Tíminn - 04.11.1959, Page 8

Tíminn - 04.11.1959, Page 8
8 T í M I N N, miðvikudaginn 4. nóvember 1959. 3. síðan Pedro hafa sterkari taugar. Þe:r eru sannfærðir um, að mennirnir níu séu vopnaðir. Þeir vita ekki að algeirski frelsisherinn hefur gefið mönn- um sínum í Þýzkalandi skipun um að ganga óvopnaðir. Hryðjuverkamaðurinn Viari á von á kúlu í bakið á hverju augnabiiki. Hann hleypur að Renaultbílnum og snarast inn. Svisslykillinn er í. Hann ræsir vélina. Pedro hleypur upp í og þeir aka burt í loftköstum. Gert Miilier stendur eftir umkringdur vinum sínum Þeir eru stúdentar og verka- menn, sem hinum unga Al- geirsbúa hefur tekizt að safna saman. Mannaveíðar — Viari og Pedro sitja á næturklúbb og nýr maður hef- ur bætzt í hópinn, Romeo, sem réttu nafni heitir Roger Christ- ian Durieux. Við annað borð situr maður með loðnar auga- brýr. Hann er einn af leiðtog- um Rauðu handarinnar. Þegar hann heyrir um hina misheppnuðu morðtilraun, hristir hann höfuðið. — Gert Miiller verður að deyja, segir hann, og þar næst Morris, maðurinn, s’em annast vopnakaup fyrir Algeirsbúa. Mannaveiðar eru hafnar á nýjan leik. Minningarorð: María Gísladóttir frá Skáleyjum SUNNUDAGINN 9. ágúst 1959 lézt að Skáleyjum á Breiðafirði María Gísladóttir, 91 árs að aldri. Verður þessarar mætu og merku sæmdarkonu hér að nokkru getið. María var fædd að Auðs- haugi á Hjarðarnesi 23. júní 1868. Foreldrar hennar voru Gísli hrepp stjóri Einarsson, Guðmundssonar bróður Eyjólfs Einarssonar í Svefn eyjum og Kristín Jónsdóttir Ólafs- sonar i Hvallátrum. Björn Jóns son ritstjóri og systurnar, Herdís og Ólína og María voru þannig systrabörn. Þó ekki sé lengra hald ið í ættfærslu Maríu nægir þetta til að sýna að kjarnakvistir stóðu að henni í báðar ættir. Fjögurra ára gcmul fluttist María ásamt for eldrum sínum í Hvallátur, og þar dó móð:r hennar óri síðar. Stein- unn, systir Maríu, tók þá við bú- stjórn hjá föður sínum í Hvallátr- um og þar varð það hennar hlul verk að ganga telpunni í móður- stað, sem var yngst sinna systkina. Naut hún þannig móðurlegrar umsjár þessarar eldri systur sinn- ar, unz hún giftist Jóni Þórðarsyni cg reisti með honum bú að Haga á Barðaströnd. Minntist María ávaltl þessarar systur sinnar með isérstakri hlýju. Þegar hún var át-ta ára að aldri, kvæntist faðir hennar seinni konu sinni, Kristínu Pétursdóttur Jónssonar og Mar- grétar Magnúsdóttur, systur Joch- ums Péturssonar í Skógum og fluttust þau hjónin 1 Skáleyjar á Breiðaf'rði fjórum árum síðar, en þá var Man'a tólf ára og átti hún Austur-Landeyingar Minnzt verður 50 ára afmælis U.M.F. Dagsbrúnar í Gunarshólma 21. nóv. n. k. Eldri og yngri félagar velkomnir. Væntanlegir þátttakendur gjöri svo vel og tilkynni þátttöku sína fyrir 15. þ. m. til Magnúsar Finn- bogasonar, Lágafelli eða Ingólfs Björgvinssonar, Laugarnesvegi 102, sími 33214. Stjórnin. Sendisveinn óskast fyrir hádegi eða allan daginn. PRENTSMIOJAN EDDA H.F. nnnnnnnnnntnntnttttittnnttnmnmuntitttnnmmnnnmii Blaðburður Ungiing vanfar til blaoburðar í HÁTELGSVEG KÁRSNES STÓRHOLT Afgreiðsla TÍMANNS ♦*♦♦♦*♦*♦>*♦♦***♦♦♦♦*♦♦• mn: ..................... mtmmmmnmmmj heima í Skáleyjum upp frá því, eða í sextíu og niu ár. Hinn 3. jam. 1894 giftist hún Jóhannesi Jóns- syni, syni Kristínar Pétursdóttur, og voru þau hjónin því stjúp- systkin. Ungu hjónin voru á vist meö foreldrum sínum fram til árs- ins 1899, en þá andaðist