Tíminn - 07.12.1961, Síða 4

Tíminn - 07.12.1961, Síða 4
/ 4 TÍMINN, fimmtudaginn 7. desember 1961 ............................................................ I ' ' f ULLA DAHLERUP: ÆSKUÞRÁ SÖGUHETJAN er ung og falleg stúlka, sem kynn- ist því snemma, að fegurð cr eign, sem auðvelt er að ávaxta og nota sér til framdráttar. En sú reynsla færir henni litla hamingju. Kynni liennar af ástinni fullnægja á engan hátt hamingjuþrá hennar og vekja hjá hcnni efasemdir um, að til sé nokkuð, sem heitið geti því nafni. Ástarþráin, sem bærist í hverju ungu brjósti, er höfð að háði og spotti, og viðkvæmt hjarta, sem vill ekki sár, verður að brynja sig ... Hún trúir ekki á ástina, hún er búin að lesa svo mikið um hana í Iitprentuðum vikublöðum, að hún lítur á hana sem lélegan skáldskap, sem ekki sé til í veruleikanum En ástin er söm við sig, og þegar hún ber að dyrum hjá henni, verður hún ráðvillt og veit ekki hvort hpn á að opna ... [í5r.W‘ " iJÚ '*' .1 j Áður útkomnar sögur eftir Uiia Dahlerup IB HENRIK CAVLING CAVLING: KARLOTTA KARLOTTA er undurfögur dönsk alþýðustúlka, alin upp í smábæ, en missir ung foreldra sína og fer til Kaupmannahafnar til að vinna fyrir sér. Sem umkomulaus einstæðingur kynnist hún spill- ingu stórborgarlífsins, og um skeið liggur við borð að hún sökkvi þar til botns ... Vellríkur, franskur/ aðalsmaður, í utanríkisþjón- ustu Iands síns, hittir hana af tilviljun, verður hrifinn af henni, og linnir ekki látum fyrr en hann hefur gert hana að konu sinni. En þreng- ingum hennar er ekki lokið þó að hún sé orðin greifafrú. Heimsstyrjöldin skellur á og Damörk er hemumin. Kailotta fer ekki varhluta af hörm- ungum þess. Æskuvinkona hennar giftist þýzkum aðalsmanni og þær lenda í andstæðum herbúð- um ... Sögusviðið er stórt: Danmörk, Frakkland og Þýzkaland í ölduróti styrjaldar og hernáms, þar sem hættur leynast í hverju spori. En þótt at- burðir sögunnar séu merktir ógn og hörmungum stríðsijis, er hún fyrst- og fremst heillandi ástar- saga, saga um göfugmennsku og fórnfúsa ást, saga um eigingirni og ástríður, saga um efagirni og óráðið hjarta ... RÆNINGJAR Á REIKISTJÚRNUM Eftir Carey Rockwell. ÞETTA ER NÝ SAGA um loftliðann Tómas Corbett og vini hans Astro og Roger Manning og hin furðulegustu ævintýri í allri geimferðasög- unni. Þeir komast í kast við geimræningja, sem ætla sér að stela dýrmætu málmgrýti á einni reiki- stjömunni. Hér er ekki um að ræða baráttu við bófa eins og hún gerist á jörðinni, enda aðstæður harla ólíkar því, sem þar gerist. Tilraunir eru gerðar til að stjórna reikistjömum og beina þeim á nýjar brautir, og annað álíka nýstárlégt. Sagan ér sþénnandi frá upphafi til énda og stendur ekki að ^akj fýr'ri.sögn.Rockwélls um þá félaga: „Ferð- búinn til Marz“. Bókaúfgáfan HILDUR ÞESSI 18 ÁRA, danska skáldkona, er ágætur full- trúi og málsvari hinnar rótlausu en tápmiklu æsku nútímans. Hún stendur sjálf mitt í ölduróti þeirra tilfinninga og hugsana, sem bærast með æskunni í dag, og henni hefur tekizt af sjaldgæfu innsæi að færa þessar tilfinningar og hugsanir í búning skáldsögunnar. Það var haft á orði í Danmörku, eftir að bókin kom þar út nú í haust, að nú hefðu Danir eignast sína FRANCOISE SAGAN. Vafalaust birtir þessi saga hinnar ungu skáld- konu mikið af lífsreynslu hennar sjálfrar. Um það er vitni hið heita hjarta, sem slær að baki frásagn- arinnar. Hún líður ekki fram sem lygn straumur, heldur byltist fram með boðaföllum, sveiflast á milli nöturlegs raunsæis og barnslegrar einlægni, milli skerandi beiskju og himinhrópandi fagnaðar. Þetta er ný rödd, sem sker sig úr, rödd, sem stundum er skræk og hörð, stundum bljúg og hrædd, en alltaf einlæg og þess virði, að á hana sé hlustað. SEGIR FRÁ ungum lækni, sem sezt að í smábæ í Danmörku. Greinir frá kynnum hans af þrem stúlkum, sem verða ör- lagavaldar í lífi hans, hver með sínum hætti. — Spcnnandi og hugnæm ástársaga. Þetta sófasett fæst aðeins hjá okkur. Höfum fyrirliggjandi svefnsófa, staka stóla og húsbóndastóla. Höfum nýja gerð svefnbekkja. Klæðum og gerum við húsgögn. Munið að 5 ára ábyrgðar- skírteini fylgir húsgögnunum frá okkur. -1 Sendum gegn póstkröfu um land allt. Húsgagnaverzlun og Vinriustofa Þcrsgötu 15 — (Baldursgötumegin) — Sími 12131. GERIST ’ÖÐRUM ÞRÆÐI á spítala. Aðalpersónur eru fjór- ar, og eru örlög þeirra á flókinn hátt samantvinnuð. Hcillandi ástarsaga um sorg og gleði, breyskleika og göfuginennsku. FYRSl A BÓK Carey Rockwells um loftliðann Tómas Corbett og vini hans Astro og Roger Manning. Spennandi og ævin- týrarík bók fyrir stálpaða drengi. Þessar bækur fást enn í flestum bókabúðum. i I

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.