Tíminn - 04.11.1959, Síða 1
U.S.A. ballettinn
43. árgangur.
Reykjavík, miðvikudaginn 4. nóvember 1959.
t>eir vildu ólmir .... bls. 3
Eftir kosningarnar, bls. 7
íþróttir, bls. 10
238. blað.
Svíar viija
12 mílur
NTB—STOKKHÓLMI, 3. nóv.
— Á fundi ytri landanna sjö
í dag um fríverzlunarsvæðið,
lýsti fulltrúi Svía því yfir, að
Svíar væru söniu skoðunar og
Norðmenn um það, að fiskvei'Ji
landheiigin skuli færð í 12 mil
ur. Fulltrúinn kvað Svía einn-
ig samþykka Nórðmönnum um
það, hvernig sölu á frosnum
fiski skyldi liáttað innan frí-
verzlunarsvæðis ytri landanna
sjö.
Frjósemi
bjargar kind
Þegar Vestmannaeyingar fóru
nýlega í smölun.arferð í úteyjar,
hittu þeir fyrir á eina roskna,
sem fyrirhugag hafði verið að líf
láta, þar sem eigi var vitað annað
en hún væri geld. En svo undar-
lega bar við, þogar hún fannst, að
hún var með tveimur unglömbum,
og.er það heldur fátítt, að ær beri
svo síðla árs. En frjósemi þessi
varð hennar höfuðlausn, þar sem
hún á ag lifa til þess að fóstra
upp þessi afkvæmi sín. SK
Aðalfundur FUF
í Reykjavík
Aðalfuudur Félags ungra
Framsóknarmanna verður hald-
inn 1. nóvember næst komandi.
Fundurinn verður í Framsókn-
arhúsinu uppi. Nánar síðar.
Nú færist skammdegið yfir og Ijósin tendrast stór
og smá. Nú er ekki framar kveikt á kolu í baðstofunni,
heldur stutt á hnapp og undrið gerist. Rafmagnsljósið
býr að vísu ekki yfir töfrum kerta- eða koluljóss, en
þó eru víst ekki margir svo draumlyndir að þeir vildu
skipta á Ijósaperu og kolu. — Myndin er tekin við
giugga raftækjaverzlunar í Reykjavík.
Ljósm: Tíminn
Vélasamstæðan við Efra-
fall fer bráðlega af stað
!ær engin sild
lefur borizt á
áxaflóahafnir
Mikið var um að vera í Vest
höfnin af síld, svo vel
dag, en báða þá daga moraði
höfnin af síld, svo sem bezt
hefði mátt veiða frá bryggj-
unum. Aftur á móti er minna
um síld í Faxaflóa, eða svo’
hefur virzt, þá sjaldan gefið
hefur frá Faxaflóahöfnum.
Vestmannaeyjahöfn er svört af
síld, svo að ekki hefst undan með
að ausa henni upp í bátana, og
mætti veiða hana úr landi, ef ekki
væri sá hængur á, að síldarpressu
vantar í Vestm.eyjum, svo ekki
er hægt að vinna síldina þar, held
ur verður að flytja hana til Grinda
víkur.
Einn veiðir, annar flytur
Þvi er sá háttur á hafður, að
nokkrir bátar veiða síldina, en aðr
ir taka við henni og flytja til
Grindavíkur. Þannig kastaði m/b.
Guðbjörg í fyrradag og fékk 300
—400 tunnur, sem m/b Júlía flutti
Framhald á 2. ,síðu.
ást síðast með
ókunnum manni
Lýsi eftir piiti úr Hafnarfirði sem hvarf
síSast liðið sunnudagskvöíd
S. 1. laugardagskvöld fór
Baldur Jafetsson, Bröttukinn
6, Hafnarfirði, að heiman frá
sér og hefur ekki siðan látið
til sín heyra. Þó sást til ferða
hans í Reykjavík og Hafnar-
firði á sunnudaginn en síðan
hefur enginn til hans spurt.
Baldur Jafetsson er 22 ára að
aldri, frekar hávaxinn og grann-
ur, skolhærður og var klæddur
steingráum jakkafötum, berhöfð-
aður á svörtum skóm, þegar hann
hvarf.
í fylgd með ókunnugum
Eins og áður er sagt, fór hann
að heiman frá sér á laugard.kvöld,
kom ekki heim um nóttina, en
sást daginn eftir á götu í Hafnar
firði í fylgd með ókunnugum
manni. Kl. 15,10 fóru þeir báðir
til Reykjavíkur með strætisvagni
og stigu úr honum í Lækjargötu.
