Tíminn - 28.01.1960, Blaðsíða 9

Tíminn - 28.01.1960, Blaðsíða 9
TÍWINN, flmmtudaginn 28. janúar 1960. 9 Charles Garvice: ÖLL ÉL BIRTIR UPP UM SÍÐIR 21 okkar er í sjöunda liimni, eins Og' þú getur riærri'. Við bjugg ■umst við að geta fengið frest vegna gifbingar þirinar, en þetta er þúsund sinnum betra. — Dæmalaust þykir mér vænt um þetta, Guy, sagði Rósamunda. — Föður okkar liefur farið mjög aftur síð- ustu vikurnar, en nú kemst þetta allt í lag aftur, og við þurfum engu að kviða framar. Heldurðu það ekki, Guy? — Það gleður mig líka þín vegna, sagði hann, — því að riú ertu ekki lengur neydd til að giftast Tom hálf-nauðug. | Henni hnykkti við. — Því talarðu svona, Guy? spurði hún. — Þetta er það Ijótasta sem ég hef nokkru sinni heyrt þig segja.' Það var ekki eingöngu peninganna vegna að ég játaði'st Tom, þó að ég geti ekki borið á móti því, að væntanleg lið- veizla við föður okkar réði þar nokkru um. Eg tók hon um vegna þess, að mér leizt mjög vel á hann. — Jæja, þá er allt gott og blessað, svaraði Guy hálfveg is efandi.— En meðal annarra orða, þá hefurðu líklega ekki sagt honum frá veðsetning- unni? I — Nei, ekki hef ég gert það, sagði hún. — Eg hef ekki nefnt þaö við nokkurn mann — nema Martein Dungal. —Já, svaraöi systir hans. — Eg hitti hann i skóginum hérna um daginn, og þá bað hann mig að segja sér allt, sem á dagana hafði drifið fyrir okkur síðan hann fór héðan. — Þú ert handgengnari honum en við, svaraðai bróð- ii' hennar, ■ — og gæti ég þó bezt trúaö að málum okkar væri komið í þetta horf fyrir hans tilstilli. Eg veit eklci' hver annar það ætti að vera, sem hefði komið þessu til leiðar. Við feðgarnir höfurn ekki' minnst á þetta við neinn, en hver sem það er, þá hlýtur hann. að vera búgarðinum ná kunnur, og vita vel hvaö hann hefur í séi’, og þú mátt reiða þig á, að það er enginn annar en Marteinn. — Eg^ ætla að reyna að kom ast eftir því, ef mér er mögu- legt, sagði Rósamunda, en hvað sem þvi líður, þá gleður þetta mig innilega. Nú getur þú hagað athöfn'um þínum hér á búgarðinum eftir þin- um geðþótta, og' ég er fullviss, að árangurinn verður bæði mikiil og góður. — Eg ætla að réyna hvað ég get, svaraði Guy, og mér er þetta meira gleðiefni, Rósamunda en þú gerir þér í hugarlund, því að ég hygg, að þetta verði uppliaf ,gæfu minnar. Hún þóttist vlta hvað 'íú'nn ætlaði að segja rrekar, m vissi ekki hv'i'iug hún a- ,ti að aftra honu.n frá þvi. — Eg verð' að segjg pér, Rósununda, við hvað ég- á; af því að þú ert systir mín og vinkona hennar. Eg hef ekki þorað að gera mér nein ar vonir undanfamar vikur, meðan allt virtist vera komið í óefni, en nú finnst mér allt vera fært þegar úr þessu greiddist á þennan hátt, og þú verður, sem góð systir, að segja mér, hvort þú held- ur að mér takist að ná ástum Charlottu, ef ég legg mig all an fram. Kvenfólkið sér miklu lengra í þeim efnum en við karlmennirnir. Stundum hef ég ímyndað mér, að henni væri hlýtt til mín, en hugsað svo aftur, að það væri mesta fávizka af mér að halda að slíkt geti átt sér stað. Hann geröi skjótan endi á tölu sinni, þegar hann tók eftir því, að systir hans varð þung á svipinn. — Hvað er nú? spui'ði hann. — Má ég ekki gera hér neinar vonir? Hefur hún minnst á þetta við þig? — Ekki beiixlinis, góði minn svaraði