Tíminn - 21.06.1962, Qupperneq 9
Kuldatíð og sprettu-
horfur mjög slæmar
Ræft við Halldór Sigvaldason, Gilhaga í Öxarfirði
Sumum sveitamönnum finnst
Tíminn vera orðinn meira
Reykjavíkurblað en góðu hófi
gegnir. Við, sem við Tímann
vinnum, þykjumst þó gera
okkar bezta til þess að afla
frétta af landsbyggðinni, m. a.
með því að grípa þá, sem inn
á skrifstofur okkar líta, og
spyrja þá frétta úr þeirra
byggð.
Halldór Sigvaldason, bóndi
á Gilsbakka í Axarfirði, var á
ferð hérna í Reykjavík fyrir
skömmu, og notuðum við þá
tækifærið að inna hann fréttaj
að norðan.
\
HALLDÓR SiGVALDASON
— Þótti ykkur ekki tíðin rysjótt
í vetur?
— Jú, tíðin var óvenjuleg og
ærið hvikul. Þetta var ekki snjó-
þungur vetur, en erfiður á margan
hátt. Ef stillur voru, þá var bruna
frost og svell yfir allt, og ekki er
það betra en snjórinn. Nú er kal
mikið í túnum í lágsveitum, en
minna á annesjum og inn til heiða.
Bændur voru yfirleitt ekki nógu
vel undir veturinn búnir, það gekk
mjög á heyforða þeirra, og flestir
urð'u að beita talsvert á tún hjá
sér.
— Teljið þið slæmar horfur með
sprettuna vegna kalsins?
— Já, sprettuhorfur eru ekki
góðar. Þar, sem ekki var beitt
meira og minna á tún, verðul' e.t.v.
hægt að hefja slátt um næs-tu mán
aðamót eða upp úr þeim. En þetta
kuldakast, sem kom upp úr miðj-
um maí, kom sér afar illa og dró
úr öllum gróðri. Margir tala um,
að þeir muni þurfa að fækka tals-
vert fé hjá sér í haust, ef ekki
rætist betur úr með sprettu og
nýting heyja en nú horfir.
Ekki miklar framkvæmdir
— Hvernig gekk sauðburður?
— Þetta var nánast meðalvor,
hvað sauðburð snerti. Þó var tæp-
lega eins margt tvílembt og venja
heíur verið. Við lentum ekki í
neinum vandræðum vegna kulda-
kastsins í maí, ep við erum nú sér-
sfaklega vel settir í Axarfirðinum
vegna skógarins. Þar ar mikið
skógarkjarT,
— Eru miklar framkvæmdir á
döfinni í Axarfirði?
— Ekki er það nú. Ræktun verð-
ur með svipuðu móti og verið hef-
ur. Eitt íbúðarhús á að byggja í
sveitinni í sumar, og nokkrir’ munu
ætla að endurbæta útihús sín. Svo
mun í ráði að vinna að byggingu
barnaskólans í sumar.
Ný flugbraut á Kópaskeri
—Eruð þið ekki sæmilega sett
í Axarfirðinum, hvað samgöngur
snertir?
— Við þurfum svo sem ekki að
kvarta. Þó voru samgöngur óvenju
slæmar í vetur, og var lengi bann
á vegum. Auk þess fóru skip oft
fram hjá Kópaskeri vegna veðurs.
Um flugsamgöngur að vetrarlagi
hefur ekki verið að ræða fram að
þessu, en nú er verið að ýta upp
flugbraut á Kópaskeri, og verður
þá flugvélum fært þangað jafnt
að vetri sem sumri. Við hugsum
að sjálfsögðu gott til þess.
— Var ekki mikil bót að veg-
inum kringum Tjörnes?
— Jú, mikil ósköp, það voru
mikil viðbrigði, þegar hann var
tekinn í notkun. Einnig var mikil
bót að brúnum tveimur, sem ný-
lega voru endurbyggðar á Jökuls-
á og Brunná. Það voru hreinustu
vandræði fyrir bíla með háfermi
að komast um gömlu brýrnar, t. d.
bílana, sem fluttu tunnur til Rauf-
arhafnar um síldartímann. Nú er
þetta leikur einn.
— Fer fólk úr sveitinni mikið í
síldina?
— Það er dálítið um það, þegar
það kemst frá heyönnunum. En
það verður vafalaust meira um
það, þegar síldarútgerð verður
komin á Kópaskeri.
Segir ekki af hjónaböllum
— Er félagslíf blómlegt?
— Oft hefur það verið svo. En
í vetur var það með afbrigðum
dauft. Um hátíðirnar var lítið um
skemmtanir og mannamót vegna
veðurs og ófærðar, og í byrjun
janúar fór margt af unga fólkinu
að heiman í atvinnu. Það fór
fleira í vetur en oft áður. Byrjað
var að æfa leik fyrir áramótin,
en svo varð að hætta 'við það, því
að sumir leikaranna fóru burtu.
