Tíminn - 14.12.1961, Síða 9

Tíminn - 14.12.1961, Síða 9
NS 19 61 ★ 9 ★ JÖLABLAÐ T' Veggur, sem hinir áhugasömu Bostonarbúar eignuðu Vínlandsförum. um sem þetta myndi boða sér gott, og var í léttu skapi þennan dag. Hann var við stílaleiðréttingar til hádegis. Þá var barið að dyrum, og þekkti hann þegar, að þetta var Valtýr Guðmundsson, því að hann drap öðruvísi á dyr en aðrir menn. Þorsteinn hafði heitið honum kvæði í Eimreiðina, en efndir dregizt, og bjóst hann þess vegna við því, að nú ætl- aði ritstjórinn að heimta sitt. Þeir tóku tal saman, og Þorsteinn beið þess, að Valtýr viki orðum sínum að kvæðinu. Hann var þegar búinn að hugsa sér, hvaða afbatanir hann skyldi færa fram. Það dróst, að dr. Valtýr ræki á eftir kvæðinu. En allt í einu lét hann niður falla það ,tal, sem þeir höfðu haft uppi, og mælti: „Hvernig lízt þér á að vera konungur dálítinn tíma?“ Þorsteinn hváði, því að hann hafði ekki búizt við, að sér yrði boðin kon- ungstign. En Valtýr spurði aðeins, hvort han-n vildi þiggja embættið. Loks 'kom á daginn, að konungdæmi það, sem dr. Valtýr bauð skáldinu, var í ríki ungfrú Hrossafurðu. Hún vildi nú í framhaldi af íslandsför Þorsteins fá þá báða vestur til Bostonar til þess að reka smiðshöggið á uppg'ötvanir efna- fræðiprófessorsins, föður síns. Þeir Þorsteinn og Valtýr hafa ekki velt þes'su lengi fyrir sér. Þeir héldu af stað frá Kaupmannahöfn á þriðja dag 'hvítasunnu, 26. maí, suður á Þýzka- land og stigu þar á skip, eitt hið glæsi- legasta, er þá flaut á heimshöfunum. Þeir tóku land í New York 5. júní og fóru degi síðar til Bostonar, þar sem ungfrú Hrossafurða tók við þeim, alls 'hugar fegin þangaðkomu þeirra. Nú hófst sex vikna konungdómur þarna vestur við Karlsá. Það kom raun- ar fljótt á daginn, að þeim félögum var vandi á höndum. Hrossafurða var að- faramikil kona og vi'ldi hafa nokkuð fyrir peninga sína. Komumenn áttu sem sé að setja óafmáanlegan stimpil vísindanna á kenningu prófessorsins sál uga. Og það var meira en hinar gömlu minjar, sem þeir könnuðu, gáfu tilefni til. Þarna rannsökuðu þeir að vísu leifar að minnsta kosti eins húss, sem grafið var irin í brekfcu, og höfðu veggir þess verið hlaðriir út torfi og grjóti. Var þetta ekki óáþekkt því, sem tíðkazt hafði á fslandi. En verr fór, þegar gólf- ið í tóft þessari var kannað. Þar fund- ust brot úr múrsteinum og leirkeri. Slíkt hafði; Þorfinnur karlsefni ekki haft meðferðis í VínlandisSiglingunni, því að þessi tóft hafði verið útnefnd honum, og þótti sýnt, að þessi brot stöf- uðu frá mönnum, sem komið hefðu til landsins eftir daga Kólumbusar. Einnig sást greinilega, að braut eða stétt hafði verið gerð af smáum steinum frá þess- ari húsarúst tii árinnar, þar sem Hrossafurða ætlaði, að verið hefði lend- ingarstaður Þorfinns, þótt gera yrði rág fyrir, að hærra hefði verið í ánni en var 1895. Þótti henni þess stétt mjög bera sama svi,p oig stétt sú, sem komið hefði í ljós við uppgröft á Þyrli á Hvalfjarðar- strömd á íslandi við húsarúst eina, er þá var ætlað, að verið hefði hof Þor- steins guilhnapps. En þarna steytti þó á sama skerinu og áður: Á milli stein- anna fundust brot úr múrsteinum. Landslag var á þessum s'lóðum að sönnu alllífct því, sem fortisögur segja, að verið hafi í Hópi. En