Tíminn - 22.06.1960, Side 11
uððvikuðagmn 22. jóm 1960.
FERRÓ:
Er keramikið okkar of
gott til útflutnings?
Þessa dagana sýnir Glit
h.f. nútíma keramik í Ás-
mundarsal við Freyjugötu.
f fyrradag var tekið upp á
þeirri nýbreytni á sýning-
unni að leyfa gestum að
mála og dekúrera ösku-
bakka, eyrnalokka, vasa og
bolla, sem síðan er brennt
inn í og eigendur geta síðar
meir sagt við vini og vanda-
menn: FINNST YKKUR
ÞETTA EKKI FALLEGUR
ÖSKUBAKKI ... JÁ, ÉG
GERÐI HANN NEFNI-
LEGA SJÁLFUR. Fyrsta
daginn komu margir til að
reyna og þeirra á meðal
mátti finna húsmóðir, vél-
stjóra, listmálara og blaða-
mann.
Undirritaður gekk þar
vlð á mánudag á heim-
leið úr vinnu með það eitt
í huga að ná mynd af ein
hverjum sem væri að mála
öskubakka. í anddyrinu
stóð Ragnar Kjartansson
leirkerasmiður í Glit,
og bauð hann blaða-
mann velkominn, „en því
miður ,er enginn að mála
núna hinkraðu samt við og
sjáum hvað setur.“
— Hefur aðsókn ekki ver
ið góð hjá þér, Ragnar?
— Jú, mjög góð. Hingað
hafa komið svona sex til
sjö hundruð manns síðan
við opnuðum þann sext-
ánda.
— Eru gerðar teikningar
af hverjum hlut áður en
hann er gerður?
— Jú, það erum við
Diter Rot, sem erum höf-
Hinn Ijóshærði, þýzki leikari Curt
Jiirgens, hefur innleitt nýja tízku
í Hollywod: gyllta manséttuhnappa,
s híSlr geyma lírll úr. AnnaS úrlð
segir Ciirt, sýnir mér Hollywood-
tímann, en hitt minnir mig á, hvað
klukkan er heima í Evrópu.
undar að þeim munum sem
eru hér til sýnis og þeir
eru allir orginalar.
— Vinnið þið eingöngu
úr íslenzkum leir?
— Nei, ekki eingöngu,
það fer mikig eftir því
hvaða liti við notum, en
það er hvergi undir 60%
af islenzkum leir í kera-
mikinu hjá okkur.
— Hvað er mannmargt
á vinnustofunni?
— Við höfum unnið þar
sex.
Mattur glerungur er
leyndarmál hverrar
vinnustofu
Sýningin er á tveim hæð
um og eftir að Ragnar hef
ur sýnt blaðamanni fyrstu
hæðina, þá förum við upp
á næstu og skoðum hana
meðan við bíðum eftir ein-
hverjum sem vill mála.
— Hér sérðu m.a. kaýfi-
og testell, á'vaxtastell, vin-
sett og blómavasa. Þenn-
an matta glerung erum
við svo til nýbyrjaðir að
nota, hann er leyndarmál
hverrar vinnustofu fyrir
sig, svo við urðum að gera
kerfisbundnar tilraunir til
að finna hann og hefur
það tekist vel. Mat-tur gler
ungur er gerður úr oxyter
uðum málum. Þessi skál
með þessu munst-ri í, kostar
540 kr., en ef þetta vceri
vatnslitamynd eftir ein-
h\ern af málurum okkar
þá myndi hún kosta svona
1500 til 2000 krónur. Svo
þú sérð að vinnan okkar
er ekki dýr, þar sem kera
mik er dýrt í framleiðslu
og vinnan er mikil, samt
reynum við að stilla verði
eins mikið i hóf og hœgt
er.
— Er markaðurinn hér
góður?
— Markaðurinn hefur
verið mjög góður síðan fólk
fór að kunna að meta
modernekeramik. Ein verzl
un hér í bæ hefur staðið
mjög framarlega í að selja
okkar vöru, en það er Stof
an í Hafnarstræti, einnig
verzlanir Kristjáns Sig-
geirssonar og Árna B.
Björnssonar. — Erlendir
ferðamenn kaupa mikið af
keramiki. Eina keramikið
sem við framleiðum í
fjöldaframleiðslu er selt
sem minjagripir. Við I Glit
höfum þegar gert sölutil-
raunir erlendis og til
Kanada hefur farið send-
ing. Það er eina landið
sem komið er, sem fengið
Shefur sölusendingu, önn-
ur hafa aðeins fengið sýnis
horn. Jæja, eigum við ekki
að koma niður og sjá hvort
einhver sé ekki farinn að
mála.
Er við komum niður aft-
ur er þar kominn listmál-
arinn Ferró og hann sagði
við undirritaðann. — Kera
mik er langt um betra hér
en í Evrópu. Maður sér
hvergi svona góða keramik
og ég verð að segja að hún
er of góð til útflutnings,
það get-ur farið svo að allt
fari í útflutning og \ið fá-
um ekkert.
Þú færð mikið fyrir
verkið þitt
Perró settist viö vinnu-
borðið og málaði í einn
bakka og bar hann sig að
verkinu eins og hann hefði
aldrei annað gert. Eftir
að hann hafði fullkomnað
sköpunarverkið sneri hann
sér að blaðamanni og
sagði: — Reyndu líka mað
ur, þú ferð ekki héðan án
þess ag reyna líka.
— Nei, ég held ég sleppi
því, ég hef mjög takmark
aða listagáfu.
— Auðvitað reynir þú
við einn bakka, sagði Ragn
ar, og tróð tveim pennslum
í hvora hendi blaðamanns
ins.
— Við Ragnar heitum
þér fullum stuðningi, byrj
aðu nú, sagði Perró.
Að mála l keramik er
enginn vandi ef maður
ætlar að gera það illa, hitt
er s\o ollu verra að vanda
sig. Eftir að hafa horft
lengi á öskubakkann, lit-
ina, penslana og vatns-
krúsina, ákvað ég að byrja
á grœna litnum. EITT
strik. ANNAÐ strik. Og
ÞRIÐJA strikíð. — Hœttu
nú með grœna litinn, sagði
Ragnar, reyndu þennan
rauða. Penslinum var sið-
an makað upp úr rauðu og
ein rauð klessa hér og önn
ur þar. Síðan var penslin
um dýft ofaní svarta lit-
inn og slett mjög vandlega
yfir bakkann, síðan sett
aftur rautt í pensilinn og
slett með enn meiri var-
kárni. Þegar m'aður er að
ska.pa listaverk verður
maður að sletta með var-
Hér er Ragnar að sýna Ferró
hvernig á að beita hníf við dekúr-
eringuna
kárni, það má ekki gera
það með þjösnagangi, eins
og maður sé að mála. stof-
una heima hjá sér„ nei,
heldur mjög \arlega.
— Nei, nú skaltu hætta
áður en þetta fer úU vit
leysu hjá þér, sagði Ferró,
annars er þetta bara gott.
— GOTT, sagðir þú
GOTT, það er gott. Hvað
heldurðu að ég ætti að
kalla verkið?
— Blaðamennsku, skaut
Ragnar inní.
jhm.
'V*V*V«V.V*V»\.«V>V*V*-V*V*V*V-
Tilkynning
frá Menntaskólanum í Reykjavík.
Umsóknir um skólavist næsta vetur skulu hafa
borizt skrifstofu rektors helzt fyrir 1. júlí og eigi
síðar en 15. ágúst.
Landsprófsskírteini og skírnarvottorð skulu fylgja
umsókninni.
Rektor.