Tíminn - 18.11.1962, Síða 15

Tíminn - 18.11.1962, Síða 15
SEXTUGUR: Jdhann Gunnar Dlafsson Jóhann Gunnar Ólafsson sýslu- maður og bæjarfógeti á ísafirði, er sextugur á morgun. Hann er fæddur í Vík í Mýrdal 19. nóv. 1902. Foreidrar hans voru, Ólaf- ur Arinbjarnarson bókari, síðar verzlunarstjóri í Borgarnesi og síðast í Vestmannaeyjum, d. 1913 og kona hans Sigríður Eyþórs-! dóttir (kaupmanns Felixsonar) d. 1942. Faðir' hans var af nafnkunnr; útvegsbændaætt úr Njarðvíkum syðra, en Sigríður móðir hans í kvænlegg komin af Ásgrími Hellna presti Vigfússyni og er Jóh. Gunn- ar sjötti maður frá þeim kunna klerki. Jóh. Gunnar réðst ungur til langskólanáms, varð stúdent 1923 og lauk lögfræðiprófi 1927. Gerð- ist hann þegar, að prófi loknu full- trúi sýslumannsins í Norður- Múla sýslu, en flutti árið eftir til Vest- mannaeyja og fékkst þar við lög- fræðistörf næstu árin. Árið 1930 var hann kosinn bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum og gegndi því starfi til 1. marz 1938, hóf þá aftur lög- fræðistörf og sinnti um skeig störf um í Útvegsbankanum í Eyjum. Árið 1940 varð hann fulltrúi sýslu mannsins í Gullbringu- og Kjósar- sýslu og bæjarfógetans í Hafnar- íirði, Bergs Jónssonar. Hinn 2. sept 1943 var hann síðan skipaður sýslumaður í ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á ísafirði og hefur gegnt því embætti síðan. Er hann nú að vei'ð'a metmaður að embætt- isaldri hér, því sýslumannsskipti hafa lengstum verið hér nokkuð tíð. Stefán Bjarnarson lengst tæp 20 ár, þá Magnús í 17 ár. Jóh. Gunnar hefir verið vinsæll embættismaður og einkum mun fjárstjórn embætta hans hafa farið honum vel úr hendi. Embættis- ferill hans hefir yfirleitt verið' hinn farsælasti. Áhuga hefir hann sýnt í ýmsum framfaramálum sýsln anna og notið þar trausts og vin- sælda. En þag eru þó ekki fyrst og fremst embættisstörfin, sem gert hafa hann þjóðkunnan,, heldur fræðimennska hans og ritstörf. Það mun snemma hafa komið í ljós, að hann hafði ríkan áhuga íyrir sagnfræði og fræðimennsku og var gæddur góðum hæfileikum á því sviði. Hefir hann síðan, sam íara önnum í umfangsmiklum em- . bættum, jafnt og þétt starfað að fræðiiðkunum og liggja eftir hann mörg og merk ritverk á því sviði. í Vestmannaeyjum hóf hann að lita um ýmsa þætti úr sögu Eyj- anna, sem sumir hafa komið út í sérstökum bókum, aðrir birzt á prenti í ýmsum tímaritum. Hann er aðalhöfundur Vestmannaeyja- lýsingar í Arbók Ferðafélagsins 1948, skilmerkilegri og vel ritaðri. Um bátaábyrgðarfélagið þar skrif aði hann einnig bók, svo og um hafnargerðina í Eyjum. Minningu góðskáldsins Sigurð'ar Breiðfjörðs hefir hann gert góð skil. Síðast sá hann um útgáfu á ævisögu hans eftir Gísla Konráðsson og lét prenta hér á ísafirði. í tímaritum vorum hafa birzt eftir hann ýms- ar merkar ntgerðir. Meðal annars í Skírni um fræðimanninn Magnús digra í Vigur. í ritið Helgafell hef- ir hann og samið fróðlegan þátt um óbótamál Jóns Hreggviðssonar d Rein, en það mál er, svo sem kunnugt er, uppistaða íslands- klukku Halldórs Kiljans Laxness. Þá var hann einn af stofnendum Sögufélags ísfirðinga, hefir ávallt verið formaður félagsins og skrif- að sitt af hverju í Ársrit þess. Enn nefni ég hér bækling hans, er hann nefnir: „Pési um bækur