Tíminn - 22.06.1960, Side 9

Tíminn - 22.06.1960, Side 9
 9 NORÐAN Fjóröungsþing Norðlendinga var haldið á Húsavík dagana 11. og 12. júní 1960. Mættir vom þar 16 fulltrúar frá sýslu- og bæjarfélögunum í Norð- lendingaf j órðungi. M. a. voru eftirfarandi ályktanir og tillögur samiþykktar á þinginu: 1. Handritamálið. Þingið ítrekar samþykkt sína frá 1957 um endurheimt íslenzkra 'handrita, svohljóðandi: „Fjórðungsþing Norðlendinga skorar á Alþingi og rikisstjórn og aiia íslendinga að halda fast á mál- stað þjóðarinnar í 'handritamál- inu. Telur þingið, að ef unnið sé að þessu máii með þrautS'eigju, festu og stillingu, þá hljóti svo að fara að lokum, að bræðraþjóð vor, Danir, viðurkenni rétt vorn til þessara dýrmætu fjársjóða". 2. Kom fram, og var samþykkt samhljóða, svohljóðandi þingsályktun: Fjórðungsþing Norðiendinga flytur Prentverki Odds Björnsson- ar, Akureyri, þakkir fyrir langt, glæsilegt og gifturíkt starf í Norð- lendingafjórðungi, og árnar því framtíðanheilla. 3. Endurreisn Hólastóls: Fj órðungsþing N orðlendinga- fjórðungs, haldið á Húsavík 11. og 12. júní 1960 vill árétta fyrri sam- þykktir um endurreisn Hólastóls og skorar á þingmenn Norðurlands að vinna að því að biskup, með fullkomnu biskupsvaldi verði stað- settur á Hólum, og að umdæmi ■hans nái yfir Norðlendingafjórð- ung. 4. Rafvæging landsins. Fjórðungsþing Norðlendinga haldið á Húsavík 11. og 12. júní 1960, skorar á ríkisstjórn og Al- þingi að hraða .sem mest má verða ■rafvæðingu landsins, og þar megi ekki lát á verða, fyrr en öllum sveitum og þorpum hefur verið tryggð nægiieg raforka með við- hlítandi kjörum. Fjórðungsþingið lftur svo á, að ekki komi til mála að heimtauga- gjöld séu hækkuð frá því, sem hefur verið, og íþyngja þannig þeim, sem orðið ihafa að bíða ofan á þær búsifjar, er sjálfsbiðin veldur. 5. Virkjun Jökulsár á Fjöllum. ^ Fjórðungsþing Norðlendinga, ihaldið á Húsavík 11. og 12. júní! 1960, leyfir sér að skora á yfir- stjórn raforkumála ríkisins að láta svo fljótt sem verða má Ijúka fulln aðaráætlun urn virkjun Jökulsár á Fjöllum og jafnframt athuga mögu leika til þess að koma upp stóriðju til framleiðslu á útflutningsvörum í sambandi við virkjunina. Telur Fjórðungsþingið að virkjun Jökuls ár — ef fullnaðaráætlun leiðir í Ijós að 'hún sé hagfelld, svo sem líkur virðast benda til — eigi að ganga á undan virkjun sunnlenzkra vatna til stóriðju, vegna nauðsynj- ar þeirrar, sem á því er að efla jafnvægi í byggð landsins. Lykillinn að lífsgátunni Það er víðar en í Reykjavík, sem mönnum blöskrar allt stöðumælafarganið. Politiken í Khöfn birti þessa mynd fyrlr skömmu með þeirri athugasemd, að greinilegt sé, að meirihlutlnn. i borgarstjórn Kaupmannahafn- ar, jafnaðarmennirnir, gangi með þá lífsheimspeki upp á vasann, að stöðumælar séu lokasvarið á lífsgátunni miklu. — Barnavagnsmyndin skýrir sig sjálf — á leiðinu stendur: Hér hvílir A. Jensen — ÞÓ EKKI LENGUR EN TVO TÍMA í EINU. 6. Askorun til atvinnumála- nefndar ríkisins. Fjórðungsþing Norðlendinga haldið í Húsavík, dagana 11. og 12. júní 1960, skorar á atvinnu- málanefnd ríkisins að láta rann- silka og gera ýtarlega yfirlits- skýrslu um náttúruauðlindir í Norðlendingafjórðungi og horfur á hagnýtingu þeirra. 