hún blíðlega, en eftir því, sem Charlottu fórust orð við xnig hérna um kvöldið, þá komst ég að raun um, að hún er ekki sú kona, sem ætlar sér að lát-a ástina sitja í fyrir rúmi' fyrir öðru — hún tók það skýrt fram, og lagöi á- herzlu á það. — En það væri kannske öðru máli að gegna ef við gætum auðgast á búskapn- um? sagði hann. — Ekki held ég það, sagði hún seinlega. — Ef Charlotta lætur til leiðast að giftast á annað borð, þá mun hún velja sér þann mannirin, sem hún veifc að hún mundi ekki telja sig fullsæmda • af því lítil- ræði, sem þú hefur að bjóða, jafnvel þótt búskapurinn gengi að öskum. Eg skal segja þér, góði íninn, hvernig í þe,ssu li'ggur. Charlotta hefur átt við þröng kiör að búa að ýmsu leyti, og það væri ósann gjarnt að ætlast til, að hún léti' sér lynda að lifa við jafn- iífcil efni og viö höfum, því að ekki getum við orði'ð stórrik núna á sömu stundu, Guy minn góður. Guy Fielding brá liturn og dró æði mikið úr fögnuði hans. Hann þagði um stund, en sagði svo allt i einu: — Já þetta er nú hægt að segja. En ef kvenmaður ann karimanni af alhuga, þá er hún fús til að ganga með hon um i bliðu sem stríðu. — Já, en gœttu nú a<5, svar aði hún. Það væri óviðkunnan legt að fara fram á slíka sjálfs afneitun við hana. Setjum nú svo að búskapurinn yrði ekki nein auðspretta eftir allt sam an. — Hann skal verða það, sagði hann einbeittur. Og meira að segja Skal ég ekki trúa því að ég verði gerður afturreka fyrr en hún neitar mér sjálf. — Þú mátt ætla um það hvað sem þér sýnist, sagöi hún, og sá að ÞaÖ var ekki til neins að eyða fleiri orðum við Guy um þetta. Guy svaraði engu, en stajck höndunum í vasana, gekk út að glugganum og sneri sér undan til þess að hún skyldi ekki sjá, hve mikið þetta fékk á hann. Hann efaðist að vísu ekki um, að systir sín segði sér satt og rétt frá samtali þeirra, en hins vegar varð honum hugsað sem svo, að Charlotta kynni að hafa sagt þetta af glettnl, ei'ns og stúlk ur stundum gera þegar þær eru að spjalla um giftingar og ástamálefni. Hann reyndi að telja sjálf um sér trú um að Rósamunda hefði misskiiið hann, og fast- réð hann með sér að tjá Char lottu ást sina við fyrsta tæki færi, segja henni' allt af hög um sínum og framtíðarvonum og því næst---- Hann vildi' ekki hugsa lengra út í þetta, því að hon um flaug allt í einu í hug, hvort þessi umkomulausa að- alsmannsdóttir hefði verið að gefa sér undir fótinn aðeins vegna þess, að hún hafði hald ið hann auðugri en hann var. Meðan hann var að velta þessu fyrir sér, hafði Rósa- munda gengið út og hélt á- leiðis inn í skóginn. Hún var aðeins komin kippkorn inn í hann þegar hún heyrði ein- hvern yrða á sig með nafni. Leit hún þá upp, og sá hvar Marteinn Dungal stóð fyrir framan hana. — Eg held ég verðí að kalla yður engilinn hugsandi, sagði hann formálalaust, — Því að þér likist helzt einhverri þess háttar veru með glóbjart flaksandi hái'ið og alvöru- gefið andlitið. Eg skil aðeins ekki hvers vegna þér eruð svona þungbúin. Á yðar aldri ætti lífið ekki að vera annað I en tómur leikur og svo er! nú kærastinn i viðbót! Eruð þér ckki ánægð meö hann? Rósamunda litla. Það var einhver hæðnis- keimur í röddinni, sem særði hana, og var það því ekki alls endis þykkjulaust, að hxin svai-aði honurn: — Hvei's vegna