Tíminn - 14.12.1961, Blaðsíða 15

Tíminn - 14.12.1961, Blaðsíða 15
15 ★ 'JDLABL'AÐ TIMAN5 19 61 JÓLALJÓSIN (Framhald aí 1 síðu) þeir ekki í nokkra daga. Svo komu þeir aftur og héldu áfram að setja niður staura. Það gekk hægt, en staurarnir voru margir, því sveitin var löng. Svo kom einn rauður dagur enn, og þá var bara einn rauður dagur og aðeins fing- urÍTin á hinni hendinni eftir. Svo kom stá dagur líka, og þá spurði ég mömmu: — Koma jólim á morgun, mamma? — Nei, góða mín. Á morgun er Þor- láksmessa, og þá kemur Ketkrókur, og svo kemur aðfangadagur, og þá kemur Kertasníkir, og svo koma jólin urn kvöldið. — Og kemur þá rafmagn líka? — Ef þeir geta tengt rafmagnið á morgun, getur verið að það komi, en ég hugsa að þag komi ekki fyrr en eft- ir jól héðan af. —Og fáurn við' þá ekki að sjá fínu ljósin, sem pabbi keypti á jólatréð? spurði ég óttaslegin. — Nei, vama mín, þá fáum við ekki að sjá þau fyrr en á þarnæstu jólum. Þá kom kökkur upp í hlsinn á mér, og meira en kökkur, því ég fór aft gráta, alveg eins og þegar pabbi sagði mér, að biskupinn væri ekki yfir íslandi, heldur héti yfir íslandi. Mamma tók mig í fang- ið og fór að reyna að hugga mig, og þegar ég var hætt að skæla og gat aftur farið að tala, spurði ég: — Má ég þá hafa fínu ljósin hjá mér f rúminu í. stað'inn fyrir brúðuna mína, þegar jólim eru. Mamrna kyssti mig á vangann og svaraði: — Nei, væna mín, það hefur engi.nn maður Ijós í rúminu hjó sér, en þau mega vera á borðinu vig höfðalagið þitt á jólanóttina, ef þú verður þæg og góð þangað tii. Það komu engir karlar á Þorláks- messunni^ og ég sá Ketkrók ekki held- ur .En ég vissi, að maður sér ekki jóla- ST’eina, nema þann sem kemur á barna- skemmtunina og hoppar og gefur öll- um epli. Og reyndar vissi ég, að það var enginn almennilegur jólasveiun, heldur bara Jón á Núpi. En ég gætti þess að vera þæg og góð, því þá átti ég að fá að hafa finu ljósin hjá mér, og þá ætlaði ég að biðja guð. Eg vissi reyndar ósköp lítið um þennan guð. Amma talaði oft um hann, og mamma kenndi mér bænir til að lesa á.kvöldi.n, svo ég gæti sofnað. Og amma sagði mér, að maður ætti ekki að leggja nafn guðs við hégóma, það er að segja kvabba ekki á honum með smá- muni; bara að biðja kvöldbænirnar sín- ar og biðja hann ag passa sig þegar maður færi eitthvað, en annars ekki, nema eitthvað væri alveg sérstakt, sem enginn annar gæti gert Aðfangadagur rann upp. Mamma byrjaði á því að sjóða hangikjöt og lét það fram í geymslu til að kólna. Svo baðaði hún okkur eldri systkinin, en við áttum ekki að fara í finu fötin fyrr en um kvöldið, þegar pabbi og mamma kæmu inn úr fjósinu. Pabbi ætlaði að fara í fyrra lagi út til gegninga, svo kvöldið yrði svolítið lengra, en mér fannst hann aldrei ætla að koma sér út. Loksins fór hann, en kom bráðum aftur með jólatré á krossfæti og setti það fram í geymslu. Svo loks- fór hann í fjósið. Þegar pabbi og mamma komu inn, færði mamma okkur í jólafötin. Svo fóru þau inn í stofu með jólatrég' og kassann, sem jólaskrautið var í, en amma var frammi í eld'húsi með okkur krakkana. Hún lét epli og appelsínur og súkkulaði og brjóstsykur í skálar, og ég og bróðir minn fengum að nudda eplin þangað til þau voru farin að glansa, og brjóta niður súkkulaðið. Svo fengum við einn bita, en ekki