Tíminn - 05.01.1962, Page 11

Tíminn - 05.01.1962, Page 11
Leikvangur (Framhald at 12. síðu) Dr. Ervin Alberti hefur nú gert kvtkmynd eftir þessum teikningum barnanna. Það kom í ljós, að hugmyndaflug telpna var miklu meira en drengja af sama þjóðerni. Meðal myndanna frá Ítalíu og Hollandi voru sönn listaverk, sagði dr. Alberti. Myndir írá Bandaríkjunum báru mjög keim af eftiröpun atrið'a úr kvikmyndum, en meðal þýzkra bama virðist skynsemin drottnandi. Því er ekki að leyna, að í teikningum þessum bar mikið á ógnþrungnum hugmyndum, og telur dr. Alberti, að þar komi fram áhrif frá óhugnanlegum kvikmyndum, mynda- sögum og sjónvarpsBýningum, sem gegnsýrt hafi hugi barn- anna, auk sífelldra umræðna um morðvopn og herbúnað. Lögfræðiskrif stofa SKIPA OG BÁTASALA Tómas Arnason hdl. Vilhjálmur Arnason hdl. Laugavegt 19 Símar 24635 og 16307 Ai!glv$ii?£a*ínif Tímans 19-5 23 Vetrarmaður óskast á sveitabæ á Norðurlandi. Upplýsingar í síma 32976 Rafmótorar stórir og smáir, einfasa og þrífasa. Gangsetjarar = HÉÐINN = Vélaverzlun Seljavegi 2, stmi 2 42 60 Tökum veizlur ogsamkvæmi SAMKOMUSALIR fyrir 20 til 350 manns: Félög og einstaklingar, \ sem ætla að halda sam- kvæmi, eða fundi, tali við okkur sem fyrst. Sími 22643 Gtaumbær Fríkirkjuvegi 7 (Framhald aí 12 síðu > ana. Þótt góðar byggingar séu fyrir, hefur þó verið horfið að því ráði að byggja að mestu leyti allt upp, og þar mun ísleikvangurinn vekja langmesta athygli, eins og myndin hér á síðunni sýnir vel. Leikvangurinn er teiknaður af tveimur austurrískum arkitektum, þeim Hans Buchrainer og Otto Gruber, og ferðuðust þeir víða í Ameríku og Evrópu til að kynna sér slíka leikvelli. Þeir hafa þó ekki tekið neinn einstakan leik- vang til fyrirmyndar, en sameina það bezta úr mörgum, og einnig koma þeir fram með margar nýj- ungar. Leikvangurinn tekur 8000 áhorf- endur í sæti, og er aðalbygging vallarins 30x60 metrar. Áhorfenda svæðin eru meðfram hliðarbraut- um vallarins. íshöllin er 95 m. á lengd, 65 m. breið og 23 m. há. í vestanverðri höllinni er auka- álma fyrir blað'a-, sjónvarps og útvarpsmenn, og hafa þeir þar hina beztu aðstöðu. (Upplýsingar þessar eru úi fréttablaði 9. vetr- arleikanna, sem barst blaðinu í gær). Fákur (Framhald aí 6 síðu) hérna? spyrjum við einn hesta- sveinanna, Sigurð Sigurðsson. — Já, þeir eru margir. En það er nú kannske ekki gott að fara að gera upp á milli þeirra. — Átt þú sjálfur hest? — Já, ég er með tvo núna. Við eigum allir hesta.. — Ertu gamall í hettunni? — Ég hef verið hérna frá því að fyrsta hesthúsið varð tilbúið. Ég sótti um starfið og fékk það. Annars átti ég heima uppi íiBorgarfirði. — Þú ert þá sveitamaður í húð og hár? — Já, og hef alltaf verið þar sem skepnur hafa verið. — Hvenær byrjið þið á morgnana? — Við byrjum hálf átta á því að gefa. Svo kembum við hest- unum og hirðum þá að öðru leyti. Það er mikil. vinna við þetta, ef vel á að vera. Við er- um allan daginn að stússa við hestana og förum ekki heim fyir en um sex leytið á kvöldin. — Leyfið þið þeim ekki að koma út undir bert loft? — Við hleypum þeim út, þegar við mokum undan