Tíminn - 07.12.1961, Side 4
/
4
TÍMINN, fimmtudaginn 7. desember 1961
............................................................ I ' ' f
ULLA DAHLERUP:
ÆSKUÞRÁ
SÖGUHETJAN er ung og falleg stúlka, sem kynn-
ist því snemma, að fegurð cr eign, sem auðvelt er
að ávaxta og nota sér til framdráttar. En sú
reynsla færir henni litla hamingju. Kynni liennar
af ástinni fullnægja á engan hátt hamingjuþrá
hennar og vekja hjá hcnni efasemdir um, að til
sé nokkuð, sem heitið geti því nafni. Ástarþráin,
sem bærist í hverju ungu brjósti, er höfð að háði
og spotti, og viðkvæmt hjarta, sem vill ekki
sár, verður að brynja sig ...
Hún trúir ekki á ástina, hún er búin að lesa svo
mikið um hana í Iitprentuðum vikublöðum, að
hún lítur á hana sem lélegan skáldskap, sem ekki
sé til í veruleikanum En ástin er söm við sig,
og þegar hún ber að dyrum hjá henni, verður hún
ráðvillt og veit ekki hvort hpn á að
opna ...
[í5r.W‘ " iJÚ '*' .1 j
Áður útkomnar sögur eftir
Uiia Dahlerup
IB HENRIK CAVLING
CAVLING: KARLOTTA
KARLOTTA er undurfögur dönsk alþýðustúlka,
alin upp í smábæ, en missir ung foreldra sína og
fer til Kaupmannahafnar til að vinna fyrir sér.
Sem umkomulaus einstæðingur kynnist hún spill-
ingu stórborgarlífsins, og um skeið liggur við borð
að hún sökkvi þar til botns ...
Vellríkur, franskur/ aðalsmaður, í utanríkisþjón-
ustu Iands síns, hittir hana af tilviljun, verður
hrifinn af henni, og linnir ekki látum fyrr en
hann hefur gert hana að konu sinni. En þreng-
ingum hennar er ekki lokið þó að hún sé orðin
greifafrú. Heimsstyrjöldin skellur á og Damörk
er hemumin. Kailotta fer ekki varhluta af hörm-
ungum þess. Æskuvinkona hennar giftist þýzkum
aðalsmanni og þær lenda í andstæðum herbúð-
um ...
Sögusviðið er stórt: Danmörk, Frakkland og
Þýzkaland í ölduróti styrjaldar og hernáms, þar
sem hættur leynast í hverju spori. En þótt at-
burðir sögunnar séu merktir ógn og hörmungum
stríðsijis, er hún fyrst- og fremst heillandi ástar-
saga, saga um göfugmennsku og fórnfúsa ást, saga
um eigingirni og ástríður, saga um efagirni og
óráðið hjarta ...
RÆNINGJAR Á REIKISTJÚRNUM
Eftir Carey Rockwell.
ÞETTA ER NÝ SAGA um loftliðann Tómas
Corbett og vini hans Astro og Roger Manning og
hin furðulegustu ævintýri í allri geimferðasög-
unni. Þeir komast í kast við geimræningja, sem
ætla sér að stela dýrmætu málmgrýti á einni reiki-
stjömunni. Hér er ekki um að ræða baráttu við
bófa eins og hún gerist á jörðinni, enda aðstæður
harla ólíkar því, sem þar gerist. Tilraunir eru
gerðar til að stjórna reikistjömum og beina þeim
á nýjar brautir, og annað álíka nýstárlégt. Sagan
ér sþénnandi frá upphafi til énda og stendur ekki
að ^akj fýr'ri.sögn.Rockwélls um þá félaga: „Ferð-
búinn til Marz“.
Bókaúfgáfan HILDUR
ÞESSI 18 ÁRA, danska skáldkona, er ágætur full-
trúi og málsvari hinnar rótlausu en tápmiklu æsku
nútímans. Hún stendur sjálf mitt í ölduróti þeirra
tilfinninga og hugsana, sem bærast með æskunni í
dag, og henni hefur tekizt af sjaldgæfu innsæi að
færa þessar tilfinningar og hugsanir í búning
skáldsögunnar. Það var haft á orði í Danmörku,
eftir að bókin kom þar út nú í haust, að nú hefðu
Danir eignast sína FRANCOISE SAGAN.
Vafalaust birtir þessi saga hinnar ungu skáld-
konu mikið af lífsreynslu hennar sjálfrar. Um það
er vitni hið heita hjarta, sem slær að baki frásagn-
arinnar. Hún líður ekki fram sem lygn straumur,
heldur byltist fram með boðaföllum, sveiflast á
milli nöturlegs raunsæis og barnslegrar einlægni,
milli skerandi beiskju og himinhrópandi fagnaðar.
Þetta er ný rödd, sem sker sig úr, rödd, sem
stundum er skræk og hörð, stundum bljúg og
hrædd, en alltaf einlæg og þess virði, að á hana
sé hlustað.
SEGIR FRÁ ungum lækni, sem
sezt að í smábæ í Danmörku.
Greinir frá kynnum hans af
þrem stúlkum, sem verða ör-
lagavaldar í lífi hans, hver með
sínum hætti. — Spcnnandi og
hugnæm ástársaga.
Þetta sófasett fæst aðeins hjá okkur. Höfum fyrirliggjandi
svefnsófa, staka stóla og húsbóndastóla. Höfum nýja gerð
svefnbekkja.
Klæðum og gerum við húsgögn. Munið að 5 ára ábyrgðar-
skírteini fylgir húsgögnunum frá okkur. -1 Sendum gegn
póstkröfu um land allt.
Húsgagnaverzlun og Vinriustofa
Þcrsgötu 15 — (Baldursgötumegin) — Sími 12131.
GERIST ’ÖÐRUM ÞRÆÐI á
spítala. Aðalpersónur eru fjór-
ar, og eru örlög þeirra á flókinn
hátt samantvinnuð. Hcillandi
ástarsaga um sorg og gleði,
breyskleika og göfuginennsku.
FYRSl A BÓK Carey Rockwells
um loftliðann Tómas Corbett og
vini hans Astro og Roger
Manning. Spennandi og ævin-
týrarík bók fyrir stálpaða
drengi.
Þessar bækur fást
enn í flestum
bókabúðum.
i
I