Tíminn - 17.10.1959, Síða 8

Tíminn - 17.10.1959, Síða 8
8 T I M I N N , laugardaginn 17. október 1959. Frá Patreksfirði (Framhald aí 5. sliru) væntanlega kemur til landsins á næsta ári. Greidd vinnulaun 7 millj. s.I. ár Með tilkomu þessara fyrirtækja og stóxaukinni bifreiöaeign manna hér um slóðir og vélanotk- un bænda við landbúnaðarstörf, reyndist brýn nauðsvn að hér yrði sett upp járnsmíða- og bif- vélaverkstæði. Kaupfélagið hefur því einnig beitt sér fyrir fram- gangi þess máls. Fyrir ,'frumr kvæði þess var stofnað hlutafé- lagið Logi. Þetta félag hefur byggt upp slíkt verkstæði og rekur það. Kaupfélagið er aðal- hluthafi í félaginu, en aðrir hlut- hafar eru starfsmenn fyrirtækis- jns. Öll eru þessi fyrirlæki undir framkvæmdastjórn kaupfélagsins og rekin eru þau frá skrifstofu þess. Öll eru fyrirtækin stofnuð og rekin í anda samvinnu og sam- Starfs. — Þau vinna öll saman og styðja hvert annað í rekstrinum. A s. 1. ári greiddi kaupfélagið og fyrirtæki þess í vinnulaun 7 milljón krónur. Þessi fyrirtæki fólksins, sem enn eru ung og órevnd, eru þegar orðinn snar þáttur í atvinnulifi þessa staðar, en vöxtur þeirra og viðgangur byggist fyrst og fremst á því, að allur almenningur, sem á fyrirtækin, bæði til sjávar og sveita, sýni þeim áhuga og skiln- ing, í einlægri trú á það, að mátt ur samtaicanan getur veitt hinum stærstu grettistökum, ef rétt er að farið. Og reksturinn s. 1. ár gefur góðar vonir. Upplýsingarstarfið lieldur áfram. Ég hef hér að framan brugðið upp ófullkominni svipmynd af samvinnustarfi í kauptúni á Vest- fjörðum, sem óæmi um það hvern þátt kaupfélögin eigi í uppbygg- ingu dreifbýlisins á síðustu árum. Ég er sannfærður um að sú leið, sem hér hefur verið farin er rétt, að fólkið sjálft tryggi afkomu sína og lífshamingju með tilstyrk sam- vinnufélaganna. Fólkið er kraftur- inn og uppistaðan í þessum fram- kvæmdum. Það reynir mikið á fé- lagslegan þroska þess, ekki sízt meðan fvrirtækin eru ung og sigra verður ýmsa byrjunarörðugleika. Þetta vita andstæðingar sam- vinnufélaganna manna bezt. Þess vegna halda þeir uppi vægðarlaus- um áróðri til þess að veikja fé- lagslega samstöðu fólksins, og reyna að viðhalda pólitísku fylgi úti á landi. Þessi áróður er þó ekki líklegur til þess að hafa mikil áhrif út um byggðir landsins, þar sem fólkið sjálft er vaxandi afl í samvinnu- starfinu. Samvinnumenn munu ekki láta neinn blekkingaáróður villa sér sýn, en halda uppbyggingarstarfi sínu áfram til hagsbóta fyrir al- þjóð, og í trú á góðan málstað. 3. síðan (Framhald af 3. síðu). meg að sprauta hormónum beint inn i höfuðleðrið við háskólann í Nevv York. í ljós hefur komið að hárvöxtur eykst í kringum þann sta'ð, þar sem sprautað er og hlið arverkanir eru engar. Gallinn er bara sá, að það þarf nokkur hundruð sprautur til að menn fái fullan hárvöxt aftur og að sprauta verður alltaf aftur á nokkra mánaða fresti. Þessi aðferð er raunhæfari í sér stöðum tilfellum, t.d. til að fá hár á augnabrúnir og til að fá hár til að gróa á smá blettum líkamans. ÞjóðLeikhúsib (Framhald af 10. síðu). frumtexta þulunnar og leikritið, ef sagt væri til að mynda: Hvíluvoð af hörvi, hvílan sjálf af járni. Höfundur vill þarna benda lil fátæktar Leonardos og konu hans, sem fram kemur víðar í leikrit- inu. Fyrir nokkrum árum skrifaði Hannes Sigfússon í tímaritið Birt- ing, harðvígan ritdóm um Ijóða- þýðingar Helga Hálfdanarsonar, þa rsem hann bar verk hans sam- an við þýðingar Magnusar Ás- geirssonar, og þótti smátt til Helga 'koma. Helgi svaraði í Þjóðviljanum af mikilli prúð- mennsku