Tíminn - 25.08.1962, Blaðsíða 9

Tíminn - 25.08.1962, Blaðsíða 9
n ^ ák/neruitfci SIGURÐUR EINARSSON, Holti: Ormur í hjarta skáldsaga úr lífi sjómanns, eftir Ragnar Þorsteinsson. Eg held, að það séu svo margir góðir lesendur á ís'landi af því að það eru svo margir rithöfundar á íslandi, menn, sem eru skáld, hugsa eins og skáld og bregðast við eins og skáld. Við hittum fæst af þeim á veitingastofunum í Reykjavík, jafnvel ekkj í rithöf- undafélögunum. Þetta fólk er úti um allar byggðir laridsins. Og ein- kenni þess er, að það á lifandi að- ild í bókmenntasköpun landsins. Sumt einvörðungu sem lesendur, njótendur og dómarar þess starfs, sem unnið er á þessum vettvangi. Það er mjög þýðingarmikið og án þess væri enginn höfundur og eng inn bókaútgefandi á íslandi. Og sumt skiifar, yrkir ljóð, segir sög- ur. Og það er lika mjög þýðingar- mikið. Einn þessara manna er Ragnar Þorsteinsson bóndi á Höfðabrekku í Mýrdal. Hann segir sögur. Hann á sjálfur merkilega sögu fjöl- breyttrar starfsævi, gerist ungur sjómaður á Vestfjörðum, vinnur sig upp í forustustöðu, gerist sigl- ingamaður og farsæll og dugandi skipstjóri á togara. Að lokinni fyrri heimsstyrjöld ræður hann skipi sínu til hlunns, selur hús sitt í Reykjavík kaupir gamalt höfuð- ból í sveiþog fer að búa. Og semja bækur. Hann segir sögur og þær eru skemmtilegar af því að hann hefur yndi af að segja frá og eys af fjölþættri lífsreynzlu. Hann tek ur þar við um frásögur af Jííi.,Qg, baráttu sjómanna, sem Theódór Friðriksson lét staðar numið. Lín- an frá Theódóri til Ragnars liggur frá hákarlaskipinu til kaupfarsins og togarans. Eg hafði mjög gaman af að lesa þessa síðustu bók Ragnars, Ormur í hjarta. Hún kom út í fyrra, en það líf sem hún lýsir er eins í ár, eins og það var þá. Þetta er hrein og útbrotalaus saga. Máske leggst hún ekki djúpt í sálfræðilegri könnum. Máske má finna á henni einhver smíðalýti, ef litið er til stílsins. En hún er Ragnar Þorsteinsson full af hraða, atburðum, reynslu, samsaltri raunhæfni þess lífs, sem sjómaðurinn lifir. Ragnar er einn ig að ná vaxandi tökum á persónu- mótum. Og samtöl hans eru víða mjög eðlileg, gripin beint út úr tali og viðræðum sjómanna. Eg furða mig stundum á þvi, hvernig Höfðabrekkubóndinn fær tíma til að skrifa, en einhvern veg; inn tekst honum það, því að ný- lega sá ég hja honpm fullgeit handrit að skáldsögu í tveim bind- um ,sem hann nefnir MorgunræSi. ,Efni þeirrar bókar fjallar um sveitalíf bæði fyrr og eftir alda- mótin síðustu og þá lyftingatíma sem þá gengu yfir þjóðlífið. Svið- ið er Skaftafellssýsla, og mun ýms- um leika forvitni á að sjá hvern- ig skipstjórinn á Höfðabrekku leysir það verkefni af hendi. Eg er ekki í vafa um, að honum tekst að segja atburðaríka sögu. Og eitt er bezt af þessu öllu. Það þarf enginn að bera ugg í brjósti um, framtíð bókmenntanna á íslandi á meðan fólkið sjálft á njótandi og skapandi aðild að þeim í þeim mæli, sem raun ber vitni. Með krafta í kjálkum Þessi aflraunamaður á heima á ísafirði, hann virðist hafa krafta í kjálk- um, að minnsta kosti, því að hann dregur flutningabílinn með því að halda dráttartauginni með tönnunum. Þetta er kunnur aflrauna- og töframaður, sem sýnt hefur víða um land. Nafn hans er Jón Bjarnason. r* Við lifum á öld tunglflauga jg geimfara. Milljörðum og aft ur milljörðum króna og dollara er varið til þess að komast kíló metra eftir kílómetra nær tungl inu, meðan mikill hluti mann kyns sveltur heilu hungri ár eftir ár, og milljónir manna og barna skortir skóla, þar sem hægt er að læra að þekkja staf ina, svo unnt sé að lesa, þótt Þáttur kirkjunnar tw. i jr i' i,ni,<mm—aawa—i eru auðmýkri, þeir vita, að ekkert er stöðugt, bak við