Tíminn - 23.07.1960, Qupperneq 16

Tíminn - 23.07.1960, Qupperneq 16
Ástandið í Kongo: 6 hvítir eftir af tvö þúsund í bænum Matadi við Kongófljótið Khafnarblaðið Politiken sendi einn blaðamanna sinna, Aage H. Pedersen, til að fylgj- ast með atburðunum í Kongo og í grein er birtist eftir hann s.l. fimmtudag lýsir hann því er gæzlulið S.þ. hélt inn í upp- reisnarbæinn Matadi við mynni Kongo-fljótsins, en á þeim slóðum hófust óeirðirnar í Kongo. Fara hér á eftir í lausl. þýðingu stuttir kaflar úr grein blaðamannsins: A slaginu kl. 5 á miöviku- daginn marzeruðu herflokk- ar S.þ. inn í Matadi við trumbuslátt og lúðraþyt. Það var áhrifamikið að sjá hina afvopnuðu innfæddu her- menn standa í röð meöfram götunum og maður þarf ekki langan tíma til að átta sig á því að hér er um að ræða hin óvenjulegustu hernaöar- átök. Dauðaþögn ríkti Dauðaþögn ríkti í bænum þegar herliðig hélt ihnreið sína. Allt var lokað og það sást ekki hræða á götunum, nema hinir afvopnuðu inn- fæddu hermenn Kongó- stjórnar. í Matadi stóðu mikl ir bardagar 11. júlí og skv. upplýsingum sem mér voru gefnar skutu Belgíumenn þann dag 18 innfædda til bana. Eftir bardagana milli Belga o g hinna innfæddu tæmdist bærinn svo til gjör samlega af hvítum mönnum og eru nú aðeins 6 eftir af hinum 1990, sem fyrir voru og hinir sex hugdjörfu menn gæta þess vel að halda sig rækilega innan o.yra. Rán og rupl Ógnaröld ríkti í Matadi eft ir bardagana. Rúður í verzl- unum voru brotnar og þær (Framhald á 15. síðu). Dagiegur viðburSur í Leopoldville: Belgískur hermaður stöSvar Kongo- svertingja, rannsakar vegabréf hans og spyr um vopn. í baksýn sjást vopnaðir fallhlífahermenn Belga. Belgiski herinn er nú senn á förum og gæzluliðinu í landinu fjölgar. Skemmtiferð Framsóknarfélaganna í Reykjavík hefst í fyrramálið frá Framsóknarhúsinu kl. 9 árdegis. Allir þátttakendur þurfa þá að vera komnir á staðinn. Þeir sem eiga eftir að panta eða sækja pantaða farmiða, sæki þá fyrir kl. 2 í dag. Þeir verða afgreiddir til þess tíma í skrifstofunni uppi í Framsóknarhúsinu — sími 1-55-64. ■ jr JJ Island í gamla daga” Það var allt á ferð og flugi niður við Fjallfoss í gær. Þar var verið að skipa upp vörum frá Evrópuhöfnum, málning- arvörum, gleri, girðingaefni og bjór. Heineken’s bjór. Við klöngrumst upp snarhall- andi landganginn og veltum því fyrir okkur, hvernig við komumst r.iður í lestarnar, þar sem menn- irnir eru að vinnu. Sem við stönd- um þar og þenkjum, kallar einn spilstjórinn til okkar: — Ætlið þið að taka myndir? — Já, hvernig komumst við nið- ur? (V Fylgzt með uppskipun úr Ffallfossi í um það bil stundarfjóróung — Niður já. Viljiði komast nið- ur? — Já. Spilstjórinn kallar til annars spilstjóra framar á skipinu, og tjáir honum vandræði okkar. Sá reynist fær um að leysa vandann, og við færum okkur fram eftir í því skyni að fara niður. Þegar við komum að stiganum, kallar enn til okkar spilstjóri, sá þriðji sem á vegi okkar verður. Þeir eru nxargir að vinnu: — Ætliði að taka myndir? — Já. Lízt þér ekki vel á það? ■— Nei. — Jæja? — Ætliði niður? — Já, ef við þorum. — Langar ykkur í bjórinn? ■— Fáum við nokkuð? — Nei, ekki dropa. Við paufumst niður. Þar stend- ui tollvörður með miða í hendi og fvlgist með uppskipuninni. — Fá þeir ekki bjór, kallagrey- in sem vinna í þessu? — Þeir mega það ekki. — Gera þeir það ekki samt? — Ojú. — Hvað gerið þið þá? — Við sjáum það ekki. — En ef þið skylduð nú ekki kcmast hjá því að sjá einn með hálfa dós? Hvað geriði þá við af- ganginn? Hellið honum í sjó'nn? ' — Onei, það er ekki svo mikið ve.rðmæti, þessi bjór. Meðan við ræðum við tollvörð- inn er komin ókyrrð á kallana í lestinni. Myndavél hefur svo pirr- j andi áhrif á suma menn. Við fáunx j (Framil á 15. síðu.) — að stinga króknurr* í vasann —

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.