Tíminn - 01.08.1961, Qupperneq 3

Tíminn - 01.08.1961, Qupperneq 3
p&M ,Ivfí N, þriðjudaginn 1. ágúsí 1961. Bretar sækja um aöild Dvalargestaskipti að efnahagsbandalaginu ^ ygguu] kjrkjUMðr Danir sækja um inngöngu í bandalagií, og Norímenn hefja viðræftur. NTB—Osló, Lundúnum og París, 31. júlí. — Norska stjórnin ákvað á fundi í dag, að hefja viðræður, ásamt hin- um aðildarríkjunum í fríverzl unrabandalagi sjöveldanna, við aðildarríki efnahagsbanda lags sexveldanna um vanda- málin í sambúð þessara tveggja bandalaga og hugsan- lega samvinnu þeirra í milli. Þá hafa ríkisstjórnir Bretlands og Danmerkur gefið út yfir- lýsingar þess efnis, að þær muni taka þátt í viðræðunum við efnahagsbandalagslöndin sex með hugsanlega aðild að bandalaginu í huga. Arne Skaug, viðskiptamálaráð- hexra 'Noregs, skýrSi frá þessari samþykkt norsku stjórnarinnar á blaðamannafundi síSdegis í dag, en samtímis var gefin út opin- ber tilkynning um þetla. HESTAR Á HAGLEYSU í vor og sumar hefur fólk við Kleppsveginn veitt athygli sex hestum, sem ganga í girð- ingu niður við sjó, austan af- leggjarans, sem liggur að mal argryfjunni hjá Ægissíðu. GirSingin er hólfuS niSur í þrennt, og eru hestarnir hafSir í hólfunum til skiptis, en þau eru öll þrautbitin, svo aS engu er lík- ara en gaddavírsherfi hafi veriS dregið sí og æ yfir þúfurnar, en milli þúfna er mikil teSsla. í vætu tið ná hestarnir .til vatns í einu hólfanna, en þar seytlar vatnið ofan úr grasgefnu ÆgisíSutúninu. Eftir nokkurra daga burrk hverf- ur þetta vatn alveg. TúniS viS girðinguna er bitið eins langt og hestarnir geta teygt sig, en þar fyrir handan bylgjast græn háin. Hestarnir eru mjög óværir, rása og hvima á eftir fólki, sem fer þarna um. Fyrir nokkr'u var lögreglunni til kynnt meðferð á hestunum og mun eigandinn, sem býr í nær- liggjandi braggahverfi, hafa fært þá um set um stundarsakir. En ekki leið á löngu, þar til hestarn- ir voru komnir aftur á fyrri stað. Lögreglunni var þá aftur gert við- vart, og verður að ætlast til, að hún tali svo við eiganda hestanna, að hann komi þeim í hagagöngu eða geri aðrar viðeigandi ráðstaf- anir. JÁkvörðun Norðmanna í yfirlýsingu norsku stjórnarinn I ar felst í stórum dráttum, að norsku sendinefndinni í Genf er veitt heimild til þess ag styðja i yfirlýsinguna um viðræður við | efnahagsbandalagslöndip, sem sam þykkt vgr á fulltrúaráðsfundi þeirra á miðvikudaginn. í yfirlýsipguntii, sem fulltrúa- ráðið samþykkti, fedst, að úm leið og Bretar og Danir ákveða að taka þátt í viðræðunum um aðild þeirra ag efnahagsbandalagi sex- veldgnna, þá athugi hin aðildar- ríki fríyerzlunarbandalagsins möguleikann á samvinnu yið efna hagsbandalagið. Sexveldin munu nú leita samvinnu við efnahags- bandalagið á mismunandi grund- velli. Sum ríkjanna munu fara fram á aðild að bandadaginu, en önnur munu vilja samsteypu bandalaganna, sagði Skaug, við blaðamenn. Enn fremur sagði ráð herrann, að viðræðurnar um sam- vinnu þessara tveggja bandalaga myndu tæplega hefjast fyrr en seint í september ,og yrðu þær væntanlega mjög umfangsmiídar og tækju langan tíma. Eins og búizt var við lýsti Harold Mcmillan, forsætisráðherra Breta, því yfir á þingfundi í morg un ,að brezka stjórnin hefð'i ákveð ið að taka þátt í viðræðunum við efnahagsbandalagslöndin með inn- göngu Bretlands í