eina uppgötvun liggur önnur“. „Hin gamla heimsmynd er dauð — en maðurinn — mann eskjan — er þar enn — og sál mqnnsins má ekki gleymast". Það sem ægilegast var í þessu erindi, var sú fullyrðing, sem virðist þó liggja nærri að trúa, að vélvæðingin öll leiðir af sér sálarmorð. Til er fólk, sem getur lifað Tunglflaugar og taugaveiklun ekki væri nema nöfn frægustu geimfaranna. Allt hið ytra gagntekur þá, sem mestu ráða í veröldinni og kapphlaup um herbúnað og geimferðir sýnast ætla að verða brjálæði, sem lætur allt annað gleymast meðal annars það, að við jarðarbörn höfum bæði lík ama og sál. Og þó gæti hungur sálarinnar verið enn meira en líkamans. Hún nærist lítið í köldu tómrúmi geimsins, og fá- tæklegum lýsingum geimfar- anna, sem flestir virðast, koma tómir úr tóminu. Ég las nýlega útdrátt úr at- hyglisverðu erindi eftir norræn an höfund, þetta erindi nefnir hann: „Höfum við eignazt nýja heimsmynd?“ — „Já, það hlýt- ur að vera“, segir hann, „það segja blaðamennirnir o,g vísind in okkur. Með hinum gífurlegu uppgötvunum kjarnorkuvísind- anna er hinni gömlu heims- mynd umbreytt algjörlega. Hún er ekki framar til. Og mesti munurinn á vísindamönnum fortíðar og nútíðar er sá, að hinir fyrrnefndu voru svo viss- ir í fullyrðingum sínum. Þeir töluðu um hinn vísindalega grundvöll sem eitthVað fast og ákveðið, visindamenn nútímans svo langa ævi, að ekki fæðist ein einasta hugsun í vitund þess. Allar tómstundir eru fylltar með utanaðkomandi vél- rænum áhrifum frá kvikmynd- um, sjónvarpi, útvarpi, jass- gargi og öskrum, sem kölluð er músik. Hávaði, glaumur hrek- ur brott hverja hugsun, jafnvel hverja tilfinningu. Þetta fólk kemst ekki í snertingu við neitt annað. Allt hið efnislega" og lík- amlega er tignað og tilbeðið í orðum, myndum og tómum. — Sálin, sem geymist eða dylst í öllum þessum vélræna glaumi, gleymist algjörlega. „En að hvaða gagni verður það manninum, þótt hann eign- ist allan heiminn, ef hann týnir sál sinni, tilfinningum, vilja- krafti, hugsun, jafnvel skynj- un?“ Þessi spurning verður oft í huga, þegar komið er inn í hús og heimili, þar sem öll lífsins þægindi og vélar blasa við, og útvarpið glymur um allar stof- ur, en í einhverju horninu ligg- ur örþreytt og upþgefin mann- eskja, maður eða kona útgrát- in, svefnvana, hamingjusnauð, maðurinn eða konan, sem eiga allt þetta eru húsbændur í fal- legu stofunrii og frábæra eldhús inu, en eru svo þarna öllu firrt. nema síðasta iífsmarkinu, eru svokölluð „titrandi taugahrúga“ með logandi sígarettu milli tærðra fingra. Hvað gagnar það, þótt mann- leg vizka nái á sitt vald öllum kröftum og öflum efnisins að kjarnorkunni meðtalinni, ef svo verður að bæta fyrir það með sál sinni og lífshamingju? Allt annað, þar með talið tunglflaugar og geimfarir, verð ur lítils virði, geti það ekki gagnað þessum sígilda miðdepli mannlegrar tilveru, manneskj- unni — mannssálinni sjálfri, veitt henni frið og jafnvægi, sælu eða gleði. í öllum þessum hræðilega hávaða, sem verkar á viðkvæm ar sálir, eins og froststormur á blómsturbeð, má ekki gleyma gildi kyrrðar og þagnar. Við verðum að leita innar — eignast innsæi til djúpsins í okkar eigin vitund. Ef við gleymum „hjartanu", tendrast aldrei sá logi á,star“, sem vek ur vor mannlífs til áhrifa með öllum þess undrum og unaði. Þá finnum við heldur aldrei þá ábyrgð, sem alltaf þarf að efla í samfylgd með öðrum, sem eru á veginum með okkur. Við erum ekki aðeins áhorf- endur að heimsmyndinni, við erum fyrst og fremst þátttak endur, hluti af heiminum, og við þurfum að efla kraftana til að skapa og móta bæði eigin persónuleika og umhverfi. Þann ig finnum við tilgang lífsins á hverjum degi, annars er öllu glatað og