Tíminn - 17.10.1959, Síða 3
T í nr I N N , laugardaginn 17. október 1959.
Bandarískir vísindamenn
gefa hormónlyf við skalla
Fransks kvikmyndaleikkonan Marina Vlady er sammála manni sínum
bert Gcssein um skilnað. Þau voru álitin hin hamingusömustu
Ro-
Plokkaðu hár úr höfði þér
og skoðaðu það. Þú horfir á
dálítið, sem er mjög sérstætf
og hefur verið viðfangsefni
skálda og málara um aldir og
| er daglegt viðfangsefni
manna. Kannske eyðum við
meiri tíma, vinnu og pening-
um í hárið en nokkurn annan
hluta líkamans. Við klippum,
krullum, litum það og rök-
um fyrir fé sem nemur hundr
uðum milljóna. — Síðast lið-
in tiu ár hafa læknavísindin
rannsakað hárið meira en
nokkru sinni fyrr. Hár hefur
ýmsa athyglisverða eiginleika.
Það er sterkt sem alúmíníum.
Ef hár úr höfði þínu væri
vafið í mjótt reipi, þá gæti
það haldið 2000 pundum —
meira en litlum bíl.
Vex ört«
i Höfuðhárið vex um þrjá átt-
undu til þrjá fjórðu úr þumlung
á mánuði. Það vex örar á sumrin
en veturna, hraðar á daginn en
nóttunni. Á víð og dreif um líkama
þinn eru hálf milljón hára. Einu
, istóru svæði líakmans, sem eru al-
1 gerlega hárlaus eru lófar og iljar.
í smásjánni lítur hárið ekki ósvip
að út og þverskurður trés.
Helztu hárkvilla reru þessir:
Flasa er lang algengasti hár-
Dauð’ar sellur losna stöðugt úr húð
inni. Þessar séllu,. eru það sem
við köllum flösu. Ef reglulegur
hárþvottur heldur ekki flösunni
í skefjum, er vissara að leita lækn
is og láta hann skrifa lyfseðil.
Gráít hár. Sennilega er það ekki
rétt, að menn geti orðið gráhærð
ir á einni nóttu. Rannsóknir hafa
sýnt, að slikt er erfðaeinkenni
sem ekkert er hægt að gera við.
Skalli. Einstök hár höfuðsins
lifa tvö til fimm ár. Það er eðli-
legt að svo sem eins og 80 hár
losni á dag. En hvernig stendur
á því að menn missa hár í óhófi?
Öllu hefur verið kennt um: að
menn gangi of mikið eða of lítið
méð hatta, að menn þvoi hárið
of mikið eða of lítið o.s.frv.
Flösu hefur verið kennt um, en
samt er sumt fólk stöðugt með
flösu og fer í gröfina með allt
sitt hár.
Almennt er nú álitið að menn
erfi sinn skalla frá öfum sínum.
Maður getur litið á mynd af afa
sínum og séð þar hver framtíð
bíður hans. Er nokkuð, sem hægt
er að gera tii að gróðursetja hár
á beru höfði?
Fyrir nokkrum árum síðan gaf
nefnd, s,em starfaði á vegum ame
ríska læknafélagsins eftirfarandi
yfirlýsingu:
„Ef heilsa manns er yfirleitt
góð og hárlos er mikig . . . . þá
HJÓNABOND Á
GJALDÞROTA
A/lörg hjónabönd eru í upp-
lausn á þessum síðustu og
verstu tímum. Gildir þetta
ekki stður um fræga fólkið en
hina>.
Flestir munu vita að óperu-
söngkonan Maria Calias er ný-
skilin við sinn eiginmann og
siglir nú um höfin blá með
gríska skipakóngnum Onassis.
Danskt kvenfólk tók nýlega upp á
því, aS reykja smávindla, og segja
nú danskir, aS þessi siSur sé orð-
inn útflutningsvara. Munu ame-
rískar konur farnar að gera slikt
hið sama í stórum stíl.
j Marina Vlady, franska kvik-
myndastjarnan er sammála manni
sínum, Robert Hossein um skiln-
að, segja þeir. Þau hafa verið gift
í fimm ár og eiga tvö Íítil börn.
I Þau voru álitin mjög hamingju-
I söm.
I Á ítalíu er annað kvikmynda-
hjónaband í hættu, þeirra Sophiu '
Loren og Carlo Ponti, en hann
I er ákærður fyrir tvíkvæni. Kirkj- j
!-------------------- — |
Kassem aS ná sér
eftir banatilræSið
NTB—Bagdad, 14. okt. —
Dregizt hefur meira en ætlað
var að Karem Kassem næði
sér eftir banatilræðið á dög-
unum.
Einkaritari hans tilkynnti þó í
dag .að hann mvpdi sennilega
hverfa af sjúkrahúsinu og taka til
starfa bráðlega.
PóSsk fjölskylda
í opinni flugvél
til Danmerkur
Frá fréttaritara Tímans
í Kaupniannahöfn.
