Tíminn - 22.11.1961, Síða 12
T f MIN N, miSvikudaginn 22. nóvemher 1961.
RITSTJÓRI: HALLUR SÍMONARSON
Ármenningar komu KR-ingum nokkrum sinnum á óvart með því, að knettinum var kastað inn i vitateig KR
og var síðan sleginn í mark. Árni Samúelsson sýndl mesta lellcnl í þessu, og á myndinni sést hann slá knött-
Inn að marki KR, en Guðjón Ólafsson varðl að þessu sinnl. Hins vegar hafðl Árnl áður tvívegis skorað á þenn-
an hátt, sem íslenzkir handknattleiksmenn tóku upp eftir að þýzka llðið Hassloch var hér. Til vlnstri á mynd-
Inni er Reynir Ólafsson, KR. — Ljósmynd: Svelnn Þormóðsson.
Óvænt úrslit á Handknattleiksmótinu:
Ármann vann K.R.
— og er þa^ fyrsti tapleikur meistaraflokks
KR á mótinu, og fyrsti sigur Ármanns. —
Valur vann Víking, sem einnig tapa'ði sín-
um fyrsta leik
Það urðu heldur betur óvænt úrslit á Handknattleiksmeist-
aramótinu í fyrrakvöld. Þá fóru fram þrír leikir í meistara-
flokki karla og fyrst léku KR og Ármann. Búizt var við frekar
ójöfnum leik, þar sem KR var' í efsta sætinu í flokknum, en
lið Ármanns hafði ekki unnið leik, að vísu verið óheppið í
tveimur leikjum, sem aðeins töpuðust með eins marks mun
hvor. Og það merkilega skeði í þessum leik, að Ármann hafði
undirtökin nær allan leikinn og sigraði með 14—11, og voru
það mjög sanngjörn úrslit. Víkingur tapaði einnig fyrsta leik
sínum í meistaraflokki þetta kvöld gegn Val, sem vann með
14—11 og er það fyrsti sigurleikur Vals í flokknum. Víkingar
voru ekki beint heppnir, áttu um 8—10 stangarskot í leiknum.
í þriðia meistaraflokksleiknum sigraði Fram Þrótt með mikl-
um yfirburðum, 20 gegn 7. |
Ármann — KR 14—11
Lið Ármanns, sem skipað er
leiknum ieikmönnum, hefur vaxið
í hverjum leik á mótinu, en þó
mun fáum eða engum hafa dottið
í hug, að Armann hefði sigurmögu
leika gegn KR, sem áður hafði
unnið leiki sína með miklum yfir-
burðum í mótinu. Bœði liðin
stilltu upp sínum sterkustu liðum,
og ekki leið á löngu, þar til Karl
Jóhannsson fann glufu í Ármanns
vörninni og skoraði örugglega. En j
forusta KR stóð aðeins augnablik j
og áður en KR-ingar höfðu snúið
sér við. var Ármann búinn að
iafna og ná marki yfir Hans skor-
aði fyrra markið en Árni hið síð-
ara. Herbert jafnaði þó fyrir KR,
en Hörður' skoraði fyrir Ármann.
Karl tók nú góðan sprett og skor-,
aði tvö ágæt mörk', og KR komst I
Staðan í
mfl. karla
Staðan i meistaraflokki í
handknattleiksmótinu er nú
þannig eftir Ieikina í fyrra-
kvöld:
Fram 3 3 0 0 52—25 6
ÍR 3 2 1 0 39—33 5
KR 3 2 0 1 45—28 4
Víkmgur 3 2 0 1 39—34 4
Vnlur 4 1 1 2 42—51 3
Ármann 4 1 0 3 44—54 2
Þrpttur 4 0 0 4 34—70 0
yfir 4—3, en það var líka í síðasta
skipti í leiknum. Ármenningar
lékú mjög vel fram að hléi og skor
uðu fjögur mörk, án þess KR svar
aði. Hörður skoraði tvö, Árni og
Gunnar eitt hvor.
Þó að Ármann hefði þrjú mörk
yfir í hálfleik, voru þó fáir, sem
bjuggust við sigri liðsins, og svo
virtist sem KR ætlaði að hrista
af sér slenið strax I byrjun síðari
hálfleiks. Eftir örfáar mínútur
hafði KR jafnað þennan mun.
