Tíminn - 21.01.1961, Qupperneq 11

Tíminn - 21.01.1961, Qupperneq 11
ÍMINN, laugard»ginn 21. janúar 1961. 11 (Framhald af 8. síðu). Jionum hefði ekki hentað að hlaða jíslenzkan bæjarvegg úr stórgrýti, en það var lengi iðja sterkra, í>s- Senzkra sveitamanna. Sigra Sunn- 'lendinga á þessu tímabili má þakka eamstilltum átökum mör'g þúsund manna, sem hlóðu á þessum tíma kóralrif mikillar félagsmenningar. Egill Thorarensen var einn af stór smiðum þessa tímabils. Hann sá í draumsýnum ókomna atburði og framkvæmdir. Hann sá leiðir og úrræði til að sigra mótstöðu, deyfð og kæruleysi. Hann ræddi málin við fjölmarga samverkamenn. Hann þáði frá þeim bendingar, úr- i'æði, gagnrýni og vðvaranir, en oftast var hann þó veitandi í þess- um samskiptum. Framkvæmdin gerðist, þegar samvinnumenn gengu fram í skipu lagðri fylkingu. Innst í hverri sig urvon var fólginn sköpunarneisti frá manni eða mönnum, sem stóðu í fararbroddi. Egill Thorarensen var eitt af þessum skáldum félags málanna. Gestur var þvílíkt skáld. Bjarni Thorarensen var fyrst og fremst mikið Ijóðskáld, brautryðj- andi í bókmenntum hálfrar ann- arar aldar, en hann var líka fram- kvæmdamaður eftir háttum sinnar tíðar. Sæluhús hans á fjallvegum voru eins merki- leg og bankahúsið á Selfossi eða mjólkurhöllin mikla undir' Ingólfs fjalli. Egill Thorarensen hefur afhent arftökum sínum á Suðurlandi lykil að merkilegu skipulagi í vinnu- Ibrögðum hans og starfsháttum. í höll kaupfélagsins á Selfossi, þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja, er mikil stofa á annarri hæð. Þar er útsýni gott yfir Ölfusá og hálft kaupfélagsríkið. Þetta er vinnustofa kaupfélagsstjórans. Þar erú að sjálfsögðu öll nauðsynleg tæki, sem með þarf við dagleg vinnubrögð í stórverzlun. Þai' held ur kaupfélagsstjóri stjórnarfundi og þar talar hann við félagsmenn um mikilvæg málefni. í þessu ris- mikla herbergi eru tveir hlutir, sein sjaldan eru til sýnis í kaup- skaparhúsum. Það eru tvö stór og glæsileg málverk úr byggðum Ar- nessýslu eftir meistarana Ásgrím og Kjaival. Þessi listaverk eru eign kaupfélagsins eins og húsið all:. Þess vegna eru þau þar sett við hlið þeirra áhalda, sem snerta dagleg vinnubrögð kaupfélagsstjór ans. Listaverkin eru sett j þetta herbergi með ráðnum hug þess manns, sem hefur'skipulagt mikið af veraldlegum framkvæmdum samvinnumanna austan fajlls. Lista verkin í forstjórasal kaupfélags Árnesinga horfa frá þögulum veggjum á forráðamenn þessa mikla hagsbótafélags Sunnlend- ■ inga. Málverkin flytja eftirkom- endunum boðskap landnemans fr’á Ölfusá. Þar er þeim tjáð í listræn um rúnum að hinir mörgu sigrar j á vígvelli atvinnumála í héraðinu hafi verið unnir með skipting orkj unnar milli fjárhyggju, bók- mennta og lista. Egill Thorarensen j var margskiptur maður eins og sumir aðrir frændur hans af Hlíð- arendakyni- Hann gaf koisaranum hvað keisarans var. Skarplega og skapandi forystu um veraldleg; mál, þar sem þungfærir og skiln-| ingssljóir andófsmenn gátu fengið að heyra harða dóma, eins og hræsnai'ar og kalkgrafafólkið í Gyðingalandi fyrr á öldum,, eða^ hinir ranglátu valdstjórnarmenn, sem Jón Vídalín lýsti í eldmessu- ræðu sinni á Þingvöllum. í styrjöldum skiptast á orustur og friður. Samvinnumenn Sunn- lendinga hafa háð marga hiidi þegar ekki var annars kostur. Þeir hafa barizt til að njóta friðar