Pólskir flóttamenn hafa enn lagt
leið sina til Borgundarhólms. í
þetta sinn svifu þeir að í opinni
sportflugvél. Voru þar hjón á
ferð og höfðu meðferðis þriggja
ára gamla dóttur sína. Lentu þau
í gærkveldi við Rönne. Pólverj-
arnir sóttu strax um hæli sem
pólitískir flóttamenn og verða
fluttir til Kaupmannahafnar til
nánari yfirheyrslu.
ASils.
an viðurkennir ekki anna'ð hjóna
band og ef maður giftir sig í ann
að sinn, er það tvíkvæni, jafnvel
þótt hann hafi fengið lögskilnað
í öðru landi,
Ekki er ástandið betra í Belgíu,
þar segja þeir að' allt sé komið
í háaloft milli þeirra Leopolds upp
gjafakóngs og konu hans Rethy
prinsessu. Segir sagan að 'Rethy
prinsessa neiti að yfirgefa konungs
höllina Laeken, en Leopold hefur
lofað að flytja til trýggingar því,
að hann hafi ekki áhrif á sin sinn,
Baudouin.
Hjónin hafa ekki sézt saman
opinberlega í tvo mánuði.
Og Dawn Adams stendur líka
Dawn Adams
i skilnaðarstússi. Hún er fædd í
Englandi, gift á Ítalíu, en búsett
í Frakklandi. í Englandi getur
hún elcki fengið skilnað, af því
að hún er ítalskur ríkisborgari.
Ekki heldur á ítalíu. Það leyfir
kaþólska kirkjan ekki.
OÞá er bara Frakkland eftir og
er það hennar síðasta von.
Leopold fyrrum Belgíukonungur og frú hans Rethy prinsessa
hafa vísindin ekki yfir að ráða
neinu kerfi eða aðferð, sem'feng
ið geti hár til að gróa að nýju“.
Hormónar
Ennþá er engin handhæg að-
ferð fyrir hendi til að iækna
skalla karla, þótt undravérðum
árangri hafi tekizt að ná í lækn-
ingu á sérstakri og fremur sjald-
gæfri tegund skalla, sem kölluð
er alopecia areata.
Læknar hafa lengi tekig eftir
þeim áhrifum, sem hormónar hafa
á hárvöxt. Þeir tóku eftir því, að
meðan konur gengu með barni,
færðist hárvöxtur í vöxt á þunn
hærðum konum. í þessum tilfell-
um var vöxturinn bersýnilega af
völdum hormóna, sem uxu um með '
göngutímann. Karlhormónar hafa
öfug áhrif. Á seinni árum hefur
kvenfólki verið gefin karlhormóna
lyf til lækningar á krabbameini
í brjósti. Á margar verkaði það
þannig, að þeim tók að spretta
grön, en hárvöxtur á höfði minnk
aði.
Cortisone
I Einnig kom það t. d. í ljós, að
cortisone hafði mikil áhrif á hár-
vöxt t.d. til lækningar á alopecia
areata. Eitt sinn tókst að lækna
68 manns, scm gengu méð þenn
an sjúkdóm. Sumir höfðu verið
sköllóttir í 25 ár. Um 60 prósent
fengu fullan hárvöxt aftur. Hins
vegar hætti hárvöxtur jafnskjótt
og hormónagjöfum var hætt. Til
viðbótar höfðu svo þessar hor-
mónagjaflr ýmiss aukaáhrif. —
Bólga vildi t.d. hlaupa í andlit.
Nú er verið að gera tilraunir
(Framhald á 8. síðu).
Lögreglan drap
fimm og særði
marga
NTB—Leopoldville, 14. okt.
Ókyrrð er stöðugt mikil í belg-
íska Kongo og virðist fara vax-
andi seinustu daga.
I í gærkvöldi voru 5 blökkumenn
drepnir og 30 særðir, er til átaka
kom við lögregluna. Einnig særð
ust þrír lögreglumenn. Atvik voru
þau, að um 2 þús. innfæddir höfðu
slegig á fund, en bann við funda
höldum var sett um helgina. Var
fundur þessi trúarlegs eðlis. Lög-
reglan bað nienn dreifa sér. Um
helmingur fundarmanna hlýddi en
hinir réðust á lögregluna, sem
svaraði með skothríð. Útgöngu-
bann var þegar sett í allri borg-
inni.
Bóluefni gegn
inflúenzu fundið
NTB — Lundúnum, 2. okt.
•— Brezkir vísindamenn og
lyf jaframleiðendur segjast
hafa búið til bóluefni gegn
inflúenzu.
Segja þeir, aö þetta nýja bólu
efni veiti 70—80% ónæmi gégn
flest öllum tegundum inflúenzu.
. Skýrði forstöðumaður rannsóknar
I stofnunar í læknisfræði frá þessu
í dag. Sagði hann bóluefnið vera
J blöndu af þrem helztu vírusteg-
undum, >sem valda inflúenzu. Auk
þess mætti breyta bólúefnmu-frá
j ári ’til árs, eftir því, sem nauð-
I synlegt reynist. — Hins vegar virg
! ist heilbrigðisstjórnin brezka ekki
mjög uppveðruð yfir bóluefni
þessu. Talsmaður hennar sagði,
að bóluefnið hefði verið á lager
hjá yfirvöldunum í nokkur ár, en
jekki væri fyrirhuguð nein fjölda-
bólusetning.