Gísli. óku þau María og Jóhannes þá við búi á hálfum Skáleyjum og bjuggu þar af mikilli snyrtimennsku fram til ár.s:ns 1918, er Jóhannes lézt, en María rak þó búskap ásamt börnum sínum um níu eða tíu ára skeið, en fékk þá búið í hendur Gisla syni sínum, er þar hefur búið síðan, en hjá honum og tengdadóttur sinni, Sigurborgu Ólafsdóttur frá Ilvallátrum, dvald ist hún svo t;l æviloka. Hér hefur verið drepið á mokk- ur he-lztu æviatriði Maríu Gísla- dóttur í Skáleyjum. En hvernig var hún svo, þessi kona? Ég átti því lán; að fa.gma að þekkja hana frá barnæsku og hún mun ávallt koma mér í hug, er ég heyri góðr- ar konu getið. Hún átti þá góðvild og hjartahlýju, er iaðaði jafnt barnslundina og hertan hug. Ég dvaldi á heimili hennar um þriggja mánaða skeið, er ég var enn barn að árum. Þau kynni ein hefðu nægt til ævilangrar vin áttu og þakklætis, þó ekki hefðu komið til nánari kynni á þroska- árum mínum, sem raunar hafa engu breytt um viðhorf mitt til þessarar göfugu konu, aðeins auk- ið við þekkin.gu mína á hennj og leitt til dýpri skilnings og raun- hæfara mats. Mér er ekki ku.nnugt um að hún hafi nokkru sinni átt sér óvildar- mann, enda fæ óg ekkt skilið hvernig slíkt hefði mátt verða. Hún vildi öllum gott gjöra og leitaði ávallt í umsögn sinni að einhverju góðu í fari hvers sam- ferðamanns. Hjartahlýja hennar og blessunaróskir náðu jafnt til ungs og aldraðs, til manns og mál- leysingja. María var fríð kona og gjörvileg, sem barni fannst mér hún bein- línis fögur, og þannig geymist mynd hennar í huganum, þótt ég búist við að því mati ráði fremur glaðlegt cg laðandi viðmót hennar en kalt mat einhverra fegurðarsér- fræðinga. Hún var greind vel og starfsöm, stjórnsöm og að ég hygg stjórnhög. Hún var ákveðin, ef því var að skipta og gat haldið fast á máli sínu, en þó jafnan af hógværð og stillingu. María var einn af búendum V.estureyja á því tímabili, er einna hæst ber í sögu þeirra á ýmsa lund. Svefneyjar sátu þá Magnús Jóhannesson cg Guðný Jóhanns- dóttir. Hergilsey Snæbjörn Krist- jánsson og Guðrún Hafliðadóttir. Hvallátur Ólafur Bergsveinsson og Ólína Jónsdóttir, Sviðnur Eyjólfur Ólafsson og Kristín Guðmunds- dóttir og mótbýlisfólk hennar í Skáleyjum voru Skúli Rergsveins- son og Kristín Einarsdóttir, bróð urdóttir Maríu, svo nokkrir séu nefndir. Má óhætt telja að vel 'hafi verið skipað hvert rúm þess arar litlu en fögru eyjabyggðar. Heimili þeirra eyjabænda voru kunn að rausn og myndarskap og ég hygg að María hafi þar í hópi haldið sínum hlut og eins eftir það, en hún missti sinn ágæta mann, en hafði þá aðeins ungling sér til aðstoðar við bústjórnina. Sýnir það ásamt fleiru, hve mikilli at- orku og kiarki hún bjó yfir, þegar móti blés. En þar mun og hafa komið henni að góðu haldi sú hjartahlýja og góðvild, er hún var svo rík af og gerði hana að hvers mamis hugljúfa. Hún átti áreiðan- lega velvild allra eyjabúa óskipta, þó nánust muni sarnskipíi hennar og sambýlisfólksiiái eðlilega hafa verið. Var sambýlið í Skáleyjum til fyrirmyndar, og þó María muni þar hafga átt sinn hlut að fuliu, kemur o.g til hlutur Skúla Berg- sveinssonar, þess ágæta og prúða manns, og konu hans Kristínar Einarsdóttur, frænku M,aríu. Enda ríkti einlæg vinátta milli heimil- anna og mun fáa skugga hafa bor ið á. Ekki verður Maríu í Skáleyjum svo minnzt, að ekki sé að nokkru getið vináttu henn-ar við Látra- heimilið, sem var bæði löng