Tíminn - 10.08.1962, Síða 13
Kvöldstund á Þórshöfn
Framhald á bls. 13.
hér miklar náttúruhamfarir í
fyrra haust?
— Já, það er rétt. Við urð-
um fyrir miklu fjártjóni hér í
nóvember í fyrra, þegar sjór
flæddi hér langt upp á land og
flóðaldan braut niður hluta af
hafnargarðinum.
— Er búið að gera við
skemmdirnar, sem urðu á
hafnargarðinum?
— Nei, það er ætlunin að
gera það ekki fyrr en næsta ár,
en þá er ætlunin að lengja
og ljúka endanlega byggingu
garðsins. Allar viðgerðir á
garðinum eru látnar bíða þang-
að til.
— Hvernig var það, slapp
Kaupfélagið alveg?
— Nei, skemmdirnar komu
líka tö.luvert niður á því, sjór-
inn flæddi í allar geymslur.
En eiginlega fórum við þó bet-
ur út úr þessu, en annars
hefði mátt ætla, því 5 klukku-
stundum áður en flóðið skall
yfir, fluttum við allar jólavör-
urnar á óhultan stað. '
— Hvað heldurðu að tjónið
hafi numið ykkur miklu?
— Ætli það hafi ekki orðið
einar 270 þús.undir.
Fiskigegndin eykst —
aflinn kallar á stærra
frystihús
— Jæja Gisli, mörg framtíð-
aráform á prjónunum?
— Bezt að vera fáorður um
allt, sem varðar ókomna daga,
en eitt skal ég segja þér, og
það er, að fiskimagn, sem berst
hér að landi, eykst með hverju
árinu, sem líður, en aðstaða í
landi ekki að sama skapi. Frysti
húsið ræður ekki við aflann,
það er alltof lítið. Það annar
ekki nema 20 tunnum áf
slægðum fiski til úrvinnslu,
miðað við 10 stunda vinnudag.
— Hvað aflast hér mest?
— Það hefur farið upp í 50
tonn á dag, hæst.
— Það virðist þá margt ó-
unnið starfið eftir í landi?
— Já, framtíðarverkefni Fisk
iðjusamlagsins er, að byggja
framtíðarfiskiðjuVer. Búið er
að kaupa lóð milli bryggju og
hafnargarðs, og þar er þessi
bygging fyrirhuguð. Fyrirhug-
að er að reyna að byrja á
næsta ári, og er ætlunin að
byrja á byggingu fiskmóttöku-
og saltfiskhúss. Það er í raun-
inni alveg lífsspursmál, að
verði hægt að byggja þetta á
næsta ári.
Mjólkursamlag næsta
skrefiS í málum
bændanna
— Hvað um hag baéndanna
á þessu kaupfélagssvæði?
— Afkoman er léleg. Hér
um slóðir er aðallega rekinn
sauðfjárbúskapur. al.ls ekkert
sem heita má u.m blönduð bú
— Er -^nunum.
sem bætt geti haginn?
— Já, stærsta n >!' er n'
það, að fyrirhugað er að
hefja byggingu mjólkursam-
lags, og er verið að teikna það
og skipttleggja þessa s'undina
Ástæðurnar fyrir byggingu
mjólkurbúsins eru etnkum oe
sér í lagi tvær. Önnur er sú
að eins og sakir standa. búum
við hér á Þórshöfn við mjólk
urskort. Bændur geta hins
vegar ekki bætt mjólkurfram
leiðsluna, nema með því skil-
yrði að hægt verðj að taka alla
mjólkina. Því getum við hins
vegar ekki lofað nema við get-
um unnið það af mjólkinni.
sem ekki fer til neyzlu. Önnur
ástæðan, og sú, sem ekki er
léttari á vogarskálinni er sú.
að við sjáum að þetta verður
til stórra. hagsbóta fyrir bænd-
urna.
Á lofti, á láði og legi
— Hvað um samgöngur við
umheiminn?
— Þær má telja mjög góðar.
