Tíminn - 11.05.1962, Blaðsíða 6

Tíminn - 11.05.1962, Blaðsíða 6
Forsendur ríkisstjórnarinnar lækkuninni í fyrra fást með engu eneis- Herra forseti. Góðir áheyrend- ur nær og fjær. Hæstvirtur forsætisráðherra tal aði hér fyrstur af hálfu stjórnar- liðsins í kvöld og gaf tóninn um það, hvernig sungið yrði á þess vegum. Eg hef ekki tíma til þess að ræða einstök atriði í ræðu hæstv. forsætisráðherra að þessu sinni, en einu vil ég sérstaklega mót- mæla. Hæstv. forsætisráðherra reyndi að gera lítið úr þeim byrð- um, sem vaxtahækkun viðreisnar- innar hefur lagt á atvinnuvegina. Þetta er alrangt. Háu vextirnir hvíla þungt á öllum atvinnurekstri og á það hefur verig bent opin- berlega, að vaxtakostnaður hrað- frystihúsa, t. d., nemur nálægt 40% af þeirri upphæð, sem þau greiða i vinnulaun. Það myndi því áreiðanlega muna um minna en það, ag vextir væru lækkaðir verulega. Það er þegar farið að síga á seinni hluta kjörtímabilsins, því að nú er aðeins rúmlega eitt ár til næstu alþingiskosninga. Það líður einnig að lokum þessa þings og þessar umræður hljóta því að markast af slíkum tímamótum, sem vissulega gefa tilefni til þess að horft sé um öxl og virt fyrir sér sú stjórnarstefna, sem ráðið hefur hér á landi undanfarin þrjú þing. Umræðutíma mínum er skorinn svo þröngur stakkur, að ég get ekki rakig þetta yfirgrips- mikla mál til hlítar og verg því að halda mig vig meginlínur og benda á nokkutr einstök dæmi, sem þó má skoða sem samnefnara þeirra aðgerða, sem mér virðast einkennandi fyrir stefnu hæstv. ríkisstjórnar. „Viðreisnarstefnan“ Þessi stefna kom fram fullmót- uð þegar á fyrsta þingi kjörtíma- bilsins, og grundvöllur hennar eru lögin um efnahagsmál frá því í febrúar 1960. Hversu þau lög eru í samræmi við kosningastefnu skrá hæstv. stjórnarflokka skal ég ekki fara út í ag þessu sinni, enda gerði sá háttvirti þingmaður, sem hér var að ljúka máli sínu, (Ág. Þorv.) því atriði ágæt skil. í lögum um efnahagsmál birtist stjórnarstefnan í sinni réttu geTð, og leita má um túlkun á henni í fleiri helmildir, bæði greinargerð frumvarpsins, þegar það var lagt fram og eins í bækling þann, sem prentaður var undir nafninu „Við reisn“ og sendur var inn á hvert heimili í landinu á kostnag ríkis- sjóðs sem kveðja til almennings frá háttvirtum stjórnarflokkum. Og hver er þá stefnan, sem þarna kemur fram? Álíta verður við fyrstu athugun, að hún felist í orðinu, sem hæstv. ríkisstjórn valdi sínum fræga bæklingi, enda hefur það marg- oft verið sagt, að hæstvirt ríkis- stjórn stefni að vi'ðreisn efnahags- og atvinnulífsins. Þannig var það túlkað í bæklingnum og sama var endurtekið í greinargerðinni fyrir frv. til laga um efnahagsmál. Og þessi fullyrðing hefur verig endur- tekin sí og æ síðan. Skv. kenningu hæstv. rikisstj. var stefnan sú að hverfa með öllu frá uppbóta- og styrkjakerfi og gera í þess stað ráðstafanir, sem gerðu atvinnuvegunum kleift að standa algerlega á eigin fótum. Auk þessa átti ag búa svo um hnútana, að ekki myndaðist greiðsluhalli við útlönd og koma Ræða Ingvars Gíslasonar í útvarpsumræðunum í veg fyrir skuldasöfnun erlendis, sem hæstv. ríkisstjórn. taldi að væri að sliga fjárhag þjóðarinnar. í sjálfu sér voru þessi markmið lofsverg og vildu fleiri eiga þátt í því ag draga úr styrkja- og upp- bótakerfi eftir því sem tök voru á, og vafalaust eru allir