Tíminn - 02.08.1961, Blaðsíða 5

Tíminn - 02.08.1961, Blaðsíða 5
TIMIN N, mígyikudaginn 2. ágúst 1961. 5 ERLENT YFIRLIT L Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN. Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason. Rit- stjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb.), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason. Fulltrúi rit- stjómar: Tómas Karlsson. Auglýsinga- stjóri: Egill Bjarnason. — Skrifstofur í Edduhúsinu. — Símar: 18300—18305 Auglýsingasími: 19523. Afgreiðslusími: 12323. — Prentsmiðjan Edda h.f. Hve traust er Austur-Þýzkaland? Nokkrar hugleiíingar eftir fárra daga dvöl þar eystra Hundruðum milljóna bjargað Nú um mánaðamótin nam síldaraflinn orðið talsvert meira en milljón mál og tunnur. Verðmæti hans skiptir mörgum hundruðum millj. kr. Það er meira en vafasamt, að nokkuð af þessum afla hefði komið á land, ef samvinnuhreyfingin hefði ekki samið við verkalýðsfélögin og leyst þannig mestu kaup- deilu, sem hér hefur orðið. Menn skulu rifja upp, hvernig ástatt var, þegar þessir samningar voru gerðir. Ríkisstjórnin hafði komið verkfallsöldunni af stað, fyrst með því að skerða kaupmátt launa um 12—15%, og síðan með því að neita um allar kjarabætur aðrar en kauphækkun. Verkalýðshreyfingin var því neydd til þess að hefja verkfallsbaráttu. Ríkisstjórnin hugðist að leysa deiluna með því að láta sáttasemjara bera fram tillögu um 6% kauphækkun strax og 4% á næsta ári. Þessu var hafnað af verkalýðsfélögunum. Ríkisstjórnin stóð þá uppi eins og þvara, algerlega ráðalaus. í her- búðum hennar var helzt talað um að reyna að neyða launafólk til undanhalds með löngu verkfalli. Það var mikið talað um tveggja mánaða verkfall eða fram til júlíloka. Þannig stóðu málin, er samvinnuhreyfingin hjó á hnútinn, og samdi við verkalýðsfélögin. Allar líkur benda til þess, að hefði samvinnu- hreyfingin ekki gert þetta, hefði orðið mjög langt verkfall — jafnvel tveggja mánaða verkfall, eins og stjórnarliðið talaði um. Átökin milli atvinnurekenda og Dagsbrúnar um styrktarsjóðinn, eru glögg vísbending um, að verkfallið hefði getað orðið hart og langvinnt, ef samvinnuhreyf- ingin hefði ekki höggvið á hnútinn. Það var auðsjáan- lega ætlun stjórnarliðsins að tefla óvægið og verkalýðs- hreyfingin hefði þá svarað í sömu mynt. Tveggja mán- aða verkfall hefði alls ekki verið ólíklegt. Og endalokin hefðu samt orðið þau, að ekki hefðu náðst hagstæðari samningar fyrir atvinnuvegina en þeir, sem samvinnuhreyfingin gerði. Hinn mikli síldarafli, sem hefur borizt á land und- anfarnar vikur, er talandi vitni þess, hve miklu sam- vinnuhreyfingin hefur bjargað með þvi að afstýra verkfalli, sem vel hefði getað orðið tveggja mánaða langt. 