Tíminn - 25.01.1962, Síða 9
Við sáfum inni í visflegri
stofu hjá Gunnari Bjarnasyni
með kaldan, norðlenzkan snjó
allt í kring, þegar litið var út
um gluggana á Hólum. Skóla-
stjórinn spjallaði við okkur
um búskap og sagði okkur af
hugmyndum sínum um skól-
ann og skólabúið og hvernig
ætti að reka það framvegis.
Hann var fullur áhuga, enda
nýtekinn við staðnum og leysti
greiðlega úr öllum spurning-
um.
— Er ætlunin að breyta bú-
rekstr'arforminu?
— Já, ág hef mikið verið að
hugsa um það. Faðir minn var út-
gerðarmaður, og ég þekki því til
bátaútgerðar, þar sem sjómenn
voru ráðnir upp á hlutaskipti.
Þetta voru dugmiklir sjómenn og
'hagsýnir, sem gættu þess að fara
vel með alla hluti. Og útgerðar-
maðurinn og sjómenn hans höfðu
sameiginlegan áhuga á, að nettó-
•hlutur bátsins yrði sem mestur.
Þegar ég svo fer að reka hér bú,
sakna ég þessa andrúmslofts, og
fyrir vikið verður öll stjórn verka
og fjármála örðugri og dýrari. Til
þess, að búskapui'inn gangi ákjós-
anlega, þarf maður að hafa svo
mikið úrvalsfólk, að langt er yfir
meðaltali. En af stórum starfshóp
er ekki hægt að ætlast til þess, við
verðum að geta byggt á meðal-
manninum og þeim almennu við-
horfum, sem gilda í landinu gagn-
vart vinnu, vandvirkni og dugn-
aði. Eg hef fylgzt með ríkisfyrir-
tækjum og veit, hvernig andrúms-
loft ríkir á slíkum stöðum. Og ég
er ekki einn um þá vitneskju. Hún
er opinbert leyndarmál. Búskapur-
inn er svo erfiður atvinnurekstur,
að það er alls ekki hægt að láta
hann bera sig með ríkisrekstrar-
andrúmslofti. Það þarf hver maður
að vera sinn eigin verkstjóri og
vaka yfir verki sínu og fara með
hverja skepnu og hvert verkfæri,
eins og hann eigi það sjálfur. Er-
lendis hafa margar tilraunir verið-
gerðar með samvinnubúrekstur og
arðshíutarekstur' í einhverri mynd.
Nú væri hægt að gera tilraunir
eftir erlendum fyrirmyndum, en
þar sem við eigum í landinu æva-
fornt arðshlutar'ekstrarform, gert
af vitrum útvegsbændum, og ég
sé ekki neitt því til fyrirstöðu, að
það henti jafnvel búskap og sjávar
útvegi, hef ég mikla löngun til að
gera tilraun með slíkan rekstur
hér á skólabúinu. Hérlendis er
varla hægt að tala um stórbú, og
ég held, að þróun stórbúskapar
hafi strandað á því, að ekki sé enn
fundinn hinn hagfræðilegi farveg-
ur hans. Það er ljóst, að því stærra j
sem búið er og því fleiri sem
vinna, því betur er hægt að hag-
nýta sér samstarf manna og sam-j
vinnu og auka þannig framleiðni
hverrar vinnandi handar. Ef ís-
lenzkur búskapur á ekki að leggj-;
ast í rúst á næstu árum, verður að ]
leysa þetta vandamál. Þeir, sem:
nú kalla sig stórbændur hér áj
landi, hafa stækkað bú sín meðj
auknum þrældómi, stundum jafn-j
vel barnaþrældómi, en málið á
ekki að leysa með líkamlegu afli,
heldur mannviti. Hver sú stofnun
eða ríkisstjórn og þá sérstaklega
landbúnaðarráðherra, sem fer aí
einlægni inn á þessa braut, skilur
þýðingu verkefnisins og lætur gera
tilraun til að leysa það, mun lifa
lengur í þessu landi en stóllinn,
sem hann situr í.
Það á ekki að leigja búið
— Er eitthvað hæft í því, sem
flogið hefur fyrir, að þér hafi þótt
búskapurinn of erfiður og ætlir
að leigja búið?
— Árferðið hefur verið ei'fiti
og byrjunarörðugleikar miklir, en
ég er eins og útigangshesturinn _að
vetrinum, kemst ekki úr haga mín-
um. Og þeir þekkja mig illa, sem
halda, að ég yfirgefi hálfleyst verk |
! I vinnurekendur, sem allir telja mál' menni sá maður var, er þann þræl Hesfurinn og hiartað
GUNNAR BJARNASON, skólasfjóri
ið mjög merkilegt.
Ýmsu ábótavant vegna
;j fjárskorts
— Þegar þú komst hingað í vor,
hvað þótti þér þá helzt skorta á,
að skólinn og aðstaðan á Hólum til
búrekstrar og kennslu væri, eins
og þú hefðir óskað?
