Tíminn - 29.12.1961, Blaðsíða 5

Tíminn - 29.12.1961, Blaðsíða 5
 fnmm (Jtgetandl: FRAMSÖKNARFlOKKURINN Framirvasmclastj6ri: Tómas A.rnason Rit stjórar Þórarinn Þórarinsson (áb ). Andrés Kristjánsson lón Helgason Fulltrúi rit stjórnar Tómas . Karlsson Auglýsmga. stjóri: Egili Bjarnason - Skrifstofur 1 Edduhúsinu - Simar 18300—18305 Aug lýsingasimi L9523 Aígreiðslusimi 12323 — Prentsmiðjan Edda h.f — Áskriftargjaid kr 55 00 á mán innanlands í lausasölu kr 3.00 eintakið Arfur framfara- stefnunnar Stjórnarblöðin halda áfram að láta í ljós undrun sína yfir því, að hér skuli nú ekki vera atvinnuleysi í stórum stíl, og að gjaldeyrisstaða bankanna hafi batnað á þessu ári, þótt enn sé hún raunverulega mun lakari en í árslok 1958, þegar núverandi stjórnarsamsteypa kom til valda. Þessi undrun stjórnarblaðanna er vissulega ekki ástæðulaus, því að ekki er hér stjórnarstefnunni fyrir að þakka. Þetta hefur nefnilega gerzt, þrátt fyrir hana. Vaxtaokrið, lánasamdrátturinn og söluskattarnir hafa vissulega lagt nýja, þunga bagga á framleiðsluna. Af þeim ástæðum hafa oft orðið stöðvanir bæðr hjá bátaflotanum og togaraflotanum. Við þetta hafa mikil verðmæti tapazt. En þrátt fyrir það, hefur atvinnuleysi ekki komið til sögu og gjaldeyrisástand heldur batnað seinustu mánuð- ina. Hvað veldur þessu, og þar með undrun stjórnarblað- anna? Hér er fyrst og fremst um tvennt að ræða: Hið fyrra er útfærsla fiskveiðilandhelginnar 1958, sem þá var knúin fram gegn andstöðu Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins. Hún hefur friðað bátamiðin og stórbætt aflabrögðin hjá bátunum. Hið seinna er, að hagur útvegsins batnaði verulega i tíð vinstri stjórnarinnar 1956—58 og hófust menn þá handa um að auka stórlega bátaflotann og bæta aðstöðuna til að vinna úr aflanuin. Af þeim ástæðum eru nú til bæði fleiri og betri skip og tæki en ella til að hagnýta hin batn- andi aflabrögð. Þetta tvennt ræður langmestu um það, að nú er blóm- legt atvinnulíf í mörgum verstöðvum og að útflutnings- tekjur verða með allra mesta móti á þessu ári. Áhrifin frá uppbyggingu fyrri stjórna mega sín þannig meira en samdráttaráhrifin frá stefnu núverandi ríkis- stjórnar, þótt hún hafi leitt til þess, að framleiðslan verð- ur mun minni en hún hefði ella getað orðið. j. l Hér hefur þjóðin nýja sönnun um yfirburði um- bóta- og uppbyggingarstefnu. Af þessu ber henni vissu- lega að draga þá ályktun, að nauðsynlegt er að taka upp framfarastefnuna að nýju, því að skipin og tækin þarf að endurnýja og auka, en slíkt verður ekki gert í nógu ríkum mæli meðan hin dauða hönd vaxtaokurs, lánsfjár- hafta og söluskatta hvílir á athafnalífinu. Nýjar sannanir Það sannast alltaf betur og betur, að gengislækkunin í sumar var óþörf. Seinasta sönnunin er sú, að hennar var ekki þörf vegn? gialdeyrisástandsins. eins og haldið var fram í ár verðm metafli og útflutningstekjur bvl ærri en nokkru sinir fvrr Undir slíkum kringumstæðum er útilókað að halda þv’ Fí,am, að lækka þurfi