Tíminn - 16.07.1960, Blaðsíða 12

Tíminn - 16.07.1960, Blaðsíða 12
12 TÍMINN, laugardaginu 16. júlí 1960. RITSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON Akurnesiiigar sigruðu sam- steypu Vals og Keflavíkur Leikurinn var hinn daufasti í heimsókn Arsen- al-leikman'iianna. Albert kann sitt fag enn Síðasti leikur Arsenal-leik- mannanna þriggja með Akra- nesi var daufasti leikur heim- sóknar Bretanna. Akranes lék þá gegn sameinuðu liði frá Val og Keflavík, og lék Albert Guðmundsson með þessu liði. Akranes bar sigur úr býtum með þremur mörkum gegn engu, og þó leikurinn hafi verið nokkuð jafn eru það verðskulduð úrslit I>a3 er athugunarcfni fyiir hina ungu menn, sem léku í liði Vals og Keflavíkur, að elzrti maður liðs ins, Albert, sem vart hefur snert á knetti í tvö ár, var sá maðurinn í liðinu, sem sýndi mesta leikni, gaf beztar sendingar, og var frum- kvöðull að beim samleik, sem liðið náði — þrátf fyrir það, að hann r.f skiljanlegum ástæðum hafði litla yfirferð, enda orðinn nokkuð þungur á sér. Og áhorfendur kunnu sannarlega að meta leikni Alberts og var honum óspart klappað lof í lófa. Án Alberts' hefði þetta lið verið mjög tæt- ingslegt — því þar voru margir mjög veikir einstaklingar. Skoruðu fyrsta markið Eins og áður segir var þessi leikur daufur og lítið var um skemmtileg augnablik. Samsteypa Vals og Kefiavíkur varð á undan ti'. að skora. Högni Gunnlaugsson tók hornspyinu frá hægri og Al- bert skallaði í átt að marki, en knötturinn hrökk af varnarleik- nanni til Bergsteins Magnússonar, sem spyrnti knettinum í markið, en Kelsey komst ekki að vegna þess hve bakverðirnir þrengdu að honum í mai'kinu. Þegar tæpur hálftími var af leik tókst Akurnes'ingum að jafna. Sigurður Albertsson var þá með knöttinn í vítateig og var alltof semn að losa sig við hann þannig, ao Helgi Björgvinsson náði kneft- inum af honum á markteignum. Gunnlaugur markmaður Hjálmars- son hljóp út á móti Helga, en hann renndi knettinum örugglega framhjá Gunnlaugi. Á næstu mín- útu komst Bergsteinn frír að marki Akraness, en spyrna hans á markið var alveg misheppnuð og var sem sending fil Kelsey. Undir lok hálfleiksins færðist rokkuð fjör í leikinn. Á 40. mín. fékk samsteypan hornspyrnu og var knötturínn gefinn til Árna Njálssonar, sem spyrnti mjög vel fyrir markið, og Bergsteinn náði knettinum og lék inn að marki og skaut á markið, en Kelsey varði mjög vel. Strax á eftir varð mikil hætta tvívegis við markið hinum megin, en Gunnlaugi tókst í bæði skiptin að bjarga mjög vel. Og á síðustu mínútu hálfleiksins fékk samsteypan enn hornspyrnu, sem Högni tók ágætlega. Sigurður Albertsson skallaði „hárfínt" fiamhjá markinu. 2—0 í síSari hálfleik Lengi vel í síðari hálfleik var samsteypan talsvert í sókn og stjórnaði Albert liði sínu þá vel, en leikurinn var mjög hægur, og óskiljanlegt, að Akurnesingar skyldu einnig taka upp þennan gönguhraða knattleik. Samsteypan átti þá nokkur góð færi t.d. var Eergsteinn í góðu færi á 11. mín., í leikhléi í fyrrakvöld fór fram keppni í 3000 m. hlaupi Meistaramóts Reykjavíkui*. Krlstleifur Guðbjörnsson sigraöi með yfirburðum á 8:39,2 mín. en tími á öðrum keppendum var ekki gefinn upp. Guðjón Einarsson tók þessa mynd. þegar hlaupið var nýhafið. Kristleifur er fyrstur, þá Guð- mundur Þorsteinsson, Akureyri, þriðjl Norðmaðurinn Bardsen og fjórði Reynir Þorsteinsson, Röðin var hin sama í marki. Fáir markmenn, sem hér hafa leikið, hafa sýnt öruggara grip en Kelsey, markvörður Wales og Arsenal. Hér grípur hann knöttinn sínum járnfingrum og hann hreyfist ekki. Aðrir leikmenn á myndinni eru frá vinstri: Hólmbert Friðjónsson, Keflavík, Jón Leósson, Akranesi, Bergsteinn Magnússon, Val, og Sveinn Teitsson, Akra- nesi. — Ljósmynd: Guðjón Einarsson. en spyrnti yfir, og