og rnæltist undan sam- anburði við Magnús. Nú hefur Hannes Sigfússon, með Iþvi að ljúka verki, sem Magnús hafði byrjað, og fella þýðingarnar sam- an, kallað yfir sig þann skáld- jöfnuð, sem hann áður gerði með þeim Magnúsi og Helga. Ég læt áheyrendum eftir að gera þann samanburð. En þó get ég ekki stillt mig um að benda á, að finnast mun þarna orðfæri, sem þýðanda hefði misþóknazt ef staðið hefði í lijóðum Helga Hálfdanar- sonar: ! Brjóst þeirra brýzt ég inn í | og baða í hlýjum dreyra! j Hjartað skal heyra mér til. (Við sleppum því, að sögnin að baða á að vera áhrifssögn á ís- lenzku, hitt er danska.) En ef sleppt er öllurh saman- burði við Magnús Ásgeirsson og Helga Hálfdanarson, þá hygg ég að segja megi að þýðin,g Hannesar Sigfússonar sé gerð af trú- mennsku og smekkvísi, og margt sé þar skáldlega sagt. Ég birti hér til .dæmis lokaorð leikritsins, sem móðirin segir um hnífinn: A-þýzkir afmælistónleikar Síðastliðino fimmtudag efndi þýzk-íslenzka menningarfélagið til tónleia í Austurbæjarbíói í tilefni af 10 ára afmæli Þýzka alþýðulýð- veldisins. Tónlistarfólkið var frá Austur-Þýzkalandi, en það var pí- anóleikarinn Dietér Brauer, fiðlu- leikarinn, Werner Scholz, tenór- söngvarinn Max Janssen og Ina- Maria Jenss, sópransöngkona, sem er eiginkona söngyarans. Öll 4 eru þau ung að aldri, en hafa þegar Ágæt skemmtun í Ólafsfirði ýlafsfirði, 13. okt. — Framsókn armenn héldu ágæta og fjölsótta skemmtun hér í Öiafsfirði á laug- ardag. Alþingismennirnir Karl Kristjánsson og Gísli Guðmunds- son fluttu ræður og ennfremur fór Karl með nokkra kviðlinga við mikla kátínu áheyrenda. Jóhann Konráðsson söng ein- söng með undirleik Jakobs Tryggvasonar og tóku áheyrendur honum mjög vel ög varð hann að endurtaka mörg lög. Að lokum var stiginn dans til kl. 2 um nóttina ög lék H.H. kvart ettinn frá Akureyri fyrir dansin- um. Skemmtun þessi þótti takast ágætlega. B.S. Vel hann gæti leynzt í lófa, liðugt þó um vefi smýgur, hæfir djúpt í holdsins myrkri heita lind vig blóðsins elfur, þar sem innst á rauðri rót rámt og dýrslegt ópið skelfur. Jónas Kristjánsson. öðlazt frægð og frama í heimalandi sínu og nágrannalöndunum. Efnis- skrá þeirra var mjög fjölbreytt og vel til hennar vandað á allan hátt. Þar voru m. a. verk eftir Handel, Beethoven og Brahms auk minni ■spámanna. Það er einl. á píanó, samleikur á fiðlu og píanó, ein- söngur og tvísöngur. Allt saman mjög vel gert. Hins vegar var ekk- ■ert viðfangsefnið þannig, að af því mætt'i ráða, hve langt þau næðu í list sinni eða hvar takmork þeirra væru. Það sem einkenndi flutning þeirra var öryggi og látleysi sam- fara hófsemi og óskeikulli tækni. Heildarsvipur hljómleikanna var mjög jafn og góður, ■ekkej’t þeirra bar langt af öðru, eins og vera ber, þar sem jöfnuðurinn ríkir. Að vísu hafði söngkonan kvefast hér í rign ingunni, sem virðist ætla að endast lengur en syndaflóðið, og af þeim ástæðum varð að breyta að nokkru cfnisskránni, en af því leidjli, að tilkynnt var milli þátta, fcvað gera skyldi hverju sinni. A. Frakkar vilja óbreytt ástand NTB—París 13 okt. Debré forsætisráðherra Frakka lýsti yfir því á þingfundi í dag, að franska stjórnin vildi áð hald- inn yrði fundur æðstu manna eins fljótt og kleift væri. ■Debré sagði að stefna Frakka í því máli væri, að óbreytt á- stand yrði í Berlín, en síðan yrðu rædd þau mál, sem vaönlegust mættu teljast til lausnar og sam- komulags. n11■ 111111111111ii11111111111■ .. immMimmmMiimmmMmmmmmmmiiiimiMiMM gerir kaffið sterkara og bragðbetra

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.