Tíminn - 13.07.1960, Blaðsíða 6
6
T í MIN N, miðvikudaginn 13. júlí 1960.
MINNINGARORÐ:
Sigurgeir Jóhannsson
frá Litlu-Fellsöxl
Fæddur 18. júní 1919, dáinn 28. maí 1960.
Hinn 28. maí síðast liðinn lézt á |
Sjúki'ahúsi Akraness Sigurgeir Jó-|
hannsson frá Litlu-Fellsöxl, eftir
skamma legu.
Að Geiri, eins og við kölluðum
hann daglega, er farinn, er ófrá-
vikjanleg staðreynd, sem ekki verð
ur komizt fram hjá, hans blaðsíða
í bók lífsins náði ekki lengra en
þetta. En þó hún næði ekki yfir
r.ema 41 ár, var hún þéttskrifuð
af gðvild, hjálpsemi og prúðri
framkomu í hugum allra, sem
þekktu hann. Og þó hann væri
bara bóndi uppi í sveit, var hann
svo fjölhæfur, að undrum sætti,
ég held að allt, sem hann einbeitti
huganum að, hafi á skammri stund
legið opið fyrir. Og höndin var
hög og viljinn óþrjótandi til að
framkvæma, enda urðu margir að-
rjótandi glöggskyggni hans og
góðra handtaka.
Glaðlyndur var hann og góður
félagi, enda hafði honum orðið
vel til vina, það mátti bezt sjá við
útför hans. Enginn sveitarhöfð-
ingi hefði getað farið fjölmennari
siha hinztu för en hann fór. Það
mátti líka sjá, að sveitungar hans
vildu kveðja hann svo vel og virðu
lega sem þeir gátu. Hver einasti
hugur, hver einasta hönd vildi
gera sitt bezta, allir sem einn. Og
ég veit, að einmitt svona samein-
ing hefði honum líkað, hann var
iriikill áhugamaður um félagslíf.
Og ef samstarfið er gott, er svo
ótiúlega margt hægt að fram-
kvæma.
Sigurgeir var fæddur á Litlu-
íellsöxl 18. júní 1919. Foreldrar
hans voru hjónin Þorkatla Gísla-
dóttir og Jóhann Símonarson sem
þai bjuggu um áratuga skeið. Þor-
katla var frá Stóra-Botni í Botns-
dal úr hópi 10 systkina, dóttir
Gisla Gíslasonar og Jórunnar
Magnúsdóttur, sem þar bjuggu.
Jóhann var einnig ættaður úr
Borgarfirðinum, var hann bróðir
Bjarna prests á Brjánslæk og
Frá Litlu-Fellsöxl ég frétt hef spurt,
sem fyllir mig hryggSarþunga,
að hafi þar dauðinn hrifið burt
húsbóndann glaða og unga.
Hve svipleg og hörð er sú sorgarstund,
er sviftist heimili vörnum,
þá fyrirvinnan er grafin í grund
frá grátandi konu og börnum.
Ég veit hve biturt það brjóstið sker,
þá burtu fer góður drengur,
og aldrei að siá í heimi hér
þann hjartans vininn sinn lengur.
Ekkjan á nú svo erfiða þraut
við ástvinar kaldan náinn
og börnin ungu með augun sín blaut,
því elsku pabbi er dáinn.
En huggast þú ekkja og huggist þið börn,
því heilagur drottinn lifir,
sem ætíð er mæddum og veikum vörn
allan veraldar skilning yfir
Því nú er hann, ykkar ástvínur dýr.
frá andstreymi ieystur og kvölum
hvar ykkar hann fagnandi bíður og býr
í blikandi ljóssins sölum.
Það sakna þín fleiri, Sigurgeir,
en syrgjandi konan og börnin.
sem vildir þeim hrjáðu um veraldar leir
æ vera skjólið og vörnin.
