Tíminn - 25.07.1962, Qupperneq 9

Tíminn - 25.07.1962, Qupperneq 9
PÉTUR JÓHANNSSON skipstjóri á Fiskaskaga JAKOB ÓLAFSSON skipstjóri á Sigurfara FRIÐRIK STEFÁNSSON skipstjóri á Hoffelii EINAR DANÍELSSON skipstjóri á Sigurbjörgu JÓAKIM PÁLSSON skipstjóri á Páli Pálssyni HEFUR TAPAZT MEIRA E AFLAZT HEFUR EYSTRA? Fimm skipstjórar lýsa ástandinu á Austurlandi Vegna móttöku- skiiyrðanna Jóakim Pálsson skipstjóri á Páli Pálssyni sefur vært, þegar við berj- um að dyrum hjá honum. Þrátt fyrir það tekur hann komumanni vel og innan stundar er farið að rabba saman. — Hefurðu orðið var við mikla síld? — Óhemjusíld, alveg óhemju- síld hér úti síðustu dagana. Mesta síld, sem ég hefi séð siðan ég fór að fara á síld, það er að segja hin síðari ár. En það er ósköp erfitt að ná henni fyrir straumi. — Finnst þér erfiðara að stunda síldveiðar fyrir Austurlandi en Norðurlandi? — Það er erfiðara vegna strauma, en annars er hérna mörg- um sinnum meiri síld. Sérstak- lega er erfitt að eiga við hana fyr-. ir straumum hér á grunnmiðunum. — Hvernig líka þér skilyrðin í landi? — Þau eru sáralítil, óhætt að segja. Það er vægast að segja að þau eru til háðungar fyrir alla, sem að þeim málum vinna hér. — Heldurðu að mikig tapist vegna aðstæðnanna? — Miklu meira en það' sem í land er komið. Það eru allir sárir yfir því, að liggja og bíða í marga sólarhringa til að geta losnað við þessar bröndur. — Hvað álítur þú að gera þurfi? — Sérstaklega byggja stærri verk smiðju á Seyðisfirði, eð'a á ein-1 hverjum öðrum firði, þar sem líka eru góð hafnarskilyrði. Hér á Aust- urlandi þurfa að vera mörgum sinnum meiri afsetningarmöguleik: ar. Alveg örugglega. Hún er stygg Skammt frá Páli Pálssyni ligg- ur Fiskaskagi frá Akranesi. Pétur Jóhannsson, skipstjóri er að vinna með mönnum sínum á þilfarinu. — Hveraig hefur þetta gengið Pétur? — Frekar lélega, við erum bún- ir að fá eitthvað 3400 mál. — Hefurðu haldið þig eystra allan tímann? — Allan tímann nema fyrstu vikuna. — Og hvernig líkar þér að vera á síld fyrir Austurlandi? — Ágætlega bara, svona eftir atvikum. — Hvaða atvikum? — Ef að gengi betur að ná henni, þá væri það alveg ágætt, og svo þyrfti ag vera betra að koma henni frá sér. — Er hún stygg? — Já, hún er stygg, og svo eru torfurnar yfirleitt þunnar. Það er ekki mikið í sumar af þessum miklu breiðum. Það er ekki allt sem sýnist. — Þú talar um að illt sé að koma henni frá sér! — Já það eru svona einn, tveir eða þrír dagar, nú eða þá fara til Siglu- fjarðar eða Vestmannaeyja, eins og sumir hafa gert. — Álítur þú ástandið í þessum málum mjög slæmt? — Já, það gæti áreiðanlega ver- ið betra. — Hefur stað'ið á síldarflutninga skipum? — Já. Nokkuð sem þú vildir segja að lokum? — Ekki nema helzt þá það, að við sjómennirnir vitum ekkert fyr- ir hvað við eram að vinna hér á síldinni. Við erum ósamnings- bundnir. Þetta er allt í gerðardómi. Þrátt fyrir allt vonumst við þó til að fá frítt fæði út úr þessu, þegar hann verður búinn að hand- fjatla það. „ÞaS er voðalegi, biess- aöur, aS feíða sólarhring- um saman eftir lönúun(( Um borð i S'gurbjörgu