(Framha)d á 2. síð'u')
Alltaf þegar eitthvað bjátar á
hjá Fidel Castro forsætisráð-
herra á Cúbu, þýtur hann í sjón-
varpið til að róa landa sína og
telja í þá kjark. Og það hefur
margt farið aflögu hjá Castro að
undanförnu og hann er því tíður
gestur í sjónvarpinu. Hann held-
ur langar ræður allt upp í fimm
klukkustunda langar, og notar
efsfu fóna raddsviðsins mikið og
baðar út öllum öngum til áherzlu.
Castro æsir nú mjög til andúðar
á Bandarík junum og telur að
bandaríska stjórnin vinni leynt
og Ijóst að því að steypa stjórn
sinni. Castro æpir gegn stjórnar-
andstöðunni I sjónvarpið, en
stjórnarandstöðunni vex nú ás-
megin á Cúbu, því margir af
þeim fjölda fólks, sem trúðu þvi
í raun og veru að Castro myndi
gera Cúbu að himnaríki á jörðu,
hafa nú snúizt gegn honum af
eintómum vonbrigðum.
Framkvæmdir við Efra-Fall
hafa gengið allvel að undan-
förnu, og vonir standa til, að
hægt verði að hleypa vatninu
á um miðjan næsta mánuð,
eða aðeins hálfum öðrum mán
uði síðar en til stóð, áður en
stíflan brast þar í sumar.
Árni Snævarr tjáði blaðinu í
gær, að verið væri að fóðra göng
in að innan, en þau væru nú full-
frágengin við efri endann, lokar
komnir og búið að reyna þá með
vatni'. Búizt er vig að lokið verði
við að steypa innan í göngin um
20 þ.m.
Allt gengið vel
Verkinu hefur miðað vel áfram að
undanförnu, enda fíðarfar verið
hagstætt, þar isem ekki í«fur gert
snjó. Snjórinn veldur mönnum
mestum áhyggjum austur þar,
taki að snjóa að ráði, þótt ekki
væri nema um stuttan tíma, get-
ur þag orðið til þess að seinka
verkinu öllu um nokkurn tíma.
Unnið aS mörgu í senn
Blaðið hafði einnig tal af Stein
grími Jóns'syni, rafmagnsstjióra,
og sagðist honurn svo frá, að reynt
væri að samhæfa sVolhinar ýmsu
aðgerðir í sambandi við hina nýju
virkjun, að allt yrði tilbúið í senn.
Uppsetningú vélasamstæðunnar
yrði að öllum líkindum lokið, þeg
ar göngin væru tilbúin til þess
að hleypa á þau vatni, og einnig
yrði lögð ný háspennulína frá
hinni nýju virkjun til írafoss, og
stöðin þar stækkuð jafnhliða. Þá
væri einnig unnið að stækkun
spennistöðvarinnar við Elliðaár,
þannig að allt kerfið yrði tilbúið
að taka við hinni nýju orkuaukn-
ingu, þegar vélasamstæðan færi í
gang.
Tilbúið um áramót
Kvaðst Steingrimur vona, að
hægt yrði að taka hig nýja orkú-
Framhald á 2. síðu.
ER LAX VEIDDUR MEÐ HEYKVÍSL-
VIÐ VASALJÓS EFTSR FRIÐUN?
EFTIR því sem meira verður
um það, að menn veiði lax á stöng
hér á landi og drífi það eins og
sport, heyrast stöðugt háværari
raddir um það, að þörf sé á að
vernda laxastofninn betur en gert
er, meg meiri friðunum og tak-
mörkunum á veiði. Sannleikurinn
mun vera sá, að sumar ár eru illa
tarnar sem laxár sökum ofveiöi.
Öðru máli gegnir um þær ár, þar
sem varfærni er gætt í veiðiskapn
um.
ÖÐRU HVERJU heyrast ljótar
sögur af ,,veiðimennsku“, þeirra,
sem litla hugsun hafa á því,
hvert tjón þeir vinna með atferli
sínu. Má í því efni mmna á dyna
mit sprengingar, sem hér hafa átt
sér stað á undanförnum árum ein
um 'tvisvar sinnum. Er þar um að
ræða óþokkaverk, sem varla geta
talizt unnin af sjálfráðum mönn-
um, og unnin samtímis' því, að
fjöldi manna leggur fram mikla
vinnu og mikið fé til að auka laxa
gegnd í ám með klaki og stiga-
gerð í fossum.
EN AÐFERÐIRNAR við laxa-
drápið geta tekið á sig ým.sar mynd
ir og sú síðas’ta sem spurzt hefur
um, sýnir. enn meiri hugkvæmni
en dynamitnotkunin, þótt hún sé
ekki eins stórtæk og hættuleg sem
útrýmingaraðförð. Það hefur sem
sag't spurzt, að menn hafi lagt
sig eftir því að veiða lax með hey
kvíslum, eftir að hann hefur verið
friðaður á haustin, og varasamt
hefur þótt að vera að busla með
jafn uppáskrifað veiðitæki og net.
Framhald á 2. síðu.