10 i stað 100 Gunnar Thoroddsen flutti loks skýrslu í útvarpið í fvrrakvöld um afkomu ríkissjóðs 1960. Ef fylgt hefði verið venju, hefði þessi skýrsla átt að vera birt áður en þingi lauk í vetur. Athyglisverðast við þessa skýrslu var það, að greiðslu afgangur ríkissjóðs varð aðeins 10 millj., þrátt fyrir hina gífurlegu skattahækkun á síðastl. án. Stjórnin hafði vonazt til, að greiðsluafgangurinn yrði alltaf yfir 100 millj., og hægt yrði að nota hann síðar á kjörtímabilinu. Til þess að leyna þessari fyrirætlun var tekjuáætlunin höfð mjög varleg, en mörg útgjöld, t. d. niðurgreiðslur, áætluð alltof há. Fyrirætlun þessi hefur hins vegar misheppnazt svo að afgangurinn varð aðeins 10 millj. í stað 100 millj. Ástæður eru þær, að tekjurnar drógust saman vegna samdráttarins, og eyðsl- an varð meiri hjá Gunnari en búizt hafði verið við. I ( HINN heimsfrægi ameríski _j ( blaðamaður, John Gunther, hef f ur nýlega látið fara frá sér nýja ( bók, serni hann nefnir „Inside ( Europe Today“. Gunther varð ( fyrst frægur fyrir 25 árum síð- / an, er hann gaf út bókina „In- / side Eui'ope", en siðan hefur / hann gefið út allmargar slíkar '/ bækur um aðrar heimsálfur, / auk sérstakra bóka um Banda- / ríkin og Sovétríkin. f bókum / Gunthers, sem eru fjörlega rit- / aðar, er jafnan að finna mikinn / fróðieik og yfirleitt tekst hon- / um fur’ðuvel að bregða upp rétt '/ um myndum af viðkomandi '/ þjóðum eða mönnum, sem hann / ritar um. / í hinni seinustu bók sinni, / Inside Europe Today, segir f Gunther m. a. frá Austur-Þýzka / landi og er megin niðurstaða / hans á þessa leið: / — Austur-Þýzkaland er að / mörgu leyti þýðingarmesta •/ fylgiríki Sovétríkjanna. Austur- ^ Berlín getur virzt fátækleg á \ yfir'borðinu, en Austur-Þýzka- \ land dafnar og befur trausta og \ vaxandi framleiðslu. Það væru \ slæm mistök að vanmeta Aust- • ur-Þýzkaland eða að gera lítið • úr endurreisn þess og framlagi • til hins kommúnistiska heims- • hluta. Lífskjörin hafa batnað verulega, einkum síðan fram- \ leiðsla neyzluvara var aukinn ;,vPftiíJrí!r?I,sjfyí'a áætlunin kom ( Stjórnmálalega hefur Austur ( Þýzkaland verið talið fyrir- ( myndar leppríki. Þetta þýðir / engan veginn, að forustumenn / þess séu ekki annað en auð- '/ sveipir leppar Kremlverja. Þó '/ það væri ekki nema vegna þess / eins, að þeir eru Þjóðverjar, / hafa þeir bæði vilja og fram- / takssemi til athafna. Austur- / Þýzkaland er ekki framhlið eða / skuggi af ríki, það er raunveru- / legt land (real country). £ TÍU DAGA dvöl í ókunnu / íandi veitir að sjálfsögðu ekki / aðstöðu til þess að fella neinn \ öruggan dóm um afkomu þess \ og stjórnarhætti eða viðhorf al- \ mennings. En það, sem ég sá í ; Austur-Þýzkalandi, er ég dvaldi ; þar í byrjun seinasta mánaðar, • styður að mínu áliti þann dóm • Gunthers, sem sagt er frá hér . á undan. Óneitanlega hefur ( mikil uppbygging átt sér stað '. í Austur-Þýzkalandi seinustu '. árin og ekki bendir neitt til ( þess að stöðvun verði á henni. • Það mun að vísu fara fjarri, ( að uppbyggingin hafi orðið ( eins mikil yfirleitt í Austur- ( Þýzkalandi og í ' Vestur-Þýzka- ( landi. Við því er ekki heldur ( hægt að búast. Austur-Þýzká- ' land er fátækara land en Vest- • ur-Þýzkaland. Fyrstu árin eftir • styrjöldina létu Rússar Austur- 1 Þjóðverja greiða miklar stríðs- ( skaðabætur eða að því er vest- ' ur-þýzka stjórnin telur um eða ( yfir 12.000 millj. dollara. ( Vestur-Þjóðverjar