og bókamenn“ og er afmælisrit, tileinkað bókasafnaranum Ragn- cri H. Ragnar, sem sýnir alhliða bókmenntaþekkingu hans. Er bæk- lingurinn líka mætavel ritaður. Er hér aðeins drepið á nokkuð af ritgerðum hans og af handahófi. Margt hefir hann líka skrifað í blöðin um þessi efni. Síðast er svo í þessu sambandi, að geta um mikilvægan þátt hans >. stofnun Byggðasafns Vestfjarða. Samtök höfðu að vísu hafizt áð- ur um ag koma slíku safni á stofn, en ekki orðið úr framkvæmdum. Jóh. Gunnar tók málið föítum tök um. Fékk hann sýslufélög Norður- og Vestur-ísafjarðarsýslu, ásamt ísafjarðarbæ, til þess ag samein- ast um málið. Svo ánafnaði lista- maðurinn Guðmundur frá Mosdal Byggðasafninu húseign sína eftir sinn dag og öðlaðist safnið við það styrkan fjárhagslegan grundvöll. Hefur Jóhann Gunnar síðan verið formaður Byggðasafnsstjórnarinn- ar, forsjá þess og öflun mun hvíla algerlega í hans höndum. Hef ir hann að vísu notið mikilvægrar aðstoðar Ragnars Ásgeirssonar ráðunauts við söfnun munanna og uppsetningu þeirra. Frábær elja og natni Jóh. Gunnars í þessu efni, verður seint ofmetin. Að því, sem hér er drepið á má sjá, að Jóh. Gunnar notar frístund- ir sínar af kostgæfni til starfa, sem varpa Ijósi á fortíðina og bera birtu inn í framtíðina. Ekki er hann þó neinn einhliða fortíðar dýrkandi, kann vel að greina miUi ófullkomleikans í fari forfeðr- anna og þess, sem vel hefir tekizt og stefnt í rétta átt. Jóh. Gunnar hefir tekið talsverð an þátt í ýmiss konar félagsskap á ísafirði, sem hér verður ekki get- ið nánar. Hann er afkastamaður við embættisstörfin, er hann sinn- ir þeim og skjótur til afgreiðslu .iafnan. Viðmótsgóður er hann og gerir sér engan mannamun í umgengni vig fólk. Hann sýnist yfirleitt ekki vera í önnum, en af- kastar þó oft miklu starfi. Við fræðaiðkanir sínar sparar hann ekk; fyrirhöfn við að komast að, sem heppilegastri niðurstöðu í dómum um menn og málefni, með iestri gamalia skjala í Þjóðskjala- safni og Landsbókasafni, er hann má því við koma. Er hann líka fús til þess að miðla af þeim fróðleik sinum vig þá. er leita hans. Hann er frábitinn pólitískum flokka- rieilum og lætur sig orrahríð lands- málaflokkanna litlu skipta. Veit þé gjörla hvað fram fer á lands- inálasviðinu og ræðir um menn og málefni á þeim vettvangi af hisp- ursleysi, þegar svo ber undir. Jóh. Gunnar kvæntist 2. marz 1929 Rögnu Haraldsdóttur, (trésmiðs Sigurðssonar úr Vestm.eyjum). góðri konu og myndarlegri húsmóg ur, sem búið hefur manni sínum smekklegt og viðfelldið heimili. Þykir gestum þar gott að koma. Eru fjórir synir þeirra á lífi: Ólaf- ur verkfræðingur, Gunnar Örn vélfræðingur, hefur stundað nám í Þýzkalandi, Hilmar og Krist inn. Næst yngsti sonur þeirra, Reynir, lézt af slysförum nokkru eftir að þau hjón fluttu hingað til bæjarins. Jafnframt og ég flyt Jóh. Gunn- ari Ólafssyni þakkir fyrir þægilegt samstarf, góða fræðslu og ýmsar gagnlegar bendingar um menn og málefni fyrri tíma, vil ég bera fram þá ósk, að ísfirð'ingar megi sem lengst njóta starfs hans í em- bættisstörfum, sagnfræðiiðkunum og að menningarmálum þessa hér- aðs yfirleitt. Kristján Jónsson frá Garðsstöðum Skrifað og skrafaö Framhald af 6. síðu er mestu varðar, að tryggja áfram eðlilega verzlun og við skipti