Tíminn - 22.06.1962, Blaðsíða 2

Tíminn - 22.06.1962, Blaðsíða 2
ÚR ÖÐRUM LÖNDUM m- Hafa konur betra minni en karlar? Víða um lönd er varið ó- grynni fjár til að framleiða og fullkomna alls konar raf- heila og stórkostlegar minn- isvélar. En þar fyrir hafa vís- indamennirnir ekki gleymt okkar fallvalta mannlega minni. Þvert á móti hafa ver- ið gerðar víðtækar rannsókn- ir á því, hvað menn muna og hvað gleymist. Hér á eftir fara nokkrar spurningar, sem sálfræðingar telja sig geta svarað. Kannski koma sum svörin á óvart. Sálfræðirannsóknir hafa sýnt, að það er ekki óalgengt, að elztu endurminningar séu frá tveggja ára aldri, — og jafnvel eldri. Þá hefur komið í ljós, að sumar þess ara elztu minniTiga eru ótrúlega nákvæmar, en aðrar þokukennd- ari. Og sumar hafa aldrei gerzt, heldur byggjast á sögmum, draumum eða óskhyggju. Hafa konur betra minni en karlar? Þær hafa betra félagsminni, þ. e. þær muna betur eftir fólki. Það kom á daginn við tilraunir, sem gerðar voru við háskólann í Connecticut, að konur höfðu greinilega yfirburði yfir karla, þegar muna þyrfti andlit fólks. Einnig stóðu þær framar í þvi, að muna nöfn. En muna karlar betur útlit og nöfn fallegra stúlkna? Þótt undarlegt megi þykja, er svarið neikvætt. Við þessar sömu tili'aunir kom fram, að konur horfa með' miklu meiri athygli á fallegar stúlkur en karlar, og þær muna miklu betur, hvað þær sáu. Sé karlmaður kynntur fyrir stúlku, og hann síðar beðinn að lýsa henni, er svarið yfirleitt eitt hvað á þessa leið: Jú, hún var vist Ijóshærð og í bleikleitum kjól, held ég. En sé sama tilraun gerð við kvenfólk, kemur fram í svarinu fullkomin lýsing: útlit, vaxtarlag, klæðaburður, rödd, farði og hvað eina. Þótt undarlegt sé, taka karl- menn miklu betur íftir útliti karla en kvenna. Er þa3 rétt, að minninu hraki með aldrinum? Margt miðaldra fólk hefur þarf lausar áhyggjur út af því, að minninu sé að fara aftur. Yfir- leitt er það ástæðulaus ímyndun. Og jafnvel þótt fólk sé farið að reskjast talsvert, er heldur ólík- legt, að minnið sé bilað. Athug- un var gerð á 169 körlum og konum, miðaldra og eldri. Þar kom í Ijós, að í aldursflokkn- um 60—70 ára höfðu 69% ágætt minni. Hins vegar höfðu flestir, þó ekki allir, í elzta flokknum (yfir nírætt) einhveija minnis- galla. Annað atriði í þessu sambandi er, að fólk, sem á efri árum hef- ur eitthvað fyrir stafni, heldur minninu betur en þeir, sem setj- ast í helgan stein. Hvenær er minnið bezt? Nýlegar rannsóknir segja, að minnið starfi bezt við algeia hvíld. Þess vegna skulu menn, þegar þeir eru að reyna að muna eitthvað, leggjast fyrir og hugsa ekki um neitt annað. Hvíla sá) og líkama. Að öllum líkindum mun þá því, sem menn eru að reyna að grafa upp, s'kjóta skyndi lega upp í meðvitundina. Einnig sýna tilraunir, að því æstari og fumlegri sem menn eru, því verr starfar minnið. Eirðar- íaust fólk á á hættu, að glata <svo miklu af mioini sínu um stundarsakir, að það getur ómögu lega munað hvar það á heima eða eigið símanúmer er. Stendur minnið í sambandi við greindina? Engan veginn: Fólk með greind neðan við meðallag, hef- ur iðulega betra minni en menn með háa greindarvísitölu. Margir af mestu gáfumönnum veraldar hafa veiið viðutan og gleymnir. Er til einhver örugg aðferð við að muna? Hún er til. Lögmálið um ósjálf- ráð hugtengsl er hægt að nota sem eins konar minnistryggingu. Segjum sem svo, að þú sért að sofna og munir þá skyndilega eftir einhverju, sem þú verður að gera strax um morguninn. Þá skaltu teygja þig upp á náttborð- ið og snúa vekjaraklukkunni við. Eða hnýttu hnút á annan sokk- inn ellegar snúðu skerminum á leslampanum, gerðu sem sé eitt- hvað, sem þú Hlýtur að taka eft- ir um morguninn. Þegar þú svo vaknar og sérð klukkuna öfuga, fer ekki hjá því að þú munir það, sem þú ætlaðir að muna. Dr. Martin Grotjan í Suður- Kalíforníuháskóla segir í einu rita sinna: — Þessi aðferð er fasttengd sálfræðilegum lögmál- um. Hún ber ríkulegan ávöxt. Með dálítilli hugkvæmni er hægt að nota aðferðina við næst- um hvað sem er. Hugsum okkur mann, sem tekur eftir því, um leið og hann stígur út úr bílhum, að benzínið er á þrotum. Hann þarf að gera eitthvað, til að muna eftir að fyHa geiminn, þegar hann kemur aftur. Það er ekki erfitt. Hann getur sett bíllyklana í annan vasa en venjulega, buxnavasa í staðinn fyrir jakka- vasa eða öfugt. Síðan þcgar hann finnur lyklana á þessum óvenju- lega stað man hann allt í einu: — Alveg rétt, ég þarf að ná í benzín. Framhald á 13. síðu. Myrti tengda móður sina 3. júní sl. var framið hrylli legt morð í þorpinu Kulerup í Danmörku. 