Tíminn - 13.01.1962, Blaðsíða 8

Tíminn - 13.01.1962, Blaðsíða 8
Miðvikudagur 13. sept. Klukkan 5 eru allir kofabúar vaknaðir og farnir að spjalla sam an. Einhver brá sér út fyrir dyra- ar að gá til veðurs. Hann kom inn með þær fréttir, að veður væri þurrt, en hvöss austanátt sem fyrr. Það kom í minn hlut að hita kaffið að þessu sinni og virtust félagar mínir kunna að meta sop- ann að verðleikum svo árla dags. En nú var ekki til setu boð'ið. Framundan var löng dagleið, því að næstu nótt skýldi gista í Kjálka veri. Svefnpokar og annar farangur er borinn út úr kofanum og hest- arnir sóttir vestur í hestagirðing- una. Enn er ekki fullbjart af degi, þó mótar fyrir Heklu í há- degisstað. Um hana kembast skýja bólstrar, sem austanvindurinn þeyt ir vestur yfir himinhvolfið. Yms- um störfum þarf að sinna, áður en lagt er af stað. Geiri og Steini fara að lagfæra fjárgerðið. Það er betra að það sé í góðu lagi, þegar fjallsafnið kemur innan að. En hér liggja Gnúpverjar síðustu nóttina, áður en þeir koma til byggða. Skeifa var brotin undir Stjarna. Varð því ekki hjá því komizt að skipta um skeifu. Nú kom ein af varaskeifunum í góðar þarfir, enda eru varaskeifur jafnnauð- synlegar í fjallferð og varadekk í bílferð. Járningin gekk vel, enda buðust góðir hjálparmenn og jám ingatækin sæmileg. A. m. k. var haimarinn hið mesta þarfaþing; allur af jámi gerður. Skaftið var skrúfað saman úr mörgum pört- um og hefur að geyma ýmis tæki sem oft koma að notum í fjall- ferðum. Harnar þennan átti Sig- ursteinn frændi minn og notaði hann oft í fjallferðum. Eitt sinn er við vorum tjaldfélagar í „Löngu Ieit“, gaf hann mér gripinn og bað mig vel njóta.------ Dálítið fé hafði safnazt að af- réttargirðingunni um nóttina. Rák um við það austur undir Sanda- fell, en það tekur við skammt austan við Hólaskóg, lágt og tungu laga. Grónar brekkur em vestan undir fellinu, er þar gott upp að fara með hesta. Ofan af Sandafelli er ágætt út- sýni, einkum til austurs og suð- urs. Hekla ber enn sem fyrr „höf uð og herðar" yfir nálæg fjöll. Loðmundur og Rauðfossafjöll sjást allvel, en Þórist.indur er að mestu hulinn skýjamistri í austri. í norðrinu ber Keilingarfjöll hátt við himin, en Kista og Lambafell ið láta lítið á sér bera í morgun- húminu. Austurhliðar Sandafells eru allbrattar. Þaðan sér yfir Þjórsá, Sultartanga og Tungnaá, sem liðast eins og ljósleitt band austur svartar auðnimar. Skúmstungur kallast dálítið flat lendi austan við Sandafell. Þar er gott að lofa hestunum að grípa niður og hafa hestaskipti Fljótlega er haldið áfram á ný og nú eru taumar bundnir upp á trússahestunum og þeir reknir á undan. Höfðu nokkrir þeirra far ið þessa -l'eið áður og virtust þeir þekkja leiðina inn afréttinn. É var á báðum áttum með það, að sýna Stjarna slíkan trúnað. En hann brást mér ekki. Skilaði hlutverki þarfasta þjónsins svo sem bezt varð á kosið og skokkaði ýmist á undan eða eftir hinum hrossun- um allan daginn. Áfram er haldið, yfir Skúms- tungnaheiði, og hækkar landið Við gangnakofa — lagt upp í leitir dagsins. jafnt og þétt eða um 140 metra úr Skúmstungum í Starkaðsver. í miðju Starkaðsveri er Stark- aðssteinn. Hér herma sagnir, að ! Starkaður hafi orðið úti, er hann | forðum daga var á lei'ð norðán úr 1 landi til fundar við unnustu sína sunnlenzka. Sagan segir, að þessa vísu hafi Starkaður kveðið við' bauðst nú til að liðsinna okkur, sem við þáðum með þökkum. Til þess að vera viss um, að súpan smakkaðist vel, setti Steini helm- ingi meiri „kraft“ í pottinn en til var sagt utan á pökkunum. Er ekki að orðlengja það að súpan þótti slíkt lostæti að upp frá því ekki sem bezt, ef hrossin fynd- ust ekki. Loks komu leitarmennirnir aft ur — en lómhentir. — „Jú, við fundum förin þeirra niður að Dals á, þau voru víst öll komi.n úr höft unurn og höfðu tekið strikið heim til byggð'a og eftirreið því tilgangs laus“, sagði Bjarni á Hæli, um leið og hann hoppaði af reiðhesti sín- um, sem var löðrandi í svita eft- ir sprettinn neðan frá Dalsá. Það sló þögn á hópinn við þessi aivarlegu tíðindi, — þögn, sem flj'ótlega var rofin af eiganda töpuðu hrossanna, þar sem hann lýsti því hátíðlega yfir, að næst þegar hann gisti í Kjálkaveri, skyldi þannig um hnútana búið, að hrossunum yrð'i heimför til byggða torveldari en í þetta sinn. Já — útlitið var ekki sem bezt. Þrjú af hrossunum töpuð, fram- undan þrjár langar og strangar dagleiðir fyrir innan Fjórðungs- sand og sýnilegt, að héð'an yrði ekki farið fyrr en undir hádegi. Var nú skotið á ráðstefnu inni í kofanum, jafnframt því að ár- degiskaffi var hitað, mönnum til andlegrar upplyftingar og líkam- legrar hressingar vegna andstreym is morgunsins. fellsjökul og Vatnajökul. með hvíta'.skáKi '■......:'j 'ici Innan við ln:;ri-p:fU' táka við Blautukvíslareyrar. Þetta svæði smöluðum við Gunnar. Þegar við komum inn að Blautukvísl, var hún í vexti og vall fram kolmó- i’auð og rann víða út yfir bakka sína. Straumkast var mikið, enda er áin grýtt í botninn og halli mikill á þessum slóðum. Við viss- um ekkert, hversu áin var djúp þarna, en yfir urðum við að komast. Allt fór þetta vel. Kátur stökk upp á hnakknefið hjá mér og sat þar hinn rólegasti, meðan hrossin svömluðu yfir jökulvatnið, sem bullaði á miðjar síður eða vel það. Við héldum ferðinni áfram aust- ur með jökulröndinni.. Gróð'urlítið er á þessum slóðum. Þó er smá- vegis graslendi inni í jökulkrikan- um. Þar er mikill vatnsagi undan jöklinum, og er Miklakvísl versti farartákninn þar. Ekki er hún jafnstraumhörð og Blautakvísl, en liklega öllu „lúmskari" við ferða- menn. A.m.k. neyddist ég til að hella vatni hennar úr öðru stígvél- inu mínu, þegar ég kom yfir á eyrstri bakka hennar! Stefáo Jasonarson, Yorsabæ: Fjallferð 1961 inn yfír Fjórðungssand as unnustu sína í svefni, eftir að j hann var allur: | „Angur og mein fyrir auðarrein oft hafa skatnar þegið. Starkaðarbein und stórum stein um stundu hafa legið“. _ | Við stönzuðum litla stund í j Starkaðsveri. Um hádegi er kom j ið í Gljúfurleit. Þar er gangna-j mannakofi og allgóðir hestahagar