eftir rinnið dagsverk. Egill Thorarensen var jafnvígur á málefni friðar og styrjalda, og hans var venjulega leitað þar sem þörfin var mest við sigursæl átök. f bókasafni hans voru flestar þær bækur innlendar^ og útlendar, sem íslenzkir gáfu- menn þurfa að hafa undir höndum .vegna sjálfsmenntunar og andlegs' gill Gr. Thorarensen þroska. f heimili hans voru lista- verk eftir flesta snillinga íslenzkr- ai myndgerðar. Bókasafn og lista- verk Egils Thorarensen voru ekki mæld í metratali heldur bjó djúp- ur skilningur á íslenzkum bók- menntum og listum í hug hins ráð- snjalla manns. Þegar á reyndi í gleðimálum og vinarkynnum eða í önn dagsins bar snilliyrði úr Njálu og Heimskringlu eða Hafblikum á góma í viðtölum samherja eða mótleiksmanna. Þegar ungur mað- ur heilsuvana, efnalítill og lítt skólagenginn hefst til mikilla valda og úrræða í ættbyggð sinni, er gengi hans að líkindum að þakka meðfæddum yfirburðum, heppilegum ytri skilyrðum, og sí- felldri leit að persónulegum þroska og ákveðinni löngun til að yrkja stórkvæði með sinni kynslóð. Á íslandi tekst sjaldan að vinna sigra í stjórnmálum eða við fjár- hagslegar framkvæmdir nema þeim baráttumönnum, sem gæddir eru ríkri mannlegri samúð og hafa handbæra nokkra lykla að andleg- um fjársjóðum samtíðarinnar. Áhrif Jóns Sigurðssonar og Jónas- ar Hallgrímssonar á íslenzk mál- efni og framþróun byggjast nærri eingöngu á andlegum yfirburðum þeirra, jafnvel í mjög veraldlegum málum eins og áfökum um verzl- unarfrelsið og sauðfjárlækningar. Á hinni löngu nýsköpunarleið Eg ils Thorarensen var að jafnaði mannkvæmt á hans vegum við Ölfusá eða í Reykjavík. Þurfti margs með. Þangað komu áhrifa- n.iklir fjármálamenn, stjórnmála- garpar, samvinnuleiðtogar, bænd- ur, sjómenn, verkamenn, lista- rnenn, skáld, Helga úr öskustónni, og margir fleiri nauðleitarmenn. Öllum var veitt sú viðtaka, sem bezt hentaði í þágu góðra málefna. Egill Thorarensen hefði manna bezt getað haldið úrvalsveizlur fyrir alla þjóðina með meiri hát't- visi heldur en flestir samtíðar- menn hans sem fást við þá iðju. Hann bjó að jafnaði vel með þann, veizlukost sem bílífisfólk telur til dásemda tilveiunnar. Þar af veitti Egili gestum sínum þá fyrir- greiðslu sem bezt átti við vegna málefna, sem bar á góma en ekki lét hann eldmn berast út af arin- hellunni. Mjög oft hélt Egill stóra veizlufundi með samherjum sínum kaupféiagsmönnum Árnesinga eða félagsmönnum í Flóabúinu. Þessir kaupfélagsfundir voru oft með nokkuð frumlegum hætti. Bændur og konur þeirra úr heilum hrepp- um komu eina dagstund að Sel- fossi á samvinnufund. Kaupfélagið sendi bifreiðar eftir þeim og fiutti fólkið heim um kvöldið. Á þessum samkomum voru sungin inngangsljóð, haldnar stuttar vakningarræður um samvinnumál, sýndar myndir um starfshæfti káupfélaganna eða Sambandsins. Síðan ræddi kaupfélagsstjórinn viðskiptamál félagsins og svaiaði spurningum um félagsmál. Sköru- legar veitingar voru bornar fram tveim sinnum á hverri samkomu. Svipaðri aðferð beitti Egill Thor- arensen þegar hann vígði Mjólkur- bú Flóamanna á síðast liðnu hausti. Auðvelt hefði verið fyrir hann að halda þessa vígsluhátíð á einum degi og safna þann dag, þeim, sem komið gátu á skyndi- fund í hinum miklu salarkynnum íi.jólkurstöðvarinnar. Það hefði verið fyrirhafnarlítið auglýsinga- gaman. í stað þess komu