bandalagið í huga. Sagði hann, að sennilega færu viðræðurnar ekki fram fyrr en í lok ágústmánaðar eða í september. Lýsti hann því enn fremur yfir, að ekkert yrði gert í þessu máli, nema í fullu samráði við þingið' og eftir vandlega íhugun á hverju smáatriði í sambandi við hugsan- legan samning við efnahagsbanda- lagið. Sagði ráðherrann enn fremur, að leitað yrði umsagnar allra ríkja innan brezka samveldisins, áður en endanleg ákvörðun yrði tekin. Þá er því haldið fram í Lundún- um ,að forsætisráðherrann muni eiga viðræður við de Gaulle, Frakk landsforseta, í lok ágústmánaðar, þegar hann kemur úr frii sínu, og muni aðild Breta að efnahags- bandalaginu vera á, meðal umræðu efna. Þessari yfirlýsingu Breta er al- mennt fagnað meðal núverandi aðildarríkja í efnahagsbandalag- inu, en þau eru Belgía, Ítalía, Frakkland ,Holland, Luxemburg og_ Vestur-Þýzkaland. I yfirlýsingu dönsku stjórnarinn ar um þá ákvörðun að sækja um inngöngu i efnahagsbandalagið segir m.a., að með viðræðum þess um og árangrinum, sem af þeim megi vænta, sjái stjórnin fram á, í að loks takizt að binda endi á við- : skiptalegan og pólitískan ágrein- ! ing á milli landa Vestuc-Evrópu. Segir í yfirlýsingunni, áðj ; danska stjórnin muni í viðræðun-! um taka fullt tillit til hagsmun-? j hinna ríkjanna í fríverzlunarbanda laginu, en hugsa þó sérstaklega um norræna samvinnu. Meðal stjómmálamanna í Dan- mörgu ríkir aimenn ánægja yfir ákvörðun brezku stjórnarinnar um að sækja um inngöngu í efna- hagsbandalagið. Er haft eftir þeim, að sennilega hyggi rikisstjórnir beggja landa á breytingar á Róm- ar-samningnum um efnahags- ] bandalagið, en þær _ breytingar verði þó varla annað en smávægi- legar orðalagsbreytingar. Auk Bretlands og Danmerkur eru eftirtalin riki aðilar ag frí- verzlunarbandalaginu: Austurríki, Noregur, Portúgal, Sviss og Sví- i þjóð. HátfSleg stund í torfkirkjunni í Árbæ Á sunnudaginn var margt manna saman komið við Ár- bæjarkirkju. Fór þar þá fram guðsþjónusta með altaris- göngu fyrir hin níu íslenzku ungmenni, sem nokkrum klukkustundum síðar stigu upp í flugvél þá, sem flotti þau tjl New York, þar sem þau munu dveljast { heilt ár við nám. Voru þarna einnig komin þrjú bandarísk ung- menni, sem hingað voru ný- komin ti! l>rí«ilangrar dvalar. Altarisþjónustu önnuðust biskup inn, Sigurbjörn Einarsson, og séra Ólafur Skúlason, æskulýðsfulltrúi þjóðkirkjunnar. Flutti biskup ávarp og mælti m. a.: „Mér' þótti eðlilegt og sjálfsagt, að við, sem hér erum saman komin, ættum helga stund hvert með öðru í dag, Skýfall á Norðurlandi í fyrradag og um nóttina var víða geysileg rigning á Norð- ur- og Norðausturlandi. Á Akur eyri var rigningin sem skýfall og allt flóði í vatni. Miklar skemmdir hafa víða orðið á heyjum. Nýtt sláturhús á Raufarhöfn Raufarhöfn, 28. júlí. Hér er að verða fokhelt nýtt sláturhús, sem verið er að byggja,1 og mun sauðfé verða slátrað þar í haust, ef allt gengur að óskum. Undanfarin ár hafa Raufarhafn- armenn og Austur-Sléttungar1 neyðst til að flytja fé sitt til Kópa- skers til slátrunar. Á þessu svæði eru um 3500 fjár. J.