Tíminn - 08.07.1961, Page 13

Tíminn - 08.07.1961, Page 13
TÍMIN N, laugardaginn 8. júlí 1961. 13 Lögfræðiskrifstofa Laugavegi 19 SKIPA- OG BÁTASALA Tómas Árnason hdl. Vilhjálmur Árnason hdl. ''Ú Símar 24635 og 16307. Heimilishjálp Tek gardínur og dúka 1 strekkingu Upplýsingar i síma 17045. //. óíJan (Framhald af 11. síðuj tíminn". Hún hefst á styrjaldarár- unum með því, að Gestapoher- maður ögrar meðlim í leynilegum samsærisflokk og verður því grun- aður um svik. Seinni hluti mynd- arinnar á sér stað núna: félagan- um úr andspyrnuhreyfingunni hefur ekki enn tekizt að losa sig við brennimark svívirðingarinnar, en í Vestur-Þýzkalandi, er Gestapo hermanninum stefnt fyrir rétt. Hann fær þar hlægilega létta refs- ingu vegna íhlutunar fyrrverandi yfirmanns hans, sem að vísu fyrir- leit hann, en fannst hann verða að sýna samhjálp sem hermaður Tvær nýlegar myndir haía vak- ið athygli: „Vertu sæl — til morg- ungs“ (Morgenstem), _sem má segja að sé sagan um Öskubusku í nútímabúningi. Öskubuska er þar í gervi leikstjóra stúdenta- leikhúss, en prinsinn — dóttir er- lends ræðísmanns í hafnarborg. Myndin er Ijóð um ófullnægða ást. „Enginn kallar“ eftir Kutz er sál- arlífslýsing tveggja elskenda, sem öðlast vitneskju um ábyrgð sína gagnvart lífinu — jafnframt því sem hún er frásögn um flutninga til vesturhéraða Póllands. Nokkrir gagnrýnendur tóku myndinni illa, en hún vakti athygli unga fólksins. Á sviði sálarlífsmynda er „Jó- hanna, móðir englanna" einhver sú allra bezta, töfrandi mynd. Leikstjóri er Jerzy Kawalerowicz. Listamaðurinn hefur hér valið sér að viðfangsefni franska arfsögn frá 13. öld um klausturstýru, sem gafst djöflinum á vald, og um pr'est, er fæst við djöflasæringar Kjarni verksins er, að lýsa d.'ama- tískri innri baráttu persóna, sem eru flæktar í net þröngra og ó- hagganlegra siðferðisreglna, sem einhverntím-a voru meðteknar í hugsunarleysi, án þess að menn gerðu sér afleiðingarnar ljósar. Farið er mjög sparlega með öll tjáningartæki, en það leggur að- eins aukna áherzlu á afl tilfinn- inganna, sem þessi óvenjulega mynd lýsir. „Jóhanna, móðir engl- anna“ fókk verðlaun, „Silfurpálm- ann“, á kvikmyndahátíðinni í Cannes 1961. Önnur söguleg mynd -„Kross, riddarar" eftir Aleksander Ford, er af annarri gerð og tekur fyrir annað efni. Það er sótt í skáldsögu Sienkiewicz, höfundar sögunnar „Quo vadis“. í 'henni er tekið til meðferðar vel þekkt. efni um þátta skil í sögunni með þúsundum af aukaleikurum, áhrifamifclum bar- dögum, litskrúðugum búningum, cinemascope, eastmanlitum — án þess þó að gefa hugmyndalegar og fagurfræðilegar kröfur upp á bát inn. Árangurinn er óaðfinnanleg mynd hvað uppbyggingu varðar, leik og leikstjórn. Hún er viðvör- un gegn endurfæðingu þýzkrar hefndar- og hernaðarstefnu. Jafn- framt sannaði þessi mynd, að pólsk kvikmyndalist ér fær um að leysa hin erfiðustu og dýrustu verkefni í kvikmyndagerð. „Krossriddararnir“ koma brátt til sýninga í kvikmyndahúsum' víða í Evrópu, því að öll Evrópu lönd, að undanteknu Vestur-Þýzka landi, hafa keypt myndina. í maí síðastliðnum var hún tekin til sýn inga í stærsta kvikmyndahúsi Par ísar, „Gaumont Palais“, sem tekur 5000 áhorfendur í sæti. Leikstjór inn, Aleksander For'd, var við- staddur frumsýningu myndarinnai* í París. Hann hefur látið svo um mælt við blaðamenn, að áhorfend ur á frumsýningunni þar hafi tek ið myndinni mjög vel, og líkur séu því til, að hún nái hylli franskra kvikmyndaunnenda. Pólskar gamanmyndir hafa ver ið misjafnar, en nú. hafa komið fram tvær allgóðar ádeilumyndir- „Anton heppni“ eftir Bielinski og Haup og „Eiginamður konunnar sinnar“ eftir Bareja. Báðar mynd- irnar henda gaman að ýmsum fyr- irbrigðum í þjóðlífinu. Vert er ,að minnast á tvær myndir um gleði og sorg barn anna, enda þótt þær séu eki síður ætlaðar fullorðnum en börnum: „Lituðu sokkarnir" eftir Nasfeter og „Heimsókn forsetans" eftir Ba- tory. f þessum myndum speglast vandamál nútímans í lífi yngstu kynslóðarinnar. í Póllandi er kvikmyndalistinm veitt mikil athygli. Ungir skapandi listamenn, sem hafa fengið ást á þessari list, reyna að tjá vandamál nútímans á máli, sem allir skilja, og þeir leggja sig allir fram um að fullkomna það mál. Sú viðleitni hefur kojnið í ljós í þeim myndum sem hér hafa verið gerðar að um ræðuefni, og búast má við, að hún komi eins fram í þeim, sem gerðar verða í framtíðinni. EINKAUMBOÐ FYRIR LEYLAND MOTORS LTD. almenna verzlunarfélagiÖ h.f. 1 4 Laugavegi 168 — Reykjavík — Sími 10199. Leyland Motors Ltd. eru einir af frumkvöðl- um vörubílaiðnaðarins. Með meira en fimmtíu ára reynslu að baki eru þeir orðnir stærstu einstöku framleiðendur sterkbyggðra vörubifreiða og stærstu útflytjendur í þessum flokki bifreiða í heiminum. Við bendum yður á að kynna yður gæði og hið hagkvæma verð Leylarid Super Comet og Leyland Power Plus Beaver vörubifreiða áður en þér festið kaup á vörubifreið. evland super comet CD Sökum mikillar eftirspurnar á Leyland vörubifreiðum, þá er afgreiðslufrestur nú tólf mánuðir. Verksmiðjurnar hafa þó sýnt okkur þá velvild að láta okkur hafa nokkrar bifreiðir til ráðstöfunar fyrr. Við biðjum eigendur og forráðamenn eldri Leyland bifreiða að hafa samband við okkur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.