Yfir sumarið eru tvær flug-
ferðir í viku, en ein yfir vet-
urinn. Nú yfir suLmarið eru
tvær vöruflutningaferðir viku-
lega úr Reykjavík og tvær
fólksferðir frá Akureyri.
— En svo breytist þetta yfir
veturinn?
— Já, þá er bara ein ferð í
viku og svo strandferðirnar.
Að loknum kvöldverði verð-
ur okkur Gísla gengið út í
góða veðrið og kvöldsólina, og
þá er það sem ég kemst að
því, að þessi ungi maður hugs-
ar um fleira en sín daglegu
störf. ,,Ég skal segja þér, að
uppi á lofti hjá okkur í kaup-
félaginu er heill hlaði af göml-
um verzlunarbókum og skjöl-
um, sem ég bjargaði af loft-
inu niður í gömlu búð. Þær
eru orðnar æði gamlar snmar,“
verður Gísla að orði. — Þetta
vekur einhverja forvitni í
brjósti þess, er þetta ritar, og
það verður úr að við göngum
upp á kau.pfélagsloft. Og mikið
rétt, hér er heljarmikiLl stafli
af gömlum verzlunarbókum og
skjölum. Hér í þessum bókum
er mikil saga geymd ,ekki ein-
ungis saga verzlunarinnar, held
ur líka einstaklinganna, sjálfra
viðskiptavinanna. „'Mér finnst
ég vera farinn að kynnast
sumum þeirra,“ segir Gísli,
„það er alveg ótrúlegt hvað
bækurnar segja mjkið, þó þær
séu ekki margorðar." Þarna
eru bréfasöfn til verzlananna,
og aftur copiubækur þeirra.
Þarna eru bréf frá skörungnum
Arnljóti presti á Sauðanesi. Á
einum stað biður hann Örum
& Wulfs-verzlun að greiða
„skyttunni Halli Guðmundssyni
15 krónur — krónur fimmtán
fyrir hönd Sauðaneshrepps út
úr hans reikningi." Þannig er
saga sú, er verzlunarbækurn-
ar segja. 15. október 1892 hef-
ur Jón Sveinsson tekið út í
reikning sinn „eitt tvinnakefli,
hvítt og hálft pund hvítasyk-
ur.“ „Ég ætla að láta skrá
þetta, og senda það síðan Þjóð-
skjalasafninu", segir Gísli, og
bætir svo við: „Það er full á-
stæða fyrir Þjóðskjalasafnið
að gera út leiðangur og kembá
þessa staði, því eins og við sjá-
um, þá er þetta liggjandi hist
og her. Og almenningur gerir
sér bara ekki grein fyrir því,
hvað þetta er.“
„Verzlunarástandið mótað
í aldargamlar gólffjalir"
— Þá eru sendibréfin í
=kjal.apökkunum ekki síður
girnileg til fróðleiks. Þau lýsa
vel mönnunum, sem þau hafa
ritað. efnahag þeirra, eiginleik-
um og ástæðum. Sum eru hrein
og bein, en önnur full af auð-
mýkt og ótta við kaupmann-
inn.
— Þú ættir að koma og sjá
gólffjalirnar í gömlu búðinni
Fyrir framan factorsdyrnar er
dæld í gólfið. Það hafa sagt
mér gamlir menn að þar hafi
þeir. sem lítið áttu undir sér,
nft tvístigið. nuddandi hend-
urnar. áður en þeir lögðu í að
knvja á dyr faktorsins.“ segir
Gísli
Það verður úr að við löbbum
ofan i Gömlubúð Og þetta
r^ynist engin skreytnj. Gamla
búðargólfið er úr þvkkum borð
um, en í dældinni fyrir framan
factorsdyrnar or búið að ganga
niður úr fjölunum, Það leynir
sér ekki, að hér hefur verið
háð stríð, — sálarstríð. Kannski
skilur maður aldrei betur, en
einmitt við slíka sýn, hvernig
á því stóð, að fólkið myndaði
sínar eigin verzlanir — kaup-
félögin.
