Tíminn - 07.01.1960, Síða 1
Reykjavík, fimintudaginn 7. janúar 1960.
stórvirki í kvikmyndagerð
bls. 7
44. árgangur.
Óperusöngvarinn sem háði einkastríð
bls. 3.
Vettvangur æskunnar, bis. 5.
Kamerun, bls. 6.
íþróttir, bls. 10. I
3. blað.
f-----------------------
Brot Or haf-
ineynni söiu-
varningur?
Fréttamaður blaðsins var í
gær staddur í kvikmyndahúsi
og heyrði þá glefsur úr sam-
tali þriggja stráka, sem sátu
fyrir framan liann, en þeir
ræddu um sprenginguna á haf-
meynni. Af samtalinu virtist
mega ráða, að brot úr styttunni
væru orðinn söluvarningur, því
að einn sagði: — Helvíti fékk
ég gott fyrir mitt stykki. Annar
sagði: — Bölvaður asni var
IIANN að setja dýnamítið í
sporðinn á. henni. Virtist tal
strákanna benda til, að þeir
vissu meira en lítið um spreng-
inguna og hefðu náð í brot úr
styttunni áður en lögreglan
kom á staðinn.
-----------------------/
Um 5000 kr, stolið
Tvö innbrot voru framin í
Reykjavík í fyrrinótt, annað hjá
BSÍ, en þar hafði þjófurinn upp
úr krafsinu 3—4 þúsund krónur.
Skrifborð hafði verið mölvað upp
og peningarnir teknir 'úr kassa,
sem þar var geymdur. Nokkuð
af sælgæti og tóbaki var hrifsað
úr sælgætissölunni, sem er í
liorni stöðvarinnar.
Þá var brotizt inn í Adlonbar-
inn á Laugaveg 126 og stolið
1000 krónum.
enmrnir
taldir af
Það var engu til sparað og þegar síðasta hönd hafði verið lögð
á verkið var reikningurinn kominn upp í ?5 milljónir dala —
IJbbs- fimmtán milljónir —. Dýrasta kvik-
K3l©sl nUr mynd, sem nokkru sinni hefur verið
gerð í heiminum. — En þessum peningum virðist ekki hafa
verið kastað á glæ, því nú hefur Ben Hur verið úrskurðuð
bezta .kvikmynd ársins. Þessi mynd hér að ofan sýnir þá
Charlton Heston og Jack Hawkins í hlutverkum sínum. Sjá
grein um kvikmyndina á 7. siðu.
Eins og getið var um í blað-
inu í gær, var óttazt um v.b.
Rafnkel, GK 510 frá Garði.
Leit hefur ennþá ekki borið
árangur en mikið brak úr
bátnum hefur fundizt rekið,
svo varla verður lengur efazt
um afdrif hans.
Brakið hefur fundizt á allstóru
svæði, eða frá Stafnnesi suð'ur í
Hafnir. Þar hefur meðal annars
íundizt endabauja, dekkplankar
og lúkarshurðir.
6 manna áhöfn
Sex manna áhöfn var á bátnum,
4 úr Sandgerði' einn úr Garða-
hreppi og einn frá Reykjavík.
Nöfn þeirra voru þessi: Garðar
Guðmundsson, Garðahreppi, 41
árs, -lætur eftir sig konu og 9
böm. Björn Antoníusson, sitýri-
maður, Reykjavík, 30 ára lætur
eftir sig ikonu og tvö börn. Vil-
Framhald á 2. síðu.
Á gandárskvöld átti ís-
lenzkur hestur í orrustu við
þýzkættaðan Volkswagenbíl
á veginum fyrir ofan Borgar-
nes og lauk þeirri viðureign
svo ao hjólagandurinn
skreiddist á bílasjúkrahús,
skrámaður og limlestur,
blindur á framljósum og illa
til reika en Faxi mun hafa
lötrað út í haga og farið að
bíta gras, ósár að kalfa.
Allt frá landnámsöld hefur hest-
urinn verið þarfasti þjónninn hér
á landi, klr'ngrast fjallvegi með
mann á baki, sprett úr spori á
siétlum grundum og dregið þungt
æki að bæiafhlaði. Það er því eng-
ín furða þótí því ágæta dýri fynd-
ist sér misboðið, þegar því er fyr-
irvaralaust þokað til hliðar fyrir
reykspúandi og skröltandi vél-
skrímslum á 20. öld eftir langa og
dygga þjónustu. Og nú var enginn
sem klappaði á sveittan makkann
með gæluorðum þegar hnakkur
eða aktygi voru dregin af baki eft-
ir stranga ferð.
