Tíminn - 21.01.1961, Page 1

Tíminn - 21.01.1961, Page 1
[ Áskriftarsíminn er 1 2323 17. \ Fólk, sem talað er i — bls, 5. lí 'ÍcÍIÍÍ'1mMM Laugardagur 21. janúar 1961. Fallegasta síld vetrarins Ekki lát á löndun á Akranesi í gær þrátt fyrir óhágstætt veður - Komið rót á síldina Þessi mynd er tekin í geer irini á Kirkjusandi og sýnir stúlkur, sem eru a3 ganga frá síld til frystingar. Síldin er sett í kassa, og í hverjum kassa eru rúm 9 kg. — Verkstjórinn á Kirkjusandi sagði okkur, að þessi síld væri sú fallegasta, sem komið hefði á þessum vetri. (Ljósm.: TÍMINN KM). „Greiðsluhallinn” 1434 milljónir 1959 og ’60 Viískiptamálará'ðherra upplýsti á alþingi í gær, aí svo væri samkvæmt uppgjörsa'ðferð ríkis- stjórnarinnar frá því í fyrra og miÖaÖ vitS núver- andi gengi Þá var ekki dregið frá Það var stanzlaus síldar- löndun á Akranesi í allan gær- dag, og um sex leytið í gær- kvöldi var Höfrungur II að landa þar 1800 tunnum. Eftir hið bezta veður f fyrradag, spilltist það um kvöldið með suð-suðaustan kalda, og áttu sum skip, sem nætur áttu úti, í erfiðleikum með að haida þeim heilum. Mikill hluti flot- ans var á sjó. Síðan lygndi og hægðist um undir morguninn, og fengu þá einhver skip afla. Eftir hádegið í gær var aftur tekið að hvessa, og ; voru horfur tvísýnar. Þó var ástand ið srvo um sjö leytið í gærkvöldi, | að allmörg skip höfðu kastað, þótt veiðiveður væri á takmörkunum. i • Ókyrrð á síldinni Um hádegið í gær kom ókyrrð á síldina, og hún dýpkaði á sér, fór niður í ein 15 fet eða svo. Hún var ekki lengur í stórum kekkjum, heldur þaut um sjóinn í minni torfum, og þótt leitarskipin Ægir og Fanney fyndu torfur öðru hvoru og vísuðu skipunum á, hurfu þær, þegar minnsrt varði. Óhemju aflamagn Til Akraness komu í gær nokk- ur skip með mikinn afla, auk Höfrungs II, sem fyrr var nefnd- ur: Höfrungur I 1131, Ólafur Magnússon 1000, Sigurður frá jAkranesi 1067, Sveinn Guðmunds- son 922. Hinir voru með minna, (Framhald á 2. síðu.) Varðstöðunni á Kúbu hætt Friðmælist Castro viÖ Kennedy? Varðstöðu þúsunda kúb- anskra ermanna og kvenna var í dag hætt að boði ríkisstjórn- ar Fidels Castros og sneru allir sjálfboðaliðar til vinnu sinnar. Varðstaða þessi hefur nú staðið í 22 daga, og hefur orðið til þess að draga mjög úr ýms- um helztu framleiðslustörfum landsins. Til hennar var efnt, sem kunnugt er, að boði Castr- os vegna yfirvofandi innrásar- hættu frá Bandaríkjunum, að hann sagði. Kúbanski verka- lýðsmálaráðherrann tilkynnti í dag, að þelr, sem kallaðir voru til herþjónustu, myndu njóta fullra launa, en helztu verka- lýðsfélög landsins hafa gert vinnandi meðlimum sínum að gefa þeim ein daglaun af kaupi sínu. Fidei Castro mun í kvöld flytja ræðu í útvarp, og er hennar beðið með nokkurri eftirvæntingu, vegna valdatöku Kennedys, en Castro hefur áður látið þau orð falla, að Kenn- edy gætj bætt sambúð Banda- ríkjanna og Kúbú, ef hann kærði sig um. Gylfi Þ. Gíslason viðskipta- málaráðherra upplýsti á Al- þingi í gær, að aftir beirri uppgjörsaðferð, sem ríkis- stjórnin hefur notað um greiðsluafkomuna við útlönd á árunum 1955—1958, var „greiðsluhalli" síðasta árs 704 milljónir og 730 milljónir árið 1959 eða „greiðsluhallinn" samtals eftir reikningsaðferð- um ríkisstjórnarmnar 1434 milljónir á tveimur árum mið- að við núverandi gengi. Nú segir ríkisstjórnin hins veg- ar, að frá þessu verði að draga andvirði skipa og flugvéla, sem inn hafj verið flutt. Ekki var talað um það, að draga þyrfti þá liði frá — eða vélar og efni til Sogsvirkjunarinnar, áburð arvei'ksmiðjunnar og sementsverk smiðjunnar, þegar hallinn var reiknaður af stjórnarliðum fyrir árin 1955—58, en þá, er verið var að læða ,,viðreisnnini“ yfir þjóð- ina með blekkingum, voru öll skip- in og allar þessar stórframkvæmd ir taldar með greiðsluhalla við út- lönd og til eyðslu þjóðarinnar um efni fram. Þá var sagt, að þjóðin hefði eytt 1050 milljónum um efni fram á 5 árum. Nú er komið annað hljóð í strokkinn. Viðreisnin" afhjúpuð Viðskiptamálaráðherra upplýsti ennfremur, að greiðsluhalli á vör- um og þjónustu gagnvart útlönd- (Framhald á 2. síðu.) Verðlaun fyrir snyrtimennsku Húsavík 19. jan. Á síðast liðnu vori höfðu bændasamtökin í Suður-Þing- eyjarsýslu forgöngu um að bændur í héraðinu legðu áherzlu á að hafa býli sín sem snyrtilegust Kaupfélag Þingeyinga veitti í sumar þeim bænum, sem mála vildu hús sin, afslátt á verði málningar. Máltningar verksmiðjan Harpa sendi Bændafélagi Þingeyinga veg lega stofuklukku, er vera skyldi verölaun þess bónda, 6em mesta snyrtimennsk-u sýndi. Verðlaunin hafa nú verið veitt Sigurði Pálssyni, bónda í Skógarhlíð í Reykjahverfi. Skógarhlíð er nýbýli og frægt fyrir snyrtimennsku. Skammt frá bænum eru fjós og fjárhús, sem talin eru einhver vönduðustu sinnar tegundar á íslandi. Umgengni öll þar er engu Lakari en heima við íbúðarhúsið. Stjórn Bændafél. Þingeyinga heim- sækir Sigurð bónda í kvöld og afhendir honum verðiaun in. Þ.J. 'Á IKOTSIPbMUMf. ★★★ Ýmsum getum er að því leitt, hver hreppa muni prófessors- embættlð við háskólann, og þykir einum þetta líklegast, en örum hitt. Blaðið hyggur það aftur á móti réttast, að þeir Magnús Már Lárusson, núverandi prófessor í guðfrseði, og Þórhallur Vllmundarson, settur prófessor, standi næstlr því að hljóta embættið. tsnsmaasKatmseíiiitii, WBUSSSÍ -uííLV' wt -Igr Forsetaskiptin í Bandaríkjunum —- bls. 3 i

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.