Það var sem sagt fátt um skemmt-
anir, aðrar en hjónaböll, en þau '•
eru orðin fastur liður í félagslífi1
sveitanna Núpasveit, Axarfjörð-
ur og Kelduhverfi halda hver sitt i
hjónaball og bjóða þangað úr hin-
, um sveitunum.
j — Geturðu ekki sagt einhverj-j
I ar fréttir af þessum hjónaböllum?
— Sussu-nei, slíkt hleypur mað-
| ur ekki með í blöðin.
j Með glóandi gull
— Þú sagðir. að unga fólkið
I færi að heiman á veturna. Eruð
þið nokkuð uggandi um, að það
fari fyrir fullt og allt, svo að til
vandræða horfi fyrir sveitina?
—Nei, svo slæmt er það ekki.
Þetta kemur flest aftur á vorin.
Svo flyzt alltaf eitthvað inn í sveit
ina. Nei, við erum ekki hræddir
við auðn í Axarfirðinum á næst-
unni.
— Segirðu svo ekki einhverja
stórfrétt að lokum?
— Ja, mér er nú efst í huga, að
ég hitti hérna úti á götu miðaldra
mektarbónda úr næstu sveit, sem
við héldum eiginlega að væri rót-
gróinn piparsveinn, en hann var
þá kominn með glóandi gull á fing-j
ur. Svona er nú ástfn. Hún spyr ■
ekki um aldur né góðan ásetningj
um a^ forðást hana, eins og j
heitan eldinn. — k.
Á veginum yfir Siglufjarðarskarð — elna tengiliðnum á landi við
aðrar byggðir. Þar er oft torfært. Strákavegur er lausnin.
hún mér, að engin merki hefði
hún séð þess, að verið væri að
ryðja það að nýju. Tvær ýtur
munu vera einhvers staðar i ná
grenni „Skarðsins", en báðar
bilaðar. Engan er hægt að á-
saka fyrir það þótt fjallvegur
teppist að sumarla-gi vegna
snjóa. En það er hægt að finna
að því, að þau tæki, sem nota
skal til þess að opna slíka vegi,
séu svo léleg, að þau koma ekki
að gagni, þegar nota skal.
Mér er sem ég sæi í borgara
„Faxaflóa-þjóðfélagsins", ef veg
ir þeirra væru tepptir á þjóð-
hátíðardaginn og ekkert væri
til að byggja á nema tvær bil
aðar ýtur. Ætli heyrðist ekki
hljóð úr horni? Og það væri
ekki nema von.
Eg undrast hógværð Siglfirð-
inga í þessu máli, að ekki skuli
hafa á opinberum vettvangi
heyrzt háværar raddir þeirra
um þetta ófremdarástand og
kröfur um lagfæringar á því.
En ég veit, að þolinmæði þeirra
er á þrotum.
Eg geri ekki mikið með
draumórana um Strákaveginn,
og þau jarðgöng, sem þar á að
gera, a. m. k. ekki fyrr en fjár-
veitingar til þess vegar verða
í einhverju hlutfalli við það
mannvirki, sem þar skal gert.
Eg horfi því í bili til vegleys-
unnar yfir Siglufjarðarskarð, og
geri þær kröfur til vegamála-
stjórnarinnar, og ég veit, að
þá mæli ég fyrir munn allra
Siglfirðinga, að vegleysurnar
yfir „Skarðið" verði gerðar að
Séra Ragnar Fjalar Lárusson:
?
er vegurmn:
Það er ekki Reykvíkingur,
sem spyr. Slíkar spurningar
vakna naumast í huga höfuð-
staðarbúans eða annarra borg-
ara hins svonefnda „Faxaflóa
þjóðfélags". Þar liggja margir.
góðir vegir í allar áttir, þar
kann vandinn að vera sá, að
velja á milli vega.
Það er útkjálkamaður, sem
spyr. Þó er hann borgari bæj-
ar, sem telur hátt á þriðja þús
und íbúa, bæjar, sem verið hef-
ur og verða mun þýðingarmik
ill í öflun þjóðartekna vorra.
Það er einn af íbúum Siglu-
fjarðar, sem spyr.
Þið, sem ókunnug eruð og les
ið þessar línur kunnið að svara:
svara: Er ekki vegur yfir Siglu-
fjarðarskarð, sæmilega greið-
fær yfir sumarmánuðina0
Hvers vegna spyr maðurinn
svo?
