Tíminn - 04.01.1961, Blaðsíða 16
Miðvikudaginn 4. janúar 1961.
2. blað.
Brezk list hefur aldrei
átt slíkan hæfileikamann
sag<$i Su'nday Times um myndhöggvarann Moore
Fyrir nokkru var i White-
chapel listasafninu í Englandi
haldin miKil sýning á verkum
myndhöggvarans fræga Henry
Moore. Sýning þessi vakti
geysilega athygli og var brezk
um blöðum tíðrætt um hana.
Á sýningunni voru höggmynd
ir, sem Moore hefur gert frá
1950, og hafa gagnrýnendur
látið svo um mælt að nú hafi
brezkum almenningi í fyrsta
sinn gefist kostur á að virða
fyrir sér og kynnast hinum
miklu og nýjustu verkum, er
marki nýjan áfanga á leið lista
mannsins til fullkomnunar
iist sinni.
The Sunday Times sagði m.
a. um Moore við þetta tæki-
færi, að aldrei fyrr hefði brezk
list eignast slíkan hæfileika-
mann sem Henry Moore, hæfi-
leikar hans væru fjölbreyttir
og í stöðugri þróun. Aðrir
gagnrýnendur fóru svipuðum
orðum upi myndhöggvarann
og listaverk hans.
Hér til hægri á siðunni get-
ur að líta iistamanninn, svo og
nokkrar höggmyndir eftir
hann.
Hér að ofan get-
ur að líta Henry
Moore. Til vlnstri
er mynd frá 1952,
sem ber nafnið
„Hjálmur, höfuð og
axlir". Að neðan
sést „Móðir og
barri við opinn
yegg", frá árinu
1956. Þessi mynd
var á Whitechapel-
sýningunni nú fyrir
áramótin. — Til
vinstri er högg-
mynd í tveimur hiut
um, gerð 1960. Á
ensku heitir sú
mynd „Reclining
Figure II".
☆
Stórkostleg álfa-
brenna Fáks á föstud.
Grýla kemur á hrossi og situr í söðli
Áður fyrr var það föst
venja, að álfabrennur voru
haldnar á íþróttavellinum á
þrettándanum Síðustu árin
hefur þetta alveg lagzt niður
og mun þar hafa valdið mestu,
að íþróttavöllurinn hefur ekki
fengizt til þessarar starfsemi.
Nú hefur Hestamannafélag-
ið Fákur ákveðið, að endur-
vekja þennan góða sið og
mun halda stórkostlega álfa-
brennu á skeiðvelli sínum við
Elliðaár nú á þrettándanum
6. janúar kl. 20,30. Mun Þor-
steinn Hannesson óperusöngv
ari leika álfakóng, en Unnur
Eyfells álfadrottningu.
Grýla í söðli.
Rúmir 100 álfar úr Þjóð-
dansafélaginu munu dansa í
kringum brennuna ásamt til-
heyrandi púkum og drísil-
djöflum. Grýla og Leppalúði
munu einnig mæta og koma
ríðandi, Grýla í söðli. Þá mun
Vetur konungur einnig koma
ríðandi ásamt 16 helztu ridd-
urum landsins og fagna Álfa-
konungi. 10—20 frægustu kór
söngvarar landsins munu og
láta til sín heyra. Lúðrasveit
Reykjavíkur leikur allan tím
ann.
Stjórn Fáks vonar, að þess-
ari nýbreytni í starfsemi fé-
lagsins verði vel fagnað og
(Framhald a í siðui