erúð þér alltaf að stríða mér á kærast anum, rétt eins og hann væri ekki þess verður að þér nefnd uð hann með nafni? Þér eruð orðinn allt axinar maður en þér voi'uð, og allt sem þér seg ið er einhvernveginn svo kald ranalegt. Hann svaraði þessu engu, en sneri sér við og gekk þegj andi við hljð hennar. Hundur hans virtist vera- eitthvað d°'"c",s hán.n árti að'sér, og Rosamundu vöknaði um áug..... ‘rtð pg hún laut of an aö honum og klappaði á hausinn á honum. — Eruð þér angurvær Rósa munda?? spurði Marteinn allt i einu. og varð augnaráð hans þá svo þýðlegt, að hana mundi hafa grunað hváð honum var inni fyrir, ef hún hefði litið framan í hann. Hún heyrði að eins að röddin var þýðari og allur hæðnisblær horfinn úr ■ herini. Rann henni þá reiðin á svipstundu og tárin hrundu I riiður kinnar henni, en því I lézt Marteinn ekki veita neina eftirtekt. — Þetta virðist vera allt saman einhvern veginn öf- .... ípanð yOur hiaup a taíllx aiurgra verzlajari.! iMM «öm M! -Austureaæti. Vér bjóðum yður þetta frábæra kostaboð: Þér fáið tvo árganga — 640 bls. — fyrir 65 kr., er þér gerizt áskrifandi að r Tímaritinu SAMTÍÐIM I sem flytur ástasögur, kynjasögur, skopsögur, drauma- | ráðningar, afmælisspádóma, viðtöl, kvennaþætti Freyju | með Butterick-tízkusniðum, prjóna- og útsaumsmynztr- 1 um, mataruppskriftum og hvers konar hollráðum. — í | hverju blaði er skákþáttur eftir Guðmund Arnlaugsson, I bridgeþáttur eftir Árna M. Jónsson, þátturinn: Úr ríki | náttúrunnar eftir Ingólf Davíðsson, getraunir, krossgáta, | vinsælustu danslagatextarnir o. m. fi. 10 blöð á ári fyrir 65 kr. | og nýir áskrifendur íá einn árgang í kaupbæti, ef ár- | gjaldið 1960 fylgir pöotun. Póstsendið í dag eftirfarandi | pöntunarseðil: I Ég undirrit óska aS gerast áskriiandi að SAMTÍÐ- 1 INNI og sendi hér með árgjaldið 1960, 65 kr. (Vinsam- legast sendið það í ábyrgðarbréfi eða póstávísun). Nafn Heimili Utanáskrift okkar er- CAMTfnjM 'Pðe+nðlf 472. Rvík. PIUAR EFÞlÐ EiGIO UNNUSTUNA ÞA ÁÉG NRIN&ANA / »:>:>:>:>:>:>z»:>:>:>:>:>:>:>:>'>:>::»:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>>,.>:>:>:>'>>:’‘ Tilkynnin FRÁ SKATTSTOFU REYKJAVÍKUR Framtalsfrestur rennur út 31. janúar. — Fram- talsaðstoð er veitt á skattstofunni til kl. 7 e.h. fimmtudag, föstudag og laugardag til kl. 5. — Áriðandi er að þeir sem vilja njóta aðstoðar skatt- stofunnar við framtal, hafi með sér öll gögn varðandi skatta af fasteignum, skuldir og vexti. Skattstiórínn í Reykjavík »:>:»»:»;>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:»:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>:>::4:>::,<::4:>-íK:eB jörðin Otradalur fet ■*' ií við Bíldudal er til sölu nú þegar og laus til ábúðar í næstu fardögum. Góðar byggingar. Rafmágn. Súgþurrkun. Mjólkursala. Hlunnindi. Uppl. gefa Pétur Þorsteinsson, kfstj. Bíldudal og Gísli Jöns- son, alþm. Ægisgötu 10 Rvík, símar 24040 og 11740. f | Joro Jörð í góðu vegasambandi óskast til leigu eða kaups. Ef um leigu er að ræða vérður húsakostur að vera sæmilegur. Heyskapur þarf að vera góður. Tilboðum sé skilað til afgreiðslu blaðsins fyrir febrúarlok merkt „Góð bújörð“. endisveinn óskast fyrir hádegi. Þarf að hafa hjól. AFGREIÐSLA TIMANS • ■ - - '• ►:»öéí'

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.