Tíminn - 24.06.1962, Blaðsíða 12
Trésmiðir
Járnsmiðir
RITSTJÓRl FRIÐRIK ÓLAFSSON
STOKKHÚLMUR-REYKJAVÍK
TiSboð óskast
\
í smíSi
1. 4ra eldhúsinnréttinga
2. Stigahandrið í þrjú 4ra hæða stigahús ásamt
sválargrindum á 32 svalir.
3. 38 forstofuhurðir og 60 innihurðir.
Teikningar ásamt útböðslýsingu verða afhentar í
skrifstofu félagsins að Hverfisgötu 116, III. hæð,
þriðjudaginn 26. júni n.k. kl. 5—7 e.h.
Stokkhólmur — Reykjavík
Einstakir leikir þessarar skák
ar hafa birzt í Tímanum undan-
farna þrjá mánuði, en í dag
lauk henni með uppgjöf Svians.
Þar sem ýmsir kynnu að hafa
gaman að því að renna yfir
hana augum aftur, verður hún
birt hér í þættinum í dag ásamt
ýtarlegum skýringum.
Hv. Friðrik Ólafsson
Reykjavík
Sv. Folke Ekström
Stokkhólmi
Kóngindversk byrjun
1. Rf3 (Þegar skák þessi hófst,
var ég að tefla í Millisvæðamót-
inu í Stokkhólmi, og hafði því
ekki tíma til að sinna skákinni
sem skyldi. Þess vegna valdi ég
byrjun, sem ekki var líkleg til
að leiða af sér flókin og erfið
afbrigði.) 1. d5, 2. g3, Rf6 3.
Bg2, g6 (Á timabili átti upp-
byggingin 3- —, c6 4. 0-0, Bf5
(eða jafnvel — Bg4.) miklu fylgi
að fagna, en á síðari árum hafa
menn helzt hneigzt til þess að
tefla byrjunina á svipaðan hátt
og Ekström gerir hér.). 4. 0-0,
Bg7 5. d3 (Aðrir leikir, sem hér
koma til greina eru 5. d4 eða 5.
c4. Þeir eru báðir skarpari en
d3-leikurinn og beina skákinni
inn á velþekktar slóðir.) 5. —,
0-0 6. Rbd2, c5 7 e4, Rc6 8. c3,
c5 (Nú er komin fram þekkt
staða úr Kóngsindversku vörn-
inni, með þeirri breytingu þó,
að hlutverkaskipti hafa orðið
með aðilum- Hvítur hefur þá
stöðu, sem svartur mundi ella
hafa (og öfugt) og er því leik
á undan miðað við venjulegt af-
brigði. Þennan leikvinning á
hvítur þó erfitt með að færa
sér í nyt, því að byrjunin er
hægfara og krefst ekki hnit-
miðaðra leikja.) 9. Db3 (Þessum
leik er beint gegn miðborði
svarts. Svartur verður nú að
gera upp við sig, hvort hann vill
halda miðborðsspennunni eða
leysa hana. Hann velur síðari
kostinn.) 9. —, dxe4 (Ekström
mun ekki hafa líkað hinn kost-
urinn:' 9. —, d4 10. ,cxd4„ cxd4
11. Rc4. Með uppskiptunum á
e4 veikir hann nokkuij d5-reit-
inn, en hann telur þá veikingu
ekki alvarlegs eðlis.) 10. dxe4,
De7 11, Dc2, (Hvítur hefur í
hyggju að leika ríddara sínum á
d2 til c4. Honum líkar illa, að
svartur skuli þá geta leppað
riddarann með — Be6 oé leitar
því undan með drottninguna.
Leikurinn er þó ónákvæmur og
hefði 11. Hel betur uppfyllt þær
kröfur, sem staðan gerir.) 11. —,
h6 (Á þessu stigi málsins hefur
svartur án efa haft í hyggju að
staðsetja biskup sinn á e6 og
vill því hindra, að hvítur geti
leikið Rg5 síðar meir.)12. Rc4
Æskilegast hefði verið að geta
undirbúið þenhan leik með 12
a4, en þess er enginn kostur hér.
því að svartur hefði þá náð að
staðsetja biskup sinn á e6. Svart
ur hefur nú í hendi sér að
hrekja riddarann á brott með
12. —, b5 og kemur þá í liós
hvers vegna 11. leikur hvíts Dc2
var ónákvæmur i 12 — Hfd8
(?) (Þessi lejkur réttlætir hins
vegar ónákvæmn bvít.s 9 ' Hi
vill hefur Ekström óttazt, að
hvítur fengi góð sóknarfæri á
kóngsvængnum eftir 12. —, b5
13. Re3, Be6 14. Rh4, Had8 15.
f4. Hugsanlegt áframhald er þá
—, exf4 16. gxf4, Rg4! (16. —,
Rh5 lítur vel út, en er ekki eins
gott og ætla mætti. T d. 17.