Tíminn er fljótur að líða, á
þessu unga og geðþekka heim-
ili og er víst orðinn langt geng-
in í þrjú, þegar bíllinn renn-
ur úr hlaði. Á leiðinni upp á
Axarfjarðarheiðina er Frakka-
gil á vinstri hönd. Þar segir
sagan að Þistilfirðingar hafi
endur fyrir löngu hengt í hömr
um í gilinu, fingralanga Fland-
ernmenn, sem höfðu gerzt nær-
göngulir við búfénað þeirra.
Ekki veit ég sönnur á þessu,
en sé það sannleikanum sam-
kvæmt, mun sú óvægilega land-
vörn að öllum líkindum vera
eins dæmi f íslandssögunni.
i KI'
Rætt vlö frú Dóru
Framhald at 9 síðu
ar og ritstarfa var mér samt veitt
prófessorsstaða við New York há-
skóla.
Já, það er dásamlegt að koma
og finna ættingja sína á íslandi og
sjá hvað Reykjavík hefur vaxið og
fríkkað í hvert sinn og.ég kem.
Mér virðast heimili á íslandi fal-
leg og samheldni rík innan fjöl-
skyldna. Það eru þættir í þjóðlíf-
inú, sem vert er að rækta af alúð-
Frú Dora Lewis er glæsileg kona
í sjón og starfsferill hennar ber
gáfupi hennar og dugnaði órækt
vitni. Hefði verið gaman að hafa
meira næði til að spjalla við hana,
en fáeinir dagar líða fljótt, þegar
skipta skal tímanum milli margra
ættingja og vina. Við þökkum
frúnni komuna og óskum henni
góðrar ferðar.
Sigríður Thorlacius.
'f'DUVANGUR
Framhald al 2 síðu
sinn, sem slíkri trú er haldið' að
landsmönnum um yfirnáttúr-
Iega forsjón ríkisstjórnar. En
nú spyrja margir, hvort Morg-
unblaðið mundi hafa skrifað
leiðara um það, ef hér hefði ver
ið illt árferði. að aflaleysi, gras-
lcysi og illviðri væri ríkis-
stjórninni að kenna. Mundi þá
hi.ifa knmið forystugrein í Morg
unblaðinu til dæmis undir nafn
inu: „Afialeysi cig illæri við-
reisnarstjórninni að ken,na“.
Þessu ættu Morgunblaðsrit-
stjórar að velta fyrir sér stund-
arkom.
Bíla- og
búvélasalan
Hefi kaupendur að litlum
dráttarvélum
Farmal Cup
Hanomac
íða Deauts
og clestum öðrum búvél-
um.
Bíla- & búvélasalan
Eskihlíð R v'Miklatorg
simi 23136
Eldflaugar
Framhald af 16. síðu.
metra, en hin minni nefnist A1
Wafer og dregur 350 kílómetra.
Þýzk kunnátta
Aðeins lítið af eldflaugahlutun-
um er framleitt í Egyptalandi.
Hitt er keypt hér og þar, aðallega
í Þýzkalandi. Þaðan koma líka
helztu eldflaugasérfræðingarnir.
Fyrst og fremst er það próf. Sang-
er frá Stuttgart, sem stjórnar rann
sóknastörfunum, síðan hann varð
að láta af embætti heima hjá sér
1961.
Vísindamenn frá Austur-Þýzka-
landi hafa einnig tekið þátt í rann
sóknastörfunum. Þar á meðal eru
þekktir menn, eins og verkfræð-
ingurinn Piltz, sem var eldsneytis
sérfræðingur Þjóðverja á stríðs-
árunum og próf. Gurke, rafeinda-
fræðingur.
Tilraunirnar fara fram við verk
fræðideild Kairo-háskóla, og mikil
áherzla hefur verið lögð á að dylja
þær sem veðurfræðilegar rann-
róknir.