Reynir skoraði fyrsta markið úr
vítakasti, og síðan bætti Karl
tveimur mörkum við. En KR-ing-
ar gættu sín ekki vel í vörninni í
ákafanum að ná forustunni, og
Stefán Gunnarsson fékk knöttinn
og KR-vörnin illa staðsett. Hann
kastaði þegar á markið, og knött-
urinn lenti í markhominu. Strax
á eftir jafnaði Pétur fyrir KR, en
Ingvar náði aftur forustu fyrir Ár-
Greaves til
Tottenham
Italska liði.ð Milan seldi Jimmy
Greaves til Tottenham á laugar-
daginn. Söluupphæðin var ekki
gefin upp Chelsea seldi Greaves
tij Milan í sumar fyrir 80 þúsund
pund, en talið er, að hann hafi nú
kostað Tottenham 100 þúsund
nund Ohelsea hafði nokkrum dög-
um áður boðið 95 þúsund pund
i Greaves. og var mikið stríð milli
þessara Lundúnaliða um Greaves
Tottenham hafði áður boðið 90
þúsund pund, en hækkaði boðið
stöðugt þar til Chelsea gafst upp.
mann. Enn skoraði Karl, en síðan
náði Ármann sínum bezta leik-
kafla.
KR-ingar fengu ekkert ráðið
við hinn leikandi létta handknatt
leik Ármanns, og með stuttu milli
bili skoraði Árni þrjú ágæt mörk,
hið síðasta úr víti, og þegar Hörð
ur bætti tveimur við rétt á eftir,
var greinUegt, að leikurinn var
tapaður fyrir KR. Að vísu lagaði
Karl aðeins markatöluna með því
að skora síðasta markið í leikn-
um, en sigur Ármanns var örugg
ur 14—11. Ármannsliðið er i mik
illi framför, og margir skemmti-
legir Ieikmenn eru í liðinu, þótt
beztir séu Árni og Hörður. Gunn-
ar markvörður Haraldsson stóð
sig með ágætum í þessum leik.
Hinn kunni handknattleiksmaður
úr Hafnarfirði, Ragnar Jónsson,
hefur þjálfað Ármenninga að
undanförnu, og má eflaust þakka
honum mikið þennan árangur
Iiðsins. Það eina, sem skyggir á
hjá Ármanni er, að margir leik-
menn liðsins eru einnig í körfu-
knattleik og er hætt við að þeir
þurfi að velja á milli íþróttanna.
KR-liðið var afar ósamstillt í
þessum leik, og nokkrir menn eins
og Reynir og Heinz algerlega mið-
ur sfn í leiknum. Karl var lang-j
beztur og Guðjón átti einnig góðan
leik í marki. Ef það er rétt, sem
sagt er, að Karl muni ekki leika
með KR eftir áramótin, má búast
við, að KR geti komið til ipeð að
verða í mikilli fallhættu á Islands-
mótinu.
Mörk Ármanns skoruðu Árni og
Hörður fimm hvor, Hans, Stefán,
Gunnar og Ingvar eitt hver. Fyrir
KR skoruðu Karl 7, Reynir 2, Pét-
ur og Herbert eitt hvor.
Valur — Víkingur 14—11
Valsmenn léku oft betur en
Víkingar úti á vellinum, og höfðu
auk þess mun betri markmann,
en samt sem áður var Víkingur
mjög óheppinn í þessum Ieik,
því þeir áttu mun harðari skot-
menn. Átta eða tíu sinnum small
knötturinn í markslá Valsmarks-
ins, móti örfáum stangarskotum
Valsmanna, og að minnsta kosti
þrjú af mörkum Vals fóru af
varnarmönnum Víkings í eigið
mark. En það eru mörkin, sem
telja og Valur sigraði með 14—
11, og er það fyrsti sigur Vals í
þessum flokki á mótinu.
Fyrri hálfleikur var yfirleitt
mjög jafn, en Valur hafði þó alltaf
frumkvæðið. Bergur skoraði fyrsta
markið í leiknum, en Pétur jafn- j
aði strax fyrir Viking. Þegar um1
sjö mín. voru liðnar hafði Valur
tvö mörk yfir 4—2, og þegar 10
voru af leik var staðan 6—3 fyrir
Val. Víkingar sigu á síðari hluta
hálfleiksins og í hálfleik var stað-
an 9—8 fyrir Val.