Og fyrir það lofsyrðin þýðu færð þú
og þakkir frá guði og mönnum
og launin hin þráðu — það er mín trú,
þú þiggur í heilagleik sönnum
Hér kveðja þig ekkjan og börnin blíð
á bölþungri saknaðarstundu
og fela þig nú á fársins tíð
í frelsarans líknar mundu.
Þau vita þig heilan í hamingjustærð,
þó hylji þig stóra móðan,
og ást þeirra og blessun þú alla færð.
Þau áttu vininn svo góðan.
S. R.
HraísutJupottar 4 I. Kr. 367,50
Pottar m/Jiykkum botni 2 1. — 110,45
do. do. do. 4 I. — 157,10
do. do. do. 8 1. — 228,65
Pottar m/þunnum botni 20 1. — 399,90
do. do. do. 30 1. — 518,75
SÍMAR: 13041 - 11258
Búsáhaldadeild
þeirra systkina. Sigurgeir var, ~
yngstur af 4 börnum hjónanna á
Litlu-Fellsöxl, og á Litlu-Fellsöxl
tívaldi hann til æviloka. Nú eru
2 af systkinunum dáin, Aðalsteinn
dó 1944, rúmlega þrítugur að
aldri, en eftir lifa Jórunn hús-
freyja í Neðra-Nesi í Stafholts-
tungum og Snæbjörn kennari við
Flensborg í Hafnarfirði. Vorið
1945 giftist Sigurgeir eftirlifándi
kcnu sinni, Ingibjörgu Guðmunds-
dóttur frá Flekkuvík á Vatnsleysu
stiönd, og hófu þau þá búskap á
Litlu-Fellsöxl í félagi við foreldra
Sigurgeirs. Einnig keypti hann og
nytjaði jörðina Fellsaxlarkot, sem
liggur að Litlu-Fellsöxl. Það er
mikið starf, sem eftir Sigurgeir
liggur frá þessum árum, bæði í
ræktun og byggingum, auk alls,
sem hann vann utan heimilis, en
það var oft mikið.
Eins og áður er sagt, var Sigur-
geir félagslyndur mjög og starfaði
hann mikið að_ félagsmálum byggð
arlags síns. Á síðustu missirum
vann hann mikið við byggingu fé-
lagsheimilis sveitarinnar. Var
hann jafna hrókur alls fagnaðar í
hópi sveitunga og vina.
Þeim Ingibjörgu og Sigurgeir
varð fimm barna auðið, elztur er
15 ára piltur, Aðalsteinn að nafni,
og fjórar dætur: Sigríður, Hans-
ína, Þorkatla og Sigurbjörg.
Og nú er Sigurgeir farinn héð-
an til starfa á öðrum tilverustig-
um, en vinir hans og kunningjar
kveðja hann og þakka honum fyrir
alla hjálpsemina og skemmtilegu ^
samverustundirnar.
A.Á.
Bifreiðasalan
við Borgartún 1
Við höfum stórt sýningar-
pláss. Þér sem hafið i huga
að kaupa eða selja bíl,
gjörið svo vel og hafið tal
af Björgúlfi Sigurðssyni.
Símar 18085 og 19615.
Skólavörðustíg 21, sími 11407
Grilongarn
Golfgarn
FALLEGIR LITIR
Grófir bandprjónar
frá 2V2—10
PÓSTSENDUM
FATABÚÐIN
TILKYNNING
Þar sem sveitarstjóri Ólafsvíkurhrepps hefur hætt
störfum hefur hreppsnefnd Ólafsvíkurhrepps
ákveðið að leita eftir ógreiddum reikningum og
kröfum á hreppssjóð og stofnanir hans. Er því
hér með skorað á alla er hafa slíka reikninga og
kröfur á hreppssjóð og stofnanir hans að senda
tilkynningar um það til hreppsnefndar Ólafsvíkur-
hrepps til 25. júlí næst komandi þar sem verið
er að gera upp reikninga.
SKIPA- OG BlFREIÐASALAN
við Borgartún 1
Odviti Ólafsvíkurhrepps