Tíminn - 11.08.1961, Qupperneq 16
Föstudaginn 11. ágúst 1961.
180. blað.
Kafna í rúmbeizli
Danskir læknar hafa á undan-
förnum árum reynt ag grafast
fyrir um orsakir þess, að svo mörg
ungbörn þar í landi deyja vegna
köfnunar. Það hefur nefnilega
komið í ljós, að um 90% barna
innan eins árs aldurs, sem látizt
hafa vegna slysa, verða köfnun
að bráð.
Algengt er, að börn séu bundin
niður í rúm sín með barnabeizl-
um, sem fest eru við rúmið. Kom-
ið hefur í ljós, að þessi notkun
barnabeizla er stórhættuleg. Er
reiknað með, 'að árlega verði þau
einu ungbarni að bana, — barnið
hengist bókstaflega í beizlinu. Á
tveggja ára tímabili hafa þrjú
börn kyrkzt í beizlum, sem hingað
til hafa verið álitin algerlega
hættulaus. Algengt er einnig, að
börn hengist í hálsböndum, snúr-
um og beltum, sem þeim hafa
verið fengin til þess að leika sér
að, eða vegna þess, að gardínu-
gormár eða eitthvað álíka hefur
verið innan seilingar.
Mörg börn hafa kafnað í plast-
pokum, sem þau haía verið að
leika sér að. í Kanada köfnuðu
eitt sinn sextán börn á einum
mánuði í plastpokum, sem þau
höfðu að leikfangi. Má af því
marka, hve hættuleg slík leik-
föng eru smábörnum.
Læknar, sem unnið hafa að
rannsóknum á slysum, er ungbörn
verða fyrir, ráðleggja foreldrum
fremur há barnarúm, sem börnin
geta ekki fallið úr, heldur en nota
barnabeizli til þess að halda barn
inu í rúminu, en slík beizli munu
vera mjög algeng í Danmörku.
Á íslandi mun það vera óal-
gengt, að barnabeizli séu notuð til
þess ag halda ungbörnum í rúm-
inu, en full ástæða er til þess að
vara fólk við þvi, að fá ungbörn-
um það í hendur, sem getur orðið
þeim ag fjörtjóni. Sumir hlutir,
eins og perlufestar, borðar og
fleira, virðast í fl.jótu bragði hættu
lausir, en í höndum ungbarna geta
þeir orðið afdrifaríkir.
NÝHÖFNIN
Nornaketill Kaupmannahafnar
Úrskurðtir
KveðLnn hefur verið upp úr-
skurður i deilu Sementsverksmiðj
unnar og Verkfræðingafélagsins
um verkfallsrétt yfirverkfræðinga.
Samkvæmt úrskurðinum mega
yfirverkfræðingar fara í verkfall.
Stórverömæt-
m stolið
í fyrrinótt var brotizt inn í verzl
uni.na Straumnes á Nesvegi og
stolið þar 500 pökkum af vindl-
ingum, Camel og Chesterfield.
Sömu nótt var stolið öllum hjól
um undan bíl, sem stóð við verk-
stæðið í Höfðatúni 2, og lá hann
á bremsuskálunum, þegar að var
komið.
Danir æðri en
GrænSencSingar
Kaupinannahöfn, 10. ágúst.
Landsráð Grænlands heldur
um þessar mundir árlegt þing
sitt í Góðvon.
Alvarlegasta málið á dagskrá
örg börn kafna í rúmum sínum á næturnar, en á daginn er hættan minni,
haft er auga með börnunum. !■
fundarins er vandamál, sem Íieíur
orðið til við hina geysilega hröðu
tækniþróun í Grænlandi nútím-
ans. Hún hefur haft þær sorglegu
afleiðingar, að Grænlendingar eru
stöðugt að verða að greinilegri
undirstétt í sínu eigin landi, um
leið og stöðugt fleiri Danir leggja
undir sig helztu stöður og forustu
hlutverk.
Fjöldi Dana á Grænlandi hefur
síðastliðin 10 ár vaxið úr 250 í
1000 manns, fyrir utan iðnaðar-
menn á faraldsfæti. Áður fyrr var
meirihluti manna í góðum stöðum,
Grænlendingar. Nú eru Grænlend
ingar aðeins í um þag bil fjórð-
ungi þessara staða.
í skýrslu landráðsins segir, að
stéttaskiptingin milli Grænlend-
inga og Dana á Grænlandi verði
dýpri með hverju árinu.
Aðils.