7. Ríkisskrifstofur á Akureyri. Fjórðungsiþing Norðlendinga haldið á Húsavík 11. og 12. júní 1960 skorar á Alþingi og ríkis- ■stjóm að láta fara fram athugun á því að settar verði upp á Akur- eyri skrifstofur sem vinni að hafn- arframkvæmdum og skipulagsmál- um bæja og sveitarfélaga fyrir Norður- og Austurland í samráði við aðalskrifstofur efna í Reykjavík. þessara mál- 8. Lögheimiluð öfugþróun átalin. Fjórðungsþing Norðlendinga haldið í Húsavík dagana 11. og 12. júní 1960 átelur að gefnu tilefni þá öfugþróun í fjármálum að sparifé (Framh. á bls 15.) fólk hittist í samkvæmislífi eða við félagsstörf. Meira ber á þess kon- ar hækkun á spennu og kvíða hjá þeim sem eru spenntir, kvíðandi eða á annan hátt íaugaveiklaðir fyrir. Fyrir áhrif áfengisins verði menn öruggari og eðlilegri, og slaknar þá á taugum og vöðvum. Bindindismenn sem alizt hafa aftur á móti upp í þeirri skoðun að áfengisneyzla sé siðgæðislega röng, geta hins vegar litið á hana með sektarvitund, þar eð sumir trúflokkar, sem áhrif hafa haft á þá, trúa því að áhrif hennar séu af hinu illa. Aðrir trúflokkar nota áfengi til helgunar á trúarsiðum og í helgiathöfnum, þá yfirleitt mjög í hóf stillt. Allar þessar ólíku skoðanir skapa því tvískinnung í afstöðu samfélaganna til áfengis- ins. Annars vegar er því hælt og það er lofsungið sem sjálfsagður hlutur í trúar og siðvenjum, en hins vegar er því kennt um margs- konar glæpi, slys og óhöpp, og hafa allir nokkuð til síns máls. Gfan á allt þetta bætist mismun- ar.di smekkur manna, en um hann tjóar ekki að deila. Með alla þessa skoðanaringulreið að baksviði er ekki að undra þótt ofdrykkjumað- urinn sé litinn misjöfnu auga. Álíta sumir drykkjuskapar þrá- hyggju hans stafa af breyzkleika og aumingjahætti, öðrum finnst ofdrykkjumanninn skorta vilja- þ.-ek. Ofnæmi telja sumir valdi ofdrykkjunni, og enn aðrir kenna crfðaeiginleikum um eða jafnvæg- iiskorti. Ringulreiðar þessarar gætir ekki einungis hjá almenn- ingi. Skoðanir vísindanna eru líka rnjög á reiki. Endanlegt svar um það hverjar orsakir liggi til of- drykkju hefur enn ekki fengizt. Víst er að þær eru fleiri en ein, cg þeim fækkar óðum sem vilja kenna siðgæðisskorti ofdrykkju- manna eingöngu um hegðun þeirra. Segja má að ofdrykkja hafi þrjár meginrætur, sjálft áfengið, en án þess gæti ekki verið um of- drykkju að ræða, líkamsgerð og persónuleika ofdrykkjumannsins sem leitað hefur stuðnings hjá áfenginu og orðið háður því, og samfélagsaðstæðumar sem sá ein- staklingur á við að búa og reynir að ráða farsællega fram úr. Einblíni menn eingöngu á eina rótina er hætt við að skilningurinn á orsök- um ofdrykkjunnar verði nokkuð takmarkaður. Athuganir og rannsóknir bera það yfirleitt með sér, að eftir því sem áfengismagnið, þar með talið vín og bjór, er meira og ódýrara í hverju byggðalagi, er meira drukk- ið af því, og notkun þess er al- mennari, þó drykkjuskaparvenjur geti verið ærið mismunandi. Of- d.rykkjumönnum fjölgar í nokkurn veginn réttu hlutfalli við aukningu á almennri áfengisnotkun. Talið er að tíu af hundraði þeirra sem neyta áfengis á annað borð verði cfdrykkjumenn. Þegar áfengis- neytendum fjölgar, fjölgar of- drykkjumönnum hlutfallslega að sama skapi. Líkamsgerð, persónuleiki og skapgerð ofdrykkjumanna eru einnig mikið rannsökuð. Komið hefur í ljós að innkirtlastarfsemi þeirra og næringar- og bætiefna- þörf þeirra er ekki frábrugðin því sem er hjá mönnum almennt. Hins vegar hefur Sheldon fundið að þeir eru þéttbyggðir, meiri vöðva- menn en aðrir. Sérstökum persónu leika og skapgerðareinkennum of- drykkjumanna hefur verið lýst fyrr og síðar. Athuganir hafa ekki leitt í ljós að þeir séu verulega frábrugðnir að því leyti hinum níutíu af hundraði .sem notað geta áfengi sér að skaðlitlu án þess að verða háðir því. Nokkrar rann- sóknir sýna samt að heldur meira beri á tveimur skapgerðareinkenn um hjá þeim en hjá öðrum. Ann- ars vegar sjálfseyðileggingarhvöt en hins vegar ósjálfstæði. Sjálfs- eyðileggmgarhötin er oftast ekki alger, heldur hægfara og lýsir sér sem hneigð til sjálfspyndingar með ýmsu móti. Þeir eyðileggja þanni'g hægt og sígandi andlega og líkamlega heilsu sína, og oftast verða fjölskyldur þeirra einnig fyrir barðinu á þeim, sóa fjár- munum sínum, og kvelja sjálfa sig með markendurteknum „timb- urmönnum“ og ofsalegri sektar- vitund „moral“. Þessi sjúklegu