sammála um, að nauðsynlegt sé að jafna erlendar skuldir og viðskipta- halla. En hitt hlaut að leiða til ágrein ings, ef valdar yrðu þær leiðir, sem hæst''irt ríkisstjóm bar fyr- ir brjósti og kappkostaði svo mjög að framkvæma, eftir öll sín fögru loforð fvrir ko=ningar um batnandi lífskjör, stöðvun verð- lags og skattalækkanir. Stefnan og kosningaloforíiím Ekkert þessara kosningaloforða var hægt að uppfylla meg þeim aðgerðum, sem hæstvirt ríkisstj. valdi sem stefnu sína þetta kjör tímabil. Stefna hæstvirtrar ríkis- stjórnar hefur verið nefnd sam- dráttarstefna, vegna þess að hún var á því reist, að draga úr fram kvæmdum, sem byggðust á félags- legu mati og þörf einstakra at- vinnugreina og stétta, sem hefur 'verið ráðandi stefna að mestu undanfarin 30—35 ár. Hæstvirt ríkisstjórn stefndi ag því að gera einkaauðmagnið að forsjá fram- kvæmdanna í landinu, sem til þess eins er fallið að auka gróða nokk \ urra útvalinna einstaklinga og, bankanna á kostnað alls almenn- ings í landinu. Þessi stefna mun. því fyrst og fremst leiða til ó-1 jafnari tekjuskiptingar og veru-j legs samdráttar í flestum grein-; um, enda beinlínis ag því stefnt. VnSrGisn í hnnfskurn Fyrstu áhrif efnahagsráðstafan- anna komu fram í ægdegri flóð- öldu verðhækkana á allri nauð- synjavöru almennirigs. Höfðu verðhækkanir aldrei orðig meiri á jafnskömmum tíma og lífskjör almennings því stórlega skert. Jafnframt jókst allur framleiðslu kostnaður gífurlega og sagði fljót lega tii sín í flestum atvinnu- greinum til lands og sjávar. Víða voru þessi áhrif svo snögg og kornu fram piog slíkum þunga. að þag var almæli þeirra, sem í fram kvæmdum stóðu, að allt venjulegt athafnalíf myndi herpast í hnút, ef þessu yrði haldið áfram. Þetta kom glögglega fram að því er út- gerð snerti, og strax fyrsta við- reisnarárig urðu útgerðarmenn að standa i ströngu gagnvart hæstv. ríkisstjórn um einhverja tilslök- un á krepputakinu, sem þeir voru teknir, því að ella var útgerðin og öll hennar starfsemi komin í strand. Hæstv. ríkisstjórn varð að láta nokkuð undan siga um og efl ir áramótin 1960—61, og eftir mik il ájök hófst vetrarvertíð loks seint og síðarmeir. Nú hafði það verið sagt, að viðreisnin væri al- veg sérstaklega stíluð upp á þarf ir útgerðarinnar, en óvíða hafði hún komig verr við en i sambandi við þá atvinnugrein og lætur þá að líkum, hvernig fór um sumar aðrar framleiðslugreinar og at- vinnustarfsemi. Kemur mér þá sérstaklega í hug landbúnaðurinn og byggingarstarfsemi í kaupstöð Ingv.ar Gíslason um, sem einna harðast hafa orðið úti af völdum viðreisnarinnar, og á það þó eftir að sýna sig betur síðar. Árig 1961 er framar flestu öðru varðað ósigrum viðreisnarstefn- unnar, eins og hún var upphaf-í lega boðuð. Hefur hæstv, ríkisstj. [ síðan tekið að fleyta sér yfir erf- iðleika sína með því að brjóta hverja meginreglu sina á fætur annarri og þ.