74 ára gömul kona, sem rak smásöluverzl- un í þorpinu, frú Magleby, var myrf, og dótturdóttur hennar 17 ára gömul, Grethe Krogh Jenssen, hlaut hættu- legan áverka, veittan með sömu öxinni og varð gömlu konunni að fjörtjóni. Við jarðarför gömlu konunnar hélt tengdasonur hennar smá- ræðustúf, og sagði þar, að þrátt fyrir djúpa sorg, væri léttir fyr- ir hann og konu hans að. vita dóttur sína á lífi. Fjórum dögum síðar var tengdasonurinn tekinn fastur og ákærður fyrir að hafa myrt tengdamóður sína, nauðgað dóttur sinni og gert tilraun til að mvrða hana líka. Ástæða hand- tökuTinar var, að Grethe Krogh Jenssen skýrði lögreglunni svo frá, að faðir hennar hefði unnið verknaðinn. Hann neitar ákær- unni þó harðlega, og hótar að drepa sjálfur ofbeldismanninn, náist einhvern tíma í hann. Þrátt fyrir neitunina situr hann nú í gæzluvarðhaldi, en rannsókn málsins er haldið áfram. Kona hans hefur hins vegar fengið taugaáfall og er á sjúkrahúsi. Lögreglan telur engan vafa leika á um sekt mannsins. Það hefur nú komið upp úr kafinu, að ástæðan til þess, að dóttiiin dvaldist hjá ömmu sinni, en ekki í foreldrahúsum í öðrum bæ, var sú, að faðir hennar hafði áður gert tilraunir til að fleka hana. Á meðfylgjandi myndum sjá- um við. sakborninginn ásamt fórnarlömbum sínum, frú Magle- by og Grethe Krogh Jenssen, á þeirri neðri, en efri myndin er af öxi þeirri, sem ódæðið var framið með. I „Þetta hafa íslendingar aldrei gert áðiir“ Á þjóðh'átí'ðardiaginn hinn 17. júní s.l. birti Tíminn nokkr .ar ræðtir þjóðkunnra mennta- og stjiórnmálamanna frá árun- inn 1908 og 1918, þar sem fram kemur v'Mhorf þeirra tii sjálfstæðis mál ann a. Meðal þeirra var stórmerk ræffia eftir Einar H. Kvanan, rithöfund, flutt á borgarafundi í Keykja- vík 2. júní 1908. Ræddi hann þar um samninigsupipkasti® við Dani, sem þá lá fyrir og var mjög til umræðu, enda um það kosið með eftirminnilegum hætti þa'ð ár. Einar Kvaran sagði m.a.: „Sumir ráffia okkur ti'l þess að ganga að þessium samningi, sem menn l:,afa verið að ræ'ða hér í kvöld. Þeir halda því fram ,a® eftir 25—37 ár stönd- um við miMu betur a@ vígi meg kröfur okkar. Þá getum Við barið í borðíð, eins og einn góður vinur mi.nn sagði hér um daginn. Þeir segja, að tæki færið sé svo mikig til þess að þroskast undir þess>u fyrir- komulagi. Það verði okkur eng inn Þrándur í Götu fyrst um sinn. Þessu halda fram ýmsir góð- ir og þjóðræknir fsle.ndin.gar, mertn, sem ég veit að unna þessu landi eins heitt og nokkr ir aðrir menn með þjóð vorri. Samt tel ég nokkurn vafa á því, ag in,nst í s'álum þeirra sé slæðingur af þessari hugs un: ÞETTA HAFA ÍSLEND- INGAR ALDREI GERT ÁÐ- UR. Þe'ir hafa aldrei gefið nokk- urri annarri þjóð ó.afturkallan legt vald í nokkru íslcnzku máli.“ „Við gerum það ekki“ Oig Einar heidur áfram; „Ég hygg, að þessi liugsu.n muni magnast því meina, sem len.gra líður. Ég ræð það af því, ag óg finn, að hún hefur magnazt hjá mér, því meira sem ég hef um málið hugsað. Og ég hygig, að frá þess'um fundi muni hljónw hæst — ekkl aðeins út um þennan bæ, heldur út um allt þetta Iand, ekki aðeins næstu vikurmar, Iieldur Um allar aldir — þessi hugsun: Við gerum það ekki. Við gerum þag aldrei. Vegna landsins okkar gerum við það ekki. Vegna þjóffiarlnnar okkar gerum við það ekki“. Hvað segði Eínar Kyaran nú? Ástæðan til þess að rétt er ag rifja upp þessi orð Einars Kvaran nú o,g aftur er sú, að á þjóðhátíðardaginn 17. júní 1962 flutti forsætisrh. lands- ins, Ólafur Thórs, ræðu, sem síðan var hirt í Mbl. og básún- ug mjög — sfffiast í forystu- grei.n í gær. f þessari ræðu nefndi Ólafur Thórs landlielg- issamning þessarar ríkisstjórn- ar við Breta sem sérstakj dæmi um það, hvernig tryggja mætti sjálfstæði landsins. f þessum margfræga samn- i.ngi er hins vegar kveðið svo á, að fslendiiiigar séu bundnir því ákvæði um .aldur o.g ævi að tilkynna Bretum ef við hyggjumst breyta Iandhelgis- línu og fá leyfi þeirra til þess að leggja m’álið undir alþjóðia- dóm. Þar er sem sé gert það, sem Einar Kvaran kvað fslend inga aldrei hafia gert áðúr „að gefa annarri þjóð óafturkall- Framhald á 15. síðu. -—noai 9 T í M í östudagurinn 22. júní 1962.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.