Tíminn - 26.08.1960, Síða 11
T-ÍMINN, föstudaginn 26. ágúst 1960.
11
Vill aðallinn úrkynjast?
Eða hvað veldur þá
viðbrögðum hans?
Margrét Rós prinsessa meS Antony Armstrong-Jones. André prins af Bourbon Parma meS Marinu Garcy.
Nú orðig líður ekki langt
á milli þess, að fréttir ber-
ast af svokölluðum „mes-
alliance“-brúðkaupum, þ. e.
a. s. þeim brúðkaupum, þar
sem annar aðilinn er aðals-
ættar en hinn borgaraættar.
Varla mun til sá íslending-
ur, sem nokkuð finnst við
það að athuga, að menn
„taki niður fyrir sig“, eins
og þag er kallað annars stað
ar en ekki þarf langt að leita
þeirra, sem ekki geta fellt
sig við þettá, og er skemmst
að minnast viðbragða nor-
rænu konungsfjölskyldn-
anna, þegar Margrét prins-
essa gekk að eiga Antony
sinn í vor. Og það eru fleiri
en konunglegir, sem eiga
þag til að hneykslast á „mes
alliance“-hjónaböndum. Sú
skoðum er furðu útbreidd
meðal „heldra fólksins" á
meginlandinu að aðalsætt-
aðir setji blett á virðingu
ættar sinnar meg því að
ganga að eiga borgaraætt-
aða.
Engu að síður virðist það
færast i vöxt, aö meðlimir
konunglegra fjölskyldna
setji sig yfir þessa smámuni.
Á dögum Carol II. Rúm-
eníukonungs og Játvarðs
VIII. Bretakonnngs var þetta
enn hálfgert einsdæmi, enda
varð Játvarður að afsala sér
völdum og líkt var farið
með Leopold III. Belgíukon
ung. Reyndar má segja
ag það sé einsdæmi enn, að
þjóðhöfðingjar sjálfir taki
sér maka af borgaralegum
ættum. En aðrir meðlimir
háaðalsins virðast í æ rík-
ari mæli virða að vettugi
reglur þær, sem gilt hafa nm
þessi mál allt til þessa. Er
afstaða alls háaðals til
makavals Margrétar prins-
essu því óskiljanlegri, sem
engin þessara fjölskyldna
ber „hreinan“ skjöld sjálf.
Listinn yfir þá meðlimi
þeirra, sem gengið hafa í
„mesalliance“-hjónabönd á
undanförnum áratugum
tæki engan enda. Það er
hálfhlálegt ag aðallinn skuli
enn líta á hjónabandið sem
stofnun til að hreinrækta
menn nú, þegar fleiri kór-
ónur liggja í sýningarskáp-
um safna en á krýndum
höfðum. Eða óskar hann
þess, að aðalsmenn veröi í
framtíð enn úrkynjaðri
vesalingar, en viða er orðið?
Ætti hann ekki öllu heldur
að vera þakklátur þeim,
sem hugrekki hafa til að
setja sig yfir vandlætingar
óp þröngsýnna „snobba“?
Faruk, fyrrverandi kon-
ungur sjálfur, á eitt sinn að
hafa sagt: Brátt verða ekki
lengur til nema fimm kon-
ungar: Sá brezki, — og spila
kóngamir fjórir! Hvernig
væri það, ef menn hugleiddu
þessi orð, þar sem þau helzt
eiga heima, í heimkynnum
aðalsins sjálfs?
Játvaröur VIII. með Wallis Simpson Rainer fursti af Monaco með Grace Kelly.
Ragnhildur prinsessa með Erling Lorentzen
Leopold III. með Llliane Baels.
Að einu leyti hlýtur Eisenhower
að vera léttir að því, að ekkert
varð úr Rússlandsboðinu. Eisen-
hower er sagður ekkert allt of
vinnuglaður stundum, en nú þarf
hann ekki að halda áfram rúss-
neskunáminu, sem hann hafði haf-
ið áður en hann fór á ráðstefnuna
í París.
Bretl að nafnl Wilfred Portlock
hefur nú lokið þjónustu sinni i
þágu brezka hersins eftlr 30 ára
starf. Sfðustu 19 árin gegndi hann
merkilegu hlutverki í þágu föður-
lands síns: Hann gætti hinna frægu
„Barbaryapa" á Gíbraltar-kletti, en
sú saga er sögð um þá, að hróður
Englands iiði undir lok, ef þeir yfir
gefi klettinn. Ástarfstímabili Port-
lock fjölgaði þeim úr sjö upp í 27.
Júpíter, stærsta plánetan innan
sólkerfis okkar, virðist ekki vera
heppilegur áætlunarstaður í geim-
ferðum. Á hverri sekúndu verður
þar jarðskjálfti, sem leysir jafn
mikla orku og tíu vetnissprengjur
af stærstu gerð, sem springa allar
samtimis. Það er uaðallega flmm
svæði á yfirborði Júpíters, þar sem
þessara ajrðhræringa verður vart.
Þessar upplýsingar gaf stjörnu-
fræðingurinn Dr. Roger Gallet eft-
ir rannsóknir, sem hann hafðl gert
á stjörnurannsóknastöðinni i Col-
orado.
NIKITA KRUSTJOFF er sem kunn-
ugt er af bændakyni. En nú hefur
komið i Ijós, að ekki eru bændur
nema í fjórum kynslóðum fjöl-
skyldunnar. Rússneski sagnfræðing-
urinn Wiatsjeslav Sjikov segir í rit-
verki um Katrínu II., að Nikita sé
í raunlnni af aðlaðri liðsforingjaætt
kominn. Sjikov segir: Árið 1762
komst upp um samsæri gegn kels-
araynjunni. Höfuðpaurinn, Pjotr
Krústjoff var dæmdur til dauða, en
náðaður síðar og sendur í útlegð
til Síberíu. Þar dó Pojtr. Sonur hans,
Nikolas, sneri aftur til heimkynna
sinna í Ukraínu og settist að i nánd
við Kursk. Barnabarnabarn Nikolas
heitir Nikita.
Bandaríkjamenn geta stundum
verið meinfyndnir. í blaðí einu
vestra mátti fyrjr skömmu sjá
eftirfarandi athugasemdir:
Franklin D. Roosevelt sannaði,
að við komumst af með veikan
foresta.
Harry Truman sannaði, að hver
sem er, getur verið forseti.
Eisenhower hefur sannað, að við
þörfnumst ails ekki forseta, og
Nixon mundi áreiðanlega færa
okkur sannanir fyrir því, að við
kæmumst bezt af án forseta.