Tíminn - 10.08.1962, Page 7

Tíminn - 10.08.1962, Page 7
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri Tómas Arnason Ritstjórar Þórarinn Þórarinsson (ábi Andrés Knstjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar Tómas Karlsson Auglýs- ingastjóri- Sigurjón Daviðsson Ritstjórnarskrifstofur i Eddu húsinu: afgreiðsia. auglýsingar o? aðrar skrilstofur i Banka- stræti 7 Simar 18B00 18305 Auglýsingasími 10523 Af- greiðslusími 12323 - Asknftargjald kr 55 á manuði innan. lands. í lausasölu kr 3 eintakið. — Prentsmiðjan Edda h.f. — Afglapaverkið, mikla ÞaS er nú orðin staðreynd, sem ekki dylst neinum, að gengislækkunin, sem gerð var í fyrrasumar, er mesta fjárhágslegt afglapaverk, sem unnið hefur verið hér á landi. Engin efnahagsleg rök mæltu með þessari gengislækk- un. Hún var óþörf vegna atvinnuveganna. Þeir gátu auð- veldlega risið undir hinni hóglegu kauphækkun, er þá var samið um. Afkoma atvinnufyrirtækja á s.l. ári, er örugg sönnun um það. Sá dilkur, sem þessi gengislækkun hefur hinsvegar dregið á eftir sér, er orðin ófagur. Verðbólgan hefur magnast stórkostlega. Meiri og meiri glundroði hefur skapazt í launamál. Stórkostlega hefur verið skert geta efnalítils fólks til framkvæmda og með því dregið úr hinu almenna framtaki. Alveg sérstaklega bitnar þetta þó á unga fólkinu. Þess vegna er erfitt að hugsa sér öllu verra fjárhags- legt afglapaverk og gengislækkunina í fyrra var. Hvers vegna var þetta afglapaverk unnið? Til þess lágu tvær meginástáeður. í fyrsta lagi var þetta hefndaraðgerð ráðvilltrar ríkisstjórnar, er hafði beðið ósigur fyrir réttlátum kjarabótakröfum almenn- ings. Ríkisstjórnin taldi sig þess vegna þurfa að sýna mátt sinn á einhvern hátt og þá helzt þannig, að það væri líklegt til að skjóta almenningi skelk í bringu. í öðru lagi stafafSi þetta af þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar og hagfræðinga hennar að halda verði hinni almennu kaupgetu niðri, svo að hér geti risið upp stórfyrirtæki og stórkapitalistar. Það er í samræmi við þetta síðarnefnda, sem ríkis- stjórnin og hagfræðingar hennar hafa látið spr vel líka þær miklu framleiðslustöðvanir, er orðið hafa á þessu ári, og horfa nú á það skelfdum augum, að góðærið við sjávarsíðuna kunni að auka þjóðartekjurnar svo mikið, að ekki verði spornað gegn aukinni kaupgetu almennings. Þess vegna eru stjórnarhagfræðingarnir nú farnir að ákalla ráðstafanir til að draga ún eftirspurninni, þ.e. kaupgetunni. Enn dreymir því ríkisstjórnina og hagfræðinga henn- ar um svipað afglapaverk og gengislækkunina í fyrra. Aðein ein torfæra er í veginum. Það er efling Framsókn- arflokksins i bæjar- ,og sveitarstjórnarkosningunum í vor og þingkosningarnar á næsta sumri. En af þessu geta menn vel ályktað, hvað bíður fram- undan eftir næstu þingkosningar, ef stjórnarflokkarnir halda meirihlutanum. Mbl. og Nato Mbl. segir, að Tíminn brjóti gegn anda og tilgangi Atlantshafsbandalagsins með því að leyfa birtingu skoð- unum, sem blaðið er sjálft ekki sammála. Þetta er mikill rógur um Atlantshafsbandalagið. Meg- inverkefni þess er að standa vörð um lýðfrelsi og skoð- anafrelsi. Stefna þess er í anda franska rithöfundarins, er komst að orði eitthvað á þessa leið: Eg er þér inni- lega ósammála, en ég er reiðubúinn til að láta lífið í bar- áttunni fyrir því. að þú fáir að segja það. Ritstjórar Mbl. virðast hinsvegar