geng’ h egna gial'do’-ri'ýotnnds. ins. TÍMINN, föstudaginn 29. desember 1961. Hví lét Nehru hertaka Góa? ViíJhorfin til Afríkuþjó'ðanna og kosninganna réíu mestu um ákvörSunina UNDANFARIÐ hefur verið rætt allmikið um hertöku portúgölsku nýlendnanna í Ind- landi, er stjórn Indlands lét framkvæma í byrjun fyrri viku. Stjórn Indlands hefur sætt all- mikilli gagnrýni fyrir þetta í Vestur-Evrópu og Bandaríkjun- um, en í Asíu og Afríku virð- ist þessi verknaður mælast heldur vel fyrir. Af hálfu Por'túgala voru Ind- verjar strax kærðir fyrir Ör- yggisráði S. Þ., er þeir gerðu innrásina. Þar var flutt tillaga af hálfu Bandaríkjamanna, Breta, Frakka og Tyrkja um að skoi'a á Indverja að stöðva hernaðaraðgerðir. Sovétríkin beittu neitunarvaldi til þess að fella tillöguna. Þá lögðu Asíu- iog Afríkuríkin í Öryggisráð- inu, þ. e. Líbería, Ceylon og Egyptaland, fr^m sérstaka til- lögu, þar sem skorað var á Portúgala að leggja niður vopn. Sú tillaga fékk ekki stuðning annarra en Sovétríkjanna. Þegar hér var komið, var rætt um að skjóta málinu til allsherjarþingsins. Frá því var hins vegar horfið og mun eink- um tvennt hafa valdið. Annað var, að hernaðaraðgerðum var þegar lokið með fullum sigri Indverja. Hitt var það, að lík- ur bentu til, að meirihluti ríkj- anna í S. Þ. myndu fylgja Ind- verujm að málum, ef fjallað yrði um þessi efni á allsherjar- þinginu eða nær öll Asíu- og Afríkuríkin; f auk kommúnista- ríkjanna. Fyrir vesturveldin var það og engan veginn fýsilegt að standa með Portú- gölum á þeim vettvangi, eins og framkoma þeirra er nú í Angola. Það var raunar hið sama og að fylkja sér upp sem verjendum nýlendustefnunnar. ÁSTÆÐAN tíl þess, að Asíu- og Afríkuríkin fást ekki til að líta á hertöku Indverja í portú- gölsku nýlendunum sem venju- lega innrás, er einfaldlega sú, að þau viðurkenna ekki rétt Portúgala til þessara yfirráða. í augum þeirra eru Portúgalar hinir raunverulegu innrásar- aðilar, sem eiga að víkja. Óbeint hafa vesturveldin Iíka játað, þetta, þar sem þau hafa ekki farið dult með þá skoðun, að þessar nýlendur ættu að sameinast Indlandi með tíð og tíma og ættu raunar að gera það fyrr en seinna. Af þessum ástæðum eru aðgerðir Indverja líka ósambærilegar við ofbeldi Rússa í Ungverjalandi 1956 og innrás Breta og Frakka í Egyptaland sama ár. Rússar, Bretar og Frakkar voru þar að beita ofbeldi í löndum, sem ekki áttu að lúta þeim. Ind- verjar voru hins vegar að leggja undir sig land, sem við- urkennt er að tiiheyra eigi Ind- landi í framtíðinni af söguleg- um, landfræðilegum og þjóð- ernisle.gum ástæðum Portúgal- ar höfðu við ekkert annað að styðjast ,en úreltan nýlendu- rétt. Þrátt fyrir það, er ástæða til að harma, að Indverjar skyldu knýja fram lausn með vopna- valdi Þeir þurftu ekki annað er, að þreyja nokkuð lengur ) því að þá hefðu Portúgalar orð- ið að draga sig til baka í slóð NEHRU — mynd þessi var tekin af hon- um á Belgradráðstefnunni á sl. hausti. Breta, sem létu nær allt Ind- land