á.m. tekig upp upp- bótakerfi og játag þ'áMig^'hVísíök' -ín og staðlevsu fulM’ðfnfe SÍtíHh í verki. En það varð almenningi til bjargar, að árferði var yfirleitt gott, með nokkrum undantekning um þó og aflabrögg í heild slík, ag ekki hafa þau betri verið um langt árabil. enda meiri afli úr sjó dreginn en nokkru sinni áð- ur og verðmæti hans eftir því. BCausi^ifksuTi!' voru ‘íiálfsagSar Almenningi tókst með hagstæð um samningum að fá kjör sín bætt frá því, sem verið hafði, þó ag mikið skorti á, að náð væri sama kaupmætti og var á tím- um vinstri stjórnarinnar Var samkomulagi verkalýðs og atvinnu rekenda almennt fagnað af báð- um aðilum og átti vinnufriður að vera tryggður næstu tvö ár, ef ekki kæmu til sérstakar aðgerðir. Vegna góðæris, aukins afla og góðra sölumöguleika á útflutnings afurðum var sýnilegt, að atvinnu- vegirnir gátu risig undir kaup- hækkununum, enda voru þær ekki meiri en svo, að vaxtalækkun og tilslökun á lánsfjárhömlum hefði farig langt með að vega upp á móti þeim kostnaði, sem atvinnu- vegirnir annars tóku á sig. Það var því ekki annað en fyrirslátt- ur ag halda því fram, að kaup- hækkanirnar leiddu til aukins framleiðslukostnaðar, sem myndu sliga atvinnuvegina. Kaupgreiðsl- umar á sl. ári voru síður en svo fjötur um fót í íslenzku atvinnu- lífi. Það, sem lamaði atvinnulífið voru viðreisnarráðstafanirnar, vaxtaokrið, lánsfjársamdrátturinn og aukinn framleiðslukostnaður vegna gengisfellinga. Ef þessu oki hefði verið létt af var þeim mun auðveldara að greiða það kaup, sem samið var um, og þegar einnig var tekið tillit til fram- leiðsluaukningar vegna sérstaks góðæris. þá hafði hæstvirt ríkis- stjórn það á valdi sínu ag bæta kjör almennings og atvinnuveg- anna samtímis og sjá svo um, að slíkt ástand mætti haldast. Blekking goitgis- lækknoairi^waí' En hæstvirtri ríkisstjórn entist ekki gæfa tii þess að stuðla að bættum hag atvinnuveganna og almennings og viðhalda vinnu- friði næstu 2 ár. í þess stað rýkur hún til með mjög vafasamri heim- ild og tekur gengisskráningar- valdið af Alþingi með bráðabirgða lögum og fær það í hendur Seðla bankanum, sem er algert verk- færi ríkisstjórnarinnar, og ákveð ur síðan 13% gengislækkun. Rökin fyrir gengislækkuninni voru þau, að kauphækkanirnar orsökuðu aukinn framleiðslukostn að, sem útflutningsatvinnuvegirn- ir vrðu að fá bættan með hærra verði á erlendum gjaldeyri. En bráðabirgðalögin um ráðstöf un gengisgróðans sýna Ijóslega, hvílík blekking þessi röksemd var, því að skv. þeim gekk bróð- urparturinn af gengisgróðanum til þarfa ríkissjóðs sjálfs, en átti hvorki að koma í hlut útvegsins eða útflytjenda beinlínis, eins og hefði átt ag vera, ef gengislækk- unin hefgi verið á rökum reist. Sumir hafa kallað þessa ráðstöfun gengisgróðans beinan þjófnað. en hvort sem svo verður talig eða ekki. þá er hitt víst, ag forsend- ur gengislækkunarinnar fengu ekki staðizt Hæstvirt ríkisstjórn stefndi að samdrætti í atvinnulífinu með ráðstöfunum þeim, sem fólust í efnahagslöggjöfinni frá 1960, en samdráttarstefnan var fljót að svna sitt rétta eðli, og hæstvirt ríkisstjórnin hefur á sumum svið um verið kruiin til undanhalds, þar sem hún getur ekki samrýmzt eðlilegri framleiðslustarfsemi, er ekki þoldi neina stöðvun. Á öðr- um sviðum er samdráttarstefnan bó í fullum ffansi og á það ekki sízt vig um framkvæmdir í land- búnaði og byggingarstarfsemi Þrátt fyrir viðreisnina En þrátt fyrir viðreisnina er þó víða fjör í athafnalífi og veldur þar hvort tveggja að uppbygg- ingin hefur verið ör fyrir viðreisn og aflabrögð hafa verig óvenju- góð um allt land. Sjávarplássin á Norð'ur- Austur- og Vesturlandi njóta nú þeirrar uppbyggingar, sem Framsóknarflokkurinn beitti sér einkuni fyrir meðan hann mótaði stjórnarstefnuna, en var þá nefnd pólitísk fjárfesting, þótt