þurftu nær ' engar stríðsskaðabætur að '. greiða, en hafa þvert á móti ( fengið stórfellda efnahagsað- < stoð frá Bandaríkjunum Þetta t hefur vitanlega skapað mikinn / aðstöðumun. / Eftir Berlínaruppreisnina / 1953 hættu Rússar að heimta / stríðsskaðabætur af Austur- / Þjóðverjum, og síðan hafa / Austur-Þjóðverjar stöðugt rétt úr kúlnum. Það, sem þeir hafa áorkað, ber þýzkum dugnaði og skipulagsgáfum gott vitni, engu síður en það, sem hefur gerzt í Vestur-Þýzkalandi. Austur- Þýzkaland er í dag sjölta mesta iðnaðarríki Evrópu, næst á eftir Sovétríkjunum, Vestur- Þýzkalandi, Bretlandi, Frakk- landi og Ítalíu. Einkum hafa Auctur-Þjóðverjar byggt upp mikinn stóriðnað. Húsbygging- ar hafa verið miklar seinustu árin. Framleiðsla ýmissa neyzlu vara og þægindavara hefur helzt orðið hornreka, og á því sviði er munurinn vafalaust mestur milli Austur-Þýzkalánds og Vestur-Þýzkalands. Land- búnaðarframleiðslan hefur auk- izt verulega, en þó varla í sam ræmi við það, hve mikil vél- væðing hefur átt sér stað. Ligg ur það vafalaust i því, að bænd ur una enn ekki nógu vel sam- yrkjukerfinu, hvað sem síðar verður. Það er vafalaust rétt, sem Gunther segir, að lífskjörin hafa batnað verulega í Austur- Þýzkalandi seinustu árin. Fólk virðist hafa nógan mat og nóg af nauðsynlegasta fatnaði og neyzluvörum, þótt vöntun geti orðið á vissum vörutegundum tíma og tíma. Hins vegar er skortur á mörgum þægindavör- um. Opinber félagsleg aðstoð fer vaxandi, t. d. sjúkrahjálp, ellilaun, barnaheimili. Og flest bendir til, að efnahagsleg af- koma muni halda áfram að fara batnandi. HVAÐ er það þá, sem veldur hinum miklu fólksflutningum til Vestur-Þýzkalands, ef hið efnalega ástand er ekki lakara en þetta og fólk getur vænzt þess, að það fari batnandi? Vafalaust eru það margar og mismunandi ástæður, sem valda þessum fólksflutningum. En tvær ástæður álít ég þó veigamestar. Önnur er sú, að þótt margt miði vel áleiðis í Austur-Þýzkalandi, heizt enn bilið milli Austur-Þýzkalands og Vestur-Þýzkalands. Vestur- Þýzkaland er nú tvímælalaust mesta framfaraland Evrópu, því að Vestur-Þjóðverjar fylgja ekki neinum afturhaldskenning um um takmörkun á fjárfest- ingu og hæfilegt atvinnuleysi. Þeir fjárfestu á síðastliðnu ári 26% af þjóðartekjunum meðan Bretar fjárfestu aðeins 16%, og þeir hafa nú í landinu 600 þús. erlendra verkamanna (Austur- Þjóðverjar ekki meðtaldir) og skortir þó vinnuafl. Vestur- Þjóðverjar fylgja framleiðslu- stefnu, en ekki samdráttar- stefnu. Þessi mikla gróska í Vestur-Þýzkalandi dregur til sín fólk alls staðar að, og það er ekki undarlegt, þótt hún hafi lokkandi áhrif á Austur-Þjóð- verja. Þetta er áreiðanlega önn ur aðalástæðan, sem veldur fólksflutningunum Hin ástæð- an er sú. að menn vilja heldur búa við vestrænt skipulag en austrænt, ef þeir eiga kost á að velja á milli. Hið vestræna skipulag tryggir meira persónu legt frelsi, meira athafnarými. Þess vegna eru margir fúsir til að fórna miklu til þess að geta notið þess. ÞAÐ væri hins vegar rangt af mönnum vestantjalds að draga þá