• Df2, 'Bf6 18. Rhf5!, gxf5 19. e5. og
hvítur stendur betur.) 17 Rxg4,
Bxg4 18. Df2, Hd3.. Þessi staða
réttlætir varla 15. f4 og mundi
hvítur því verða að undirbúa
þann leik mun betur. — Með
12. —, Hfd8 lætur Ekström sér
hins vegar -—, b5-leikinn úr
hendi sleppa og tekst nú hvít-
um að treysta aðstöðu sína og
nú varanlegu frumkvæði.) 13.
a4 (Að sjálfsögðu.) 13. —, b6
(Úr því að riddarinn kemst ekki
á e6, verður hann að finna sér
aðra útgönguleið.) 14. Hel. Ba6
15- Bfl, Bxc4 (Svarti er svo mik-
ið í mun að losna við riddarann
á c4, að hann eftirlætur hvíti
biskupaparið. Hann losar að
sjálfsögðu talsvert um stöðu
sína með þessum uppskiptum,
en varla svo mikið, að það rétt-
læti uppskiptin. Eðlilegri leikur
var 15. —, De6, sem hvítur
mundi svara með 16. b36 16.
Bxc4, Ra5 17. Ba6 (Hvítur getí
ur lítil not haft af biskupapar-
ínu. eins og sakir standa. bví pð
staðan er of lokuð. Einasti mögu-
leiki hn& til að opna stöðuna er
framrás á drottningarvængnum
og má segja að næstu tíu leikir
skákarinnar einkennist af þess-
ari viðleitni. Síðasti leikurinn
var lejkinn í því skyni að hindra
— Hac8.) 17. —, Re8 (Það er
vert að geta þess, að svartur
má ekld leika — c4 vegna 18.
De2 og c-peðið hlýtur að falla.
Hugmynd svarts með — Re8, er
að leika — Rd6 og fá þannig
þetra vald yfir c4-reitnum.) 18.
b3 (Flýtir sér að hindra — c4.)
18. —Dc7 19. Hbl, Rd6 20. Ba3
(Til að geta svarað 20. —, c4
með 21. Bxd6 ásamt 22. b4.) 20.
—, Dc6 (Hótar nú illilega 21 —,
21. ;—, b5 og tekur hvítur þann
kostinn að koma biskupi sínum
í örugga höfn ) 21. Bfl, Rdb7
(Vill vera viðbúinn því að geta
skipt upp á þungaliðinu, leiki
hvítur öðrum hvorum hróki sín-
um til dl.) 22. Rd2 ( — En hvít
ur hefur ekkert slíkt í huga.)
22- —, Rbd6 (Ella næði hvitur
fótfestu á c4 og d5) 23. Da2 (Nú
getur ekkert hindrað framrás
hvíta b-peðsins.) 23. —, Hac8
24. b4, Rab7 (24. —, cxb4 mundi
vera alvarleg yfirsjón. Svartur
má ekki við því að c-linan opn-
ist.) 25. b5 (25. Db3 lítur í fljótu
bragði betur út, en svartur get-
ur svarað því með 25. —, c4 á-
samt — a6 og síðar — b5 og
fær á þann hátt haldið stöðunni
lokaðri Það er mikilvægt fyrir
hvítani að hann hafi r sínu
valdi skálínuna a2—g8.) 25, —,
Dd7 26 Hbdl (Nú er hvítur þess
albúinn að leika Rc4 og svartur
verður að grípa til róttækra ráð-
stafana.) 26. —, De6?. (Til að
draga úr sívaxandi áreitni hvits,
afræður svartur að fara í drottn
ingarkaup, enda þótt hann verði
að taka á sig tvípeð fyrir vik-
ið. í rauninni er ekki hægt að
lasta þennan leik, því að hvít-
ur á afar erfitt með að notfæra
sér sundraða peðastöðu svarts )
27. Dxe6 (Aðrir leikir koma vart
til greina. Hörfi hvítur með
drottningu sína, nær hann
aldrei að koma riddara sínum
til c4, og reyni hann að bera
riddarann í milli (27. Rc4) svar-
ar svartur með — Ra5) 27. —,
fxe6 28. Rb3 (Nauðsynlegt til að
koma í veg fyrir — Ra5.) 28. —
c4 (Svartur vill ekki bíða þess,
að hvítur leiki sjálfur 29. c4 og
hefji síðan sókn eftir a-línunni
(30. Hal 31. a5 32. Bb2 o. s. frv.)