fyrirbrigði, sem fylgja ofnautn áfengis má finna í dálítið breytt- um myndum í fari ofdrykkju- manna áður en þeir byrja að drekka, og líka eftir að þeir hætta því. Þeir eru oft hrakfallabálkar og valda iðulega sjálfir ófarnaði sínum, þó að frumorsakanna kunni að vera að leita í slæmu uppeldi eða samfélagsskilyrðum. Önnur einkenni þessara sjálfs- eyðileggingarhvata og ósjálfstæðis þeirra má finna með .sálfræðileg- um prófunum og sálgreiningu þó að þeir hafi sjálfir lítið sem ekk- ert hugboð um það. Þeim hættir oft til þess að verða og háðir ýmsu fleiru en áfenginu, svo sem öðrum nautnalyfjum, ofáti eða mikilli kaffidrykkju, of mikilli skorpu- vinnu og svo framvegis. Skemmti- leg tilraun hefur sýnt á raunhæfan hátt hvað þeir geta verið háðir umhverfinu. Lítið herbergi svipað 'klefum þeim, sem flugmenn nota við blindflugsæfingar var útbúið með færanlegum stól, þannig að sá sem í honum sat gat stillt hann þannig að hann var ávallt upp- réttur þó herberginu væri hallað á ýmsa vegu. Ofdrykkjumönnum gekk ver en öðrum að halda sjálf- um sér og stólnum uppréttum þó allsgáðir væru. Þeir miðuðu um of við hornalínur herbergisins þegar því var hallað í stað þess að treysta á eigið jafnvægisskyn. Þó voru þeir alls ekki einir um hit- una, fleirum gekk illa að halda jafnvæginu af því að þeir voru háðir umhverfinu. Fleira þarf með en áfengið eitt að viðbættum meira eða minna ákveðnum skapgerðar- og líkams- einkennum. Miklu fleiri með sams konar eiginleika, sem búa við svipað áfengismagn, verða alls ekki ofdrykkjunni að bráð. Til- verknaður félagslegra áhrifa og gagnverkum samfélagsins stuðla að þvi að verulegum hluta. Sam- félagið krefst þess oft að menn neyti áfengis i vaxandi mæli, til þess að þeir geti talizt góðir fé- lagar og vel samkvæmishæfir, ekki sízt ef þeir eru dálítið ósjálf- stæðir. Kennir það mönnum oft beinlfnis að styðja sig við áfengis- notkun og til þess að fyrirbyggja ótta um það að þeir verði síður í vina- og félagshópum án þess. En ofdrykkjan kemur líka hart niður á samfélaginu sjálfu þó að tekjur þess af áfengissköttum séu tals- verðar hér á landi. Fjölskyldubönd rofna, menn valda mörgum slysum á sjálfum sér og öðrum, atvinnutap og annað tjón verður mikið. Óbeinn kostnaður, sem leiðir af ofdrykkju, nemur meiru en einni milljón dollara í Bandaríkjunum árlega. Hliðstætt því ætti óbeinn kostnaður hér að nema rúmlega 40 milljónum króna á ári auk 170 milljónum króna. Andlegt og heilsufar'Slegt tjón verður ekki mælt í milljónum en er þó ekki síður tilfinnanlegt. Áður fyrr útilokuðu þjóðfélög- in holdsveika og aðra sjúklinga frá mannlegu samfélagi í sjálfs- varnarskyni, þetta þekkist nú ekki lengur, því samfélögin hafa fund- ið aðrar og ebtri leiðir til varnar sjálfum sér og til hjálpar með- borgurunum. Samábyrgðin hefur aukizt og menn sjá nú að heilla- vænlegra er að leitast við að lækna sjúklingana og hjálpa þeim til þess að hjálpa sjálfum sér sem mest. samanber árangurinn í bar- áttunni við útrýmingu berklanna hér á landi þarf þetta að haldast í hendur við góða heilbrigðislöggjöf og aukna fræðslustarfsemi í áfeng- ismálum samfara vísindalegum rannsóknum. Ekki er hægt að ætl- ast til þess að þau félög, sem starfa að bindindismálum og áfengis- vörnum, vinni hvert um sig á öll- um sviðum, sem að þeim lúta, sam tímis. Skoðun þessi kemur oft frarn í ómaklegri gagnrýni og skilningsleysi á starfsemi þessara félaga hjá ofstækisfullum mönn- um í hópi áfengisneytenda. Eðli- legt sýnist vera að þau hafi með sér nokkra verkskiptingu eins og orðið hefur. Hitt er svo annað mál, að þjóðfélaginu í heild væri það mikill ávinningur að láta þessi mál meira til sín taka á meðan áfengisneyzla og ofdrykkja fer vaxandi eins og nú horfir. Esra Pétursson. ■i i

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.