Tíminn - 21.01.1961, Page 16

Tíminn - 21.01.1961, Page 16
 Laugardaginn 21. janúar 1961. 17. blað. Bar barn sitt út og rændi oðra HVÍTÁRVELLIR. Vill einhver kaupa gamalt barónssetur I Borgarfirði? Eitt hinna gömlu höfðingja- setra iandsins, höfuðból að fornu og nýju, laxveiðijörð mikil, fríð bújörð og góð á fögrum stað í fögru og viðu héraði, á að seljast á uppboði í vetur. Hvítárvellir í Borgar- firði fara undir hamarinn vegna arfaskipta. Þar gerist saga, sem ekki er fátið nú orðið: Þegar margir erfingiar eiga tilkall til erfðahluta úr jörðum, sem eru mikils virði, treystir einn, eða þótt tveir séu, sér ekki til þess að leysa samerfingja sína út. Þetta er þeim mun erfiðara viðfangs, sem erfingjarnir eru fleiri. Þarna stendur svo á, að þeir eru átta. Arfi á að skipta eftir Maríu Sæmundsdóttur, sem andaðist vet- urinn 1959, ekkju Ólafs Davíðsson- ar, er dó fyrir alllöngu. Við því er búizt, að jörðin muni seljast á aðra milljón króna, en þó hafa tveir synir þeiira Ólafs og Maríu, sem á Hvítárvöllum eru, Davíð og Hannes, fengið útmældar stórar spildur úr landi Hvítárvalla, ásamt veiðirétti — annar upp með Grímsá, en hinn niður með Hvítá. Kaupstefnur og búðarrústir Hvítáivellir eiga að sjálfsögðu rnikla sögu. Að fornu sigldu far- í Hvíta húsinu í Washingron ksrnur ma8ur i manns stað elns og annars staðar, og í gær gekk Eisenhower sína hinztu göngu út um dyr þess sem forsetl Bandaríkjanna. Imenn í Hvítárós, gerðu sér búðir á bökkum Hvítár og efndu til kaupstefnu. Sjást þar enn leifar gamalla búðarrústa skammt frá túni á Hvítárvöllum, enda var þarna einn helzti verzlunarstaður landsins. Af þeim slóðum hefur Böðvar, sonur Egils Skallagríms- sonar komið, er hann drukknaði á Borgarfirði, og þar sló Kjartan Ól- afsson landtjöldum, ásamt Kálfi Ásgeirssyni, vorið 1001 og seldi varning sinn. Bruni á dögum Skottu Seint á seytjándu öld sat Sig- urður Björnsson lögmaðut á Hvít- ávvöllum, og þangað kom Jón Hreggviðsson með bréf og skilríki úr konungsgarði, svartur og hrak- inn landhlaupari af Akranesi, er mál hans skyldi tekið upp og dæmt að nýju. Á átjándu öld bjó Sigurð- ur Jónsson sýslumaður þar í sam- býli við Skottu þá, sem kennd er við Hvítárveili. 1751 varð þar elds voði mikill, og brunnu sjö menn inni, en sýslumaður sjálfur, kona hans pg fleira fólk komst út, ná- lega nakið. j Laxinn heillaði Um miðja seytjándu öld var gerð fyrsta tilraunin-, sem um er getið, til þess að gera laxinn í I Hvítá að gróðalind. Hollenzkur rr.aður, Jóhann Mum frá Rotter- I dam, lét reisa hús á Skálahóli svo- I nefndum. Hann ætlaði að moka jupp laxi. En minna varð úr en ! til var stofnað. j Upp úr 1770 lét konungsverzlun- j ia hefja þar laxveiði að frumkvæði I Einars Þórólfssonar, sem síðar var j nefndur borgari. Reist var svo- jnefnt laxahús, og tunnur til þess j að salta laxinn í fluttar í Hvítárós. | Þá var veiðikunnátta eða geta borg jfirzkra bænda enn ekki meiri en ’svo, að engmn lax var veiddur í jHvítá. En þessi konunglega lax- : veiðiútgerð gafst ekki vel, og brátt var horfið frá henni. Um miðbik nítjándu aldar var gerð þriðja tilraunin til þess að gera laxgengdina í Hvítá að mikl- um gróðavegi. Skozkur maður, James Ritlhie, reisti niðursuðu verksmiðju e Hvítárvöllum 1859 og sauð þar niður lax í nokkur ár. Franski baróninn Og þá dregur að þeim þætti i sögu Hvítárvalla, sem kannske er einstæðastur — Hvítárvellir verða barónssetur. Árið 1898 settist franski baróninn alkunni, Charles Gouldré, að á Hvítárvöllum. (Framhald á 15. siðu). Óvenjulegt barnsrán átti sér staS i Vínarborg fyrir skömmu. Nítján ára gömul stúlka, Erika Konecny, ól fyrir mánaðartima barn úti á víða- vangi og kom því fyrir, en rændi svo fjögurra mánaða gömlum dreng. Erika Konecny sagði lög- reglunni svo frá, að maður- inn, sem átti með henni þung ann, hefði ekki viljað kvæn- ast henni. Hún blygðaðist sín fyrir að ala bam ógift, leitaði út á víðavang og fæddi þar. Hún lét bamið liggja á jörðinni í kalsaveðri, unz það j var dáið. Síðan batt hún stein j við líkið og varpaði því í Dóná. i Það fannst síðar, en lögreglan vissi ekki, hvernig á því stóð. Þegar stúlkan kom heim, sagði hún foreldrum sínum að hún hefði skilið barnið eftir í sjúkrahúsinu. Síðan leið einn mánuður, og fóru þá for eldrar og ættingjar að heimta af henni, að hún sýndi þeim það. f örvæntingu sinni á- kvað stúlkan að ræna bami og fara með það heim til sín. Hún þreif barn, sem hún sá sofandi í bamavagni við dyr tóbaksbúðar, og hljóp með það heim til sín. Móðir barnsins uppgötvaöi fljótt barnshvarfið og leitaði á náðir lögreglunnar. Brátt j fannst fólk, sem séð hafði í | stúlku hlaupa eftir götunni j með barn í fangi. Það lýsti jstúlkunni svo nákvæmlega, að lögreglan komst þegar á sporið, og ekki voru liðnar nema fjórar klukkustundir frá bamsráninu, er lögreglan barði að dyrum hjá foreldr- um Eriku. Þar fannst horfni drengurinn, og stúlkan gekkst við öllu, sem hún hafði gert. Nú hefur Kennedy verið settur inn í forsetaembærtið, og þau verða ekki fá vanda- málin, sem bíða úrlausnar, er hann sezt við skrifborð sitt í Hvíta húsinu í dag og blaðar í skjalamöppunni. Myndin þarfnast ekki skýringa að öðru leyti en því, að hún er teiknuð af hinum þekkta brezka skopteiknara, Cumm- ings, sem væntanlega á eftir að draga upp nokkrar fleiri af hinum unga Bandaríkjafor- seta. I

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.