Leikurinn er þó nokkuð glæfra-
legur, vegna þess hve c-peðið
verður veikt. 29. Ral! (Riddar-
anum er ætlaður staður á c2,
þar sem hann getur gripið inn í
atburðarásina eftir ýmsum leið
um.) 29. —, Rf7 (Eftir 29. —,
Rc5 30. Bxc5. Hxc5 31. Rc2, Hcc8
32. Rb4 væri svartur illa á vegi
staddur.) 30. Hxd8+, Rfxd8 31-
Rc2, Bf8 32. Hdl, Hc7 (Ekki er
álitlegt að leyfa hvíta hróknum
að komast upp á sjöundu línu
og ekki gefst tækifæri til upp-
skipta á a3 vegna þess að c-peð-
ið stendur þá í uppnámi.) 33.
Rb4, Hc8! 34. Rc2 (Hvítur sér
nú, að hann fær' engu áorkað
með því að leika 34. Hd7 og tek-
ur þann kostinn að draga sig í
hlé, á meðan hnnn er. að undir-
búa sókn á öðrum vígstöðum.
Svartur mudi haía svarað 34.
Hd7 með — Rc5 35. Hxa7, Rxe4
o. s. frv.) 34. —, Hc7 35. h4 Eins
konar biðleikur til að sjá. hvern-
ig svartur hyggst haga tafl-
mennsku sinni.) 35. —, Kf7
(Hann tekur þann kostinn að
fæca kóngi;nn í áttina að mið-
borðinu.) 36: Bfl (Hvítur græðir
lítið á uppskiptum og reynir því
að koma biskupnum í gagnið
annars staðar.) 36. —, Ke8
(Kóngurinn er búinn að hreiðra
vel um sig á aðalátakasvæðinu,
en það er einn galli á gjöf Njarð-
ar. Kóngurinn er nú berskjald-
aðri fyrir árásum en áður og
það notfærir hvítur sér í þeim
átökum, sem nú fara í hönd.)
37. Re3 — Rc5!? (Svartur álítur
sókn beztu vörnina, en senni-
lega hefði hann lafað lengur
með því að leika 37. —, Rd6.
Hvítur mundi svara þeim leik
með 38 f3 og hefur þá ýmsar
leiðir tiltækar, svo sem Bh3,
Ba3, Rg4.) 38. Rxc4, Rf7 (Eða 38.
Rxe4 39. Rxe5, Rxc3 40. Hel Og
hvítur á unna stöðu.) 39. a5,
bxa5 40 Be3 (40. Rxa5 er óná-
kvæmt vegna — Rxe4 41. c4, Bc5
og svartur hefur góð, gagnsókn-
arfæri.) 40. —, a4 41. Hal, Rxe4
42- Hxa4, Rxc3 (Sennilega var
meiri vörn í 42. —, Rc5.) 43.
Ha6! (Nú á svartur um tvo kosti
að velja a) Gefa a-peðið. b)
Gefa e-peðið og g-peðið i skipt-
um fyrir b-peðið hvíta Hann
velur fyrri kostinn.) 43. —, Kd7
44. Bxa7, Rxb5 (?) (Leiðir beint
ti! taps, en staðan var alla vega
töpuð.) 45. Rb6t og svartur
gafst upp Aframhaldiö mundi
verða 45 —, Kc6 46 Ra8t og
svartur tapar minnst skipta
muni.
GuðlaiiSfur Eínarsson
J - . ‘1 v ■'
mAlfí. utningsstofa
í =reYÍoaötu 37 sími 19740
Byggingarsamvinnufélag Reykjavíkur
Aðalftindur STUÐLA H.F.
verður haldinn í Þjóðleikhúskjallaranum miðviku-
daginn 27. júní n.k. kl. 5 e.h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórn Stuðla h.f. j
*
LAUGARDALSVÖLLUR
Á morgun (mánudag) kl. 8,30 keppa
Fraiti — KR
Dómari: Haukur Óskarsson
Verður enn þá jafntefli
í kvöld (sunnudag kl. 8,30 keppa á
MELAVELLI
Víkingur — Hafnarfjörður
Dómari: Jörundur Þorsteinsson
FACiT
í júnímánuði verður skrifstofan og afgreiðslan að-
eins opin mánúdaga kl. 2—3 e.h.
Viðgerðaverkstæðið: Sig. H^fsteinn, Sólheimar 32,
sími 3-59-89, verður hinsvegar opið í júlí
FACIT — SKRIFSTOFUVÉLAR:
G. M. Björnsson, Skólavörðustíg 25
Reykjavík
Atvinnurekendur!
Vélvirki vanur beina- og síldarverksmiðjustjórn og
vélgæzlu við frystihús, óskar eftir atvinnu strax.
\
! Helzt úti á landi.
Upplýsingar í síma 47, Ólafsvík frá kl. 9 f.h. til
4 e.h. eftir 24. þ.m.
12
r í M I N N, sunnudagurinn 24. júní 1962.