— Hólar í Hjaltadal eru einn
mer'kasti staður á íslandi, og sem
dreng norður í Þingeyjarsýslu
hefði mér aldrei dot|ið í hug, að
láta mig dreyma um, að fyrir mér
lægi að verða þar húsbóndi. En til
að kenna nútímabúskap síðan verk
fræði og önnur vísindi komust inn
í búfræðina, þá væri betra að hafa
aðstöðu Páls í Gunnarsholti, sem
byggir upp stóibúskap á jörð, sem
var eyðisandur fyrir einum til
tveimur áratugum. Hann getur
klætt búskap sinn í hin nýju föt,
en ég þarf að klæðast hér fötum,
sem sniðin voru fyrir búskap forns
ííma.
— Hvað geturðu sagt mér um
skólahúsið?
átti, er slí'k stórræði þorði á hsnd-
j ur að takast“.
Ég vil fá að byggja ný hús
— Er ekki fjós skólabúsins orð-
ið úrelt?
— Jú, það var gott á sínum tirna
þó að aldrei væri það vel fullgert,
mjólkurhús vantar, þakið lekur' og
klafabindingar eru afleitir. Nu
geta 2 menn hirt 64 gripi í þessu
fjósi, en þurfa þó aðstoð vegna
þess, að fóðurbætisgeymsla er eng
in og vinnuaðstaða ekki fullkom-
in. Eg vil fá að byggja úr þessari
byggingu aðra nýja, stærri og full
komnari og nota þar til vinnuspitrn
aðar og aukins hreinlætis mína
eigin uppfinningu, þ. e. járnrimla
flórinn. Þá get ég haft 100 naut-
gripi, 80 mjólkandi kýr á einum
stað. Og hirðing þeirra hundrað
gripa yrði léttara verk en 60 nú.
Þetta kostar hins vegar fjárfram-
lag frá hinu opinbera, sem ég
vona, að dragist ekki, þangað til
ég verð orðinn áhugalaust gamal-
menni. Mig langar til að geta sýnt
— Ekki get ég talað við þig án
þess að minnast á hestana.
— Þar komstu nú við hjartað í
mér. Á Hólum hefur verið hrossa-
kynbótabú síðan 1944. Það hefur
eiginlega aldrei fengið nein fram-
lög hins opinbera og því ekki get-
að starfað með eðlilegum hætti.
Nú hef ég ráðið hingað vin minn
og landsþekktan hestamann, Pál
Sigurðsson og á næstu árum lang-
ar okkur að sýna þjóðinni í rækt-
uðum stofni það fegursta og bezta,
sem íslenzki hesturinn á til. Það
er svo með hestinn í dag, að hann
er ekki lengur metinn í kúgildum.
Samt hefur hann e. t. v. aldrei ver-
ið þjóðinni meira verðmæti. Hon-
um hefur verið lyft úr því að vera
vinnuþræll og matur upp í heim
erfðalistar og merkilegrar, ger-
manskrar þjóðmenningar, eins og
betur og betur mun koma í ljós
hér á landi og erlendis á næstu
árum. Og hversu sem búskapur
dafnar hér á landi, þá mun frægð
íslenzka bóndans í heiminum og
vitnisburður um listeðli hans og
verðum að
ákaflega vel með
Samtal viS Girnnar B jarnason um
búrekstur og hændaskóla á Hólum
efni. Mér er ómögulegt að leysa
vandamál búsins með því að krefj-
ast meii’i vinnu af fólki en aðrir
gera, greiða lægra kaup en aðrir
„^ðg fara út í einhvers konar brask.
Eg reyni að kynnast lögmálumúiátt
úrunnar og mannlegs eðlis. Fræði-
leg lausn vandamálanna byggist a
að skilja þetta tvennt og nenna að
lifa sig inn í hlutina.
— Veitti ekki ráðuneytið heim-
ild til að bieyta rekstrarformi
skólabúsins hér frá því sem verið
hefur?
— Nei, það hefur ekki faliizt
á það. Eg hef lagt fram ákveðnar
tillögur, byggðar á samningi við
ágæta og vel menntaða unga menn,
um að gera tilraun til að reka
Hólabúið á arðshlutagrundvelli. Eg
mun kynna þessar tillögur opin-
berlega, áður en langt um líður,
því að ég hef boi'ið þær undir
mai'ga merka bændur og aðra at-
— Eldri hluti skólahússins er
byggðp^ ir'Ql^e^jr, ^ldamótin og sá
yngri tuttugu ' arum síðar. Rikis-
valdið hefur sem vitað er ekki
haldið við og endurbætt þessi hús
eins og þurfti. Ástand rafmagns-
mála, skolps, vatns og herbergja á
efstu hæð hússins var þannig, að
ég taldi ekki viðunandi. Fé var
ekki á fjárlögum til endurbóta
Annaðhvort varð ég að bæta hér
um samkvæmt þeim kröfum, sem
ég geri til híbýla manna og þrifn-
aðar eða loka stofnuninni og íara.