við lönd Efnahags- bandalagsins. Á þeim grund- velli geti haldist góð og traust sambúg við þjóðir V- Evrópu. Hins vegar getur sjálf stæðinu verið stefnt í meiri eða minni hættu, ef aukaað- ildarleiðin sé farin, og ísland geti verið orðin hluti í nýju stóru ríki áður en menn viti af. Reynsla smáþjóðanna hef- ur sýnt, að þeim er ekki holt að vera hluti í stóru ríki. — Hlutur þeirra er þá oftast á marean hátt fyrir borö borin. Þessari reynslu ættu íslend- ingar ekki að hafa gleymt. Það er sjálfstæöið, sem hefur gefist smáþjóðunum bezt. Þess vegna eru margar smá- þjóðir í röð hinna fremstu í heiminum, hvað snertir góð lífskjör, menningu og far- sæla stjórnarhætti. Hin smáu þjóðfélög virðast einmitt kalla betur fram manndóm og framtak einstaklinganna en hin stóru þjóðfélög. Þess vegna ber Íslendingum að hugsa sig vel um áður en þeir gerast hluti af stóru ríki í annað sinn. Þetta hefur ráðið afstöðu Framsóknarflokksins til þeirra tveggja liða, sem um er að ræða. Þetta þurfa ís- lendingar vel að íhuga. Af- stöðuna til hinna tveggja leiða má vel marka, þótt beð ið sé átekta með samninga vig EBE, því aðeins verða þeir samningar líka farsællega teknir upp, þegar þar að kem ur, að íslendingar viti þá vel, hvað þeir vilja. sem veitt hefur skrifstofunni for- stöðu, lætur nú af þeim störfum og voru honum færðar sérstakar þakkir fyrir mikil og vel unnin störf. Hjörtur Hjartar, gjaldkeri full- trúaráðsins las og skýrði reikn- inga þess og félagsheimilisins fyr ir sl. ár og voru þeir samþykktir. Þórarinn Sigurðsson flutti og er- indi um störf skrifstofunnar og fyr irkomulag félagsstarfs í bænum. Síðan fór fram stjórnarkosning; var Kristján Benediktsson endur- kjörinn formaður, en varaformað ur Kristján Þorsteinsson. Með- stjórnendur Guðrún Heiðberg, Ey- steinn Jóhannsson og Hörður Helgason. í varastjórn voru kosn ir Jón A. Ólafsson, Hannes Páls- son frá Undirfelli, Kristján Friðr- iksson, Markús Stefánsson og Hrólfur Halldórsson. Einnig var kosið í ýmsar aðrar nefndir. Fundurinn var fjölmennur. — Félagsstarf Framsóknarmanna í Reykjavík er nú í 'senn þróttmik- ið og fjörugt. Aflinn jókst Framhald af 16. síðu inn. Heildarafli togaranna á þess- um tíma í ár var 22.480 lestir, en í fyrra 53.274 lestir. Mismunur- inn er 30.794 lestir, og þarf ekki að sökum að spyrja, af hverju það stafar. Rækjuveiðin hefur dregizt saman, en humarveiði stóraukizt. í ár veiddust 2274 lest- ir af humar, en í fyrra 1409 lestir. ireiöasala st/ Kjörinn formaöur Framhald af 16. síðu í kjöri. Kristján benti einnig á það, að hefðu borgarstjórnarkosn- ingarnar í vor verið alþingiskosn- ingar, hefði Framsóknarflokkinn aðeins vantað 97 atkvæði til þess að fá tvo þingmenn kjörna. Skor- aði hann á flokksmenn að vinna nú vel og ötullega og láta það ekki koma fyrir, að þessi 97 at- kvæði vantaði við alþingiskosning arnar á næsta vori. Kristján þakkaði einnig þeim, sem unnið hefðu á skrifstofu full- trúaráðsins og öllum þeim mörgu, sem lagt hefðu fram mikil sjálf- boðastörf. Þórarinn Sigurðsson, Laugavegi 146 — Sími 11025 Seljum f dag: Chevrolet ’60. Impala, einka- bíll, lítið ekinn. Merredes-Benz 220 ’55, einka- bíl; sérlega vel með farinn. Volvo PV-444 ’54; fæst á hag- stæðu verði. Volkswagen 1958, ekinn 40 