Skemmtiferö-
in í Borgar-
fjörðinn
f gær var mikið spurt eftir
skemmtifcrð framsóknarmanna
n.k. sunnudag, og einnig mörg
sæti pöntuð. Farið verður stund
víslega kl. 9 að morgni frá
Framsóknarhúsinu. Áríðandi
er að þátttakendur panti far-
miða sem allra fyrst í síma
15564 eða 12942 og sæki þá í
Framsóknarhúsið fyrir kl. 7
í kvöld.
Það er áríðandi til, þess að
vita hve margar bifreiðir þarf
í ferðina o. fl. varðandi undir
búning.
Verið með á flesta helztu
staði Borgarfjarðar í ódýrri
ferð — og vafalaust skemmti
legri og fræðandi ferð.
Ferðanefndin.
Sumar borgir hafa sinn sérstaka
ilm. Þegar við minmimst þeirra,
gerum við það með nefinu. Löngu
eftir að /allt, sem við sáum og
heyrðum í París, er horfið í tím-
ans þoku, munum við eftir lykt-
inni af neðanjarðarjárnbrautinni,
frönsku sígarettunum og pelsunum
frá Patou, Rochas og Dior. Sömu
pelsarnir og sömu ilmvötnin hafa
ekki sama ilm alls staðar..
Af Kairo er líka sérstakur ilm-
ur. Heita eyðimerkurlyktin á Soli-
man Pasha, lyktin af steiktum mat
arolíum, lyktin af gangstéttunum.
Lagos lyktar eins og stórt frum-
skógaaldin, sem farið er að
skemmast og London hefur sína
óskilgreinanlegu dagblaðalykt.
Ilmlaus
En Kaupmannahöfn, við finn-
um ekki ilm Kaupmannahafnar.
Að sjálfsögðu er lykt í Kaup-
mannahöfn, bakaríslykt, fjóluilm-
ur, lyktin af norðanloftinu. En
þetta er ekkert éinkennandi fyrir
staðinn.
i Við skulum fara eitt hráslaga-
legt kvöld í Nýhöfnina — og þar
kom það allt í einu — þurrailmur
baranna. Áfengi, sviti, hárolía sjó-
aranna, sem dansa — og ilmur
hafsins. Nornaketill með súpu ó-
j samrýmanlegra hluta. Fyrstu á-
i hrif Nýhafnar.
I Stórfurðulegt er, að geta þannig
beygt fyrir horn á hinu virðulega
og glæsilega Kóngsins Nýjatorgi
1 og detta beint í ruddalegan undra
heim veitingastofa og krambúða.
-Gatan liggur meðfram bryggjunni,
þar sem fiskibátarnir eru, mávarn-
ir og brattir stafnar húsanna. Það
gj: póstkortasvipur á öllu.
Neon
j Á daginn er hér furðulega frið-
| samlegt, þótt sjá megi ölteita
menn klukkan hálftíu á morgnana,
j þegar tattoveringarbúðirnir rúlla
;upp gluggatjöld sín. Á kvöldin er
j aftur á móti allt sindrandi í neon-
Ijósadýrð. Sömu- veitingakrárnar,
! ósýnilegar á daginn, verða eins
og litskrúðugir hellar úr teikni-
kvikmyndum, og þeir bera lokk-
andi nöfn, Hong Kong, Texas,
Safari.
Hnífur í bakið?
Nýhöfn er sögð hættuleg, en
þrátt fyrir mikla leit, tókst mér
ekki að finna einn einasta hnífa-
slag eða eitt lemstrað lík. Þvert
á móti, afbrotafjöldinn er lágur.
Skýrslur sanna, að hér hafa ár-
um saman ekki gerzt nein æsileg
morð, frekar lítið er um ofbeldis-
verk og áreiðanlega færri þjófn-
aðir en í ýmsum öðrum hlutum
bæjarins. Að sjálfsögðu má sjóar-
inn (og Nýhöfn er enn fyrst og
fremst heimili sjóarans), sem er
nógu heimskur að veifa fé sínu,
gera ráð fyrir að losna við það.
áður en nóttin er úti. Samkvæmt
lögregluskýrslum gerast slíkir
þjófnaðir hér um bil 10—15 sinn-
um á mánuði.
Músíkrokur heyrast, þegar hurð-
ir opnast og skella aftur — allt
frá væmnu píanóspili yfir í óðan
jazzsextett. Andrúmsloftið er
blandið hæsi, en það er líka góð-
látlegt
og allir taka undir
dönsku söngvana.
Ekki upplituð
Túristar eru ekkert sérstaklega
'Kramnaio a ls stfim
og þokusúld með köflum,
seglr veðurstofan, en hún
lofar samt næstum 12 st.
hlta.