Ungpíur og bjórvambir
Þarfasti þjónninn naut ekki
rneiri virðingar en svo að hann
var látinn gíujga úti í stóði ellegar
teldur S'em hyer önnur stykkjavara
í önnur lönd, ungpium og bjór-
vómbum til tíðfordrífs. — Það er
oíur skiljanlegt að hinu göfuga
dýri rynni til rifja að hafa misst
heiðurssætið, enda hafa klárarnir
■alltaf litið bílinn hornauga og
hugsað honum þegjandi þörfina.
öjafn leikur
Á gamlárskvöld kl. 11 þeyttist
Volkswagen-bifreið eftir veginum í
áttina að Borgarnesi, s'tássleg og
síolt, afsprengi vélaaldar og uggði
hvergi aö sér. — Þá verða fyrir
henni fjórir hestar sem komu á
stökki úr gagnstæðri átt og sáu
þegar í hófa sér að hér mundi færi
á a?j glet'tast nokkuð við sinn
erfðafjanda. Höfðu þeir ekkert
hnegg um, en einn þeirra réðist af
vígamóði' á bifreiðina, prjónaði
upp og frísaði hátt, lét síðan harða
lcfana dynja á málmhúð óvinárins
og dró ekki af. Fólksvagninn gat
(Framhald á 11. síðu)
Á árinu 1959 hafa svo að
segja engin ný lán verið
veitt úr Bvggingasjóði Bún-
aðarbankans, þótt mikill
fjöldi lánabeiðna liggi nú
fyrir, og vandræði manna
mikil víða um land. Um ára-
mótin hefði þurft a. m. k. 10
millj. kr. til þess að fullnægja
í.vo sem nauðsyn er þeim lán-
beiðnum, cem fyrir liggja.
Astæðan er sú, að fyrrverandi
ríkisstjórn brást algerlega í
því efni að útvega sjóðnum fé,
og hin nýja stjórn hefur
einnig alveg svikið það til
þessa, þrátt fyrir loforð í því
efni.
Mun það ekki hafa komið fyrir
síðan á dögum nýsköpunarstjórn-
arinnar sælu, að lánasjóðir sveit-
anna fengju engin framlög til lána
af 'hálfu rí'kisvaldsins, þótt mis-
jöfn 'hafi fjárráð sjóðanna verið.
Stjórnarvöldin sviku það allt s. 1.
ár að afla íbúðalánakerfi kaupstað
anna fjár, en nú um þessi áramót
loks útvegað 15 millj. kr. Hins
vegar hefur alveg verið gengið
fram hjá byggingasjóði sveitanna,
svo að hann hefur engin lán getað
veitt, nema lítils háttar fram'hald
eldri lána af eigin starfsfé-
Innantóm loforð
Hinn 30. nóv. s. 1. bar Halldór
Sigurðsson, þingimaður Vestur-
landskjördæmis, fram utan dag-
skrár fyrirspurn til ríkisstjórnar-
irrnar ’Og mælti m. a- á þessa leið:
„Fær ræktunarsjóðurinn nú
þegar þær 25 milljónir króna af
bandaríska láninu, scm honum
voru ákveðnar eftir 22. gr. yfir-
standandi fjárlaga?
í öðru lagi: Fær ekki ræktunar-
sjóðurinn þær tekjur, sem hon-
um eru ætlaðar úr mótvirðissjóði,
einnig nú þegar?
í þriðja lagi: Verður bygginga
sjóði Búnaðarbankans ekki séð
fyrir fé, svo að hann geti afgreitt
þær lánbciðnir, sem fyrir liggja
hjá bankanum, en þær munu
nema um 10 millj. kr., og af-
greiðsla geti farið fram fyrir ára-
mót“?
Ingólfur Jónsson, landbúnaðar
ráðherra, varð fyrir svöruni og
r>agði m. a-:
„Ég 'geri mér vonir um, að rækt
unarsjóður geti hafið lánastarfsemi
isína í næsta mánuði á sama hátt
og áður . . . “ (þ. e. desember).
Og ennfremur sagði Ingólfur:
,,Ég vil einnig upplýsa það, að
það mun verða gert, sem unnt
cr, til þess að sjá um, að bygg
ingasjóðurinn geti innt hlutverk
sitt af hendi nú ekki síður en
áður . . . Það mun verða gert
það, sem unnt er til þess að þess
ir sjóðir geti hafið lánastarfsemi
sína í byrjun næsta mánaðar“
(þ. e. desember).
Engar efndir
Þetta mega iheita sæmileg loforð.
En desember er liðmn og komið
fram í janúar, án 'þess að bygginga
sióður og ræktunarsjóður hafi feng
ið fé sAt. Þannig hefur fyrrverandi
ríkisstjórn og sú, sem nú er sezt
á stóla, g'ersamlega brugðizt í
þessu efni og engan lit sýnt á því
að efna beit Ingólfs.