Tíminn - 07.12.1961, Qupperneq 3

Tíminn - 07.12.1961, Qupperneq 3
3 .gjtmntudaginn 7. desembcr 1961. Guðmundur Ferró hefur verið að sýna málverk í Feneyjum. Hann sendi okkur sýningarskrána, og þar lásum við, að Guðmundur byggði myndir sínar aðallega á innviðum mannslíkamans. Sýningln hófst 7, nóvember og lauk 17. nóvember. Sýnlngarstaðurinn heitir Galleria del Cavallina. Myndln er úr sýn- ingarskránni. Trén fuku með rótum NTB—London, 6. desember. Geysilegt óveður skall á í morgun á mestum hluta Norð- ursjávar og Eystrasalts og hef- ur víða orðið talsvert tjón af. Þriggja þýzkra báta er saknað í óveðrinif. Einn þeirra er hafnsögu- bátur. Öðrum hvolfdi í mynni ár- innar Elbu, milli Hamborgar og Cuxhaven. Veðurhæðin var svo mikil á þessum svæðum, að tré brotnuðu eða rifnuðu upp með rótum bæði á vesturströnd Jótlands og í Finn- landi, þar sem í dag er.haldinn há- tíðlegur þjóðhátíðardagur. 28 metrar á sekúndu Óveðrið náði yfir mikinn hluta Svíþjóðar. í Stokkhólmi voru um monguninn þrumur og eldingar SÞ-loftárásir á Katanga NTB—Elisabethville, 6. desember Herlið Sameinuðu þjóðanna náði í dag algerum yfirráðum í lofti í Katanga og var því svarað með algerri stríðsyfir- lýsingu af hálfu Katanga- stjórnar. Barizt var í Elisa- bethville í dag og veitti hvor- ugum betur. Miklir liðs- og birgðaflutningar standa núyfir hjá herliði Sameinuðu þjóð- anna. 1 morgun gerðu sænskar og ind verskar orrustuþotur loftárásir á hernaðarlega mikilvæga staði í Katanga og náðu góðum árangri. Er þetta í fyrsta sinn, sem her- lið Sameinuðu þjóðanna beitir loft árásnm í Kongó. Eyðilögðu flugvöllinn Þoturnar sprengdu í loft upp brýr í nágrenni. Jadotville og einn ig járnbrautarsteina, sem liggja að' borginni frá Elisabethville. Þær réðust einnig á flugvöllinm í Kol- wezi og gerðu hann ónothæfan. Þar eyðilögðust þrjár flutninga^ vélar Katangahersins og ein orr- ustuþota. Benzíngeymir sprakk í loft upp og flugturninn stór- skemmdist af skothríð. Flugvélar Bretar vísa ákæru á bug NTB—London, 6. desember. Utanríkisráðherra Bret- lands, Home lávarður, vísaði í dag gagnrýni írska hershöfð- ingjans Mackeown á bug. Mackeown er yfirmaður her- afla Sameinuðu þjóðanna í Kongó og hafði hann tekið undir árásir fyrirrennara síns O'Brien á hendur brezku stjórninni um, að hún styddi mótþróa Katangastjórnar gegn Sameinuðu þjóðunum. Brezka utanrikisráðuneytið til- kynnti í dag, að brezka ríkisstjórn- in hefði 12. aþríl síðast liðinn skip- að öllum brezkum ríkisborgurum, sem voru á mála í Kongóherjum, að koma heim. Einnig hefði stjórn- in gert allt, sem í hennar valdi stóð, til að koma í veg fyrir að brezkir borgarar gengu á mála í Kongó. O’Brien hafði lýst því yfir á mánudaginn, að MacMillan for- sætisráðherra, Salisbury lávarður og Landsdowne lávarður hefðu unnið gegn starfsemi Sameinuðu þjóðanna i Katanga til þess að gæta brezkra hagsmuna í sambandi við belgisku námurnar þar. Þeir hefðu notið eindregins stuðnings sir Roy Welensky forsætisráðherra Rhodesíu og Beaverbrook lávarðar og blaðakóngs, sem hefði komið af stað hatursáróðri gegn sér per- sónulega. Brezkir hagsmunir O’Brien sagði, að brezka konsúl- atið í Elisabethvi'lle hefði falið Tsjombe þar 13. september síðast liðinn, þegar Sameinuðu þjóðirnar hófu hernaðaraðgerðir þar. Hann kvað Rhodesíustjórn vera ábyrga fyrir lífi Ilammarskjölds. O’Brien sagði, að hermenn Sam- einuðu þjóðanna í Kongó legðu líf sitt í hættu fyrir hugsjón, sem sé að engu orðin vegna andróðursins gegn aðgerðunum þar. Þingmenn Verkamannaflokksins reyndu á þriðjudaginn að koma af stað umræðu um Kongóstefnu stjórnarinnar, en því var hafnað. Tsjombe Katangaforseti hefur lýst O’Brien glæpamann, sem hafi fjölda mannslífa á samvizkunni auk annarra hluta. Sameinuðu þjóðanna urðu ekki fyrir neinu áfaUi. Flugvöllur þessi var hmn eini sem Katangaher gat notað fyrir þotur, og er ónýting 'hans því mikið áfall fyrir herinn. Algeru stríSi lýst Katangastjórn svaraði