Tíminn - 22.11.1961, Blaðsíða 1
297. tbL — 45. árgangur.
Ungt tólk
við verknám
bls. 8—9.
Miðvikudagur 22. nóvember J961.
I
verkfall
Samningar tókust í fyrri-
nótt í deilunni um síldarverS-
ið og kemur því ekki til verk-
fallsins, sem boðað hafði verið
á sunnudaginn kemur.
Að samkomulaginu standa Far-
manna- og Fiskimannasambandið,
sjómannafélögin á svæðinu, útvegs
menn og síldarframleiðendur. —
Verð á sild til frystingar verður
1.70 krónur kílóið, á síld til söltun
ar 1.60 krónur kílóið og á sfld í
súr 1.20 krónur kílóið.
Engin síld
í þrjá daga
Enginn bátur hefur farið út til
síldveiða undanfarna þrjá daga
vegna veðurs. í gær var suðvest-
an rok og haugasjór á miðunum
og veðurspáin ekki góð. Vafasamt
er að bátarnir fari út í dag.
Skurðgrafa
milli Breiða-
fjarðareyja
Ljósmyndari Tímans tók þessa
mynd niðri við höfn í gærmorg-
un, þegar byrjað.var að skipa jóla-
trjánum upp úr Gullfossi. Skóg-
ræktin fékk mestan hluta jóla-
trjánna jneð þessari ferð Gullfoss,
en eitthvag kemur til viðbótar
með næstu ferð hans.
Jóíatrén koma nú eins og áður
frá Danmörku, en Danir eru
stærstu jólatrjáaframleiðendur í
Evrópu, en þeir rækta mjög barr-
tré til þessara hluta. Svipað magn
kemur hingað núna og í fyrra.
Jólatrjánum var ekið beint suð
ur í Fossvog, þar sem þau verða
geymd, unz sala hefst á þeim. Um
næstu helgi fara. fyrstu trén út
um landið með strandferðaskipun
og áætlunarbílum. Götusalan í
Reykjavík byrjar síðan 10. des-
ember.
Suður í
Fössvog
VélvætSingin nemur land í Breiðafjaríareyjum
Rúm tíu tonn af kísil-
leir send til Hollands
Þar á a<S gera tilraunir ineí beztu vinnsluatSferí 7 metra leirlag
í síðustu viku voru ca. tvö
tonn af kísilleir grafin upp úr
botni Mývatns og sett á tunn-
ur. Annar helmingurinn var
fluttur til Húsavíkur en hinn
til Reykjavíkur, og mun sá
hlutinn, sem fluttur var til
Húsavíkur, eiga aS fara til
Hollands, þar sem gerðar
verða tilraunir í sambandi við
hagkvæmustu vinnslu á kísil-
gúr.
Tíminn hafði i gær tal af Jakobi
Gíslasyni raforkumálastjóra, og
spui’ðist fyrir um gang þessara
mála. Sagði hann, að áður hefðu
verið send út mörg smá sýnishorn
af þessum kísilleir, bæði til Þýzka-
lands og Hollands, eri þetta væri
!fyrsta sýnishornið sem væri nógu
! stórt til þess að hægt væri að gera
j tilraunir með hagvæmastar vinnslu
| aðferðir.
j Sú fyrri of létt
Sýnishorn þetta var tekið undir
yfirumsjón Baldurs Líndal, efna-
verkfræðings, en Snæbjörn Péturs.
1 son í Reynihlíð var veikstjóri.
Grafa var fengin að láni nyrðra,
^ en reyndist of létt til þess að
spæna upp vatnsbotninþ. Þá var
jfengin önnur þyngri, svokölluð
! hjólgrafa, þ. e. skóflur á keðju,
sem róta upp því sem moka á.
Þegar sú vél var tilbúin, kom frost,
en þegar þiðnaði aftur var hafizt
handa. Síðan kom rok, sem stóð í
tvo daga, og lá gröftur þá niðri
á meðan. Síðan gekk verkið vel.
Kísilleirinn var aðallega tekinn
úr Helgavogi í Mývatni, en Helga-
vogur er milli Reykjahlíðar og
Voga. Leirlagið þar var um 7
metra þykkt, en einnig var eitt-
hvað tekið nær Reykjahlíð, og þar
var heldur þynnra leirlag. Dýpi á
þessum hluta vatnsins er óviða
meira en tveir metrar.
Sá hluti leirsins, sem til Hol-
lands fer, verður prófaður í hol-
lenzku rannsóknarstofnuninni
TNO, en það er hálfopinber rann-
sóknarstoínun, sem svarar nokk-
urn veginn til rannsóknarstofu
Háskólans hér, þótt ólíkt sé hún
stærri í sniðum. Hitt, sem flutt
var til Reykjavíkur, verður rann-
sakað hér og geymit á birgðum.
Það er Baldur Líndal efnaverk-
fræðingur, sem hér um tilraunir
hér heima.
Stykkishólmi, 21. nóv.
Eitt af því, sem valdið hefur
erfiðleikum í búskap á Breiða-
fjarðareyjum nú síðari árin,
er hve erfitt hefur verið að
vélvæða jarðræktina þar. Eyj-
arnar eru víða votlendar og
þurrkun þarf að fara fram áð-
ur en hægt er að breyta þeim
í tún.
Skurðgröfur og jarðýtur hafa
hingað ti'l farið fram hjá eyjun-
um, aðallega vegna þess, ag ekki
hefur verið hægt að flytja þær
vélar út í eyjar eða milli þeirra,
sökum skorts á heppilegu flutn-
ingatæki.
Minni og meðfærilegri
En þróunin heldur áfram, og
um þessar mundir er skurðgrafa
að hefja framræslu í Brokey.
Skurðgrafa þessi er tengd við Fer-
guson dráttarvél, og því minni og
auðveldari í flutningi en þær
skurðgröfur, sem aðallega hafa
verið notaðar hingað til. Vél þessi
t var flutt úr Reykjavík til Flat-
: eyjar í fyrra haust og hefur verið
1 unnitf með hen-ni í Svefneyjum og
Skáleyjum í sumar, og gefið góða
j raun.
Á sérstökum pramma
Fyrir hálfum mánuði var hún
svo flutt þvert yfir Breiðafjörð,
frá Skáleyjum að Brokey, á þar
til gerðum pramma, sem Aðal-
steinn Aðalsteinsson bátasmiður
í Hvallátrum hefur smíðað. Mótor-
bátur dró prammann og gekk flutn
ingurinn í alla staði vel, og tók
um sex klsL
5 bænda sameign
Vélasjóður á þessa skurðgröfu,
en bændurnir í Svefneyjum, Hval
látrum og Skáleyjum, 5 talsins,
eiga prammann, og getur hann
borið um 10 tonn, en vitaskuld
verður að sæta veðri um ferðir.
Ferð sú, sem tók þá 6 stundir
með skurðgröfuna á prammanum,
er venjulega farin á þremur og
hálfri stund á mótorbáti.
Eiga líka jarðýtu
Einnig hafa sömu aðilar fest
kaup á lítilli jarðýtu, sem þeir
hyggjast flytja á milli eyjanna á
sama hátt og skurðgröfuna.
KBG.
Ekkert
síldar-