hugsa á þessa leið: Eg er þér innilega ósammála og ég er reiðubúinn til að láta lífið í baráttunni fyrir því, að þú fáir ekki að segja það. Sem betur fer, er það andi hins franska rithöfundar en ekki ritstjóra Mbl. er markar stefnu Atlantshafsbanda- lagsins. Walfer Lippmann ritar um alþiéðamál:mmnmmmm*■ Ráöstafanir til að auka þjóðar- framleiðsluna skipta mestu Kennedy verður aö sannfæra þjóð sína um nauðsyn slíkra aðgerða EG HYGG, að repúblikanar hafi rétt fyrir sér þegar þeir segja, að vandi forestans gagn- vart þinginu sé, hvernig honum eigi að takast að fá hinn demó- kratíska meirihluta beggja þing deilda til þess að snúast á sveif með stefnu hans í. innanlands- málunum. Vandinn verður enn hinn sami, þó að demókrötum heppnist að halda þingmanna- tölu sinni í nóvember og jafn- vel þó að þeim takist að vinna fimm til tíu þingsæti frá repú- blikönum. Andstaðan í þinginu ,nær til nálega þriðjungs demó- krata og svo að segja allra re- púbiikana. Ég fæ ekki skilið, að hægt sé að efast um að þessi andstaða hvíli á alltraustum. skoðanalegum grunni meðai kjósendanna. ÉG BÝST ekki við að neinn viti, hvað það í raun og veru er, sem skiptir kjósendum í tvær fylkingar, þ. e. þá, sem óska eftir endurbótum og ný- breytni annars vegar og hins vegar hinna. sem ekki vilja auk in útgjöld ríkisins eða ríkis- ” frámkvæmdir. Að minni hyggju nær andstaðan til um helmings kjósenda. Ég trúi, að það sé óskráð grundvallarregla hjá okkur, að mikilvægar umbæl- ur og nýbreytni nái ekki fram að ganga nema a. m. k. tveir þriðju hlutar kjósendanna séu þeim fylgjandi. Það er svo hin mikla spurn- ing, hvers vegna svo stór hluti kjósenda sé orðinn íhaldssam- ur- samkvæmt þeirri merkingu, sem Goldwater öldungadeildar- þingmaður leggur í það orð. Að mínu viti eru meginástæðurn- ar efnislegs eðlis, en stafa ekki frá háfleygum hugsjónum. ANDSTAÐA gegn stjórn get- ur orðið ærið beizk og á meg- inrætur að rekja til andúðar á sköttum, einkum hinum sýni- legu, beinu sköttum, sem lagð- ir eru á til þess að greiða mikil hernaðarútgjöld og standa straum af félagslegum umbót- um og framfaraáætlunum rík- isstjórnar og fylkisstjóra. Skatt bitið veldur andstöðu vegna þess, að undan því svíður, og vegna þess, að við höfum í allmörg ár orðið að kosta víg- búnað, umbætur og framfarir af vanefnum grózkulítils efna- hagslífs. Sviðinn kemur fram í KENNEDY því, að öllum fjölda manna finnst stjórn — og alveg sér- staklega stjórnin í Washing- ton — vera eins konar fram- andi óvinur, sem þurfi að lækka rostann í. Óánægjan með skattbitið magnast við svikin, spilling- una og óréttlætið, sem fylgir meðferð mjög hárra ríkisút- gjalda, — verksamningum vegna herkostnaðar, styrkjum vegna landbúnaðarvara, birgða söfnun, atvinnuleysisstyrkjum, ýmis konar opinberri aðstoð, o. s. frv. Hneykslin eru að vísu einkum á útjöðrum hinnar op- inberu stjórnar, en þó gerast nægilega mörg smá eða stór hneyksli í nálega hverri borg og þorpi til þess að styrkja þá skoðun, að stjórnin sé ekki ein- ungis óvinur, heldur hafi hún spillandi áhrif á siðferði borg- aranna. ÞETTA eru meginstoðirnar undir andúð á mikilli stjórn og háum ríkisútgjöldum. Það er mín skoðun, að þessa andúð sé ekki hægt að kveða í kútinn með því að reyna að afla sér at- kvæða þeirra, sem njóta góðs af velferðarmálum eins og sjúkratryggingum. Slík ofurá- herzla á velferðarmál gerir ekki