félkgs- menn Flóabúsins á vígsluhátíðir af öllu Suðuriandi í takmörkuðum hópum dag eftir dag í nærri hálf- an mánuð. Félagsmenn heimsóttu þá hina miklu eign, sem beir höfðu latið reisa og andstæðingar þeirra I ræddu talsvert um með röngum! frásögnum. Þarna komu bændur, Gg konur þeirra af öllu félagssvæð-! inu. Þau kynntust stórbyggingunni og hlutverki hennar í góðu tómi og! mynduðu sér sáðan rökstuddar skoðanir um eðli mjólkurstöðvar- innar, framkvæmd verksins og til- kostnað og íramtíðarvonir. Flestir félagsmenn fóru ánægðir heim af þessum fundi. Ef til vill hefur ein- , hverjum Dændanna komið í hug hið kunna spakmæli Ágústs Helga- sonar í Bir'tingaholti, þegar kaup- félagið á Seifossi var áfellt fyrir húsbyggingar. Þá sagði Ágúst: „Ég læt það nú vera þó að bændurnir eigi eitt almennilegt hús.“ Það fer vel á því í Kaupmanna- höfn að hínn mikli Skagfirðingur, Albert Thorvaldsson, hvílir í lágri gröf í gaiði undir veggjum þeirrar stórbyggingar, þar sem listaverk hans eru geymd. Nú er genginn til moldar þýðingarmikill Sunnlend- ingur af Hlíðarendaætt. Honum er með snillilegri fyrii'hyggju búin hinzta hvíla í kirkjugarðinum í Laugardælum, á bökkum Ölfusár. Sú jörð er í sinni núverandi mynd eitt af Þstakvæðum Egils Thorar- er.sen. Hann réð því að jörðin var keypt og að heitt vatn var þaðan leitt til að hita höfuðborg Suður- lands. Hann hafði forystu um að þar er nú virðulegt sameignar- heimili sunnlenzkra bænda, þar, sem gerðar eru fræðilegar rann-1 sóknir til að flytja brot af reynslu- vísindum samtíðarinnar inn á hvert einasta sveitaheimili. Brátt tekur ný kynslóð við fé- Ir.gsmálastarfi eftir Egil Thoraren- sen og samstarfsmanna hans. Þó mun þess lengi minnzt, hversu úr- valslið samvinnusamtakanna í þjóðfélaginu hefur á nokkrum ára- tugum lyft mörgum og þungum Grettistökum. Það er mikill vandi að ávaxta mikinn arf. Ef dæma má eftir reynslu undangenginna ára, á Selfossi má telja fullvíst, að bezt roun henta á ókominni tíð þegar mikinn vanda ber að höndum að horfa á goðum vígð listaverk snill- inganna í stjórnarstofu Kaupfélags Árnesinga og minnast þess, að engin vegferð lánast, nema þar sem mikið mannvit og list drottna yfir lágkúrulegri efnishyggju. Jónas Jónsson frá Hriflu. Egill Gr. Thorarensen var fædd ur 7. janúar 1897, dáinn 10. janú- ar 1961. Hann var því nýlega 64 ára gamall, er hann lézt. ’ Hann var fæddur á Kirkjubæ á Rangárvöllum, sonur hjónanna Jónínu Egilsdóttur frá Múla og Gríms Thorarensen í Kirkjubæ. Er Egill því af þjóðkunnum ættum kominn. Hann var giftur Kristínu Daníels dóttur Thorarensen. Þau áttu fjög ur börn, tvo syni og tvær dætur. Þau eru öll gift. Synirnir gegna báðir ábyrgðar- stöðum í stofnunum, sem faðir þeirra stjórnaði, Benedikt í Þor- lákshöfn, en Grímur hefur um all langt skeið verið fulltrúi föður síns í Kaupfélagi Árnesinga. Egill Gr. Thorarensen var gædd ur ótrúlega sterku þolgæði. Þessi mikli víkingur, hugdjarfur hug- sjónamaður, var um áratugi svo veill á heilsu, að hann varð að liggja rúmfastur tímum saman. Aldrei sáum við, samferðamenn hans, honum bregða og aldrei heyrðust æðruorð vegna veikind-. anna. Furðu gegndi hve vel hann náði heilsu á milli og ætíð leit hann vel út. Eftir að hjartað fór að bila var eðlilegt að við, sem bezt þekktum hann, værum haldn ir nokkrum ugg, en við fundum fjörið og starfsþróttinn