Tíminn - 18.11.1962, Page 8
T I M I N N, sunnudaginn 18. nóvember 1962.
Höfundur þessa nýja barna-
leikrits Thorbjörn Egner, er að
ryðja sér til rúms sem einn vin-
sælasti höfundur Norðurlanda á
sínu sviði og ýmsir þykjast sjá í
honum nýjan H. C. Andersen,
enda eru þeir ekki með öllu ólík-
ir. Fyrsta ieikritig sem sýnt var
eftir þennan norska höfund var
.,Kardimommubærinn“, sem varð
eitt mest sótta leikrit, sem hér
hefur verið sett á svið. Eins og
Andersen iætur Egner ævintýr-
in levna á sér og lýsa mannlegum
veruleika.
Hvert dýr 1 leiknum er fulltrúi
ákveðinnar manngerðar eða stétt-
ar og vandamál þeirra eru hin
eilífu vandamál mannfólksins: Að
lifa í friði, 'og reyna að hindra að
hinir stærri étf hina minni!
En ólíkt því sem gerist í hinum
gömlu æviniýrum, þar sem þrjót-
urinn er alger þrjótur og hetjan
fullkomin, þá eru dýrin hjá Egner
hvorki vond eð'a góð. Refurinn er
bæðj fantur og dýrlingur. „Lilli
klifurmús“ bæði snillingur og
sníkjudýr. „Bangsapabbi“ bæði
sterkur og gagnslaus.
Thorbjörn Egner er því maður
hins nýja tíma og verk hans góð-
ar bókmenntir á sínu sviði. En
Egner hefur ekki. einungis samið
sjálft leikriíið' heldur einnig ljóð-
in og tónlistina og teiknað leik-
tjöld og búmnga, sem eru ein hin
íburðarmestu sem hér hafa sézt.
Leikstjórinn Klemenz Jónsson
hefur unnið verk sitt með ágætum
og tekizt ag gæða leikritið lífi
og blæ veruleikans og ævintýrs-
ins, enda má segja að' hér sé val-
inn maður í hverju rúmi. Snilling-
urinn Árni Tryggvason leikur
„Lilla klifurmús" með miklum
ágætum og samleikur þeirra Bald-
vins Halldórssonar var prýðileg-
ur. Nína Sveinsdóttir lék „Ömmu
skógarmús" en En>elía Jónasdótt-
ir og Jón Sigurbjörnsson „Bangsa
mömmu“ og „Bangsapabba". Jón
var sérstaklega góður í sínu
gervi.
„Mikki refur“ Bessi Bjarnason
vakti gífurlegan fögnuð enda er
Bessi framúrskarandi góður í leik
sínum. Sama er ag segja um leik
Ævars Kvaran „Hérastubbur bak-
ari“. Að'rir sem fara með hlutverk
í þessu leilcríti eru Jóhann Páls-
;on „Elgurinn", Þorgrímur Ein-
arsson ,.Kráku-Pétur“, Klemenz
Jónsson „Patti broddgöltur", Gísli
Alferðsson „Bakaradrengur", Lár-
us Ingólfsson „Maðurinn", Anna
Guðmundsdóttir „Konan“, Arnar
Jónsson „hundurinn Habakúk",
Margrét Guðmundsdóttir „húsa-
músin“ Kjartan Friðsteinsson
„Bangsi litli“ Sverrir Guðmunds-
, Ur,lan“ og Þórarinn Eldjárn,
Björn Thors og Guðrún Antons-
dóttir, sem 'éku íkornabörn.
Þá má heldur ekki gleyma
„gestum skógarins", sem dönsuðu
undir stjórn ballettmeistarans
Elisabeth Hodghson og stóðu sig
prýðilega. Með þessi hlutverk
fóru: Ásta Hrólfsdóttir, Dagný
Guðmundsdóttir, Hrefna Birgis-
dóttir, Kristin Bjarnadóttir, Vig-
dís Magnúsdóttir, Arnheiður Ró-
bertsdóttir, Hannes M. Stephen-
sen, Henny Hermannsdóttir, Pét-
ur Guðmundsson, Helga Stefáns-
dóttir, Margrét Hallgrímsson,
María Sveinsdóttir, Pálína M.
Jónsdóttir. Guðrún Magnúsdóttir,
Leifur fvarsson, Baldvin M. Gren-
dal. Haraldur Hauksson. Oktavía
Stefánsdóttir, Lovísa Fjeldsted
og Helga Sveinsdóttir.
Þýð'ingu leiksins gerðu Hulda
Valtýsdóttir og Kristján frá Djúpa-
læk. Bæði leikritið og Ijóðin eru
þýdd á gott og lipurt mál. — Tón-
listarflutning annast sjö hljóð-
færaleikarar úr Sinfóníuhljóm-
sveitinni undir stjórn Carl
Billichs.
Ekki þarf ag efast um að þetta
ágæta verk verður vinsælt og vel
þegið af yngstu borgurunum engu
síður en „Kardimommubærinn" á
sínum tíma. Hið nýja barnaleik-
rit Þjóðleikhússins „Dýrin í Hálsa-
skógi“ stendur hinu fyrrnefnda á
engan hátt að baki.
Gunnar Dal.
Bessi Bjarnason og Árni Tryggvason í hlutverkum sínum.
