Tíminn - 04.11.1961, Side 13

Tíminn - 04.11.1961, Side 13
TIM I N N , laugardaginn 4. nóvember 1961 Úskadraumurinn rættist Það hefur alla tíð verið óska- draumur íhaldsins að afnema eða koma í veg fyrir samningsrétt verkamanna og alþýðustéttanna um kaup sitt og kjör. Alls stað- ar, þar sem verkalýðsfélög hafa verið stofnuð í þeim tilgangi að tryggaj hag verkamanna og semja við atvinnur'ekendur um kaup og kjör, hafa þeir íhalds- menn, sem einhvers hafa mátt sín, ætlað af göflum að ganga yfir þeirri „ósvífni“ verkamanna, sem þeir hafa kallað það. — í öllum byggðarlögum eru til hóp- ar manna, sem geta borið vitni um, að þetta er satt, þó að sums staðar sé farið að fyrnast yfir þessi mál. Fram til þessa hefur íhaldinu ekki tekizt að hnekkja þessum rétti verkafólks og svo var mál- um komið, að íhaldsmenn þorðu ekki að láta mikið á þessu bera. í þess stað gripu þeir til falskr- ar verkalýðshyggju til að fela úlfshárin. Þar af var sprottin sú verkalýðspólitík, sem íhaldið rak (og rekur enn), og náði hámarki sínu árið 1958. — Nú hefur þessi óskadraumur íhaldsins rætzt. — Meðf stuðningi við „toppkrata" hefur sú íhaldsstjórn, sem nú situr að völdum, gert þennan samningsrétt verkamanna að engu. Með því skipulagi, sem þeir hafa nú komið á með síð- ustu gengisfellingarlögum sín- um, er það orðið algerlega til- gangslaust fyrir verkamenn, að ætla sér að bæta kjör sín með samningum um hærri laun. Valdið til að gera þær kjarabæt- ur áís'engú er í höndum íhalds- ins og skósveina þess. Því valdi hefur þegar verið beitt á eftir- minnilegan hátt, og því verður miskunnarlaust beitt, meðan þessi valdaklíka fer með völdin og ræður þessum málum. — Hér hefur verið farið að rúss- neskri og nazistískri einræðisfyr- irmynd þar sem stjómarvöldin raunverulega ákveða kaup og kjör verkafólks að eigin vild. — Hinn gamli óskadraumur íhalds- ins hefur rætzt, — því valdi, er þeir hafa náð til þess að hagnýta þessa gaddasvipu á allan almenn ing, verður ekki sleppt fyrr en í fulla hnefana. Þetta em menn, í sem hafa „kjark og þor!“ enda j guma þeir allra mest af þeim I eiginleikum sínum. i Sá eini möguleiki, sem þær ] stéttir hafa, er svo‘hafa verið í leiknar, til að slíta af sér það helsi, sem á þær hefur verið lagt, er að þær noti manndóm sinn til þess að gjalda þessum herrum „rauðan belg fyrir gráan“, þegar næst verður gengið að kjörborð- inu. Það er þeirra eina og sterk- asta vörn, úr því sem komið er, gegn þessum þrældómsfjötrum, sem þær hafa verið færðar í af íhaldinu og taglhnýtingum þess, toppkrötunum. Þegar að þeim uppgjörsdegi kemur, ættu verkamenn að vera minnugir þess, hverjir það voru, sem stóðu næstir í réttlátum kröf um þeirra á s.l. sumri. Á þann hátt einan geta þeir tryggt rétt sinn og stéttaröryggi. Ljái þeir íbaldinu fylgi sitt og fylgifiskum þess, mun það ekki telja þörf á að vanda kvftðjurnar eftirleiðis fremur en áður. Sú bið, þar til kjördagur rennur upp, verður að vísu mörgum löng og erfið, en þó ekki óbærileg, þegar vonin um sigur er framundan. Þið verka- menn, sem finnið hrís íhaldsins á baki ykkar, notið þann tíma til að festa hug ykkar og heit. Þá er sigurinn ykkar og þið heimtið rétt ykkar að nýju. G. P. V. FMttameim i'ramnald ai o síðu. sovéthernumda svæði í A-Þýzka- landi. Síðan árið 1946 hafa engar frjálsar kosrdngar farið fram, þ. e. a. s. kosningarnar fjórða hvert ár eru aðeins sviðsettar af flokknum til málamynda. Fólk fær ekki tækifæri til að sýna hug sinn og néi-atkvæðin eru ekki tekim til greina, en eru jafnvel talin já- atkvæði. Frjálst orð um stjómmál austan tjáids er óþekkt. Minnsta mótbára getur haft í för með sér tukthús. Efnahagsástandið í A.