annað en villa um og leyna réttum orsökum þess, að Kenn edy var kjörinn. Sjúkratrygg- ingar eru til dæmis mjög æski- legar. En samt á ekki að gera þær að úrslitaatriði, sem örlög stjórnarinnar velti á. Það, sem úrslitum réði í átökunum 1960 milli demókrata og Eisenhow- ers forseta, var sú skoðun, að styrkja þyrfti aðstöðu Banda- ríkjanna í heiminum og auka á- hrif þeirra. en til þess að það auðnaðist yrði fyrst að hressa fj upp á efnahagslífið innanlands. fi Meginmarkmið Kennedy-stjórn 1 arinnar var að gera ríkið sterk- 0 ara í stríði og friði og leiðin S að auknum styrk var að breyta kýrrstæðu efnahagslífi í fjör- ugt efnahagslíf. FORSETINN játaði nýlega á blaðamannafundi, að stjórn hans hefði „ekki getað lagt fram fjárhagsformúlu“, sem yki vaxtarhraða efnahagslífs- ins. Og hvers vegna ekki? Ekki vegna þess, að formúlan sé ó- finnanleg. Nokkrum gerðum af henni hefur þegar verið beitt með ágætum árangri í Vestur- Evrópu. Formúlan hefur ekki fundizt vegna þess. að til þess þarf aðgerðir, sem hin íhalds- sama stjórnarandstaða leggst eindregið gegn Með þessum hætti verður það. að hægfara efnahagslíf. sem mikil útgjöld til vígbúnáðar. umbóta og fram fara þjaka, veldur íhaldssöm- um anda meðal þjóðarinnar. — Hinn íhaldssami andi hindrar aftur stjórnina í að koma við aðgerðum, sem vinni bug á hægagangj efnahagslífsins. Sú staðreynd, að okkur fer ekki fram, eykur á viljann til þess að standa í stað Forsetinn á aðeins eina færa leið til þess að fá þingið til að heimila þær aðgerðir, sem örva efnahagslífið. Það er með því að snúa sér til almennings og sannfæra mikinn hluta , hans um, að í efldu og gróandi efna- hagslífi felist bezta og eina vonin um að geta borið erfiðis- laust nauðsynlegar byrðar víg- búnaðarins og óhjákvæmilega byrði þess að halda fimm daga vinnuviku með þeim hætti, að breytt þjóðfélag njóti hennar vel. Héraðsmót í Ásbyrgi samkomugestum til sóma Sunnudaginn 29. júlí hélt Ung- mennasamband Norður-Þingeyinga héraðsmót í Ásbyrgi. Veður var hið ákjósanlegasta og Byrgið í sínum fegursta, skrúða. Síðari hluta laugardagsins fór fólk að tinast að og velja sér tjaldstæði. Talið er, að hátt á annað þúsund manns hafi heimsótt staðinn þessa helgi. Samkoman hófst með guðsþjón- ustu, séra Örn Friðriksson, Skútu- stöðum prédikaði en söngfólk úr kirkjukórum héraðsins söng undir stjórn Bjargar Björnsdóttur. Björn Ifaraldsson flutti ræðu, Rósberg G. Snædal rithöfundur las kvæði og flutti gamanþátt. Karlakór Mý- vetninga söng undir stjórn Arnar Friðrikssonar. Þá sýndi Jón Ei- ríksson, Fagranesi, bjargsig, en hann er þaulæfður sigmaður þjálf- aður í Drangeyjarbjörgum. Keppt var í íþróttum og dans stiginn á palli fram eftir nóttu bæði kvöld- in. Hljómsveit Friðriks Jónsson- ar, Helgastöðum spilaði. Samkom- an fór vel fram, enda var áfengis ekki neytt þar, svo að það setti sinn svip á mótið. Samkomustjóri var Þórarinn Haraldsson. Hér hefur verið köld tíð í sum- ar, köl í túnum og léleg spretta. Síðustu dagana í júlí kóm eindæma góð þurrkavika. í þessum þurrka- kafla náðu margir bændur fyrri slætti með góðri verkun, eo vegna þess hvað heyimeru litil Kaf» menn horið meira á mílli slátta. er venja er, þó langt sé liðið á sumar. Verð- ur hér sem oftar gifta að ráða hvort úr bætist. Þórarinn Haraldsson. TÍMINN, föstudaginn 10. ðgúst 1962 %

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.