ályktun af fólksflutn- ingunum, að Austur-Þýzkaland sé að því komið að hrynja saman og allt sé þar í öng- þveiti og upplausn. Hitt er miklu nær sanni, að þrátt fyrir þetta, sé Austur-Þýzkaland að styrkjast í sessi. Valdhafar þess geta Lþeht á miklar verklegar framfarir og einnig ýmsar fé- lagslegar. Þeir hafa sterk tök á uppeldiskerfinu og gera mik- ið til þess að ná fylgi hinnar uppvaxandi æsku. Þeir gera og mikið fyrir hana. Það er lögð mikil áherzla á að ala upp þegna, sem séu dugandi og skylduræknir, taki . tillit til þarfa heildarinnar, og séu staðfastir í hinni sósíalistisku trú. Það eru dregnar upp glæsi legar myndir af þeim árangri, er muni nást' í framtíðinni. Þeir, sem sýna mesta forustu- hæfileika, eru látnir fá sérstök tækifæri til að njóta sín. Það er vafalaust, að þessi starfsemi ber verulegan árangur. Allt bendir þetta til, að Austur- Þýzkaland geti orðið sterkt ríki í framtíðinni, þrautskipulagt og náð langt í verklegum og fjár- hagslegum efnum, því að dugn að og hugvit skortir Þjóðverja ekki. Fyrir hinn vestræna heim væri það mikil skyssa, að van- meta það efnahagsskipulag, sem verið er að byggja upp þar og í öðrum kommúnistalöndum. Hinn vestræni heimur þarf að taka á öllu sínu til þess að halda vel hlut sínum í þeirri samkeppni, sem er framundan á efnahagssviðinu. Hann þarf að leggja kapp á meiri einingu og markvissa framfarastefnu, því að kreppu- og afturhaldsstefna verður ekki sigursæl í keppn- inni við kommúnismann. ÞAÐ mun vafalaust hafa mikil áhrif á framvinduna í Austur-Þýzkalandi, hvernig sambúð . A-Þjóðverja verður háttað við vestrænu þjóðirnar. Ég myndi telja það vænlegast, að reynt yrði að hafa þau sam- skipti sem mest. Það þarf ekki aðeins að reyna að halda Ber- línarhliðinu opnu, heldur opna fleiri hlið milli Austur- og Vestur-Þýzkalands. Það er óhyggilegt að láta þetta stranda á því að vesturveldin vilja ekki viðurkenna Austur-Þýzkaland. Austur-Þýzkaland er staðreynd, sem ekki verður sniðgengin. Það mun halda áfram að eflast, þótt vesturveldin viðurkienni það ekki, en einangrun þess frá vestrinu mun aðeins færa það lengra til austurs. Ef það feng ist fyrir viðurkenningu á Aust ur-Þýzkalandi, að Berlínahhlið- inu yrði haldið opnu og sam- skipti yrðu aukin milli Austur- Þýzkalands og Vestur-Þýzka- lands, þá ætti það að vera sízt minni hagur fyrir vestrið en austrið. Austur-Þjóðverjar eru enn vestrænir í anda og þeir geta orðið það áfram, ef tengsl- in við vestrið slitna ekki, og þeir einangrast ekki alveg frá því. Aukin samskipti milli Austur-Þýzkalands óg Vestur- Þýzkalands eru og vafalítið vænlegust leiðin til þess að Þýzkaland sameinist með tíð og tíma, — og sennilega eina leiðin til þess, án styrjaldar. Þ. Þ. / '/ / ) / ) / / ) '/ / '/ '/ '/ '/ '/ / / / '/ '/ '/ '/ '/ / '/ '/ / / '/ / '/ '/ '/ / / '/ / '/ '/ '/ '/ ’/ '/ '/ '/ '/ '/ / '/ / ) '/ ’/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ / '/ '/ '/ '/ '( '/ / '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ '/ ( ) ) '/ ) ) )

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.