frá Kefla vík hittum við fyrir Einar Daníels- son, skipstjóra. — Þú bíður eftir löndun? — Já. — Búinn að bíða lengi? — Rúman sólarhring. — Hvenær færðu löndun? — Eftir um það bil 12 tíma héð- an í frá. fFramhald á 13 siðu, Augu hennar hafa öðlazt meiri dýpt og ljóma og sennilega hefur hún notað minni andlitsfarða og sparað við sig ilmsmyrslin, eftir að ilmurinn frá hennar eigin sál tók að færast í aukana og leita útrásar. Hér skal því ekki haldið fram, að öll ytri fegurðanneðul, og annað það, er til líkamslegs yndisauka má teljast, sé rangt: eða syndsamlegt. Síður en svo. j — En hafa konur gert sér nógu Ijóst, að öll varanleg ytri fegurð á rót sína í innri fegurð, og að fyrr eða síðar hlýtur þroskað- ur smekkur að taka einfaldleik- ann fram yfir pijálið, — að leið- in liggur til hins forna Grikk-1 lands? — Orðsporssýki og keppni. Andi nútímans er að ýmsu, leyti á villigötum. Má þar nefna : auglýsingaráráttu og orðspors-1 sýki, sem fer eins og farsótt yfir lönd. Þetta gengur svo langt. að jafnvel spilamennska er auglýst í \ blöðum og útvarpi og æð'i margir vilja vera mestir á einhverju sviði. Nú er það auðvitað ekki illt í sjálfu sér að vilja njóta sem bezt hæfileika sinna og láta sem mest að sér kveða á hverjum þeim vettvangi. er jákvæður get- ur talizt. — En ógöfugur sam- keppnisandi þarf ekki að koma þar við sögu og á raunar aldrei ‘ að eitra blóð manna. Menn eiga aðeins að gera sitt bezta, án til- lits til þess, hvort einhver annar gerír verr eða betur. Þetta á við á öllum sviðum, og eins þegar um er að ræða fegurð kvenna. Eðli- legt er það, að konur vilji líta ; vel út, en þegar aðaláherzlan er á það lögð að „taka sig út“ og skara fram úr kynsystrunum, þá er fegurðarþráin sjálf orðin ófög- ur og ekki vænleg til hamingju. — Kona, sem veit mjög mikið af fegurð sinni og heldur á henni sýningar, er í mínum augum ekki fögur, og „fegurð“ hennar, sem t gæti verið farvegur andlegrar blessunar, verður ekki annað en yfirborðsfyrirbrigði, fölsk ávísun á inneign, sem ekki er til. —J Sama er að segja um allt yfirlæti! og sjálfgleði. Maður getur til: dæmis talað fagurlega um hitt og I þetta, lesið vel ljóð, flutt greina- J góðan fyrirlestur og þar fram eftir götunum. En sé þetta gert með mikilli sjálfsánægju, þann- ig að áheyrandanum finnst, að sá, er framsegir orðin. sé sjálfur mjög heillaður af framsögu sinni. — þá missir jafnvel hin mesta list og leikni marks. Það er eins og einhver áhrifafarvegur lokist Orðin falla dauð og máttvana til jarðar. eins og visin hlöð af tré. Persónuleiki mannsins ryðst til valda, þar sem yfirpersónuleg öfl og ahrif eiga að ráða nkjum. Annars era karlmennirnir að' ýmsu leyti mjög sekir gagnvart kvenþjóðinni. Þeir ganga jafnvel svo langt að rækta, að því er virð ist með ráðnum hug, það, sem kalla mætti sýndarmennskp henn- ar og þokkasýki. — í sjáífu sér er það eðlilegt, að kona, sem verð ur þess vör. að karimenn hrósa ; henni helzt fyrir það, sem henni1 er að miklu leyti ósjálfrátt, ytri fegurð, taki að leggja höfuð- J áherzlu á útlit sitt, en vanræki þá ] fremur sinn innr! En