Sovétmeistarinn í ár, Boris Spas
sky, tefldi á 3ja borði fyrir land
sitt á Ólympíuskákmótinu í Varna
og var þar einn aðalmáttarstólpi
liðsins. Spassky er ein skærasta
stjarnan á skákhimninum um
þessar mundir og er álit margra,
að ekki líði á löngu, þar til hon-
um hefur tekizt að klífa hina mjög
svo torsóttu leið að hásæti heims-
| meistarans. í rauninni er undar-
legt, þegar tekið er tillit til styrk-
leika Spasskys, að hann skulj ekki
hafa látið að sér kveða í barált-
unni um heimsmeistaratitilinn á
undanförnum árum, en sannleik-
urinn er sá, að hann hefur verið
| mesti óhappafugl og aldrei tekizt
j að vinna sér réttindi, þegar þess
var þörf. Meistaramót S.ovétríkj-
j anna gilda nefnilega sem úrtöku-
mót fyrir heimsmeisiarakeppnina
j þriðja hvert ár og einmitt á þess-
j um úrtökumótum hefur Spassky
brugðizt bogalistin. En þess er
varla langt að biða, að honum
tekst að yfirvinna þessa hindrun
og verður þá gaman að fylgjast
með, hvernig honum reiðir af j
j hinni hatrömmu barátlu um
j heimsmeistaratitilinn Ekki ætla
; ég að hafa uppi neinar spar im
j það, en vil nú gefa lesendum kost
á að kynnast skákstíl >passkys
að eigtn raun. Skákirnar eru tefld
ar á Ólympíumótinu í Varna.
5. umferð undanúrslitanna
Sovétríkin — V-Þýzkaland
Hv.: Spassky Sv.: Darga
Sikileyjarvörn
I. e4, c5 2. Rf3, Rc6 3. d4, cxd4
4. Rxd4, e6 5. Rc3, Dc7. (Af slík-
um leikjum mótast taflmennskan
í dag. Hvítur gæti nú unnið leik
hér með því að leika 6. Rdb5, því
að svarta drottningin yrði þá að
hörfa til b8. Ávinningurinn er
hins vegar enginn, því að hvítur
myndi síðar neyðast til að hörfa
með riddara sinn aftur til baka
eftir — a7—a6, sem er ávallt lyk-
illeikur í þessu varnarkerfi sv.).
6. Be3, a6. (Sbr. athugasemd að
framan).
7. a3, b5. (Ef til vill er örugg-
ari leið 7. —, Rf6 8. Be2, Bd6! 9.
Dd2, Rxd4 10. Bxd4. Bf4 11. Dd3,
e5 12. Be3. Bxe3 13 Dxe3, d6 og
svartur hefur jafnað taílið. Þann
ig tefldu þeir Keres og Tal á síð-
asta Áskorendamóti).
8. Be2, Bb7 9. f4, Rf6 10 Bf3
(Hviti er nauðsynlegt að ná góðu
valdi á miðboiðinu. áður en hann
hrókerar. Vafasamt værj hér t. d.
10. 0—0 vegna svarsins — Bc5.
Svartur stendur þá vel og hótar
m.a. 11 —, D’þ6).
10. —, d6. (Eina ráðið til að
mæta hótuninni e4—e5)
II. 0—0, R.a5? (Eins og hvítur
sýnir nú fram a með nokkrum
hnitmiðuðum leikjum, þá er þessi
leikur upphafið að öllum erfið-
leikum svarts. Öruggara og betra
var hér 11, —, Be7 eða jafnvel —,
Rxd4 12. Bxd4, e5 13. Be3, Be7).
12. De2, Rc4. (Riddarinn er nú
vel staðsettur, en það sama gildir
ekki um svarta kónginn).
13. e5!, Rxe3. (Annað virðist
vart koma til greina fyrir svart.
T.d. mundi 13 —, dxe5 stranda á
14. Rdxb5, axb5 15. Rxb5, Dc8
16. Bxb7, Dxb7 17. Dxc4 o.s.frv.).
14. Dxe3, dxe5 15. dxe5, Rd7
16. Bxb7, Dxb7 17. Df4. (Nú kem-
ur berlega í ljós, að svartur á við
mikla örðugleika að stríða vegna
hinnar viðsjárverðu kóngsstöðu
sinnar).
17. —, Rb6 18. Hadl, Ra4. (18.
—, Bc5 gengur ekki strax vegna
19. Re4, Bxd4 20. Hxd4, 0—0 21.
Rf6f og hvítur vinnur, eins og les-
endur geta sannfært sig um. Það
er því skiljanlegt, að svartur reyni
að losa sig fyrst' við hinn hættu-
lega drottriingarriddara hvíts).
19. Rxa4, bxa4 20. Khl. (Áður
en hvítur hefst handa losar hann
sig úr allri skákhættu).
20. —, Bc5. (Loksins er svartur
reiðubúinn til að hrókera, en þá
er það bara of seint).
21. Rxe6! (Á réttu augnabliki).
21. —, fxe6 22. Dxa4f, Db5 23.
Framh. á 15. síðu
Ævar Kvaran, Gísli Alfreðsson og hérabörn.
Friðrik Olafsson skrifar um
Spassky í vígahug
ÞJOÐLEIKHUSIÐ:
DYRIN I HALSASK0GI
Höfundur:
Thorbjörn Enger
Leikstjóri:
Klemenz Jónsson
*