Að athuguðu máli og að loknum
lestri í sögu Geirmundar heljar-
skinns ákvað ég að taka hlutskipti
þrælsins Atla og gera upp á mi .t
eindæmi það, sem mér fannst nauð
syn vegna sóma staðarins, sjáifs
mín • og þjóðarinnar, hafandi í
huga orð þrælsins, þegar hami
svaraði Geirmundi: „Það kom raér
til þess, að ég vildi þann veg sýna,
hversu mikið göfugmenni og stór-
bændaefnunum, hvernig tveir
menn geta með léttu móti og með
hreinlæti fengið mikinn arð úr 100
gripa fjósi. Það er lærdómur, sem
ég er viss um, að ungir menn
mundu vilja kynnast.
— En hvað um sauðféð?
— Páll i Gunnarsholti lætur
einn mann hirða 1000 fjár. Ég tók
við tveim gómlum fjárhúsum, og
eru 4 km. a milli þeirra. Með mik-
illi vinnu getur fjármaður minn
aðeins sinnt einni kind, meðan
fjármaður Páls hugsar um tvær.
í fjárrækt langar mig til að kynna
íslenzkum bændasonum hinn nýja
tíma, þ. e. byggingartæknina og
vinnuskipulagið, sem hér ræður
mestu um árangur. Gömlu húsin á
Hólum eru bergkastalar, sem ég
vil láta standa sem sögulegar minj
ar um fyrri tíma, þegar menn
byggðu í burstum, vinnan kostaði
ekki neitt og verkfræði var óþekkt
í búskap. Hins vegar vil ég fá að
byggja nýtt fjárhús, betur hugsað
en nokkurt annað fjárhús, sem
þekkist, með hliðsjón af því, sem
þegar er reynt, þar sem einn mað-
ur hirðir þúsund fjár án þess að
bugast af þreytu eða þrældómi.
' hæfileika verða borin fram af hest
inum hans, sem hann hefur alið
og ræktað um aldir.
— Hafa verið hér svín og
liænsni?
j — Nei, ekki svo að orð sé á ger
andi. Auðvitað er mikilvægt að
kenna hænsna- og svínarækt nú á
dögum, en ætli Sunnlendingar
leggi ekki meiri áherzlu á þessar
búgreinar en Noiðlendingar svona
fyrst um sinn. Þar hafa Þorvaldur
í Síld og fisk og aðrir góðir menn
tekið frumkvæðið af bændaskólun-
um.
Sér heim að HólastaS — kirkjan til hægrl, en skólahúsiS til vlnstri.
Betri vélakostur
, — Er ekki mikill kostnaður við
:Vélar og viðhald þeirra á stóru búi?
— Jú, en hann gæti verið miklu
minni. Við eigum að geta kynnt
'allar nýjustu vélar og kennt með-
ferð þeirra í nútímabændaskóla.
! Og við getum endurnýjað vélakost
!inn ár frá ári og haft alltaf nýjustu
| vélar, ef skynsamlega er á málum
haldið. Þaö væri til dæmis hægt
| með því að fá ríkið til að gefa eft-
[ ir tollana á vélum til bændaskól-
|anna og innflutningsfyrirtækin til
að sleppa álagningunni. Þegar nýj-
ar vélar koma á markaðinn, eigum
við svo að selja bændum eldri vél-
arnar á sanngjörnu verði. Það er
hægt að græða á búskap og gera
hann að miklu áhrifaríkari atvinnu
grein en hann er nú. Það er hægt
að gera hann að heillandi verk-
efni, sem kallar á vinnufúsar hend
ur, en til þess þarf ýmsu að breyta,
og við verðum að fylgjast ákaflega
vel með. —-
Þannig lauk þessu kvöldsamtali
við Gunnar Bjarnason á Hólum.
Áhugi hans og eldmóður hafði síð-
ur en svo slokknað, þrátt fyrir það,
að dagana á undan hafði hann stað
ið í ströngu, af því að nemendur
hans voru óánægðir, eins og fyrir
getur komið í öllum skólum. Hinn
fornfrægi staður hafði dregið að
sér athygli, og þess vegna fór svo,
að í stað þess að spjalla við Gunn-
ar í Reykjavík, lá leið fréttamanns
ins norður í Hjaltadal og viðtalið
fór fram í stofu húsbóndans.
Við þökkuðum honum fyrir við-
talið og sváfum af nóttina, en vökn
uðum til nýs vetrardags með biit-
ingunni. Og Hólabyrða reis hvít að
baki staðarins, þegar við ókum úr
hlaði. —
T í MIN N, fimmtudaginn 25. janúar 1962.
9