þeg- ) ar konan hefur á þennan hátt látið blekkjast af heimskulegum fagurmælum karlmannanna og dýrkun þeirra á iíkama hennar, ættu þeir ekki að hneykslast á henni eða dæma hana hart, þótt hún hafi ekki alltaf vit fyrir sér —- og þeim! svinniarfðar kvenskemmdir. Á það var minnzt, að karl- mennirnir virtust af ráðnum huga rækta ýmiss konar veik- 'eika kveneðlisins. Á ég þar ekki 'ízt við fegurðarsamkeppnirnar t’eir. sem a* þeim standa. vilja íjá.lfsagt vel. sumir að minnsta kosti. En hafa þeir athugaí allar hliðar málsin= og hin dýpri rök. sem mæla mjög gegn bessurn sýningum á líkamsfegurð i kvenna? Kunnugt er það, að I fegurðardrottningum erlendis J farnast heldur illa, og liggja til i þess mjög skiljanleg rök. Lík-! amsfegurð þeirra er auglýst og J á allan hátt talin þeim til gildis ’ og vegsemdar, og er þá nokkur J freisting að notfæra sér það á ýmsan hátt, án þess að um lang- mið heilbrigðrar dómgreindar og forsjálni sé að ræða. Hætta er á yfirborðsmennsku og ofmati á ytri fegurð. Er þar að auki en þeir dómar, sem hér eru upp- kveðnir, oft harla vafasamir. Smekkur manna er misjafn og tízkuskoðanir hafa stundum áhrif á hann, jafnvel án þess að vitað sé af. Hér á Vesturlöndum fyrir skipar tízkan til dæmis, að kon- ur séu jafnvel heldur magrar. í Austurlöndum þykir það ekki fagurt. Fleira mætti nefna. En svo er annað: Það þarf ákaflega mikið tii. að kona verðskuldi að vera nefnd fögur kona, hvað þá fegurðardrottning", enda er það svo, að margar þær konur. sem bann titii hafa hlotið. geta ekki kallazt fagrar, — aðeins snotrar, ‘'ríðar, „laglegar“ eða eilthvað á bá lund, auk þess, sem sumar feg ustu konurnar taka ekki þátt i fegurðarsamkeppni. Þetta cr þvi íllt dálítið falskt. Sá. sem þe«sar líniir ritar. er ; ekki haldinn neimim fet>r:isVap. ■ sem kenna mætti við' hið marg i nefnda Viktoríutímabil, og sið- ferðilegt nöldur er honum ekki að skapi. En oft hefur hann satt að segja furðað sig á því, að kon ur skuli una jafnvel og þær virð ast gera hinni óhrjálegu dýrkun á líkama þeirra, sem margir karl menn gera sig seka um. Vissu- lega er fagur konulíkami aðdá- unarverður, en það á ekki að gera hann að sýningarvöru og í „Paradísarkjólnum" á konan ekki að sýna sig öðrum en þeim, sem hún hefur gefið sál s»na, — og líkama sinn um leið. Það er auðvitnð rétt að taka það fram, að það eru *I:ki r?-e.ins fegurðarsamkeppnirnav, se-m eiga þátt í því, sem hér hefur verið nefnt ,,kvenskemmdir“. — Blöð og bókmenntir eiga hár mikinn hlut að máli. Nektarmynd ir alls konar leiða athygli m*nr.a að kynferðismunirsum eg eiga sinn þátt í að rærta hina teV- mörkuðu kynhyggju, som hund- in er við vúm og rekkjuvoðir. — „Loft allt er lævi b!aTdið“ — lævi líkamshvata og kynóra Það kviknar í þeim. pr<n eldf'mir eru. Það þarf nokkurn st.yrk til að standast iWtlai í- róðu.r, oft isiueygiíe.gar. cx se’éj- aodi. og er hingsð að í*:.t» uokV HTTa afsaktor fyir Vte»4 þcirm marvta, er a-f kveastec-m-írrr’Jn fFram-ríW i 13. síðu) T í M I N N, ir.i5ívy;u\*g<iriun 25. jiílí 1962. 9

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.