þó brast eitt á. Þarna voru ekki þau fjöll, sem þaðan áttu að sjást. Hrossafurða hlutaðist auðvitað ti'l um það, að fjöllesið biag í Bostom, Herald, flutti grein um íslendingana og rann- sóknir þeirra, ásamt mynd af dr. Valtý. Á hinn bóginn virtist sambúðin við þá hafa stirðnað verulega, þegar frarn kom, að erindislok yrðú ekki á þann veg, er hún kaus. Eitt íslenzkt blað hermir jafnvel þau tíðindi, að hún hafi meinað þeim að rannsaka tóftir þær, sem búið var að eigna Leifi heppna, þegar hún sá, hversu fara myndi um bústag Þor- finns. Var þar og öllu fátæklegar um- horfs, því að þar voru raunar ekki önn- ur merki mannavistar en fáeinir steinar, sem taldir voru leifar hlóða, en nán ast varð. að ímynda sér, hvar veggirn- ir hefðu verið. Dr. Valtýr leitaðist við ag orða niður- stöður rannsóknarinnar sem vægilegast, gangsfrek um það, að eitthvað yrði tínt til, hugðarmáli hennar til stuðnings, og sló þá í brýnur. Gramdist Þorsteini þessi hlið fornleifafræðiáhuga hennar, enda lyktaði svo, að hann fór brott nokkr- um dögum á undan Valtý, óg hafði fyr- irgert vonum um frekara konungdæmi af náð Hrossafurðu en hann hafði þeg- ar notið. Þag segir sig sjálft, að umgfrúin var ekki af baki dottin, þótt vel launaðir menn af sjálfum ættboga Vínlandsfar- anna brygðust. Þremur árum fyrir komu þeirra hafði hún látið prenta í ritlingi einum uppdrátt af umhverfi Karlsiár, þar sem ekki voru aðeins sýnd hús þeirra Leifs heppna og. Þorfinms karlsefnis, heldur einnig, hvar þeir höfðu stigið á land á árbakkanum. Var hvorum ætlaður sinn lendingarstaður. Þótt þá hefði enn veri.ð lítið grafið, taldi hún sig geta gert grein fyrir því, hvar verið hefði dyngja Guðríðar og jafnvel einkaverelsi þjónustumeyjar hennar. Og þótt'svona illa tækist til um rarinsóknir þeirra dr. Valtýs og Þor- steins, birti hún uppdrætti sína að nýju, þegar þeir voru á brottu farnir, í ritum sínum um þetta efni. Ungfrú Hrossafurða lét ekki neinn andbyr á sig fá. Lýfcur svo hér að segja af þessari ein- beittu ungfrú, sem endilega vildi gera hina skeggjuðu sæfara fornaldarinnar að eins konar heiðursborgurum þeirra í Boston. J.H. Stéttin, sem átti aS hafa veriS stígur frá lendingarstaSnum aS húsunum. Hér taidi HrossafurSa, að veriS hefSi hús Þorfinns karlsefnis. Óskum viðskiptavinum vorum og öðrum landsmönnum gleðilegra jóla, árs og friðar. þótt ekki fengist hann til þess að leggja lóðina á þá vogarsfcálina, sem Hrossa- furða hélt að honum, og varð hún að hugga sig við það, að ekki væri með öllu óhugsandi að menn hefðu setzt að í tóft- um Þorfinms karisefnis eftir daga Kól- umbusar og troðið þá brot úr múrstein- um og leirkerjum niður í gólf hans og stétt. Annað haldreipi hennar var það. ag fræðimenn í Vesturheimi, er þátt áttu í rannsóknum þama, vísuðu því á bug, aj' þær þjóðir, sem líklegastar voru til þess að koma á þessar slóðir eftir daga Kólumbusar, Spánverjar, Hollend_ ingar, Frakkar eða Englendingar, hefðu notað torf og grjót í veggi,, enda bæru þeir svip af veggjum norrænna manna. Við Þorstein Erlingsson samdi Hrossa- furða stórum verr en dr. Valtý. Kon- ungstignin reyndist honum þreytandi Hann þoldi illa, hve Hrossafurða var að- °STA og smjörsalan s.f

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.