og traust. En þær Ólína I Hvallátr- um og María í Skáleyjum voru æskuv'nkonur og hélzt sú vinátta rneðan báðar lifðu, enda áltu þær margt sameiginlegt og voru um margl líkar. Maria og .Jóhannes eignuðust 10 börn. Tvö dóu nýfædd, en til fullorðinsára komust: Guðmundur simagjaldkeri 1 Reykjavík, kvænt- ur Sigríði Jóhannsdóttur frá Flat- ey, Andrés Straumland, er kvænt- ur var Sigrúnu Pálsdótlur frá Litlu-Heiði. Hann lézt 1945. Stein unn, hjúkrunarkona í Reykjavik, rv-m> LátiÓ Perlu létta störfin! ... efterfc áeppur ókeint í gegn! , • ,, f. '! ekkja eftir Valtý Valtýsson lækni á Kleppsjárnsreykjum, Gísli bóndi og hreppstjóri í Skáleyjum, kvænt ur Sigurborgu Ólafsdóttur frá Hvallátrum, Jón, umsjónarmaður á Hótel Borg, Kristín kennari á ísafirði, Margrét, gift Birni Jóns- syni skólastjóra á Hvammstanga og Ingveldur, búsett í Réykjavík, gift Bergsveini Skúlasyni frá Skál- ■eyjum. Auk þess ólust upp á heimili þeirra nokkur fósturbörn að meira eða minna leyti. Má af því ráða að heimilið var all annasamt, einnig þegar þess er gætt, að ávallt dvöld ust þar nokkur gamalmenni, sem nutu umsjár og umhyg.gju húsmóð- urinnar og er það ætlun mín, að þeir muni á einu nváli, er nutu umsjár Maríu að þar hafi verið gótt að vera og ekki mun öllum hent ag feta í fótspor þessarar hljóðlátu konu. En ég hygg að henni væri ekki að skapi mikil mælgi um unnin afrek hennar. Hún mundi gefa guð; einum dýrð- ina og þakka honum handleiðslu alla, því að hún var einlæg trú- kona og þangað mun hún löngum hafa sótt styrk sinn. Ég tel að María í Skáleyjunv hafi verið gæfukona, þrátt fyrir sor.gir og andstreymi. Hún átti því láni að fagna að eiga góð börn, sem hún kom öllurn vel til manns og öll hafa reynzt hinir ágætustu þegnar. Hún átti líka óskipt traust og kærle'ka allra sinna barna, fóst- urbarna, tengdabarna og barna- barna, sem flest höfðu náin kynni af sinni góðu ömmu. Hún var því auðug þrátt fyrir að henni safnað ist aldrei fé á veraldarvísu. Öll börnin hennar gerðu sér far um að gleðja hana cg láta henni í té alla þá umönnun, sem þau gátu veitt. Ur Skáleyjum vildi hún ekki fara, hún elskaði evjuna sína, þar vildi hún lifa og deyja. Síðustu æv:árin var hún þrotin að kröftum og naut hún þá sér- stakrar umhyggju tengdadóttur sinnar S:gurborgar úr Hvallátrum, dóttur Ólínu æskuvinkonu hennar. Mun það iafnt gleðiefni þeim vin- konum báðum að svo skyldi verða. í stuttri minningargrein gerist þess enginn kostur að rekja langa og merka sögu, svo sem vert væri. En nöfn þeirra, sem afreka miklu í hljóðlátu starfi mega ekki gleymast. Ég færi Maríu í Skáleyjum þökk rnína og annarra samferðamanna fyrir samfylgd og le:ðsögn. í sö.gu Breiðafjarðareyja mun nafn hennar geymast ásamt nöfn- um þeirrar kynslóðar, er hún var síðasti fulltrúi fyrir. Allur hinn stóri hópur barna hennar. vina og vandamanna blessa minningu hennar. Meðan ís land eignast margar mæður henni líkar, er vel fyrir öllu séð og einskis að örvænta um hag þess og gengi. Theódór Daníelsson. ÍSÍttíttttítttttttttttttttttítttttttítttattttt PantiS sólþurrkaðan Saltfisk í sima 10590. Heildsaia — smásala Jttttttíttttaattttttíttttttttttttttaíattttt «11 e frá upphafi til sölu. Bókahúðin Klapparsííg 20 b (Gengio inn frá Klappar- stíg). ítttttttttttttttttttttttttttttttttttttttttia Hremgerningar utan- og innanbæjar. GuSmundur Hólm Sími 15133.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.