hún hafi nú bjargað hundruðum milljóna í framleiðsluverðmætum og þjóðin í lieild standi i þakkar- skuld vi'ð þá uppbygginigu, sem þarn.a er um að ræða. Framsókn- arflokkurinn beitti sér fyrir fjár- hagslegum stuðningi vig mörg byggðarlög, m.a. meg ráðstöfunum atvinnuaukningarfjár, sem hefur orðið ómetanleg lyftistöng undir framfarir á þessum stöðum Nú- verandi hæstvirt ríkisstjórn stefn ir að því ag draga úr stuðningi i þessu formi, eins og nýsamþykkt lög um Átvinnubótasjóð bera meg sér, en þar er ákveðig að verja í þessu skyni 10 millj. kr. árlega næstu 10 árin, en í tíð vinstri stjórnarinnar var atvinnuaukning arféð 13.5 til 15 millj. á ári. Mið- að vig verðgildi peninga nú, er varla ofsagt, að þessi lækkun at- vinnuaukningarfjár svari til þess að nú sé varið helmingi minni fjárhæð til þessara þarfa en var á tímum vinstri stjórnarinnar. Þessa starfsemi hefði fremur átt að auka en mi'nnka og stofna í því skyni myndarlegan framleiðslu- og atvinnuaukningarsjóð, sem hefði það markmið að efla atvinnu lífið úti um land og gera sem flestum kleift að kbma yfir sig fótum í sjálfstæð.um rekstri, m. a. til þess að eignast fiskibáta. i frktekma Ein af afleiðingum viðreisnar- innar er stórkostleg hækkun allra atvinnutækia til lands og sjávar. Þetta á elcki síður við um sjávar- útveginn en aðrar greinar og get ég nefnt hér máli mínu til sönn- unar eitt dæmi. sem er lýsandi tákn þess. sem gerzt hefu.r i verð lagsmáh’jm í valdatíg núverandi hæstv. ríkisstjórnar. Um áramótin 1959—60 kostaði 75 rúmlesta eikarbátur innfluttur meg öllum útbúnaði um 3 millj. króna, en kostai' nú um 5 millj. króna Verðhw'kkun er bví 2 millj ónir króna. Eins og lánareglum Fiskveiðasjóðs er háttað, þurfti kaupandi slíks báts að leggja fram af eigin fé 1 millj. króna í fyrra tilfellinu, en verður nú að leggja fram um 1.6 milljónir. Þá hefur hæstv. ríkisstjórn rýrt lánskjörin hjá Fiskveiðasjóði, þannig að lánin eru til 15 ára nú í stag 20 ára áður og vextir nú 6.5% í stað 4% áður. Þetí.a veldur útgerðinni stóraukinni vaxta- og afborgunar- byrði, og í því dæmi, sem ég hef hér nefnt, lætur nærri, að ár- gjaldshækkun af Fiskveiðasjóðs- láni nemi um helmingi þess sem var fyrir 3 árum, miðað við fyrstu afborgun og vaxtagreiðslu. Þannig leikur viðreisnin útgerðina, sem hún átti þó sérstaklega að vernda, — og hver skyldi þá útkoman vera í öðrum greinum? Skoðað í ljósi kosningaloforða háttvirtra stjórnarflokka fyrir 3 árum, er þetta þungur áfellisdóm ur um efndir þeirra orða, sem alltof margir kjósendur tóku trú- anleg. En þetta er aðeins eitt dæmi, fleiri mætti vissulega nefna sem ekki eru hliðhollari stjórnar- stefnunni, en þau verða að bíða um sinn. AFLI ÓLAFSVÍKUR- BÁTA 5529 LESTIR Vertíðarafli Ólafsvíkurbáta var 5529 lestir i 644 róðrum þann 30. apríl. Afli einstakra báta var sem hér segir: Jón Jónsson 629858 kg í 63 róðrum, Jón á Stapa 558560 kg í 59 róðrum, Jökull 533690 kg í 65 róðrum, Hrönn 533090 kg í 53 róðrum, Bárður Snæfellsás 413430 kg í 49 róðrum, Freyr 404420 kg í 62 róðrum, Þórður Ólafsson 396420 kg í 60 róðrum, Valafell 368080 kg í 33 róðrum, Stapafell 356300 kg í 38 róðrum, Halldór Jónsson 353930 kg í 40 róðrum, Sæfell 338990 kg í 29 róðrum, Steinunn 313940 kg i 36 íúðrum, Ejarni Ól- afsson 260420 í 49 róðrum. 6

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.