinum. Litlu síðar gengu þau aftur til deildarinnar. Þau skildu í ganginum með stuttri kveðju, svo fór hvort á sína skrifstofu. Þegar erfiði dags- ins var lokið, fylgdust þau aö heim. Veðrið var svo slæmt, að þau urðu að taka strætis- vagn. Þar gafst lítið næði til samræðna. Þegar þau komu heim las hann kvöldblaðiö, meðan hún gekk.til fullnustu frá kvöldveröinum, sem frú Carlson hafði undirbúiö fyrr um daginn. Karin tók sér góðan tíma í eldhúsinu. Hún stóð þar og velti því fyrir sér, hvernig átti hún að orða þaö? Ætti hún ætti að byrja. Hvernig hún að taka það í gamni eða alvöru? vernig alvöru? Helzt vildi hún fara inn til hans og biðja hann fyrirgefningar. Áthugið Höfum til sölu flestar tegund- ir bifreiða og úrval landbún- aðarvéla. BÍLA- OG BÚVÉLASALAN Baldursgötu 8 — Sími 23136 Hyestnn bóndl trvegif' dráttarvéi kina Hinn heimsfrægi söngvari RANKIE LYMON HLJÖMSVEIT ÓLAFS GAUKS ÁSAMT ÁRNA ELFAR — HINN VINSÆLI RAGNAR BJARNASON — GAMAN VÍSUR: STEINUNN BJARNADÓTTIR LEIKKONA — KYNNR: SVAVAR GESTS Skemmtanir í Austurbæjarbíói riðjudaginn kl. 11,15 e.h. miðvikudaginn kl. 7 og 11,15 e.h. Aðgöngumiðasala í Hljóðfærahúsinu, Bankastræti. — í Austur- bæjarbíói eftir kl. 4. — Ath. Lækkað verð aðgöngumiða á á skemmtunina kl. 7 á miðvikudag. r\ Hver sem kýs þægilega skó viil þá helzt úr kamelhári. Skór okkar evu með plastsólum, filtsólum og ieðursólum. Margra ára reynsla okkar tryggir vörugæðin. DIE VOLKSEIGENE SCHUHINDUSTRIE DER DEUTSCHEN DEMOKRATISCHEN REPUBLIK Útflytjcndur: DEUTSCHER INNEN- UND AUSSENIIANDEL TEXTIL — BERLIN W 8 y i

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.