Valsmenn lögðu mikið kapp á að
gæta Jóhanns Gíslasonar, sem
skoraði nær öll mörk Víkings gegn
Ármanni, og tókst það vonum
framar, en hins vegar opnaði það
öðrum leikmönnum Víkings leið
að marki Vals, og nýtti Rómund-
ur það vel, en hann skoraði fimm
af mörkum Víkings í leiknum.
Valsmenn skoruðu þrjú fyrstu
mörkin í síðari hálfleik og var sig-
ur þeirra þá nokkuð öruggur. Vík-
ingar minnkuðu að vísu muninn,
en ekki var þó um mikla spennu
að ræða í ieiknum. Valsmenn léku
nú sinn bezta leik í mótinu og
markvörðurinn Egill sýndi góð til-
þrif í marki, varði m. a. tvö víta-
köst. Gylfi er að verða beztur
framherjanna, og Geir er alltaf
hættulegur Víkingur hefur þétta
vörn. og flestir leikmenn liðsins
eru harðir skotmenn. Markvörður
liðsins brást illa í þessum leik. og
þar var mesti munurinn á liðun-
um. sem annars eru mjög svipuð
að styrkleika.
Evrópubik-
arkeppnin
Dregið hefur verið um það
hvaða lig leika saman í næstu
umferð Evrópubikarkeppninnar í
knattspymu og varð niðurstaðan
þessi1: Btandard Liege (BeJgiu)
gegn Glasgow Rangers (Skot-
landi) eða Vorwaerts (Austur-
Þýzkalandi). Rangers sigraði f
fyrri leik liðanna meg 2—1 í
Berlín. Síðari leikurinn verður í
Málmey í Svíþjóð ,þar sem Þjóð-
verjamir fá ekki vegabréfsáritun
til Skotlands; Juventus (ítalíu)
gegn Real Madrid (Spáni). Bæði
liðin hafá þegar unnið mótherja
sína, Juventus júgóslavneskt lið
með yfirburðum og Real Madrid
Óðinsvéaliðið B-1913 með 3—0 og
9—0.
Numberg (Vestur-Þýzkalandi)
eða Fenerbace (Tyrklandi) gegn
Benefica (Portúgal), sem er nú-
verandi bikarhafi.
Dukla (Tékkóslóvakíu) eða Ser
vette (Sviss) gegn Tottenham
Hotspurs (Englandi). Servette
vann Dukla í fyrri leik liðanna
með 4—3, en síðari leikurinn verð
ur í Prag í dag. Dukla sigraði á
sumarmótinu í New York í sumar
með glæsibrag og er talið mun
líklegra til að mæta ensku meist-
umnum í næstu umferð.
Mörk Vals skoruðu Sigurður 4,
Geir 3, Árni, Bergur og Gylfi 2
hver, og Örn eitt. Rómundur skor-
aði fimm af mörkum Víkings, Pét-
ur 3, og Björn, Siguróli og Jóhann
eitt hver.
Fram — Þrótfur 20—7
Síðasti Ieikur þetta kvöld var
milli Fram og Þróttar og var um
einstefnuakstur að ræða nær allan
leikinn. Fram sigraði með 20—7,
eftir 7—4 í hálfleik. Framliðið
sýndi ágætan handknattleik, og
liðið hefur á að skipa mörgum
stórhættulegum skotmönnum. Hins
vegar er linuspil liðsins ekki eins
gott og í vor.
Handknattleikur Þróttar liðsins
er mjög tilgangslaus, mest gagns-
lausar þversendingar fyrir framan
vörnina, línuspil lítið sem ekkert
og varnarleikurinn mjög opinn.
Framarar komust hvað eftir ann-
að inn í þversendingamar og var
þá leiðin opin að marki Þróttar.
Mörk Fram í þessum leik skor-
uðu Ingólfur 7, Guðjón 6. Hilmar 3
Sigurður Einarsson 2, og Ágúst og
Jón eitt hvor. Fyrir Þrótt skoruðu
Gunnar Guðmundsson 3, Hörður
2 og Axel og Þórður eitt hvor.
Fyrsti leikur kvöldsins var í 3.
flokki karla A, og vann Valur
Þrótt með 10—5.
Handknattleiksmótið heldur á-
fram um næstu helgi. Á laugardag
fara fram 16 leikir, og verður þá
bæði leikið að Hálogalandi og
Valsheimilinu. Á sunnudag verða
fjórir leikir í Hálogalandi. þrír af
þeim í meistaraflokki karla.
ciöibrevH úrval.
PActcpnrlum
AXFl FYJðLFSSON
Skiphulti 7 Simi 10117.