Þar var stanzað og tekið ofan af hestunum, og hlustað á hádegis- útvarpið, meðan við borðuðum há degismatinn, rétt eins og við vær um heima hjá okkur! j í Gljúfurleit er sérkennilegt j landis'lag. Hver stallurinn tekur við af öðrum niður að Þjórsá, sem ' rennur í þröngum farvegi á þess- um slóðum. Handan Þjórsár er Búðaháls. Nær hann frá Tungnaá og lengst inn á Holtamannaafrétt. Það var skammt til sólarlags, er við komum í Kjálkaver. Þar er svipaður leitarmannakofi og í öðr um náttstöðum á Gnúpverjaafrétti. Kofinn stendur á vestari bakka Kisu. Er áin mjög stórgrýtt og getur orðið hið mesta forað í vatna vöxtum. Nú var. hún vatnslítil og silfurtær. Dálítið graslendi er í Kjálka- verinu. Ekki láta hestar þó vel við því, og er betra að hafa gát á þeim. Það tók dálítinn tíma hjá okkur að „standsetja íbúðina“. Fyrst þurfti að „moka“ út gólfið, þá var næst að hagræða „gólftepp- unum“ og bera inn farangurinn. Að því búnu hófst eldamennskan. Við Sveinn vorum sjálfkjörnir matreiðslumenn, þar eð við lögð- um til eldunartækin og höfðum hlotið nokkra æfingu í þeim „fræðum" í fjal'lferðum fyrri ára. Gekk okkur vel með kartöflu- og kjötsuðu. En þegar kom að kraft j súpunni, brást okkur bogalistin! En þegar,, neyðin er stærst, þá er hjálpin næst“. Steini á Hæli i hafði soðið slíka súpu áður og -111» lálKgXU i * ' var slík súpa soðin flest kvöld í| Niðurstaða ráðstefnunnar 'varð ferðinni! j þessi: Eftir að aukakaffi hafði verið; 1. Skilja sem mest af farangri eft drukkið kl. 10 var farið að hag- í ir í Kjálkaveri. ræða svefnpokunum og búast til, 2 Sameina farangurinn og hafa svefns. Menn voru fegnir hvíld-, inni eftir hma löngu ferð úr Hóla ; skógi. Jafnvel hundarnir virtust fegnir hvíldinni líka. Þeir hring- uðu sig saman hér og hvar um kofagólfið og nenntu ekki að ríf- ast, enda oft búnir að tipla nið- ur tánum frá því um morguninn, sem fæsta hesta undir böggum. 3. Hafa „félagsbú" með matseld og máltíðir næstu daga. Þar sem þessi samþykkt var gerð með öllum greiddum atkvæð um og klukkan þegar farin að ganga 11, var nú gengið rösklega til verka, og þegar tæpur klukku tími var til hádegis eru allir ferð búnir, vel ríðandi og haldið er af stað inn í Nauthaga, en þar skyldi gista 1 tjöldum næstu nótt. Fyrsta spölinn er farið eftir hinum varðaða Sprengisandsvegi, unz komið er yfir ána Kisu. Þá er skipað í leitir. ' Steini á Hæli og Siggi á Blesa- stöðum fara með baggahestana og er lagt var af stað í þessa dag- gá að kindum skemmstu l'eið inn leið, sem var sú lengsta í allri ; Nauthaga'. • • Onnur grein ms im ferðinni. FIMMTUDAGUR 14. SEPT. Það var eins og það lægi í loft- inu að betra væri að huga að hest unum fyrr en seinna. K1 4.30 eru allir glaðvaknaðir, en náttmyrkrið úti gerði leit að hestunum til- gangslausa um sinn. Kl. hálfsex er aðeins farið að rofa fyrir nýjum degi — norð- austan rok sem fyrr. — Var nú ekki seinna vænna að huga að hestunum. Við fyrstu athugun kom í Ijós, að tæpur helmingur hrossanna var í næsta nágrenni við náttstaðinn. Þegar