og vonuð- um ætíð allt hið bezta. Og fyrir þetta veikindakast, sem leiddi hann til andláts var hann svo undra vel frískur, að þessi bráðu umskipti komu nokkuð óvænt. Á leið mannanna hafa fyrr og síðar verið tori'áðin vandamál, veg lausar leiðir og steinar í götu. Nokkur hlutj fólksins hefur unað þessu sæmilega mann fram af manni, aðrir voru framsýnni og sí vakandi yfir því, sem gera þyrfti fólkinu til frama og betra lífs. Á öllum öldum hafa komið fram menn, sem voru meiri fyrir sér en allur fjöldinn, hugsjónamenn, gæddir hugrekki og þolgæði til að færast mikið-í fang. Þeir nefn- ast brautryðjendur. Mei'kur og þekktur Íslendingur ræddi á fjölmennu<nóti um braut- ryðjandann og sagði, að verk hans væru samofin af mannkostum og atorku. Hann nefndi nokkur dæmi um hvort fyrir sig. Síðan sagði hann orðr’étt: „Guð sjálfur hjálp- ar þeim til, sem hafa svona gott hjarta og svona ötular hendur“. Hinn ótrauði fallni foringi okk- ar, Egill Gr. Thorarensen, hafði bæði gott hjarta og ötular hend- ur og notaði hvort tveggja til að bæta líf fólksins og með því að opna augu þess fyrir gildi félags- andans, leiddi hann það til þátt- töku í dáðríkum, svipsterkum verk um og þó að stóru átökin marki s-tærstu sporin, þá eiga þau samt sinn aðdi'aganda í mörgum smærri athöfnum eða verkum, sem unnin eru af fjölda manna í kyrrþey og trúmennsku og þó að þau sýnist oft næsta lítilsvirði og jafnvel þó að enginn taki eftir þeim, þá eru þau samt oft eins og frækorn, sem falla í góða jörð á hentugum tíma, þau vaxa upp og'bera ávexti og ótal fræ. Á þennan há-tt renna ýmsar stoð ir frá fólkinu sjálfu undir hin sterku ráð og ákvarðanir braut- ryðjandans um það, hvað beri að gera. Egill Thorarensen skildi vel og kunni að meta störf félags- manna sinna, smá og stór. Hann skildi fyllilega, að — „Veikt og sterkt í streng er undið, stórt og smátt er saman bundið“. í Árnessýslu voi’u á öllum tím- um uppi framsýnir menn og eru dæmi nærtæk um það- Eigi að síður deildu Árnesingar oft og lengi um stór mál, svo sem verzl- unarmál, skólamál og fleii'i fram- faramál. Allar tilraunir, sem nokk uð kvað að í verzlunarmálum í samvinnusniði, höfðu hvað eftir annað mistekizt. Á þessum deilum lærðu menn þó margt. Þegar Kaupfélag Áinesinga var stofnað 5. nóv. 1930 og fyrsta búð- in opnuð 2. jan. 1931 og Egill Thorarensen tók að sér forustu félagslns, sýndi það sig brátt, að hann var gæddur þeim foringja- kostum, sem. til þess þurfti að opna hugi manna fyrir gagnsemi og nauðsyn þess að efla hið ný- stofnaða kaupfélag. Mótstaða manna var nokkur og þó engan veginn óskiljanleg. Ýmsir menn töldu þetta áhættu, óvíst að nokk uð kæmi í aðra hönd. Þeir yrðu fyrir ónæði vegna áróðurs, menn yrðu óvinsælir hjá ýmsum, stríðni og dylgjur myndu dynja á þeini frá hinum, sem væru þessu nýja formi andvígir. Hins vegar var fengin 50 ára reynsla á kaupfélög- unum í iandinu og hinn ungi kaup íélagsstjóri laginn með ráð undir hverju rifi að uppræta ótta manna og tortryggni. Hann kom fram á vígvöllinn djarfur og úrræðamikill. Staifsorka hans var töfrakennd eins og hann var oft veikur, við- fangsefnin mikil og oft torleyst. Ég sá hann fyrst við búðarborð í fremur lítilli verzlun á Selfossi. Hann var glaðlegur og vinsamleg- ur í viðmóti og man ég vel hversu, vel mér leizt á þennan yfirlits-j bjarta mann. Ékki var ég svo for-; spár, að mig óraði fyrir því mikla starfi, sem þá beið hans og þeimj nánu og góðu kynnum, sem við áttum í vændurn. 