meira, við átt.um að fá að borða þetta allt á eftir. Loks voru þau mamma og pabbi bú- in að skreyta tréð og við fengum að koma inn. Þá byrjuðu jólin. Pabbi og mamma og amma sungu Heims um ból og í dag er glatt í döprum hjörtum og í Betlehem er barn oss fætt og pabbi talaði eitthvað, svo sögðu allir gleðileg jól nema litla systir. Trég var fallegt, með kúlum og englum og stjömum og glitrandi hárum og logandi kertum, það voru engin ö’nnur Ijós í stofnnni. En handan við tréð voru jólagjafirnar, umbúnar í alla vega litan pappír. Svo fengu allir epli og appelsínur og sæl- gæti, og mamma fór að útbýta gjöfun- um. Kvöldið leið, og ég gieymdi finu ljós- unum. Þangað til ég fór að hátta. Litla systir var löngu sofnuð, og bróð- ir minn líka. Hann var með stóran bíl í fanginu. Það var þegar ég sá bílinn, að ég mundi eftir Ijósnnum. Mamma hló, þegar ég minnti hana á þau, sagði að ég væri orðin of stór telpa til þess að hugsa um svoleiðis barnaskap, en samt sótti hún kassann og setti hann á borðið hjá mér. Þegar mamma var að í'ara, greip ég í hana og spurði: — Mamma. Þykir guð'i ekki ósköp vænt um jólin, af því að sonur hans fæddist þá? — Jú, elskan mín, svaraði mamma og strauk mér mjúkt um v.angann. — Má ég þá ekki bið'ja hann á jól- unum að gera svolítið, sem enginn ann- ar getur gert? Þá varð mamma alvarleg og settist hjá mér. — Jú, elskan mín, svaraði hún. — Það má alltaf biðja guð að gera það. sem enginn annar getur gert. En það er ekki víst, að hann geri það eins og maður heldur, þvi oftast bænheyrir hann okkur þannig, að vig vitum varla af því, Farðu að sofa, lit.la stúlkan mín. Cróða nótt. Svo kyssti hún mig á kinnina og fór fram. Hún átti eftir að þvo upp, og ég heyrði að pabbi hjálpaði henni. Þau töluð'u saman á meðan, og það lá vel á þeim; ég heyrði að þau hlógu. Eg kúrði mig niður í bólið og starði á fínu ljósjn í kassanum. Það myndi líða ei- lífðar tími, þangað til ég fengi að sjá Ijós á þeim. En hvað þau hlytu að vera falleg. Eg fann, að augnalokin á mér þyngdust, en þá reif ég mig upp úr dvalanum og byrjaði að hvísla, þar sem ég lá í rúminu: — Góði Guð og Jesú. Eg gleymdi svolitlu, þegar ég las bænimar mínar. Nei, ég gleymdi því ekki, ég bara geymdi það, af því ag mamma átti ekki að heyra það. Mig langar svo mikið að biðja ykkur, af þvi að það eru jól, að lofa mér að sjá þegar það logar ó þess- um jólaljósum. Bara pínulítið. Amen. Eg starði á jólaljósin, en ekkert gerð- ist. Eina skíman, sem sást, var inn um opnar dyrnar framan úr stofu, þar sem amma sat og las. Eg horfði og horfði á ljósin, og loks kom kökkur upp í háls- inn á mér. Ætluðu þeir ekki að lofa mér að sjá Ijósin, þótt nú væru jól? En ég kingdi kekkinum. Kannske höfðu þeir ekki heyrt. Eg byrjaði aftur: —- Góðu Guð og Jesú. Viljiði lofa mér að sjá ...... nú ásófti svefninn mig, og augun lokuðust, en ég glennti þau upp aftur og hélt áfram: — Viljiði lofa mér að sjá loga á þessum ljósum, sem pabbi keypti, bara pínulitla stund. Svo lok aði ég augunum, og þá — þá gerðist það: Þag kviknaði á öllum ljósunum í kass- anum, öllum í einu. Þau voru alla vega lit, gul rauð, blá, græn, og ljósið hreyfð ist í þeim. Og þau voru ekki lengur í kassanum, heldur var jólatréð okkar komið inn í svefnherbergi, og í staðinn fyrir kertin, sem