Frægðarljómi
Þessar egypzku eldflaugar eru
vissulega ekki sambærilegar við
eldflaugar stórþjóðanna. En þær
eru hættulegar samt. Aðalatriðið
fyrir Nasser forseta, er þó, að vitn
eskjan um þær hefur fært Egypta
landi stóraukna virðingu meðal
ná.grannaþjóðanna og hjálpar land
inu til að vera áfrarn forustuþjóð
Arabarikjanna
Laxastlgi
Frarnhnld af 16. síðu
tveggja metra vatnsdýpi. Yfir
veggina rennur vatn, en megin
hluti þess rennur í gegnum rör,
sem eru fest í veggina, og get-
ur laxinn valið um, hvort hann
vill fara rörið eða stökkva, og
er talið að 70% þeirra muni
velja rörið.
Eins og áður segir,- er hér um
nýjung að ræða í gerð laxastiga
og hafa fróðir menn trú á
henni.
Ljósm. Tyrfingur Þórarinsson
Afallalaus
Framhald af 16 síðu.
fluttir inn yfir 500 Land-Rover af
nýrri gerðinni — gerð II — en
250 af gerð I voru fyrir.
Blaðamönnum var nú boðið í bíl
ferð og heimsóttir voru eigendur
beggja gerðanna. Þorgeir bóndi
Jónsson í Gufunesi, og þau hjón-
in Jónína Jónsdóttir, ljósmóðir, og
Lýður Skúlason, óðalsbóndi á
Keldum á Rangárvöllum. Jónína
ljósmóðir sagði. að Land-Roverinn
þeirra hefði verið í fyrstu send-
ingunni, sem kom hingað fyrir 11
árum. Síðan þau fengu hann,
hefði ekkert brotnað í honum, og
eina viðgerðin hefði verið ventla-
slípun. Honum hefur verið ekið
hátt á annað hundrað þús. kílóm.
og slitið fjórum umferðum af hjól
börðum.
GræSa á Grænlandí
Framhald af 16. síðu.
að hefjast árið 1966. Talið
' er, að hægt verði að vinna
þar um 600000 tonn af
molybden. Þörfin í heimin-
um, er sem stendur 35000
tonn á ári og mun vafalaust
aukast mikið á næstu árum.
í gær fékkst staðfesting
á þeirri fregn, að Ameríka
vill auka viðskipti sín við
Danmörku í sambandi við
hernaðarbækistöðvar þeirra
á Grænlandi. Hingað til hef
ur Danmörk selt þangað vist
ir og annað fyrir 50 millj.
króna á á.ri, en sú upphæð
hefur verið aukin upp í 125
milljónir króna á ári.
— Aðils.
Trúlofunarhringar -
Fl.lót afgreiðsla
GUDM ÞORSTEINSSON
gullsmiður
Bankastræti 12.
Simi 14007
Sendum gegn póstkröfu.
STÖOVARSTJÓRASTARF
Stöðvarstjórastarf hjá Flugfélagi íslands í Vest-
mannaeyjum er laust til umsóknar frá 1. októ-
ber n.k.
Væntanlegir umsækjendur sendi umsókn sína til
aðalskrifstofu félagsins í Reykjavík fyrir 1. sept-
ember n.k.
ICJE
flklíS F?álf
nýivm bíl
Almenna bifreiðaleigan h.f.
Hringbrm]' inc — Siuu 1513
Keflavík
AKIÐ
SJÁLF
NÝJUM BÍL
4I.M BIFREIÐALEIGAN
’* ^arstsg 40
-,.'41 13776
íþróttir
Framhald af bls. 12.
ir leikmenn: Kelly (Preston);
Dunn (Manch. Utd.); Traynor
CSouthampton); Saward (Hudders
field); Hurley (Sunderland); Mc
Grath (Blackburn); Hale (Don-
cester); Giles og Cantwell (tóanch.
Utd.); Fogarty (Sunderland) og
Tuohy (Newcastle).
TÍMINN, föstudaginn 10. ágúst 1962
13