Tíminn - 10.08.1962, Blaðsíða 8
iííii
.......
J
...............................................i
ÖWÍW''
•ifíWr ^ ,v*v v'',,>v/v-:,v‘v«’iV/':V<'
TIMINN, föstudaginu 10. ágjíst 1962
StaldraS viS
kvöldstund á
Þórshöfn
Þar
sem
Starfsfólk frystihúss, síldar- og flskimjölsverksmiSju. Verkstjórlnn, Árni Árnason, er annar frá hægri í annarri röð.
Ijalirnar segja sögu
Það er tekið að síga á
seinni hluta laugardagsins
28. júní, þegar við komum
til Þórshafnar. Þetta hefur
verið himneskur dagur,
blíðalogn og sól.skin. Þeg-
ar hér er komið sögu er
sólins hins vegar farin að
lækka á lofti og kastar rauð
um bjarma á hafflötinn. í
kvöld ætlar unga fólkið að
dansa í Ásbyrgi. Við höfum
mætt mörgum bílum þétt-
setnum ungum Þórshafnar-
búum, sem stefndu áleiðis
til Ásbyrgis, ætluðu að una
þar eina nótt, ef ekki tvær,
æskuglaðir í þessu fagra
hóffari Sleipnis.
Það er fagurt við Þistilfjörð,
og Þórshöfn er orðin myndar-
legt kauptún, og sérstaklega
hlýtur það að vekja athygli
ferðamanns, sem komið hefur
til Þórshafnar fyrir nokkrum
árum og kemur þangað aftur
nú, hvílfkur reginmunur er á
útliti húsa nú eða var þá. Fyr-
ir tíu árum var hægt með
sönnu að segja, að kofarnir
römbuðu þar einn og eirin, út-
lit húsa bar ekki vott um neinn
sérstakan fegurðarþorsta, trjá-
garðar við hús svo til óþekkt
fyrirbrigði. Þórshöfn árið 1962
er harla ólík því, sem var árið
1952, Nú eru kofarnir horfnir
margir hverjir, hús orðin vand-
lega máluð, lóðir vel hirtar og
snotrir garðar farnir að 'Skjóta
upp kollinum. Þórshöfn dags-
ins í dag hlýtur að fá þau um-
mæli komumanns, að hún sé
snoturt og hreinlegt kauptún.
Við höfum hafnað heimá á
heimili Gísla R. Péturssonar,
kaupfélagsstjóra og konu hans
Védísar Kristjánsdóttur. Öll
heimili hafa sín sérkenni, fólg-
in í hinum ólíklegustu afbrigð-
um. Ætli mætti ekki telja
þessu heimili það til sérkenna,
að hér býr yngsti kaupfélags-
stjóri landsins 24 ára gamall
með konu sinni, sem auk þess
að vera eiginkona og móðir,
er dux úr Samvinnuskólanum
árið 1961.
— Um Gísla R. Pétursson
er það annars að segja, að
hann er Reykvíkingur í húð
og hár, og fæddur á Bergþóm-
götunni. Fékk í Reykjavík sína
barndómsfræðslu, eins og lög
gera ráð fyrir, sat tvo vetur í
Lindargötu'Skólanum en inn-
ritaðist síðan í Verzlunarskól-
ann og stundaði þar nám til
vorsins 1956, að hann lauk það-
an verzlunarprófi. Sama ár
gerðist Gísli starfsmaður við
sjávarafurðadeild S.Í.S. og
gegndj því starfi til haustsins
1958, að hann hélt vestur um
haf á vegum Sambandsins.
Starfaði hann þar á vegum
þess til jafnlengdar 1959, að
hann hóf aftur störf hjá sjáv-
arafurðadeild S-Í.S. hér heima.
Er svo skemmst frá því að
segja að hann réðist kaup-
félagsstjóri til Kaupfélags
Langnesinga á Þórshöfn frá og
með 15. maí 1961 að telja, þá
23 ára gamall.
Þetta em nú höfuðþættirnir
í lífssögu Gísla, og má segja
að ferill hans sanni fullkom-
lega það traust, sem íslenzku
samvinnusamtökin jafnan hafa
sýnt ungum mönnum. Hætta
er á, að bændum undir grænnj
torfu hefði þótt hann ungur
„factorinn hjá Þórshafnar-
höndluninni‘‘, en þrátt fyrir
æsku er það hvergi að sjá, né
heyra að Gísla R. Pétursson
skotri æviár til að geta setið
stól sinn.
En heyrum nú tivað titt-
nefndur Gísli hefur að segja:
— Segðu mér Gísli, hvernig
kann Reykvíkingurinn í þér við
sig hér norður við Langanes?
— Alveg prýðilega. Ég uni
mér alveg sérstaklega vel
hérna.
■ — Þótt hér séu hvorki Breið-
stræti New Yorkborgar eða
rúnturinn í Reykjavík?
— Það eru aukaatriði.
— Og hvernig þreyir maður
þá helzt veturinn hér?
— O, maður hefur nú bara
drepið flestar stundir með
vinnu. Annars er það mesti
misskilningur að það sé eitt-
hvað leiðinlegra úti á landi en
í Reykjavík. Mesti misskiln-
ingur.
— Hvað er helzt tíðinda hér
á Þórshöfn?
— Ja, ætli við byrjum ekki
á atvinnumálunum, ætli þau
séu ekki rétt undirstaða mann-
lífsins hér, eins og annars
staðar?
— Og hvað er helzt fregna
af þeim?
— Það má telja til tíðinda,
að á síðastliðnum vetri var
stofnað hér Fiskiðjusamlag
Þórshafnar h/f. Þessi félags-
skapur tók á leigu frystihús
kaupfélagsins og hefur með
að gera alla fiskverzlun hér á
Trlllu- og þilbátaflotinn við bryggju á Þórshöfn.