Tíminn - 10.08.1962, Page 3

Tíminn - 10.08.1962, Page 3
Gífurlegir skcgareldar NTB— Drauignan, 9. áigúst. Gífurlegir skógareldar hafa enn einu sinni brot- izt út í Suður-Frakklandi, og þrátt fyrir stanzlausa baráttu hundraða manna v«ð eldinn, hefur enn ekki tekizt að hefta útbreiðslu hans. Eldamir geysa í nánd við fr&nskn Rivieruna, hjá St. Maxime og St. Raphael, en það svæði er mjög skógi vaxið. Um 1200 slökkviliðsmenn og hermenn vinna baki brotnu við slökkvistörf, og um tfma í dag leit út fyrir, ag þeim hefði tekizt að ná tökum á eldinum og koma í veg fyrir útbreiðslu hans. En þá brugðust veðurguðimir, því skyndilegur vindur hleypti nýju fjöri í eldinn, sem læsti sig í ný Kosninga- baráttan að hefjast í Alsír NTB — Algeirsborg, 9. ágúst. Bráðabirgastjórnarnefndin í Al- geirsborg skýrði frá því í dag, að kosningabaráttan f Alsír myndi hefjast næstkomandi miðvikudag og standa fram til 30. ágúst, en al- mennar þingkosningar hafa verið ákveðnar þann 2. scptember og verða þá kosnir 196 þingmenn til fyrsta löggjafarþings Alsír. Búizt er við, að sex milljónir manna muni taka þátt í kosning- unum. Samkvæmt Evian-sáttmálanum eiga 16 þingfulltrúar að vera Evrópumenn.' Fyrsta verkefni nýkjörins þings verður að semja stjóraarskrá fyrir landið og takist það ekki innan árs verða nýjar kosningar fram að fara, skv. Evian-sáttmálanum. skógarflæmi, og ekki varð v neitt ráðið. Eldurinn barst mjög hratt yfir og stefndi á Le Muy. Sem dæmi um, hve magnaður eldurinn var, má nefna, að banda- riskir kvikmyndatökumenn, sem voru x grennd vig le Muyn við kvikmyndatöku, urðu í skyndingu að taka saman föggur sínar og hlaupa allt hvað af tók i burtu. Sögðu sjónarvottar, að ekki hefði mátt tæpara standa, og vel hefði þarna getað orðið stórslys. Eldarnir brutust. fyrst út á mið- vikudaginn, og hefur þegar eyði- lagt stór skógarflæmi. Ferðafólk, sem hafði komið sér fyrir í tjaldbúðum á þessum slóð- um, urðu að taka upp tjöld sín í skyndingu og flýja. FAGNA SEGRI Myndtn hér tll hliðar er lítið sýn- ishorn af hinum frábæru og eln stæðu móttökum, sem Ben Bella fékk h|á samlöndum sínum, er hann gerðl Innrelð sfna til Algelrs borgar ásamt stjórnarnefnd slnni nú fyrlr skömmu, eftir að lýst hafðl verið yfir slgri hans f valda baráttunni við Ben Khedda. Valdi beitt til að sameina Kongó? Brezka stjórnin andvíg beitingu efnahagslegrar þvingunar NTB Brussel, 9. ágúst. Varautanríkisráðherra Belgíu, Bendrik Fayat, sagði í öld- ungadeild belgíska þingsins í dag, að belgíska stjórnin hafi farið þess á leit við Adoula, forsætisráðherra sambands- stjórnarinnar í Leopoldvillc, að hann hætti refsiaðgerðum gegn Katanga. Fayat var að því spurður, hvort fótur væri fyrir blaðafregn um þess efnis,. að Belgía hefði ákveðið að taka þátt í framkvæmd bandarískrar fyrirætlunar, sem miðaði að því að beita Katanga hervaldi til að knýja fram sam- einingu alls Kongó Fayat sagðist ekki geta skýrt frá einstökum atriðum í áætlun, sem enn væri á frumstigi, en svo mikið gæti hann sagt, að Belgar hefðu ekki samþykkt neitt enn þá. AFP-fréttastofan hefur þær fréttir frá Lundúnum, að brezka stjórnin hafi enn látið í Ijós and- stöðu sína gegn því, ag Katanga verði beitt efnahagslegum þving- unum. Seadur heim meS hraði NTB — Lundúnum, 9. ágúst. Bandaríski nazistaleiðtoginn, Lincoln Rockwell, sem fannst í gærkveldi eftir ákafa leit brezku lögreglunar, var í dag fluttur með flugvél frá Lundúnum til Boston, en brezka innanríkisráðuneytið hafði nokkru áður gefið út skipun um brottvísun Rockwells úr landi, þar sem hann hafði komist til Bretlanns á ólöglegan hátt. Leynilögreglumenn fylgdu naz- istaforingjanum alveg inn í flug- vélina, en áður en Rockweli hvarf inn í flugvélina rétti hann upp hendina og kvaddi áhorfendur á nazistavísu. Skömmu eftii brottför Rock- wells gaf brezki nazistaleiðtoginn Colin Jordan úl tilkynningu, þar sem segir. að nazistasamtökin í landinu séu eftir sem áður ákveðin í ag halda alþjóðlegt leyniþing nazista, einhvers staðar á góðum stað í Bretlandi 15. eða 16. ágúst. Fyrirskipa handtöku Bidault NTB — París, 9. ágúst. Frá því var skýrt í París í dag, að gefin liefði verið út skipun um handtöku George Bidault, fyrr- verandi forsætisráðherra Frakka, en hann var fyrir skömmu sviptur þinghelgi fyrir þátttöku sína í OAS-samtökunum, og fer hann nú huldu höfði. Eins og kunnugt er, hafð'i Salan, OAS-foringi sent frá sér bréf úr fangelsinu í París, þar sem hann t útnefndi Bidault sinn innan OAS sem eftirmann SAMSÆRI AFHJÚPAB NTB — Reiife, 9. ágúst. Lögreglan í Recife hefur afhjúp- að undirróðurshreyfingu meðal bænda í Norð-Austur-Brasilíu og hafa a.m.k. 17 menn verið teknir tii fanga fyrir þátttöku í samtök- unum, sem talið er að Castró, ein- valdur Kúbu standi fyrir. Samningur Hellas og EBE 24. ágúst NTB— Brussel, 9. ágúst. f tílkynningu frá ráð- herranefnd. EBE, sem birt var opinberloga í Brussel í dag segir, ,að samningur Hellas og Efnahagsbanda- lagsins verði undirritaðir þann 24. ágúst, en samning- u.rinn kom til framkvæmda þann 1. nóvember. Hvirfilvindur í Japan v i N8TB— Tokio, 9. ágúst. Tveir mc,nn fórust og níu særðust og ntörg þúsund manna urðu heimilislaus'ir, er ægi'legur hvirfilvindur, sem áður hafði valdið bú- sifjum á Formósu, gekk yfir J.apan í dag. Jámbrautar- línur eyðilögðust á 13 stöð'- um og 840 hús skemmdust verulega í flóðum, sem fylgdu í kjölfar óveðursins. Skotinn til bana NTB— Tel Aviv, 9. ágúst. ísraelskir landamæraverð ir skutu í dag nokkrum skotum á hóip mattna, sem fóru yfir Iandantærin hjá Gaza. Einn ntaður fél'I í skot- liríðinni, og við rannsókn kom i ljós, ag hann hafði meðferðis 11.000 egypsk pund, sem álitið er ,að nota hafi átt til undirróðurs- starfsemi í Jórdaníu . TÍMINN, föstudaginn 10. ágúst 1962 3

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.