Á. Fjögur hátíðaljóð bárust Frestur til að skila hátíða- Ijóðum vegna hálfrar aidar afmælis háskólans rann út í gær. Fjögur ljós höfðu borizt, þegar blaðið hafði samband vig skrif- stofu háskólans i gær, og mun nú dómnefnd setjast á rökstóla og skera úr, hvert henni þykir þezt. Ljóðin eru að sjálfsögðu ort und ir dulnefni, en nafn höfunda fylgja í lokuðum umslögum, sem ekki má hnýsast í, fyrr en nefndin hefur kveðið upp sinn dóm. bærum fram bænir okkar saman og gengjum að borði Drottins. Inn an fárra stunda skiljast leiðir um sinn. Vegna þátttöku sinnar í al- þjóðlegu samstarfi kirkjunnar manna hefur íslenzka þjóðkir'kjan getað boðið álitlegum hópi ung- menna til ársdvalar í öðru landi. ■ • • • Eg veit, að ykkur langar til þess að verða landi ykkar og þjóð, foreldrum ykkar og kirkju til sóma, og því fólki, sem þið dvelj- ist hjá, til gleði og gæfu, eftir því sem í ykkar valdi stendur... Og nú erum við hér í þessari litls kirkju, sem er eins konar ímynd þeirrar sögu, sem þjóðin okkar hefur lifað. Hér bjó lítil þjóð i fátæku landi, háði mikla baráttu fyrir tilveru sinni og enn harðari baráttu fyrir andlegu lífi sínu fyr- ir að varðveita göfuga tungu og þróa með sér merkilega menningu. Þessar öldnu þiljur-geyma fingra för lúinna handa, sem gættu þess lífs, sem þið eruð sprottin af, svo að það dó ekki út, svo að þið eruð til. Þegar þið hugsið um landið ykkar úr fjarska, þá gleymið ekki því, að það þurfti sterkan vilja og sjálfsafneitun og mikinn mann dóm til þess að lifa íslenzku líf og skapa íslenzk verðmæti, verð mæti, sem hafa orðið öðrum þjóð um menningarleg örvun og ábati Og þetta helga hús, sem með svip sínum bendir aftur í aldirnar, minnir líka og fyrst og fremst á það, hvað það var, sem hélt þjóð- inni uppi, hvar hún fann athvarf og orkulind, hvar vilji hennar fékk herzluna pg andi hennar sólarsýn. Það var kirkjan, sem gaf þetta, kirkja ísleifs og Eysteins, Hall- gríms og Vídalíns, kirkja feðra þinna og mæðra, kirkjan þín. Og nú þarf hún framar en nokkru sippi áður á ungum kröftum »ð halda, ungri, sterkri, starfandi trú. Síðan ávarpaði biskup á ensku hin bandarísku ungmenni, bauð þau veikomin til íslands og kvaðst vona, að ejnnig bér msettu þau styrkjast í samfélagi við kristið fójk í kirkju Drottins, Hann sagð- ist fuJit eins vmnta þess, að þetta guðshús, sem þau nú væru í, vaeri í þeirra augum býsna fátæklegt, en spurði svo: „En Jtver eru auð- æfi kirkjunnar? Ekki fágætir stein ar né dýrmæt Jistaverk. Dýrð kirkj unnar er náð bans, sem gerðist fátaekur vor vegna", Að lokinni guðsþjónustunni flutti VaJdimar Björnsson, fjár- málsráðherra Minnesotarikis, á- varp og sagðist samfagna Jtinum bandarísku ungmennum með það að fá að dveljast bér í beilt ár. Þetta er í fyrsta skiptið, sem ís- lenzka þjóðkirkjan er aðiJi að slík- um kynnisferðum aeskufóJks og er áformað framþajd á þessum skipt- um Munu fsjpndingarnir fyrst dveljast npkkra daga í New Jer- sey en síðan halda til þeirra heim- ija, sem þau munu dveljast á næsta árið, Er dvöl þeirra og ferðalag j pandaríkjunum þeim að kostnað arJausu og að auki fá þau nokkra vasapeninga. Amerísku unglingamir eru í Reykjavík, Hafnarfirði og Kefla- vík, og er sama fyrirkomulsg um dvöl þeirra hér og Islendinganna vestra. Hafa þeir verið hér I viku og íáta mjög vel af dvöj sjnni- Hún þarf á þér að balda, það er orð hennar tij þín nú að skilnaði, um leið og hún blessar þig, og í því orði, er köllun Drottins þíns og þín eigin sanna lífsgæfa fólg- in“.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.