1 Eitt af því, sem efldi Egil mjög var hans' vakandi auga á uppr'enn andi forvígismönnum víða um heim. Hann las bækur merkra höf unda og ræddi um viðfangsefnin við góða gesti, sem bar að garði. Hann var hugfanginn af hvers kon ar framföium og hann sá manna bezt að fólkið þarfnaðist umbóta á svo mörgum sviðum. Hann hóf sitt kaupfélagsstjóra- starf á því að vekja menn til fé- lagslundar og félagshyggju. Egill Thorarensen var glaður í orðr’æðu við alla menn og einkar laginn að hæna menn að sér, bæði einn í einu og svo með fundahöldum. Honum tókst því undrafljótt að efla kaupfélagið með fjölda félags manna. Vegna þess hvað E. Th. var skemmtilegur í viðmóti, vakti hann vináttu með framkomu sinni og starfi. Enginn véfengdi úrtæði ha:ns né öryggi. Hann öðlaðist því fljótt fyll’sta traust allra manna. Hitt var ekki von, að allir skildu afrek hans, þess var ekki að J vænta. Kom þar fyrst og fremst tvennt til, ólíkar lífsskoðanir og andstæð sjónarmið á vinnuaðferð um, þó að sleppt sé allri illkvittni. Hann sagði oft við mig: „Mundu það, að þau verk, sem hljóta allra lof, eru sjaldan stór og ég hef enga trú á því verki, sem enginn finnur að“. Þó að Egill væri oft har'ður í horn að taka og óvæginn í baráttu, var hann samt ætíð fús til að hlusta á samningstillögur og leggja þær fram sjálfur. Ég þekki engan mann meðal þeirra, sem áttu í málefnalegri deilu við Egil, sem ekki virtu hann mikils bæði vegna drengilegrar framkomu og vitur- legra tillagna til málamiðlunar. Sé litíð yfir allra stærstu verkin, sem lutu forustu Egils: Verzlunar- hús Kaupfélags Árnesinga pg aðr ar stór’þyggingar félagsins, kaupin á Laugardælum og búskapinn þar, baráttu hans í mjólkursölumálum Sunnlendinga, Þorlákshöfn og hið nýja Mjólkurbú Flóamanna, verð- ur öllum Ijóst, að þessi stórvirki eru slungin tveim aðalþáttum, fr'amsýni, viljaþreki og úrræðum hans sjálfs annars vegar og sam- tökum fólksins hins vegar. „Hvert jarðarblys, sem brennur, er bál af neistum tveim“. Ekkert af því, sem framundan er, veðrur eins erfitt að uppfylla eins og hæfileika Egils Thoraren- sen til að sameina fólkið til átaka um svipmikil verk. Fyrir 30 árum tókst vinátta með okkur Agli Thorarensen. Ég kveð nú góðan vin og félaga. Margs er að minnast og eingöngu mikils góðs. Flestif menn í héraði og víðar hafa hugboð um hans mikla og merka bókasafn og hversu víðles- inn hann var í íslenzkum og erlend um bókmenntum og um listaverk- in á heimili hans, en það eru ekki allir, sem vita hvernig var að koma og dvelja á heimili þessarar fjöl- skyldu. Það þekki ég af eigin raun. Þai' var gott að koma. Frú Kristín og börnin báru heimilinu fagurt vitni ekki síður en húsbóndinn sjálfur. Ég eignað- ist þau öll að vinum fyrir löngu og er sú vinátta óbreytt enn í dag. Nú er skaið fyrir skildi. __ Við í stjórn Kaupfélags Árnes- inga, sem höfðum nánast samstarf við hinn látna vin, sendum honum hinztu kveðju og þakklæti fyrir hinar djúpu og traustu minningar. Ég trúi þeim boðskap, sem felst í þessum ljóðlínum: „Og út yfir þitt ævikvöld skal andinn lifa á nýrri öld“. Bjarni Bjarnason. ★ Þess munu fá dæmi, að stjórnandi svo fjölmenns (Framhald á 13. síðu.)

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.