Tíminn - 21.06.1962, Blaðsíða 2

Tíminn - 21.06.1962, Blaðsíða 2
ÞAÐ ERU TIL MET I NÁLEGA OLLU VitiS þið, hver á met í því að ganga á höndunum? Það er Johann nokkur Huslinger, en hann gekk árið 1900 á höndunum frá Vín til París- ar og var 55 daga á leiðinni. En hvers vegna hann valdi þennan ferðamáta vitum við ekki. Og hvaða kona ætli sé versti bílstjóri í heimi? Jú, það er frú ein í Detroit, sem lenti í 97 um- ferðarbrotum. í 96. sinnið beit hún höfuðið af skömminni með því að aka á lögreglubíl. Og langar ykkur til að vita, hvaða brúður er herskáust í hei-mi? Það er tvímælalaust þjón ustustúlkan í Los Angeles, sem hefur gifzt sextán sinnum, og heldur því fram að a.m.k. fimm eiginmannanna hafi nefbrotið hana. Fróðleik af þessu tagi er að finna í bók einni, sem heitir heimsmetabókin og er samin af bræðrunum Norris og Ross Mc Whirter. Þeir bræður eru sjálfir methafar á sinn hátt. Þeir eru tví burar og svo líkir að konur þeirra rugla þeim oft saman. Báð ir eru þeir örvhentir og báðir iðk uðu þeir hlaup á skólaárunum. Auk þess eru eiginkonur beggja svo líkar (þótt óskyldar séu), að fólk ruglar þeim oft saman líka. Bræðurnir eru enskir, og bókin hefur verið afar vinsæl í Eng- landi um nokkurra ára skeið. Þar gengur hún iðulega undir nafn- inu Ölstofukverið. Þegar umræð- ur og deilur um met hefjast í ölstofunum, og það er ekki svo sjaldan, dregur afgreiðslustúlkan bókina frarh og sker úr málinu. Á þennan hátt hefur verið forð að mörgu glóðarauga og nefbrot um. (Synd að þjónustustúlkan, sem giftist svo oft, átti ekki bók- ina). Hæsta bygging í heimi er nýi sjónvarpsturninn í Columbus, 277 fetum hærri en Empire State Building. Algengasta nafn í heimi? Nei, það er ekki Smith, heldur Múhammeð. Dýrustu steinarnir eru ekki demantar, heldur roðasteinar. Það var hvorki Rockefeller eða Henry Ford, sem hafa haft hæstu árstekjur, sem sögur fara af. Það met á A1 Capone, — 105 milljón ir dollara árið 1927. Fjölmenn- asti háskólinn er ekki í Ame- urna, hvaða fróðleiksmola í bók inni þeir teldu merkilegastan. Þeir voru sammála um svarið: Stjörnukíkirinn í Mont Palomar í Kaliforníu er svo sterkur, að ef þú færii- út í geiminn 40.000 mílur frá yfirborði jarðar og kvciktir þar á kerti, gæti hann tekið mynd af loganum. Sum met hafa þeir þó ekki gctað grafið upp. Þeir vita um wr f ■'"/ v t . . t ' ‘.... Brúðkaup eða hnefaleikar? ríku, eins og sumir kannski halda, heldur Calcutta-háskólinn í Indlandi, sem hefur 137.000 stúdenta. Norðurskautið er engan veg- inn kaldasti staðurinn á jörð- inni. Mun kaldara er í Verkhoy- ansk í Síberíu, og skammt frá suðurskautinu hefur mælzt lægsta hitastig allra tíma, 127 stig undir frostmarki. Fréttamaður einn spurði bræð Á hvoru heimskautinu er kaldara? lifandi langa-langa-langafa, en enga langa-langa-langa-langaafa. Þó má vel vera að þeir séu til. Og bezt væri, -að þeir fyndust tveir, væru eineggja tvíburar og báðir örvhentir og kvæntiy langa-langa -langa-langömmum, sem væru alveg eins. Það væri fróðleikur að skapi bræðranna McWhirter. BRAUTARHOLTI 20 R.VÍK - SÍMI 15159 T°1 ll SOIU Einbýlisliús við Skipasund gæti verið 2 íbúðir, 2 og 3 herb. Bilskúr fylgir. Ræktuð lóð. 4 herb. risíbúð við Mávahlíð. 