leitað hafði verið um nærliggjandi svæði, vantaði enn þrjú hross. Það voru hrossin frá Blesastöðum. Var nú brugðið við skjótt. Hestar söðlaðir í skyndi og tveir menn sendir niður að Dalsá. Ef til vill var enn hægt að stöðva för þeirra ef þau treystust ekki i ána i höftunum. Þannig leið morguninn í óvissu og útlitið Við hinir höldum vestur með öldunni, unz við dreifum okkur inn sandinn. Ég var vestastur, þá Gunnar, Sveinn, Bjarni og Geir í Skáldabúðum austastur. Ekki er mikill gróður á Fjórð- ungssandi og því lítil kindavon þar. Æði er hann sporadrjúgur. Ein hæðin tekur við af annarri og sér varla út yfir víðáttu hans. Set- ur eru tvö lág fell, vestast á Fjórð ungssandi. „Þú tekur stefnu á Syðri-Setu, Stefán“ sagði Geiri fjallkóngur, þegar leiðir skildu við Norðlingaöldu. Af Norðlingaöldu er gott útsýni til allra átta. í norðvestri blasa Kerlingafjöll við með sína mörgu tinda og æfintýralegt yfii'bragð. Arnarfellsj ökul ber hátt við himin í norðri. Er svipmikið að sjá skrið jöklana steypast niður úr jökul- skallanum, alveg niður á jafn- sléttu. Mörg fell kljúfa þessa hjarnstrauma ofan úr jöklunum og er Arnarfell þeiira hæst og svipmest. Austar rísa Hágöngur og bak við þær sér austur á Tungna- Nú vorum við Gunnar komnir á leiðarenda. Við héldum úr jökul- krikanum suður í Nauthaga — hann er spölkorn fyrir sunnan jök- ulröfiSina á móts við Nautöldu. Þangað voru félagar okkar þá ný- komnir og voru að byrja að tjalda. Geir hafði fundið 13 kindur, hinir enga kind. Nauthagi er á eystri bakka Miklukvíslar, þar er all- gróskumikill gulstarargróður og góðir hestahagar. Volgar uppsprett ur eru hér og þar og gei'a þær staðinn notalegri til næturdvalar. Hrossin kunnu vel að meta hið kjarnmikla haglendi og frýsuðu ánægjulega, um leið og flipinn hagræddi kjarnmikilli störinni að tönnum þeirra. Þess á milli veltu þau sér og hristu af sér bleytuna úr jökulkvíslunum. Geiri og Sveinn riðu nú inn að jökulröndinni til þess að mæla, hvort hann vex eða minnkar. Á meðan lukum við hinir við að tjalda og undirbúa kvöldverðinn. En hundamir byrjuðu að urra og líta hvern annan illu auga, unz allur hópurinn var kominn í heift- úðug áflog. Stóð orrusta þessi lengi og létu hundarnir sér ekki segjast við hróp okkar og alvarleg- ar áminningar. — Það var fyrst eftir að einn fjallamannanna hafði löðrungað verstu áflogaseggina, með hnakktösku sinni, að þeir létu sér segjast og lögðu niður róf- urnar!! Af töskunni er það að segja, að hún sprakk um miðjuna þvert við höggið og hélt ekki leng ur innihaldi sínu, enda sjálfsagt komin til ára sinna og óvön slíkri meðferð! Þegar þeir Sveinn og Geiri komu aftur úr vísindaleiðangrin- um frá jökulröndinni, höfðu flest- ir hinna tjaldbúanna notað hið tæra og volga lindarvatn fil and- litssnyrtingar. — — Og svo færð- ist síðsumaii'snóttin yfir tjaldbú- ana. Austanrokið hvein í stögum og hrikti í súlum og ferðalang- arnir liðu inn í land draumanna. 8 TÍMINN, laugardaginn 13. janúar 1962.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.