á 21. mín. kom það sem áhorfendur biðu eftir. Albert fékk knöttinn á vítateig og spyrnti föstu skoti, sem lenti neðst í markhorninu, en Kelsey gerði sér lítið fyrir og varði snilldar- logaH Það var því heldur á móti gangi leiksins, þegar Akurnesingar skor- uðu mark á 28. mín. Þeir náðu snöggu upphlaupi, og Clampton fékk knöttinn í góðu færi og þá var ekki að sökum að spyrja; lrnötturinn lá í netinu. Þau eru ekki fá mörkin, sem Clampton hefur s'korað í þessum leikjum með Akranes-liðinu Á 36. mín. sást fallegasta send- ingin í leiknum. Albert gaf þá langa, hnitmiðaða spyrnu fram miðjuna, sem datt fyrir framan fætur Högna Gunnlaugssonar •— op ieiðin að markinu var opin. En Kelsey snaraði sér á móti mið herjanum og honum tókst ekki betur en að spyrna knettinum í búk markmannsins, og þar fór eitt bezta tækifæri leiksins — nema hvað, að Albert fékk ekki síðra tækifæri tveimur mín. síð- ar, er Páll Jónsson sendi mjög vel til hans inn í vítateig, og allir biuggust við marki, en Albert spyrnti hátt yfir. Það kom sann- arlega á óvart, en nokkrir leik- menn voru inn í markteignum, og knötturinn varð að fara framhjá þeim. Á 41. mín. skoruðu Akurnes- mgar sitt þriðja mark og var það jafnframf faljegasta markið í leikn um. Knötturinn var gefinn inn á vítateig frá hægri, og Skúli. Hákonarson spymti strax hörku- skoti á markið, sem fór í boga efst í markhornið og gekk þctta svo fljótt fyrir sig, að Gunnlaug- ur rétt náði að lyfta höndum *íþþ- fyrir höfuð sér í markinu. Ágæt heimsókn Þessari heimsókn Airsenal-leik niannanna er nú Iokið, en þeir héldu heimleiðis í gærmorgun. Það hefur verið mjög lærdómsríkt að sjá þessa menn í Ieikjum hér — og áreiðanlegt að íslenzkir knattspyrnumenn — en þó fyrst og fremst Akurnesingar — hafa getað lært mikið af þeim, bæði hvað stöðumat og ieikni snertir. í þessum leik eins og hinum fyrri (Framhald á 13. síðu) Friðrik gerði jafntefli við Elis- kases og Packmann I fáum leikjum I fjórtándu og fimmtándu tefli v,arö hjá Rosetto og umferð á skákmótinu í Buenos Aires gerði Friðrik jafntefli. í fjórtándu umferð hafði hann svart gegn Eliskases og varð skákin jafntefli eftir 22 leíki. Wade í 26 leikjum; Fischer og Kortsnoj í 29 leikjum; Eliskases og Friörik í 22 leikj um. Biðskákir urðu hjá Szabo og Guimard; Ivkov og Evans og Benkö og Gligoric. Úrslit í 15. umíerð hafði Friðrik j biðskákanna urðu þau, að hvítt gegn Paekmann, og varð l Guimard vann Szabo í 571 sú skák einnig fljótt jafntefli, j leikjum; Ivkov og Evansj eða í 21 leik. Reshevsky erj gerðu jafntefli í 51 leik, en efstur eftir 15 umferðir með s^^k þeirra Benkö og Gligor i ic fór aftur í bið. ! f 15. umferð urðu úrslit 10Ú2 vinning, en Rússarnir sækja fast á. í 14. umferð urðu úrslit þessi: Reshevsky vann Wexl er í 35 leikjum. Packmann vann Unzicker í 28 leikjum og er það fyrsta skákin, sem Unzicker tapar á mótinu. — Taimanov vann Uhlman i 34 leikjum. Pogelman vann Bazan í 45 leikjum. Jafn- þessi: Taimanov vann Ros- etto í 42 leikjum; Kortsnoj vann Ivkov í 30 leikjum; Gligoric vann Fogelmann í 32 leikjum. Wade fórnaði drottningunni og mátaði Benkö í 26 leikjum, og Szabo vann Bazan í 34 leikj um. Jafn tefli gerðu Reshevsky og Uhl mann í 15 leikjum, Friðrik og Packmann í 21 leik, og Evans og Eliskases. Biðskákir' urðu hjá Unzicker og Wexler og hjá Guimard og Fischer. Staðan í mótinu eftir 15 umferðir er þannig: 1. Reshevsky 10y2 2. Kortsnoj 10 3. —5. Evans, Szabo Taimanov 9 6. Unzicker 8Vz og bið 7. Friðrik 8Vo 8. Guimard 8 og bið 9.- -10. Rosetto og Uhlmann 8 11. Packmann 71/2 12. Gligoric 7 og bið 13. Ivkov 7 14,- -15. Benkö og J Wexler 6 og bið 16. Eliskases 6 17. Fi'scher 5Vz og bið 18. Fogelmann 5y2 19.- -20. Bazan og Wade 4

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.