af hendi 1947, og Frakka, sem gáfu upp smánýlendur, er þeir áttu þar, 1954. Fyrir vest- urveldin og Indverja var það óhapp, að Portúgalar skyldu þá ekki gera hið sama. En til þess hlaut hins vegar að kprna og eftir því gátu Indverjar vel beðið. Vafalaust hefði stjórn Indlands líka helzt kosið það, eins og hún hefur sýnt vilja til að gera undanfarin 14 ár. Sér- stakar ástæður, sem síðar verða raktar, munu hafa knúið hana til að breyta um stefnu. Frá efnahagslegu sjónarmiði þurftu þessar nýlendur ekki að verða neitt þrætuepli, hvorki af hendi Indverja eða Portú- gala. Hér er raunar um smá- skika að ræða, sem ekki búa yfir neinum sérstökum auðæf- um. Goa er t. d. 3400 ferkm. með 600 þús. íbúum, en hinar tvær, Dui og Damao, eru sam- tals 600 ferkm. með 40 þús. íbúum. Portúgalar héldu í yfir ráðin yfir þessum nýlendum eingöngu af metnaðarástæðum vegna þess, að þær minntu þá á forna frægð. Metnaðarástæð- ur áttu og að sjálfsögðu mest- an þátt í því að Indverjar létu til skarar skríða og brutu með því gegn þeirri kenningu sinni, að deilumál eigi ekki að leysa með vopnavaldi. Það eiga þeir vafalaust oft eftir að verða minntir á af andstæðingum sín- um á komandi árum. MARGAR ástæður eru taldar hafa valdið því, að Indverjar leystu þessa deilu að lokum með vopnavaldi. Þessar eru helztar: Meðal Afrikuþjóða hafa Ind- verjar sætt gagnrýni fyrir það, að þeir létu Porútgölum hald- ast uppi að hafa nýlendur í Indlandi. Það veikli málsstað sjálfstæðishreyfingarinnar í ný- lendum Portúgala í Afríku. Ind verjar eiu talsvert veikir fyrir gagnrýni Afríkumanna, því að þeir sækjast mjög eftir fylgi þeirra, t. d. í ýmsum alþjóða- samtökum eins og S. Þ. í Indlandi hefur stjórnin og sætt gagnrýni fyrir það að hún væri ekki nógu skelegg í við- skiptunum við Portúgala. Ýmis héruð, þar sem sérstakir ætt- flokkar búa, hafa og verið að heimta heimastjórn og bent á Goa til samanburðar. Kínverjar auka stöðugt á- gengni sína við norðurlanda- mærin, m. a. í trausti þess, að Indverjar vilji ekki leysa deil- ur með vopnavaldi. Ekki er ó- líklegt ,að Nehru hafi viljað sýna þeim, að hann gæti látið grípa til vopna, þótt hann sé seinþreyttur til vandræða. At- hyglisvert er, að Nehru lætur nú flytja herliðið, sem hertók Goa, til norðurlandamæranna. Seinasta, en ekki veigaminnsta ástæðan er svo sú, að þingkosn- ingar fara fram í Indlandi snemma á næsta ári. Stjórnar- flokkurinn mætir nú meiri mót spyrnu en áður. Alveg sérstak- lega beinist andspyrna margra gegn Krishna Menon hermála- ráðherra, sem er gagnrýndur fyrir undanlátssemi við Kín- verja. Hertaka Goa er líkleg til að styrkja kosningaaðstöðu stjórnarinnar. Margir kunnugir telja, að það sé þetta síðastnefnda atr- iði, ásamt viðhorfinu til Afríku þjóðanna, er endanlega hafi ráðið mestu um ákvörðun Nehrus Þ.Þ. pd.afio i liidlcnui, sem »ýnit poitugolsku nýlendurnar Góa, Oui og Damao, sem Indverjar hafa nú hertekið og sameinað Indlandi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.