Eg minnist þess, er ég flutti
erlenda konu yfir Siglufjarðar-
skarð sl. sumar, hversu þögul
og athugul hún sat í bifreiðini
ég sá á svip hennar, að hún var
allt að því kvíðafull. Þegar við
ókum upp eina skriðuna hróp-
aði hún skyndilega: „Where is
the road?“ („Hvar er vegur
inn?“). Þessi athugasemd henn
ar festist í huga mér. Eg hafði
að vísu í undirvitundinni fund-
ið þetta áður, en ekki gefið
hugsunum mínum hin réttu
orð, en þau eru einmitt þessi:
,Hvar er vegurinn?" Þessa hóg
væru athugasemd mætti orða á
svolítið biturri hátt og segja:
„Þetta er ekki vegur.“ Gamalt
máltæki hljóðar svo: „Glöggt
er gestsaugað", það sannaðist
hér.
Sannleikurinn um „veginn“
um Siglufjarðarskarð er sá, að
þar ligguir ekki vegur í þess
orðs venjulegu merkingu. held
ur stógrýttir troðningar. og svo
illfærir, að naumast er hægt að
ætla, að nokkrar venjulegar
fólksbifreiðir sleppi þar óskadd
aðar yfir. Þessir troðningar
væru hvergi í menningarlandi
taldir færir öðrum bifreiðum
en þeim, sem sérstaklega eru
gerðar fyrir vegleysur og mjög
•torsóttar leiðir.
Þær væru óteljandi sögurnar
um skemmdir á bifreiðum á
þessari leið, sjálfur hefi ég átt
bifreið í tvö ár og alloft orðið
fyrir verulegu tjóni þar.
Það má öllum ljóst vera at
þessari lýsingu, og ekki sízt
hinum, sem farið hafa vegleys-
urnar um Siglufjarðarskarð, að
„vegur“ þessi hefir verið mjög
vanræktur a. m. k. hin síðari
ár.
Hvað því veldur veit ég ekki
Ef til vill er það hugmyndin
um annan veg, sem liggja á um
Stráka til Siglufjarðar. Forráða
menn vegamálanna kunna að
hugsa sem svo, að sem minnst
megi kosta til Skarðsvegarins.
þar sem síðar komi nýr og fuli
kominn vegur til Siglufjarðar
á öðrum stað En ég er hrædd-
ur um, að þess verði því mið
ur 'langt að bíða Fjárveitingarn
ar til Strákavegarins gefa að
minnsta kosti tilefni til að á-
lykta svo. Mér skilst. að fjár-
veitingin í ár nægi til mánað
vinnu fyrir fimm ýtur. Hvenær
yrði vegalögninni og jarðgöng
unum lokið með sama áfram-
haldi? Sennilega ekld á næstu
áratugum
Þegar þessar línur eru rit-
aðar er þjóðhátíðardagur Islend
inga. Þá hefir Sigluíjarðarskarð
verið ófært vegna snjóa og aur
skriða í nokkra daga. I dag er
hér gott veður, og áðan hitti
ég aldraða konu, sem gengið
hafði yfir „Skarðið" í dag. sagði
akfærum vegi, sem einhver
sómi verður sýndur.
Lágmarkskrafan er sú, að veg
heflar verði nokkurn veginn
reglulega sendir til þess að
jafna veginn, og að stórgrýti af
honum verði rutt burt, og að til
staðar verði forsvaranlegar, ný-
legar ýtur, sem rutt gætu veg-
inn á stuttum tíma, ef á þyrfti
að halda. Eins og allir vita, sem
málum þessum eru kunnugir,
getur snjóað á - Siglufjarðar-
skarði á.hvaða árstíma sem er.
Þótt „Skarðsveginum" væri
komið í viðunandi horf, er mál-
ið ekki með því leyst. Allir,
sem til þekkja, vita, að hann
getur aldiei orðið annað en
sumarvegur. Siglufjörður verð-
ur að komast í varanlegt vega-
samband við umheiminn, þess
vegna verður draumurinn um
Strákaveginn að verða að veru-
leika. Við Siglfirðingar skorum
á forráðamenn vegairiálanna, að
láta þann draum rætast svo
fljótt sem auðið er.
„Hvar er vegurinn?" spurði
ég í upphafi þessa máls. Þú ert
ef til vill ekki svo undrandi,
lesandi góður, þótt svo sé spurt,
þegar hingað er komið lestr-
inum.
Sannleikurinn er sá, að Siglu-
fjörður getur naumast talizt i
vegasambandi við aðra lands-
hluta, eins og málum er nú hátt
að.
Upphrópun erlendu konunn-
ar var rökrétt afleiðing þess,
sem hún sá og fann: „Þetta er
ekki vegur“.
Úr ófremdarástandi þessu
verður að bæta þegar í stað.
Það er skýlaus réttlætiskrafa
Siglufirði, 17. júní 1962
Ragnar Fjalar Lárusson
j
T I M I N N, fimmtudagur 21. júní.
V . \
.1 ;
(i7i< ■ r;