- Þýzkalandi varð íbúunum til hinna' mestu vonbrigða. Það var jafnan verið að birta áætlánir um, hvern-1 ig bæta ætti afkomu fólks. Og full I yrt hafði verið, að 1961 myndu' A.-Þjóðverjar búa við sömu lífs- kjör og V-Þjóðverjar. Þó féngust ekki kartöflúr, og smjörið var t.d. ákaflega naumt skammtað. Sama var að segja um ávexti og önnur matvæli, og árið 1961 nálgaðist ástandið hungursneyð. Til þess að Jeyna þeim mismun, sem er á efnahag A. og V.-Þjóðverja, voru lagðar sérstakar hömlur á sam- göngur, nema sérstaklega stæði á, t. d. ef einhverjir þurftu að sækja alþjóðlegar vísindaráðstefnur eða eitthvað slíkt. Erfitt var að fá leyfi til að vera við útför nákom- inna ættingja vestan markanna og alls ekki, nema einu sinni á ári. Það varð erfiðara og erfiðara að fá að fylgjast með bókmenntum og strangar hömlur voru lagðar á, að fólk gæti lesið bækur vest- rænna höfunda. Ef ekki var ákveð- inn fjöldi kommúnistískra leikrita á verkefnaskrá leikhúsanna, voru Málverkasýning Bjarni Guðmundsson frá Hornafirði opnar mál- verkasýningu í Bogasal Þjóðminjasafnsins laugar- daginn 4. nóv. kl. 18.00. Sýningin verður opin daglega næstu viku frá kl. 14.00—22.00. Nauðungaruppboð annað og síðasta, á Lindarbrekku við Breiðholts- veg, hér í bænum, talin eign Jóns Magnússonar, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 8. nóv- ember 1961, kl. 3,30 síðdegis. Borgarfógetinn í Reykiavík 13 þau tekin til bæna og skráin „leið- rétt“. Á ölíum sviðum teygði fiokk urinn fram krumlur sínar% og þyrfti einhver að leita eftir stöðu eða atvinnu, var trúnaður við flokk inn miklu þyngri á metunum en hæfileikar eða geta. Éitt var það, sem alveg sérstak- lega vakti gremju almennings í A.-Þýzkalandi, en það var hinn skefjalausi lifnaður flokksforingj- anna. Þeir búa í sérstökum hverf- um og hafa aðgang að ýmsum munaðar- og nauðsynjavörum, sem aðrir fá ekki. — Að öllu sam- anlögðu er þetta ástæðan til þess, að 15. ágúst s. 1. ákvað ég að flýja í bíl mínum með ferðatöskuna mína eina i farangursgeymslunni, en sem læknir hafði ég leyfi til að aka milli borgarhlutanna til 13. ágúst. Þá átti að taka af mér leyfið, en það dróst, svo að ég komst undan.“ KrafSisf frjálsra kosninga, — og flúði Kurt Wismarck kvaðst hafa verið verkamaður í stórri verk- smiðju í A.-Berlín til 14. ágúst s.l. — „Eg hafði eftir því sem ger- ist í A.-Þýzkalandi, fremur háar tekjur af atvinnu minni. Til 17. júní 1953 hafði ég ekkert á móti flokknum eða ástandinu í A.-Þýzka landi, en eftir það snerist ég til sívaxandi andstöðu. Flokkur sá, sem kenndi sig við verkamenn, neytti allra bragða til að rýra kjör verkamanna á allan hátt. Fyrst' var tekinn af okkur jólaglaðning- urinn, þar sem hann væri aðeins ölmusa. Því næst var trúnaðar þóknun eftir nokkurra ára vel unnið starf, — e. k. uppbót, lækk- uð úr 250 mörkum á mánuði nið- ur í 25 mörk. Þar við bættist, að jafnan var ætlazt til meiri og meiri afkasta af hverjum einstaklingi, þrátt fyrir fornfálegan vélakost. ;mmrs vár kúgunin og þrúgunm orðin svo mikil, að verkamenm höfðu ekki lengur neinn tíma af- lögu til ag sinna hugðarefnum sínum. Þeir gátu heldur ekki kom izt meitt áfram í fagi sínu, nema þeir