það, sem átti að veita unað og þægindi, verður til þrauta, þjáninga og kvalar. I kyrrð, samræmi, trúrækni og lotningarfullri auðmýkt gagnvart skapara og sköpunar verki, getum við fundið tilgang lifsins, og hlaðizt þeim krafti, sem þarf til að breyta öllu böli Framhald á bls 13 ’SBI HELGI VALTÝSSON: í Þömngur’ og starf hans „Þörungur" og starf hans Það gladdi mig að frétta af starfi „Þörungs" og framtíðar- áformum þess þarfa og góða fyrirtækis í grein í „Tímanum“ s.l. sunnudag 19. ág. Ég minnt- ist þess ósjálfrátt, hve það gladdi mig, er ég frétti fyrst af þessu starfi fyrir um þrem- ur árum, og rifjaðist þá upp fyrir mér það. sem mér var kunnugt og hugleikið síðan skömmu eftir aldamót, hvílíkur fjársjóður felst á fjörum og flúðum og flæðiskerjum Stokks eyrar og Eyrarbakka, langa vegu með landi fram! Og þetta var eitt þeirra málefna, sem ég jjj hafði verið að klifa á í ræðu og riti, þegar ég vpr kennari Flensborgarskóla i Hafnarfirði 1907—13. Ég var þá haldinn þeirri ástríðu að brýna fyrir löndum mínum sem allra flest af því, er ég hafði séð og kynnzt erlendis og auðvelt var i fram- kvæmd, og skilyrði hér heima engu síðri en erlendis, og sum jafnvel töluvert betri! Þá var aðallega um „þang- brennslu" að ræða, og víst að- eins joð unnið úr öskunni. — En á þeim árum vildu Hafn- firð'ingar ekki hlusta á „Þang- brands“-ræður mínar, þótt öðr- um væri harla vel tekið. — Og | síðan hefi ég margreynt, að oft |j tekur allmörg ár og áratugi að ýta -úr vör jafnvel tiltölulega smávægilegum framkvæmdum. — Og þvi sé heill og heiður þeim „Þörungs“-frumherjum syðra! Nú býst ég við, að Rannsókn arráð Háskólans hafi í fórum sínum efnagreiningu helztu teg unda hérlendra þörunga, og ef til vill nákvæma skilgreining á næringar- og heilbrigðisgildi ýmissa þeirra efna, sem í þeim dyljast. í Noregi hafa „þang- töblur“ fengizt í lyfjabúðum og víðar síðustu árin. Hér heima voru söl mjög notuð til mann- eldis á' hallæristímum og ella um ár og aldir, og þari óunn- inn notaður til áburðar. Um næringargildi ýmissa þangtegunda í Hellisfjöru heima, þar sem brimgarðurinn hélt tveggja mannhæða háu „þarabrúkinu" síhreyfðu, hefði ekki þurft að spyrja 4—6 vetra sauðina hans pabba og afa. Þeir sýndu það sjálfir! Þeir „báru höfuð og herðar" yfir allan sauðahópinn í haustréttum og „stóðu sín 200 pund hver með prýði“. Enda sögðu bændurnir á innri bæjunum, að það „væri ekkert að þakka Ness-sauðun- um“, þótt væru vænir, þeir sem hefðu bæði hlíðina og Hellis- fjöruna allan veturinn! Sauðunum sjálfum var þetta líka full-ljóst. Komið gat fyrir að sumarlagi, að Forystu-Blesi kom rásandi með lífvörð sinn (um 20 elztu sauðina) langa vegu ofan af afréttum og hélt beina leið ofan í Hellisfjöru. Þar notaði hópurinn tímann vei 2—3 klukkustundir, tifuðu síð- an upp á Bakkann og lögðust þar til hvíldar framundir kvöld- ið. Þá reis Blesi á fætur og ýtti við Móra, sem næstur hon- um gekk, og risu þá upp allir hinir og skipuðu sér í rétta röð á eftir Blesa og hurfu til fjalls á ný. —En þetta er önnur saga — og merkileg! Nýskeð las ég í norskum frétt um, að „Þangbrandar“ Noregs hefðu haldið ársfund sinn í Kristjánssundi á Norðmæri. — Ársskýrsla þeirra birti, að út- flutningum þangmjöls í fyrra hafði numið 11.400 tonnum, og var það 2000 tonnum meira en árið áður. Enn er Vestur-Þýzka land aðalkaupandi þangmjöls Norðmanna, en þó höfðu fimm faldazt kaup Hollendinga, Fast- ir kaupendur eru m.a. Bretar og Norður-írar, en alls senda Norðmenn þangmjöl sitt til 23 landa víðsvegar um heim. Á fundi þessum var m.a. rætt um skipulagða sameiginlega sölu á Þangmjöli. TÍMINN, laugardaginn 23. ágúst 1962 a

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.