þessari árás með því að lýsa yfir algéru stríði á hendur SÞ. Kimba utan- ríkisráðherra sagði um kvöldið, að Katangamenn myndu brenna jörðina á undanhaldinu, ef til þess kæmi. Tsjombe sagði f gær í Par- ís, að Bandaríkin vildu fórna Kat- anga til þess að friða Sovétríkin. Tsjombe var að leggja af stað á leið til Katanga, en hann hafði ekki fengið landgönguleyfi f Braz ílu, þar sem hann ætlaði að taka þátt í siðvæðingarþingi. Óljóst ástand í Bruxelles var í gær því haldið fram, að herlið SÞ í Elizabethville hefði orðið að gefa eftir aðalbæki stöðvar sínar og reynt að hreiðra um sig við flugvöllinn, en þær fréttir virðast_ ekki hafá við rök að styðjast. Ástandið er afar ó- ljóst í Elisabethville. Um sexleyt ið um kvöldið hættu útvarpssend ingar þaðan. Bardagar blossuðu. upp allan daginn í borginni milli herjanna. Telja sumir, að Katangamenn hafi náð á sitt vald aðalsamgönguæð- inni frá borginni, svo að menn S. Þ. eigi í erfiðleikum með að nálg ast flugvöllinn. Liðssöfnun við Kamina Það leit út fyrir, að stórir Kat- anga-h^rflokkar væru að safnast saman’ við Kamina í Vestur-Kat- anga, en þar hefur hejrlið S. Þ. talsvert lið, þar á meðal norska herdeild. Loftbrú Bandarískar herflutningavélar hafa opnað loftbrú milli Leopold- ville og Elisabethville til að flytja aukinn liðsafla og birgðir til her- liðsins í Elisabethville. Bandarík- in ætla að senda fleiri flutninga- vél’ar til Kongó til að flýta flutn- ingunum. Um kvöldið leit út fyrir, að her lið S.Þ. hefði haldið öllum víg- stöðvum sínum í Elisabethville. Auk bess var bent á. að loftárásir Samemuðu þjóðanna hafi slitið Elisabethvillíe úr sambandi við ná grennið og því geti Katangaher ekki fengið liðsauka þangað. Framrúðan brotin í fyrradag var ekið á bifreiðina R-6, þar sem hún stóð á bílastæð- inu fyrir ofan Ægisgarð. Bifreið- in er Ijóskremlituð, Studebaker, tveggja dyra. Hún var á stæðinu frá hádegi til klukkan átta um kvöldið. Þegar eigandinn kom að, var framrúðan brotin og vinstri hurðin skemmd. Eigandinn telur víst, að vörubifreið hafi verið bakk að framan á hana. Rannsóknarlög- reglan óskar eftir vitnum og biður tjónvaldinn að gefa sig fram. samfara storminum. Jólaskreyting- ar í borginni eyðHögðust og víða urðu umferðakasir og árekstrar. Náði vindhraðinn 28 metrum á sek úndu. í Málmey fauk verksmiðju- þak um fimmtíu metra vegalengd. í Englandi fylgdi storminum talsverð snjókoma, sem hefur vald ið margháttuðum samgönguerfið- leikum á landi. Skipaferðir liggja að mestu niðri, bæði í Eystrasalti og í Norður'sjó vegna sjógangsins. Kringum jörð i byrjun 1962 NTB — New York, 6. desember. Bandaríkin munu senda mann í geimfari umhverfis jörðu í byrjun næsta árs. Geimfarinn verður John Glenn, en til vara Scott Carpenter. Bandaríkin munu ekki gera fleiri tilraunir af þessu tagi fyrr en geim farinn verður sendur. Undangengn ar tilraunir með mannlausar eld- flaugar og eldflaugar með öpum innanborðs hafa sýnt, að allt er tilbúið undir mannaða géimferð, segir í skýrslu geimferðaráðsins. 8% hækkun herútgjalda NTB—Moskva, 6. desember. Á fjárlögum Sovétríkjanna fyrir næsta ár er gert ráð fyrir, að út- gjöld til hernaðarþarfa hækki um átta af hundraði, frá því er Krúst- joff ákvað í ágúst. Er á þessum fjárlögum ætlað, að 13.000.000.000 rúblur fari til hernaðarþarfa. Tvær barnabækur Barnabókaútgáfan Máni sendir’ að þessu sinni tvær barnabækur' á jólamarkaðinn. „Einu sinni var . . . “, og „Segðu mér sögu“. Báðar þessar bækur hafa inni að halda sögur og ævintýri, sem Loftur Guð mundsson hefur þýtt og endursagt úr ensku, og báðar eru þær prýdd- ar mör'gum myndum við barna hæfi. „Einu sinni var . . . “, hefur inni að halda sjö ævintýr og sögur, en „Segðu mér sögu“, tólf tals- iná. Óþarft er að taka fram, að mál ið er vandað og frásögnin létt og skemmtileg og vel við barna hæfi, og er þess að vænta að bækur þess- ar verði mörgu barni kærkomin 1 jólagjöf.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.