4 herb. mjög ódýr risíbúð við Nýbýlaveg, Kópavogi. Lítil útborgun. HÚSA OG SKIPASALAN, Laugavegi 18, III. hæð. Símar 18429 og 18783. Jón Skaftason hrl. Jón Grétar Sigurðsson, lögfr. BÓK UM BUXUR GRÆNLENDMGS Snemma beygist krókurinn . . . Menn geta harmað þetta, því að þjóðbúningur Grænlendinga er óvenju fagur, en þróuninni verður ekki snúið við. Evrópsk- ur klæðnaður er hentugri til vinnu og miklu ódýrari. Græn- lendingar, sem ætla að koma sér upp þjóðbúningi, þurfa að verja til þess um það bil 10.000 krón- um dönskum. Grænlenzki skinnaútsaumurinn er að verða sjaldgæfur. Það er því fagnaðarefni að vita, að dönsk kona, Helga Bruun de Neergaard að nafni, hefur varið fjölda ára til að safna saman grænlenzkum saumamunstrum. Hvar sem hún hefur farið um a Grænlandi, hefur hún reynt aö ná í gamlan skinnsaum, tekið hann með sér eða teiknað upp munstrin, oft við ákaflega frum stæð skilyrði. Nú hefur hún gef- ið út bók í Danmörku um þetta efni, og er bókin skreytt fjölda ákaflega fallegra mynda af göml um skinnsaum Bókin heitir Avigtat, en það er grænlenzka orðið yfir þá tækni, sem notuð er við að sauma lituð skinn. Myndirnar er bæði hægt að sauma og vefa. Ekki mun ofmælt, að með söfnunar- starfsemi sinni hafi Helga Bruun de Neergaard bjargað miklum menningarverðmætum frá glöt- un. Krabbameinsvarnir í Alþýðublaðinu í gær birt- ist stutt forystugrein, sem á- stæða er til að veita athygli, því að þar er rætt um mál, sem full- komin ástæða er til að gefa meiri gaum en verið hefur. — Greinin liljóðar svo: „íslendingum liefur tekizt vel baráttan við berklaveikina. Það hefur nær því tekizt að útrýma þeirri hættulegu veiki hér á landi og fyrir myndarlegt starf Sambands íslenzkra berklasjúkl inga er nú vel búið að þeim, er fengið hafa veikina og þurfa á aðstoð að halda við að stíga fyrstu sporin í atvinnulífinu eft ir að þeir hafa fengið bata. — Vinnuhelmili SÍBS að Reykja- lundi hefur vakið mikla athygli útler.dinga, scm hingað hafa komið og þykir til fyrirmynVl- ar. Happdrætti SÍBS hefur átt stærsta þáttinn í því, að reynzt hefur kleift að koma hinu mynd arlega vinnulieimili á fót. Nú er einnig verið að stórauka alla starfsemi í þágu öryrkja svo og í þágu vangefinna. Lamaðir og fatlaðir njóta góðs af aukagjaldi sem lagt er á eldspýtustokka og a'ðrir öryrkjar svo og þeir sem vangefnir eru fá gjöld sem lögð eru á sælgæti. Þau félög, sem starfa að málum þessa fólks, eiga mildar þakkir skildar og vissulega ber hinu opinbera að hlúa að starfsemi þessarar líkn arfélaga, eins og það hefur reyndar gert. En cinn er sá félagsskapur, sem ekki hcfur enn fengið neina verulega að- stoð frá hinu opinbera, hvorki í formi beinna framlaga né í formi aðstöðu til skattlagning- ar. Það félag heitir Krabba- meinsfélag íslands og berst gegn ægilegasta sjúkdómi okk- ar tíma, krabbamcininu. Á sama tíma og tekizt hefur ná- lega að útrýma sjúkdómum eins og berklum og holdsveik! og öðrum slíkum, hefur krabbinn stöðugt verið í sókn bæði hér og erlendis. Það er því vissu- lega full þörf á því hér á landi að herða baráttuna gegn þeim banvæna sjúkdómi og þyrftu samtök þau, er hafa forystu fyr- ir þcirri baráttu, vissulega að fá betri aðstöðu til starfa. Krabbameinsfélögin liafa orðið að láta sér nægja lítil Iiapp- drætti til tekjuöflunar. En væri ekki rétt að vcita þeim aðstöðu til þess að fá öruggari og betri tekjustofna?" AnnaS sins ástand með eliu ópekkf í gær stóð enn svo, að ekk- ert samkomulag var komið á um síldveiðikjör sjómanna og kominn 20. júní. Allur síldveiði flotinn liggur í höfn, þó að síld in sé komin á miðin og crlend veiðiskip ausi henni upp eigi langt frá landi. Á sama tíma er allur togarafloti landsmanna bundinn. og ekkert vert til þess að leysa það verkfall. Annað eins ástand mun ger- samlega óþekkt og fordæmis- laust í allri atvinnusögu fslend inga, svo að þarna hefur ríkis- stiórninni tekizt að setja met, sem selnt mun verða hnekkt. Um þetta er nánar rætt í for- vstugrein blaðsins í dag. Hestur Góður 6 vetra smalahest . ur til sölu. Upplýsingar í síma 33576. T f M I N N, fimtíitudagur 21. jxiní 1962. /11 i»1111 i i |

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.