veittu flokkmum stuðnimgs- yfiriýsingu. Ef verkamaður vildi verða meistari eða verkstjóri, var hann spurður, hvenær hanm hygð- ist ganga í baráttusveit flokksins O'g hvernig hann stæði sig gagn- vart homum. Alls staðar réð póli- tík. Það er þetta ástand, sem veld ur því, að milljómir verkamamna hafa flúið að austan og vestur yf- ir. — Áframhaldandi viðskipta- kreppa og fátækt, nærri hungur, bættist við. En allar ógnamirnar gátu ekki komið í veg fyrir, að verkamenn fréttu af þvi, að í V- Þýzkalamdi ríkti frelsi í samskipt um verkamanma og vinmuveitenda og þar var betri lífskjara að vænta. — Einn góðan veðurdag kom Ulbricht og talaði yfir okkur í verksmiðjumni. Gat ég þá ekki orða\ bundizt og krafðist frjálsra kosninga. Það var ástæðan til þess að ég varð að flýja, þegar færi gafst. Hér þykja það sennilega ekki merkileg tíðindi, ag krafizt sé frjálsra kosminga, en þar heitir það landráð. Það leið ekki nema dagur, þangað til ég var kafflaður fyrir flokksrág flokksins. í svo- kölluðum þriggja tíma viðræðum var reyot að fá mig til að lýsa því yfir í verksmiðjunni, þar sem ég vann, að kosnimgamar, sem ég krafðist, væru tóm vitleýsa. Að- eins með þessu skilyrði átti að taka til greina, að ég yrði send- ur til enduruppeldis í austur- þýzkri stormsveit og hækka laun mín um 300 mörk á mánuði. Etin fremur átti ég að lofa að vinna 500 stundir fyrir ekki neitt. Ef ég ekki vffldi gefa þessa yfirlýsimgu, yrði ég eins og fleiri landar mínir settur i tukthús fyrir fjandskapar áróður gegn lýðveldinu og undir- róðursstarfsemi fyrir útlömd. Þann ig eru menn kúgaðir til að þegja og afsala sér réttinum til ag segja það, sem þeim býr í brjósti. Næstu tvo daga voru mér gefnar nánar gætur, bæði á vinnustað og utan. Nýjar bækur frá Isafold Saga bóndans frá Hrauni EFTIR GUÐMUND L. FRIÐFINNSSON Endurminningar Jónasar Jónssonar bónda í Hrauni í Öxnadal speglast í skáldlegri meðferð Guðmundar á Egilsá. Þetta er ævisaga dugmikils íslenzks bónda sem brýzt frá örbirgð til nægta. Guðmundur á Egilsá hefur búið þessa ævisögu í nýstárlegan búning, þar sem meginþættinum í ævi Jónasar er haldið vel til haga. Er frá þeim sagt á þann hátt að líkast er því, sem um góða skáldsögu sé að ræða. Bókin er í stóru broti, 186 bls. með myndum. Sonur minn Siníjötli Skáldsaga eftir GuSmund Daníelsson. Þessi stórbrotna skáldsaga er nú komin til bók- sala um land allt. 260 bls. Verð kr. 220.— Skuggsjá Reykjavíkur eftir Árna Óla Bók Reykvíkinga. — Verð kr. 248.- 328 bls. með fjölda mynda. Næturgestir eftir Sigurð A. Magnússon Þessi fyrsta skáldsaga Sigurðar hefur vakið óskipta athygli. — 160 bls. — Verð kr. 160.— Börn eru bezta fólk eftir Stefán Jónsson Reykjavíkursaga fyrir börn og unglinga. GullæðiÖ eftir Jack London Spennandi skáldsaga, sem gerist í vestrinu, þegar gullæðið var í hámarki. íslenzk frímerki 1962 eftir Sigurð Þorsteinsson Verðlisti, með öllum breytingum, sem orðið hafa á frímerkjamarkaðnum undanfarið. Bókaverzlun Bsafoldar Þessu eftirliti var hætt, þegar far ið var að reisa múrvegginn 13. ágúst, því að eftir þag var talið, að ég gæti ekki sloppið. Kvöldið eftir flúði ég, ásamt konu minni. Okkur tókst að fiíina skurð, sem ekki var gætt sérstaklega vel, en var nærri mörkunum. Við gátum synt yfir skurðinn, en vörður einn tók eftir okkur. Þó hafði ég á tilfinningunni, að hann léti sem hanm sæi okkur ekki.“

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.