þeim. Það eru port á milli húsanna, og þar geta þeir flogizt á og leikið sér eins og þeir vilja. Það er nauðsynlegt fyrir þá, að fá einhverja hreyfingu, og þeir verða að fá að velta sér. — Er ekki misjafnt að eiga við hestana? — Þeir eru misjafnir eins og mennirnir. Sumir þeirra eru svolítið viðkvæmir og kvikir, aðrir eru alltaf sallarólegir. Annars venjast þeir manni allir. — Koma ekki eigendurnir að skoða þá stundum? — Jú, þeir koma oft og gestir með þeim. Svo koma héma líka oft aðrir, sem langar til að skoða hestana, og krakkarnir eru voða spenntir fyrir þeim. — Hafið þið vinnu við þetta í marga mánuði? — Eg er nú hérna allt árið, en hinir eru meðan hestarnir eru í húsi. Á sumrin vinn ég við að halda húsunum við, mála og gera við það, sem hefur far- ið aflaga. Það er nóg að gera og mér fellur ágætlega við þetta. — Vildir kannske ekkert starf frekar? — Ekki segi ég það nú kann- ske, en manni þykir gaman að hestum. Birgir. Stúlka óskast tll húsverka 2 til 3 tíma á dag. — íbúð fylgir. Upplýsingar i sima 19523 kl. 9 til 17. Verkstjóri óskast í frystihús norðanlands. Upplýsingar í Sjávarafurðadeild SÍS, Sambandshúsinu, sími 1 70 80. Sendisveinar óskast hálfan eða allan daginn. Prentsmiðjan EDDA h.f. .......... ALLIR ÞURFA AÐ LESA í T | Sönnu ástarsögurnar í heimilisblaðinu SAIVITÍÐiM Munið kostaboð okkar: @40 bls. fyrir aðeins 75 kr. er þér gerízt áskrifandi að fjölbreyttu og skemmtilegu blaði. sem flytur auk þess: BráSfyndnar skopsögur, fróSlega kvennaþæfti, skák- þætti, bridgeþætti, margvíslegar skemmtigetraunir, stjörnuspár fyrir alla daga ársins, snjallar greinar o. m. fl. 10 BLÖÐ Á ÁRI FYRIR AÐEINS 75 KR. og nýir áskrifendur fá einn árgana i kaupbæti, ef ár- gjaldið 1962 fylgir pöntun. Póstsendið í dag eftirfarandi pöntunarseðil: Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að SAMTÍÐ- INNI og sendi hér með árgjaldið 1962 75 kr. (Vinsam- legast sendið það í ábyrgðarbréfi eða póstávísun.) Nafn . Heimili Utanáskrift okkar er SAMTÍÐIN, Pósthólf 472, Rvík. 2-3 herbergja íbúð óskast Fyrirtæki hér í bænum óskar að leigja íbúð fyrir starfsmann sinn. Tilboði sé skilað til blaðsins fyrir 10. þ. m. Merkt: „Örugg greiðsla“. Veiðimenn athugið Tilboð óskast í stangaveiðiréttindi í Vatnsdalsá í Húnavatnssýslu. Tilboðin miðist við alla ána eða hluta hennar og afhendist Guðmundi Jónassyni, bónda, Ási, fyrir 15. febrúar 1962. Einnig veitir hann nánari upp- lýsingar. Réttur áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er, eða hafna öllum. Stjórn Veiðifélags Vatnsdalsár. Guðbjörg Finnsdóttir frá Fossl, Arnarflrðl andaðist 3. janúar I Landakofsspífalanum. Fyrlr hönd vandamanna. Guðfinnur Gíslason Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför Kristínar Kristmannsdóttur, Húkl, Miðflrði. Sérstaklcga þökkum við öllum þeim, er veiftu okkur ómetanlega aðstoð við útför hennar. Stefán Jónasson Jónas Stefánsson, Kristmann Stefánsson, Ása Stefánsdóttlr, Sveinn Jóhannesson, Helga Stefánsdóttir, Sigurður Guðmundsson. TÍMINN, föstudagurinn 5. janúar 1962. 11

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.