þús. km. — Helmingur kaup- verðs fengist greiddur með fast eignatryggðum veðskuldabréf- um eða ríkistryggðum útdráttar bréfum. Vörubifreiðir Ford ’54 með ámoksturskrana stálpalli og öllum nýjum dekkj um. Austin, dieselbifreig ’61, mjög lítið ekinn Fengist gegn góðum tryggingum með einstaklega góðum kiörum. RÖST hefir góðar bifreíðir og góða kaupendur. Höfum kaupendur að nýjum og nýlegum bifreiðum. Bifreiðaeigendur: Látið RÖST annast sölu bif reiðar vðar. RÖ S T S. F. Laugavegi 146 — Simi 11025 75 ára Framhald af 13. síðu. braut 13 og hylla afmælisbarniff er það hálfnar áttræðistuginn. Að lokum færi ég Hallgrími mínar beztu heillaóskir um leið og ég lýk þessu spjalli og segi: ,,Þú hefur ötull ævipund afhent þínu landi. Yfir þinni léttu lund leiftrar manndónisandi. Bjarni ívarsson. Skák Frainhald af 8. síðu. »g4, Dc6 24. Dxg7, Hf8 25. HxHf BxH 26. Dxh7, Hc8. (Svartur var alla vega glataður). 27. Dg6f. Og svartur gafst upp hér. Eftir 27. —, Ke7, vinnur hvítur með 28. HdG. Seinni skákin birtist hér að mestu leyti skýringalaus, enda er atburðarásin f henni fremur auð- skilin. Andstæðingur Spasskys er bandaríski stórmeistarinn Evans og geldur hann engu minna afhroð en Darga í fyrri skákinni. Teflt í 10. umf. úrslitakeppninnar. Sovétrífein — Bandaríkin Hv..: Spassky Sv.: Evans. Kóngsindversk vörn. 1. d4, Rif6 2. c4, g6 3. Rc3, Bg7 4. e4, d6 5. f3, c6. (Öllu venju- legra er hér — 0—0 ásamt — e5, en svartur hyggst ráðast að mið- borðspeðum hvíts frá hlið). 6. Be3, a6 7. Dd2, b5 8. 0—0—0, bxc4. (Sennilega var bezt að bíða með þennan leik og leika þess í stað 8. —, Rbd7. Svartur hefur sennilega ekki varað sig á, hvað hvíti biskupinn verður sterkur á skáklínunni b3—g8). 9. —, 0—0 10. h4. (Með síðasta leik sínum gefur svartur það til kynna, að hann hræðist ekki kóngs sókn hvíts. Spassky lætur hins veg ar ekki ögra sér og beinir þegar skeytum sínum að svörtu kóngs- stöðunni). 10. —, d5 11. Bb3, dxe4 12. h5! (Hvað hafa nokkur peð að segja í slílcri stöðu!) 12. —, exf3. (Svartur ber litla virðingu fyrir aðgerðum hvíts og tekur því fegins hendi, sem að honum er rétt). 13. hxg6, hxg6 14. Bh6, fxg2. (Matarlystin er enn í góðu lagi). 15. Hh4!, Rg4. (15. -, Rh5 strandaði hér sem áður á 16. Hxh5, gxh5 17. Dg5). 16. Bxg7, Kxig7 17. Dxg2. (Hvít- ur lætur svo lítið að borða eitt peð, á meðan hann undirbýr næstu sóknarlotu). 17. —, Rh6. (17. —, Re3 strand aði á 18. Dg5). ' 18. Rf3, Rf5 19.Hh2, Dd6 20. Re5. (Kemur f veg fyrir skákina á f4). 20. —, Rd7 21. Re4, Dc7 22. Hdhl. (Úrslitin eru þegar ráðin, en svartur reynir að verjast enn nokkra leiki). 22. —, Hg8 23. Hh7f, Kf8 24. Hxf7,f Ke8 25. Dxg6!, Rxe5. 26 Hf8f og svartur gafst upp, því að hann verður mát í næsta leik. ÞAKKARÁVÖRP Mínar beztu þakkir flyt ég skyldmennum, vinum og samstarfsfólki mínu í Víði h.f., sem glöddu mig á átt- ræðisafmæli mínu 15. nóv. s.l. með heimsóknum, stór- gjöfum, blómum og mikilli vinsemd. — Bið ég Guð að blessa ykkur öll. Magnús Jónasson, Reynimel 50, Reykjavík. Utför mannsins míns, ÞORLÁKS BJÖRNSSONAR Granaskjóli 20 fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. þ. m. k!. 13,30. Anna Pétursdóttir. T f M I N N, sunnudaginn 18. nóvembcr 1962. 15

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.