alltaf varð að passa, svo þau kveiktu ekki í, voru þessi fal- legu ljós, sem pabbi keypti í kaupstað'n- um. Þau glitruðu þarna og skinu, ljósið' ólgaði í þeim, og englarnir á trénu brostu til min. Þetta voru jólaijósin mín. Við lindina Framhald af 5. síðu. „Þurrkaðu mér!" Anoka þerraði á honum höfuðið af mik- illi varúð. Það var auðvelt að þurrka í burtu vatnið, en augu gamalla mann eru veik fyrir, og tórin streymdu látlaust niður kinnar hans. Afi tók eftir þvi, að nokkrar manneskj- ur stóðu inni í garðinum. „Komið þið nær öllsömul. Af hverju þvoið þið ykkur ekki? Sjáið þið ekki, að hún Anoka bíður eftir Rð hella fyrir ykk- ur öll? Já, öll ykkar. Aumingja stúikan, hún vill gera það. En ef hún bæði einhvern um að- gera það sama fyrir sig. þá myndi nú eitthvað verða sagt“. Mennirnir og konurnar komu nær lind- inni, hálf vandræöaleg. En eins og sið- uðu og bæjarvönu fólki sómdi, sögðu þau hvert um sig við Anoku: „Eg þakka þér fyrir!" ( Andlítið á Arsen ljómaði af ánægju. Hann gekk líka að Iindinni, glennti sund- ur fæturna, hallaði sér ófram og rétti út helidurnar. „Helltu!" Hún gerði það. Arsen var í sjöunda himni. „En hvað þú hellir vel! Farðu þér ró- lega, ég tr að verða blautur. Hœttu, ekki svona, ekki svona". Hún bretti upp ermarnar hans, og hellti með hægri heninni. „Þetta er gott, guð blessi þig“. Petríya var á hlaupum fram og aftur, tárin runnu niður kinnarnar á henni. Hún var að segja einni konunni frá einhverju, en hún spuröi aðra. Afi, sem var frá sér numinn af fögnuði, opnaði gamlan tréstokk, tók upp úr hon- um periuband, vafði það vandlega innan f dröfnóttan vasaklút, faldi hann undir vest- inu sínu og gekk aftur að lindinni. Allir höfðu iokið við að þvo sér. Þeim fannst 'öllum, sem þau stæðu á heilagri jörð, og væru að hlýða á helgan kór syngja: „Drottinn blessi vötn jarðarinnar . . . “. Ef einhver i hópnum hefði af til- viljun geflð bendingu mundu þau öll hafa fallið fram og beðist fyrir. Afi leit alit í kring um sig og ljómaði af virðuleik og stærilæti. Kæri gamli félagi! „Þið oruð dásamlegir félagar. Enginn ykkar ætlar að hella vatni fyrir hana Anoku‘1. Allir hlupu tii og seildust eftir könnunni. „Nú er það um seinan. Eg ætla að gera það sjálfur. Komdu barnið mitt, og þvoðu þér!“ Það or erfitt að segja, hvort það voru heldur hendurnar á honum afa, sem skulfu eða það var hjartað f henni Anoku, sem barðist. Hann þerraði hana með sínu eigin handklæði, og hengdi perlufestina um háls- inn á henni. „Hún gerði þetta allt saman sjálf, vesa- lings barnið, En ég vil endurtaka það, sera ég sagði i gærkvöldi, og sem þið eigið öll að muna: Megi guð yfirgefa hvern þann, sem móðgar hana“. Himininn leit niður til jarðarinnar og brosti af ánægju. Hann horfði undrandi á hátterni mannanna. En hvað maðurinn, þessi tvifætta skepna, er einkennllegur! Hann starir upp í loftið, breiðir út faðm- inn f örvæntingu, kallar upp með dular- fullum hljóðum, ákallar guð, bíðu.r og undr ast. Eitthvað, sem hann þekkir ekki sjálf- ur brennur í brjósti hans. Sál hans breið- ir úr sér og stígur upp eins og heilagt reyk- elsi, sem þráir að sameinast alheiminum .. Það vcit sá sem allt veit, að svona liefur það alltaf verið! Margrét Jónsdóttir þýddi úr ensku.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.